Morgunblaðið - 13.07.2007, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ 2007 41
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK NÁNARI UPPLÝSINGAR
Á SAMbio.is
Evan hjálpi okkur
Guð hefur stór áform
... en Evan þarf að framkvæma þau
FRÁ LEIKSTJÓRA
BRUCE
ALMIGHTY
FÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS
HARRY POTTER 5 kl. 6 - 8 - 10 B.i. 10 ára
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
HARRY POTTER K. 6 - 9 B.i. 10 ára
EVAN ALMIGHTY kl. 8 LEYFÐ
DIE HARD 4 kl.10 B.i. 14 ára
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
SÝND
MEÐ
ÍSLEN
SKU
OG EN
SKU
TALI
"LÍFLEG SUMAR-
SKEMMTUN"
eee
L.I.B. TOPP5.IS
eee
S.V. MBL.
SHREK, FÍÓNA, ASNINN OG STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN
ERU MÆTT AFTUR Í SKEMMTLEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA.
tv - kvikmyndir.is
eee
LIB, Topp5.is
STÆRSTA
GRÍNMYND
SUMARSINS
eee
L.I.B. - TOPP5.IS
eee
H.J. - MBL
eeee
KVIKMYNDIR.IS
ÁSTIN ER BLIND
HEFURÐU UPPLIFAÐ
HIÐ FULLKOMNA
STEFNUMÓT?STEFNUMÓTAMYND SUMARSINS
WWW.SAMBIO.IS
RÉTT er að taka fram í upphafi að
undirritaður er enginn sérstakur
Harry Potter-unnandi og stendur
utan við trúarsöfnuðinn sem dýrk-
ar fyrirbrigðið og hefur gert bæk-
urnar og myndbálkinn að einum
þeim vinsælasta í sögunni og höf-
undinn, J.K. Rowling, að einum
kunnasta metsöluhöfundi samtím-
ans og svo mætti lengi telja. Fyrir
mér er hún enn ein megabrellu-
framhaldsmynd sumarsins.
Fimmta myndin um Potter
(Radcliffe) og vini hans, Ron
(Grint) og Hermione (Watson),
Fönixreglan, vísar til leynireglu
tengdrar Hogwart-galdraskól-
anum. Risin er ný öld frá því að
bálkurinn fór á flug, þá voru þre-
menningarnir innan við fermingu,
nú eru þeir farnir að kyssast. Hvað
skyldi þeim detta í hug næst?
Hvað sem því líður er Rowling bú-
in að skrúfa tappann á Potter-
flóðið, von er á sjöundu og síðustu
bókinni í sumar. Það lítur því út
fyrir að Potter-dýrkendur eigi að-
eins tvær myndir óséðar, ég mundi
samt ekki veðja á það. Sjáið hvað
teygist úr Bond.
Fönixreglan grípur mann í upp-
hafi því hún byrjar firnavel, í ill-
yrmislegum hryllingsmyndastíl,
sem stendur of stutt. Voldemort,
lávarðurinn illi (Ralph Fiennes), er
að rumska í víti sínu og kemur róti
á atburðarásina, m.a. er allt að
fara úr böndum í Hogwart-
skólanum. Galdramálaráðherrann
hefur skipað nýjan skólameistara,
frú Umbridge (Imelda Staunton),
kerfiskerlingu alvonda sem skellir
skollaeyrunum við ógninni af
Voldemort, hrekur Dumbledore
frá og tekur öll völd. Það blasir við
Potter að nú verður að bregðast
hratt og ákveðið við myrkraöfl-
unum ef ekki á illa að fara og hann
stofnar sérsveit hinna útvöldu.
Hér er allt að finna á tæknisvið-
inu sem hægt er að fá fyrir pen-
inga og aukaleikararnir eru margir
af bestu sviðs- og kvikmyndaleik-
urum Englands. Gambon, Rick-
man, Oldman, Smith, Walters, list-
inn er langur, og allt bætir þetta
hæfileikafólk innihaldið, en ástæða
til að geta Staunton (Vera Drake),
sem fær bitastæðasta hlutverkið
og smjattar á því. Sjálfsagt þykir
aðdáendum Potters mikið til Radc-
liffes koma, hann hefur breyst úr
drengstúf í frekar geðugan ungan
mann, og vafalaust erfitt að túlka
hlutverkið betur.
Því miður gerist sagan tilþrifa-
lítil þegar á líður, gamalkunnur
slagur á milli góðs og ills en í
glæsilegum umbúðum. Leiktjöldin
og búningarnir eru sláandi, sömu-
leiðis er tónlistin eftir Nicholas
Hooper svipmikil og falleg og límir
myndina saman á löngum köflum.
Kvikmyndataka (Slawomir Idziak)
og tæknivinna er að sjálfsögðu í
bestu fáanlegu höndum og það
sýnir sig. Hins vegar eru brell-
urnar misjafnar, allt frá því að
vera ósvikið augnakonfekt niður í
síendurtekin galdrasprotatrix,
stjörnuljós og flugeldasýningar
sem verða þreytandi þegar sýning-
artíminn fer að nálgast tvo tímana.
Þá skellur á áhorfendum hver
brellubylgjan á fætur annarri og
svo virðist sem það sé engin leið að
hætta. Fönixreglan er í hópi betri
Pottermyndanna, svíkur engan
aðdáanda Rawlings og á örugglega
eftir að öðlast miklar vinsældir.
Þeim sem bíða í ofvæni eftir gaml-
árskvöldi er einnig bent á að
myndin getur slakað á spennunni.
Fyrsti kossinn
KVIKMYNDIR
Sambíóin, Smárabíó
Leikstjóri: David Yates. Aðalleikarar:
Daniel Radcliffe, Emma Watson, Rupert
Grint. 138 mín. Bandaríkin 2007.
Harry Potter og Fönixreglan/Harry Potter
and the Order of the Phoenix Spennandi „Fönixreglan grípur mann í upphafi, því hún byrjar firnavel, í illyrmislegum hryllingsmyndastíl, sem
stendur of stutt,“ segir meðal annars í dómnum um Harry Potter og Fönixregluna.
Sæbjörn Valdimarsson
CATHERINE Zeta-Jones hótaði að
yfirgefa Michael Douglas ef hann
eignaðist ekki með henni börn.
Leikkonan ljóstraði því upp á
dögunum að Michael hefði beðið
hennar með orðunum: „Ég vil vera
faðir barnanna þinna.“ Katarína
gekk þó úr skugga um að í orðum
Mikjáls væri fólgin alvara.
Í viðtali við Parada-tímaritið seg-
ir hún: „Fáeinum mánuðum eftir að
við fórum að krunka okkur saman
hafði ég fallið fyrir honum. En ég
varð að fullvissa mig um eitt. Ég
sneri mér að honum og spurði:
„Viltu raunverulega eignast börn?“
Og ég hélt í eitt andartak að hann
hygðist svara með orðunum: „Ég á
son. Hann heitir Cameron.“ Þá
hefði ég þurft að segja: „Bless.“ Ég
minnist þess að mæla ögrandi: „Án
barna get ég ei lifað.“ Og hann
svaraði: „Ekki ég heldur.““
Michael og Catherine gengu í
heilagt hjónaband árið 2000, og
eiga nú tvö börn. Michael átti fyrir
28 ára son, áðurnefndan Cameron.
Reuters
Rík Leikararnir Michael Douglas
og Catherine Zeta -Jones eru rík af
peningum og börnum.
Catherine
Zeta-Jones
þrífst ekki
án barna