Morgunblaðið - 18.09.2007, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 18.09.2007, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2007 9 www.feminin.is • feminin@feminin.is Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222 Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16 Gallabuxur frá Háar í mittið Str. 36-54 Póstsendum Laugavegi 82, á horni Barónsstígs, sími 551 4473 www.lifstykkjabudin.is Saumlaust aðhald húðvænt efni allar stærðir - 3 litir Laugavegi 53, s. 552 1555 TÍSKUVAL Opið virka daga kl. 10-18, lau. kl. 11-16 Dúnúlpur stuttar og síðar og Stutt vesti Str. 36-56 Opið virka daga kl. 10-18, laugard. opið í Bæjarlind kl. 10-15 og í Eddufelli kl. 10-14 Bæjarlind 6 • sími 554 7030 Eddufelli 2 • sími 557 1730 Villeroy & Boch / kringlunni / 533 1919 MIKIÐ ÚRVAL AF GLÆSILEGUM BARNABORÐBÚNAÐIOPIÐ HÚS Í DAG GOÐHEIMAR 12 – JARÐHÆÐ M/SÉRINNG. KL.17:30–18:00 Sýnum í dag bjarta og vel skipulagða 3ja herb. íbúð á jarðhæð á frábærum stað sem býður uppá möguleika. Sérinngangur í íbúð og lítil sem engin sameign. Íbúð er: Forstofa, sjónvarpshol, stofa/borð- stofa, eldhús, herb.gangur, tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymsla og þvottaherbergi innan íbúðar. Sér verönd við hús. Frábær staðsettning. V. 26,8.- m. Sveinn Eyland gsm: 6-900-820 frá Fasteign.is verður á staðnum. SÍMI 5 900 800 Stærri og glæsilegri verslun Laugavegi 63 • S: 551 4422 SAMSON Properties býður til morgunverðarfundar í Listasafni Ís- lands á miðvikudag þar sem ræddar verða áherslur og leiðir við endur- nýjun og uppbyggingu miðborga. Jafnframt verða kynntar hugmyndir að nýjum miðborgarkjarna í Reykja- vík, þar sem horft er til framtíðar og virðing borin fyrir sögulegri sér- stöðu miðborgarinnar. „Miðbær Reykjavíkur hefur frá upphafi verið í stöðugri þróun og mótun. Um þessar mundir eru hafn- ar miklar framkvæmdir í eldri hverf- um borgarinnar og áform eru víða uppi um endurgerð og uppbyggingu húsa og svæða. Segja má að borgin standi á tímamótum sem sést á kraftmikilli opinberri umræðu um leiðir til að efla miðborg Reykjavík- ur,“ segir í fréttatilkynningu. Dagskrá fundarins hefst með morgunverði klukkan 8, en síðan flytur Björgólfur Guðmundsson, at- hafnamaður, erindi sem nefnist: Tækifæri til að skapa lifandi mið- borg. Sveinn Björnsson, fram- kvæmdastjóri Samson Properties, fjallar um fyrirtækið og áherslur í miðborg Reykjavíkur, Jan Gehl, arkitekt, aðaleigandi Gehl Partners og prófessor í skipulagsfræðum, flyt- ur erindi sem hann nefnir: Hvernig skapa má miðborg sérstöðu – mann- lífið á milli húsa. Pétur H. Ármanns- son, arkitekt, varaformaður Húsa- friðunarnefndar og stjórnarmaður í Torfusamtökunum fjallar um upp- byggingu og verndun og hvort hægt er að skapa sátt. Klukkan 9:15 hefst verkefnakynn- ing Björns Gunnlaugssonar, fram- kvæmdastjóra Fasteignaþróunar ehf., og Kim Nielsen, arkitekts og aðaleiganda 3xN í Danmörku, undir heitinu: Miðborgarkjarni í mótun. Að loknum erindum verða umræð- ur og kaffiveitingar. Fundarstjóri er Sveinn Björnsson. Áætlað er að fundinum ljúki klukkan 10. Fundur- inn er opinn öllum, enginn aðgangs- eyrir. Fundur um leiðir við endurnýjun og upp- byggingu miðborga EVRÓPSK samgönguvika hófst 16. september sl. og stendur til 22. september. Þemað að þessu sinni er „Stræti fyrir fólk“. Tilgangurinn með samgönguviku er að efla vitund almennings um samgöngur, hvaða áhrif þær hafa á umhverfi og heilsu og hvaða valkostir standa okkur til boða, segir í fréttatilkynningu. Í Hafnarfirði munu nemendur í skólum bæjarins verða m.a. fræddir um öryggismál í samgöngum og velta þeir einnig fyrir sér öruggum leiðum til og frá skóla o.fl. Þá verður málþing haldið fimmtudaginn 20. september í sam- vinnu Hafnarfjarðar og Reykjavík- ur og fer það fram í Hafnarborg kl. 20 og hefur yfirskriftina Stræti fyr- ir alla? Mælendur eru: Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráð- herra; Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar; Gísli Marteinn Bald- ursson, formaður umhverfisráðs Reykjavíkur; Lilja Sigrún Jóns- dóttir hjá Landlæknisembættinu og Ragnhildur Vigfúsdóttir, áhuga- samur borgari. Laugardaginn 22. september kl. 12 hefst hjóladagur samgönguviku en þá mun hjólalest leggja af stað frá Hafnarborg og hjóla sem leið liggur til Reykjavíkur til þátttöku í dagskrá við Ráðhús Reykjavíkur. Farið verður rólega yfir á leiðinni enda markmiðið að öll fjölskyldan taki þátt í förinni. Fyrir lestinni munu fara félagar í Hjólafélagi hafnfirskra kvenna HKK en félagið hefur vakið athygli fyrir gott og skemmtilegt starf við útbreiðslu hjólamenningar í bænum. Hjólalestin verður á ferð sem hér segir: kl. 12 er lagt af stað frá Hafn- arborg, kl. 12.45 frá Sjálandsskóla í Garðabæ, kl. 13.20 frá Gerðarsafni í Kópavogi og kl. 13.45 frá Nauthóls- vík til Ráðhúss Reykjavíkur. Við ráðhúsið tekur við dagskrá. Má þar nefna Tjarnarsprettinn sem er hjólreiðakeppni helstu hjóla- kappa landsins, sýning á hjólum af ýmsum gerðum, valdir einstakling- ar spreyta sig í hjólahermi á þekkt- um keppnisbrautum, fyrirlestrar um sögu reiðhjóla í Reykjavík o.fl. Frekari upplýsingar um evrópska samgönguviku er að finna á vefsíðu vikunnar http://www.mobilityweek- europe.org/. Samgönguvika hafin í Hafnarfirði Fáðu úrslitin send í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.