Morgunblaðið - 18.09.2007, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 18.09.2007, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Bílaland B&L, Grjóthálsi 1 - 110 Reykjavík - 575 1230. Nýlegar lúxusbifreiðar á frábærum kjörum Gott úrval lúxusbíla á einstökum kjörum í takmarkaðan tíma. Komdu núna í lúxussal Bílalands B&L og gerðu frábær kaup! Opið virka daga frá kl. 10 til 18 og á laugardögum frá kl. 12 til 16. Land Rover Range Rover Vogue Nýskr: 06/2005, 4400cc Sjálfskiptur, silfurlitaður Ekinn 51.000 þ. Verð kr. 7.950.000 Tilboð kr. 6.750.000 BMW X5 3.0i Nýskr: 12/2006, 3000cc Sjálfskiptur, dökkgrár Ekinn 10.000 þ. Verð kr. 6.450.000 Tilboð kr. 5.700.000 BMW 550i Nýskr: 8/2006, 5000cc Sjálfskiptur, dökkblár Ekinn 17.000 þ. Verð kr. 8.600.000 Tilboð kr. 7.500.000 BMW X3 2.5i Nýskr: 05/2006, 2500cc Sjálfskiptur, ljósblár Ekinn 16.000 þ. Verð kr. 5.150.000 Tilboð kr. 4.350.000 Porsche Cayenne Nýskr: 09/2004, 3200cc Sjálfskiptur, dökkblár Ekinn 44.000 þ. Verð kr. 5.600.000 Tilboð kr. 4.600.000 BMW Z4 M Coupe Nýskr: 02/2007, 3300cc beinskiptur, blár Ekinn 9.000 þ. Verð kr. 7.900.000 Tilboð kr. 6.700.000 Porsche 911 Carrera 2 (Anniversary) Nýskr: 08/2005, 3600cc beinskiptur, silfraður Ekinn 9.000 þ. Verð kr. 9.950.000 Tilboð kr. 9.000.000 BMW 330ix - 4x4 Nýskr: 05/2006, 3000cc Sjálfskiptur, dökkgrár Ekinn 13.000 þ. Verð kr. 5.500.000 Tilboð kr. 4.750.000 Gott úrval á staðnum. Komdu í heimsókn til okkar að Grjóthálsi 1. ÚTGÁFA starfsleyfis vegna skot- íþróttavalla Skotfélags Reykjavíkur í Álfsnesi á Kjalarnesi er nú til skoð- unar hjá Heilbrigðiseftirliti Reykja- víkur og má vænta niðurstöðu fljót- lega, að sögn Lúðvíks Gústafssonar deildarstjóra. Tvö félög hafa fengið aðstöðu til skotæfinga í Álfsnesi. Skotveiðifélag Reykjavíkur og ná- grennis (Skotreyn) fékk starfsleyfi 2005 og hóf þá starfsemi á svæðinu. SR fékk einnig úthlutað landi á Álfs- nesi undir íþróttaskotvelli fyrir haglabyssu- og riffilgreinar. SR lagði inn umsókn um starfsleyfi fyrir sitt svæði á liðnu sumri. Starfsleyfið hefur ekki verið gefið út en SR feng- ið undanþágur undanfarið til að halda skotvopnanámskeið og eins til að halda Íslandsmótið í Skeet. Tvennt hefur einkum valdið seinkun útgáfu starfsleyfisins, að sögn Lúð- víks. Annars vegna aðgerðir gegn mögulegri blýmengun og hins vegar kvartanir vegna hávaða. Blývarnir og kvartanir „Við gerðum sömu kröfu [til SR] og hitt skotfélagið gekkst undir. Að þarna væri jarðvegur sem hægt væri að fjarlægja með tíð og tíma ef hann myndi mengast með blýhöglum,“ sagði Lúðvík. Hann sagði að svæðið fyrir framan skotvelli SR hafi verið stórgrýtt og ekki hægt að fjarlægja þaðan mögulega blýmengun nema að setja jarðveg ofan á stórgrýtið. Borist hafa undirskriftir með nöfnum um 40 Kjalnesinga sem mót- mæla skothvellum frá Álfsnesi. Lúð- vík sagði menn ekki hafa áttað sig á því fyrirfram að skothvellirnir myndu bergmála með þeim sérstaka hætti sem þeir gera í hlíðum Esj- unnar og valda ónæði. Þetta heyrist einkum í tveimur íbúðarhúsum næst Esjunni norðan Kollafjarðar. „Við erum búnir að funda með þeim skotfélagsmönnum og erum að vinna í því undir hvaða kringum- stæðum við getum veitt leyfi. Á sama tíma erum við að ræða við Skotveiði- félagið, sem hefur leyfi, um þennan hávaða og hvað þarf að gera svo þetta verði ásættanlegt,“ sagði Lúð- vík. Hann sagði að starfsmenn heil- brigðiseftirlits hefðu gert sér marg- ar ferðir að Esjurótum til að kanna hávaðann. Svo virtist m.a. að skot- stefnan skipti máli varðandi hvernig hljóð berst frá skotæfingunum. „Þetta er í fullri vinnslu og við ætlum að koma með niðurstöðu eins fljótt og við teljum okkur geta komið með faglega ákvörðun,“ sagði Lúðvík. Hilmar Á. Ragnarsson, formaður SR, sagði að nú væri búið að aka um 150 þúsund rúmmetrum af jarðvegi á svæði félagsins í Álfsnesi til að mæta kröfum heilbrigðisyfirvalda. Hann sagði kominn nægan jarðveg til að opna tvo haglabyssuvelli og riffilskotbraut, en taldi að um 50 þús- und rúmmetra vantaði á til að hægt væri að taka alla fjóra haglabyssu- vellina í notkun. Bjartsýnn á opnun svæðis SR Hvað varðar kvartanir vegna há- vaða frá skothvellum kvaðst Hilmar hafa fengið ráðgjöf verkfræðinga. Þeir telji ekki hægt að koma í veg fyrir að hvellir berist frá svæðinu. Hann sagði hljóðmengun frá skot- svæðinu vera undir viðmiðunar- mörkum. Hilmar kvaðst bjartsýnn á að starfsleyfi fengist fyrir íþrótta- skotvelli SR og sagði að nú væri ver- ið væri að ræða opnunartíma og ann- að til að draga úr mögulegu ónæði frá skotvöllunum. Kvartanir vegna hávaða seinka opnun skotvalla Morgunblaðið/ÞÖK Skotíþróttasvæði Skotfélag Reykjavíkur hefur ekki fengið starfsleyfi fyrir nýtt skotíþróttasvæði, en undanþágur m.a. til að halda Íslandsmótið í Skeet. Fáðu úrslitin send í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.