Morgunblaðið - 30.09.2007, Page 2

Morgunblaðið - 30.09.2007, Page 2
2 SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is FRAMUNDAN eru verulegar breytingar á heilbrigðiskerfinu og í orkumálum og þessar breytingar hefðu verið erfiðar eða ómögulegar í stjórnarsamstarfi annarra flokka en Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Þetta var meðal þess sem kom fram í ræðu Geirs H. Haarde forsætisráð- herra á laugardagsfundi í Valhöll í gærmorgun. „Við áttum marga kosti í vor, eins og margir muna. En við vildum ekki mynda kyrrstöðuríkisstjórn, sem var einn möguleikinn, örugglega, í stöðunni. Við vildum mynda ríkis- stjórn þar sem hægt væri að þróa samfélagið áfram og gera víðtækari breytingar í ætt við okkar stefnu en kannski hefði tekist á öllum sviðum í fyrrverandi ríkisstjórn og var líklegt í annars konar samstarfi,“ sagði hann. Mikilvægt væri að hafa í huga að núverandi ríkisstjórn ætlaði að taka til hendinni. Hann nefndi heil- brigðismálin sérstaklega. „Þar eru ótrúlega miklir möguleikar fram- undan sem Samfylkingin er tilbúin til að vera með okkur í en aðrir flokk- ar voru og hefðu ekki verið.“ Nú væri tækifæri til að greina á milli hlutverks ríkisins sem kaupanda og seljanda í heilbrigðisgeiranum og þar með gefa fleirum möguleika á að verða seljendur heilbrigðisþjónustu. Þetta væri mikilvæg breyting sem ekki væri byrjuð að sjást mjög mikið en mikið væri í pípunum. Í orkumál- um væri sömuleiðis hægt að gera breytingar í frjálsræðisátt sem ekki hefðu verið mögulegar í öðru sam- starfi. Á hinn bóginn stæði ekki til að einkavæða einokunarstarfsemi á þessu sviði. Breytingar yrðu gerðar á fleiri sviðum í samstarfi við Samfylk- inguna. Á hinn bóginn væri því ekki að leyna að það væri mikil breyting fólgin í samstarfi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar enda hefðu flokkarnir verið höfuðandstæðingar undanfarin ár. Það væri eðlilegt að það tæki tíma að finna taktinn í sam- starfinu. Samstarfið hefði gengið vel og hann gæfi ekkert fyrir samkvæm- isleiki fjölmiðla sem reyndu að ota ráðherrum í ríkisstjórninni saman. Geir kom víða við í ræðu sinni og útilokaði m.a. að Ísland tæki einhliða upp evru, án inngöngu í Evrópusam- bandið. Menn gætu í sjálfu sér siglt til Evrópu og fyllt nokkra gáma af evrum og tekið gjaldmiðilinn upp hér. Slíkt gerði hins vegar engin þró- uð þjóð nema gríðarlegir óleysanleg- ir erfiðleikar steðjuðu að henni. Verulegar breytingar á heil- brigðiskerfinu framundan Morgunblaðið/Brynjar Gauti Fundur Fjölmenni var á fundi Geirs H. Haarde forsætisráðherra með sjálfstæðismönnum í Reykjavík. Geir ræddi þar um verkefni nýrrar ríkisstjórnar.  Engin „kyrrstöðuríkisstjórn“  Núverandi stjórnarmynstur raunhæfast „ÞETTA [hjúkrunarfræðingar] er mjög góð stétt sem vinnur afskap- lega gott starf eins og aðrar heil- brigðisstéttir. Ég skil vel að þær séu áhugasamar um eigin kjör og beri sig saman við aðrar stéttir,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigð- isráðherra þegar hann er inntur eftir viðbrögðum við ákalli hjúkrunar- fræðinga um að hann beiti sér með sama hætti fyrir þá stétt og dóms- málaráðherra gerði fyrir lögreglu- menn þegar ákveðið var að starfandi lögreglumenn fengju greitt 30 þús- und króna tímabundið álag á mán- uði. Líkt og fram hefur komið er í kjarasamningi hjúkrunarfræðinga ákvæði um greiðslur vegna sér- stakra tímabundinna álagsþátta. Spurður hvort hann hyggist sem ráðherra beita sér fyrir því að hjúkr- unarfræðingar fái samskonar álags- greiðslur og lögreglumenn svarar Guðlaugur Þór: „Í fyrsta lagi er ekki um sama kjarasamninginn að ræða annars vegar hjá hjúkrunarfræðing- um og hins vegar lögreglumönnum. Í annan stað er þetta álag stofnana- bundið, þ.e. um er að ræða sveigj- anleika hjá stofnunum við ákveðnar aðstæður eftir ákveðnum reglum og undir yfirstjórn fjármálaráðuneytis- ins,“ sagði Guðlaugur Þór. „Við höfum notað þetta ákvæði kjarasamninga fyrir hjúkrunarfræð- inga, sjúkraliða og lífeindafræðinga yfir sumarmánuði þegar sumarleyfi hjá okkur eru í hámarki,“ segir Anna Stefánsdóttir, hjúkrunarforstjóri Landspítalans. Tekur hún fram að fjármálaráðuneytið hafi sett reglur um þessar álagsgreiðslur. Að sögn Önnu eru skiptar skoðanir á þessum greiðslum þar sem erfitt sé að skil- greina hvað sé aukið álag. „Við höf- um aldrei skilgreint að þessar greiðslur séu fyrir „álag“ heldur það verkefni að leysa starfsemi sumars- ins með viðunandi hætti, þ.e. að leysa oft á tíðum sömu verkefni með færri starfsmönnum,“ segir Anna. Að hennar mati eru svona sporslur í kjarasamningum erfiðar og valda oft óróa meðal starfsmanna. Segir hún betra að greiða hærri grunnlaun.  Heilbrigðisráðherra segir ekki um sama kjarasamning að ræða milli stétta  Landspítalinn hefur nýtt sér ákvæði kjarasamninga um álagsgreiðslur Álagið á valdi stofnana Anna Stefánsdóttir Guðlaugur Þór Þórðarson „VIÐ fengum þetta fyrst og fremst fyrir reksturinn á Grundartanga og létum jafnframt vita af væntan- legri starfsemi í Helguvík. Mér sýnist að meðferð málsins sé bara í samræmi við lög,“ segir Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, um úthlutun los- unarheimilda vegna gróðurhúsaloft- tegunda sem umhverfisráðherra kynnti í fyrradag. Norðurál fékk út- hlutaðar alls 2.106.000 losunarheim- ildir fyrir Grundartanga. Fyrirtækið er eitt þeirra fjögurra fyrirtækja sem sóttu um losunar- heimildir, en fengu ekki, en Norður- ál hafði sótt um losun fyrir Helguvík. Spurður hvort það setji eitthvert strik í áframhaldandi áform um byggingu álvers í Helguvík svarar Ragnar því neitandi. „Þau verkefni sem eru í farvatninu fá náttúrlega ekki heimildir fyrr en búið er að ganga frá öllum leyfum. Við erum ekki búnir að klára þann feril sem felst í mati á umhverfis- áhrifum og enginn þeirra aðila sem sóttu um fyrir væntanleg verkefni. Það var hins vegar beðið um upplýs- ingar um verkefni sem hugsanlega gætu komið inn á tímanum.“ Ganga þarf frá öllum leyfum fyrst Ragnar Guðmundsson Meðferð málsins í samræmi við lög ÖKUMAÐUR, tæplega tvítugur, var handtekinn í Borgarnesi að morgni laugardags vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna. Í bifreiðinni fannst jafnframt lítilræði af hvítu efni sem talið er amfetamín. Farþegi í bílnum var einnig handtekinn. Á átta mánuðum, frá ársbyrjun til ágústloka, handtók lögreglan 392 ökumenn fyrir fíkniefnaakstur. Brotunum sem lögregla kemur upp um fjölgar sífellt og voru þau 98 í ágústmánuði einum. Upp úr miðnætti aðfaranótt laug- ardags lagði lögreglan í Borgarnesi hald á óskráða haglabyssu í bíl sem hún hafði stöðvað. Ökumaðurinn hafði ekki skotvopnaleyfi. Hann kvaðst hafa ætlað að lána kunningja sínum vopnið. Ökumaður á eiturlyfjum ♦♦♦ TALSVERÐ ölvun, skrílslæti og slagsmál settu svip á miðbæ Akur- eyrar í fyrrinótt. Ýmis mál komu til kasta lögreglu en umfangsmesta verkefnið var að takast á við hópslagsmál sem brutust út á Eimskipafélagsplaninu, austast á Strandgötu. Þegar lögreglan kom á staðinn voru slagsmálin að mestu um garð gengin en mikill æsingur í fólk- inu sem var flest um og yfir tvítugt. Nokkur barefli voru tekin af æsinga- mönnum. Í látunum var bifreið ekið utan í stúlku, að því er virðist í ógáti, en að sögn lögreglu hafði hópur ung- menna ráðist að bílnum og var öku- maður hans að reyna að forða honum frá skemmdum. Enginn gisti fanga- geymslur vegna málsins heldur ein- beitti lögregla sér að því að róa fólkið og koma í veg fyrir átök. Slagsmál og skrílslæti FULLTRÚAR vísindasamfélags og atvinnulífs í þremur löndum innsigluðu í gær samkomulag um umfangsmikið vísindaverkefni sem miðar að bindingu koltvísýrings sem steintegundar í iðrum jarðar. Verkefnið hefur þegar vakið at- hygli víða um heim vegna hugs- anlegra áhrifa þess á glímuna við gróðurhúsaáhrifin. Að verkefninu standa Orkuveita Reykjavíkur, Háskóli Íslands, Col- umbia-háskóli í Bandaríkjunum og Rannsóknarráð Frakklands. Þau Björn Ingi Hrafnsson, vara- formaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, og dr. Kristín Ing- ólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, skrifuðu undir samning um hinn fjárhagslega þátt verkefnisins. Í honum felst m.a. að Orkuveita Reykjavíkur leggur verkefninu til aðstöðu og búnað við jarðvarma- virkjun fyrirtækisins á Hellisheiði. Fagleg stjórn verður m.a. í hönd- um Háskóla Íslands. Samninginn um vísindalega þáttinn undirrituðu dr. Sigurður Reynir Gíslason, jarðefnafræðing- ur hjá Jarðvísindastofnun HÍ, dr. Einar Gunnlaugsson, yfirmaður rannsókna hjá Orkuveitu Reykja- víkur, Juerg Matter frá Columbia- háskóla og Eric Oelkers frá hinni frönsku Centre National de la Recherche Scientifique. Rann- sóknin er undir faglegri stjórn dr. Sigurðar Reynis. Binda koltvísýring í berg Í HNOTSKURN »Við eldvirkni losnar gríð-arlegt magn koltvísýrings. Hluti koltvísýringsins sleppur þó aldrei út í andrúmsloftið vegna þess að í efstu lögum berggrunnsins hvarfast hann við kalsíum í basalti og mynd- ar bergtegundina kalsít. Til- raunin á Hellisheiði gengur út á að líkja eftir þessu ferli. ÚTGERÐ Péturseyjar ehf. hefur ákveðið að leggja línubátnum Guð- rúnu VE. Þriggja mánaða uppsagn- arfrestur 14 manna áhafnar rann út á dögunum og mun báturinn því ekki halda til veiða í vetur. Guðjón Rögnvaldsson, eigandi útgerð- arinnar, segir ástæðuna einfalda, niðurskurður í þorskkvóta geri það að verkum að ekki sé unnt að gera bátinn út. „Varðandi fiskvinnsluna hjá okkur þá munum við einfald- lega kaupa hráefni af öðrum til að halda henni gangandi.“ Niður- skurður þorskkvóta þýðir að afla- heimildir í Vestmannaeyjum fara úr 12 þúsund tonnum í átta. Guðrúnu VE hefur verið lagt ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.