Morgunblaðið - 30.09.2007, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 30.09.2007, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2007 37 henni var boðið að taka þátt í tón- listarhátíðinni South by Southwest í Austin í Texas í fyrra. – Fylgja foreldrarnir sveitinni kannski enn á ferðum hennar? „Nei, þeir geta það ekki lengur. Við erum líka svo lengi úti núna. En við erum í fínu sambandi við þá. Það eru líka þrír í hljómsveit- inni ennþá undir lögaldri, sem er 18 ár. Við erum allir búnir með grunnskólapróf, fjórir okkar af sex byrjuðu svo í menntaskóla en urðu að taka hlé vegna spilamennsk- unnar. Við erum bara svo heppnir að vera frá Íslandi. Ef við hættum í þessari hljómsveit getum við allt- af farið aftur í skólann. En það er ekki svo gott hjá krökkum í öðrum löndum; ef þeir hætta í skóla geta þeir ekkert farið aftur í nám. Svo það er mun auðveldari ákvörðun hjá okkur að skella okkur í tónlist.“ – Og þið passið ykkur að minnsta kosti á að vera góðir við þessa í sveitinni sem eru undir lög- aldri? „Já, já.“ – En finnst áhorfendum þið kannski vera dálítið ungir? „Jú, jú, það vantar ekki. Sér- staklega ef við segjum frá því hvað við erum gamlir, fólk býst alltaf við að við séum aðeins eldri. En til dæmis í sumar túruðum við með hljómsveit á svipuðum aldri. Og hljómsveitarmeðlimir fóru síðan bara í skóla núna fyrr í mán- uðinum. Þeir hafa fengið mikla at- hygli hér í Bretlandi fyrir að þurfa að vera að klára skólann. Það er svolítið fyndið. En þess vegna býst líka fólk við því að við séum eldri.“ Þýðir ekkert að standa í hálfkáki – Eruð þið með einhvern sér- stakan músíkbakgrunn eða mennt- un? „Nei, við erum allir sjálflærðir. Nema hljómborðsleikarinn. Hann lærði á gítar. Það hefur annars enginn lært á hljóðfærið sitt. Þetta er bara pönkstíllinn.“ – Ég hef heyrt einhverja segja að þið séuð svolítið hrokafullir. „Ha, hver sagði það?“ – Bara einhverjir krakkar sem ég heyrði í. „Já, þetta er kannski spurning um muninn á að vera hrokafullur og sjálfsöruggur. Það er kannski ekki nógu algengt að ungt fólk sé sjálfsöruggt. En það þýðir auðvitað ekki annað ef maður er að túra og halda tónleika um allt. Maður verð- ur að trúa 100 prósent á tónlistina sína. Það þýðir ekkert að standa í einhverju hálfkáki.“ Þið virðist annars snemma hafa verið með fæturna á jörðinni við- skiptalega. Þið voruð til dæmis í samstarfi við Símann í fyrra. En í texta við eitt laganna á nýju plöt- unni, This is an advertisement, tal- ið þið um að lagið sé bara auglýs- ing, þið séuð á mála hjá lögfræðifyrirtæki úti í bæ og svona. – Hvernig ber að skilja það? „Þegar við sömdum þetta lag vorum við að pæla í því af hverju allir væru svona rosalega uppteknir af því hvort tónlistarmenn væru heiðarlegir eða ekki. Ég myndi ekki segja að við værum eitthvað heiðarlegri en aðrir, við erum bara rosalega hreinskilnir. Þetta er svo- lítið fyndið, því fólk sem hlustar á okkur er svo fljótt að gagnrýna okkur en svo er þetta fólk kannski ekkert heiðarlegra sjálft. En það vill halda sér heiðarlegu með því að hlusta á heiðarlega tónlist. Alla- vega virkar það þannig eins og það segi að menn eigi ekki að vera að selja sig en svo er það bara að gera það sjálft. Þetta er svolítið fyndið. Þetta var meira svona pæl- ing um það af hverju allir væru svona uppteknir af þessu.“ Gunnar segir að tónleikaflandrið og hinn nýi lífsmáti hljómsveit- armeðlimanna sé ekkert farinn að reyna á innviði sveitarinnar ennþá. „Við erum bara það heppnir að vera rosalega góðir vinir. Eiga sömu drauma og sömu skoðanir. Svo þetta gengur bara ágætlega. Þetta er kannski ekkert ólíkt því að vera á sjó. Langan tíma gerir maður ekki neitt, er bara að bíða. Svo vinnum við kannski á fullu í nokkra klukkutíma. Við erum nátt- úrlega bara í 7-8 manna hóp allan tímann, bara með hljóðmann og bíl- stjóra. Svo maður hefur ekkert samband við annað fólk. Þetta er dálítið sérstakt en þetta er bara það gaman, þess vegna erum við að þessu. Svo veit maður ekkert hvað þetta endist lengi. En við búumst allavega alveg við að gera nokkrar plötur.“ Námskeið fyrir aðstandendur geðklofasjúklinga Námskeið fyrir aðstandendur geðklofasjúklinga verður haldið við Endurhæfingarmiðstöð geðsviðs LSH að Kleppi og hefst námskeiðið miðvikudaginn 17. október 2007. Námskeiðið verður á miðvikudögum frá kl. 13-16 í samkomusal í húsi iðjuþjálfunar að Kleppi. Dagskrá námskeiðsins verður svohljóðandi: Miðvikudaginn 17. október 2007 Einkenni og meðferð geðklofa Nanna Briem sérfr. í geðlækningum Miðvikudaginn 24. október 2007 Líðan fjölskyldu þegar einstaklingur veikist Minerva Sveinsdóttir og Stefanía Sæmundsdóttir geðhjúkr.fr. Um nauðungarvistanir og sjálfræðissviptingar Kristófer Þorleifsson sérfr. í geðlækningum Miðvikudaginn 31. október 2007 Meðferðarúrræði fyrir geðklofasjúklinga á geðsviði LSH: Kristófer Þorleifsson sérfr. Bráðameðferð - Endurhæfing- Eftirfylgd í geðlækningum Hugræn aðferlismeðferð og samskipti við geðklofasjúklinga Brynjar Halldórsson sálfræðingur Miðvikudaginn 7. nóvember 2007 Félagsleg þjónusta fyrir geðfatlaða Þóra St. Pétursd. félagsráðgj. Virkni í daglegu lífi Fanney Bj. Karlsd. iðjuþjálfi Miðvikudaginn 14. nóvember 2007 Listmeðferð sem meðferðarúrræði á geðdeild: Anna Gréta Hrafnsdóttir og Sköpun - tjáning- meðvitund Sólveig Katrín Jónsdóttir Fyrirlestur og "Workshop" listmeðferðarfræðingar Sjúkraþjálfun: Hreyfing - yoga og hugleiðsla Martha Ernstdóttir sjúkraþj. Miðvikudaginn 21. nóvember 2007 Eftirfylgd og umræður Þátttaka tilkynnist fyrir 15. október í síma 543-4200 virka daga á milli kl. 9-16 eða með tölvupósti á netfangið kristoth@landspitali.is. Reiknað er með að fjöldi þátttakenda verði ekki umfram 25. Námskeiðið er ókeypis.Mb l 9 15 67 7 Lögfræðingafélag Íslands, Álftamýri 9, 108 Reykjavík, sími: 568 0887, fax: 568 7057. Lögfræðingafélag Íslands efnir til málþings um Lögfræðingafélag Íslands E N N E M M / S IA / N M 2 2 9 16 1 Í Súlnasal Hótel Sögu, föstudaginn 5. október 2007 Fjallað verður um helstu atriði fasteignaréttar. Meðal annars verður sérstaklega vikið að lögum um fasteignakaup auk þess sem fjallað verður um réttindi og skyldur fasteignasala, skipulags- og byggingalög og um landskrá fasteigna. FASTEIGNIR 12.00 Hádegisverður 13.00 Setning 13.15 Inngangur Karl Axelsson, hrl. og lektor við lagadeild Háskóla Íslands, fjallar um fasteignir í íslenskum rétti, að fornu og nýju, og þær reglur sem að þeim lúta. Þá verður sjónum beint að þeirri miklu þýðingu sem fasteignir hafa í efnahagslífinu og því lykilhlut- verki sem þær gegna í eignarréttarskipan okkar. 13.40 Nýjar reglur í nýjum fasteignakaupalögum. Hvernig er þeim beitt af dómstólum? Viðar Már Matthíasson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, fjallar um helstu nýjungar sem lögfestar voru með lögum um fasteignakaup, nr. 40/2002, og gerir grein fyrir því hvernig dómstólar hafa túlkað hinar nýju reglur. Meðal annars er um að ræða reglur um kaupsamninga sem bundnir eru fyrirvara, reglur um forkaupsrétt og nýtt gallahugtak sem er þrengra en áður gilti og um hafa gengið nokkrir athyglisverðir dómar. Þá verður getið nýrra reglna um vanefndaúrræði, bæði endurbótarétt og -skyldu, skaðabótareglur og fleira. 14.25 Ábyrgð fasteignasala Eiríkur Jónsson, hdl. hjá Landslögum – lögfræðistofu, fjallar stuttlega um helstu skyldur löggiltra fasteignasala við sölu fasteigna og ábyrgð þeirra á störfum sínum. Einkum verður einblínt á nýlega réttarþróun að því er varðar skaðabótaábyrgð fasteignasala. 14.45 Skipulags- og byggingalöggjöf Ívar Pálsson, hdl. hjá Landslögum – lögfræðistofu, fjallar almennt um skipulags- og byggingalög og heimildir til breytinga á skipulagsáætlunum. 15.05 Kaffi 15.20 Landskrá fasteigna Margrét Hauksdóttir, aðstoðarforstjóri Fasteignamats ríkisins, fjallar um Landskrá fasteigna og lagagrundvöll hennar. Gerð verður grein fyrir skráningaraðilum og hlutverki þeirra og farið yfir með hvaða hætti upplýsingum úr skránni er miðlað. Að lokum verður kynnt evrópskt samstarfsverkefni sem ber heitið EULIS (European Land Information System). 15.55 Margt býr í grenndinni Sigurður Helgi Guðjónsson, hrl. formaður Húseigendafélagsins, fjallar um nábýlisrétt og hvort þörf sé á löggjöf um grennd. 16.15 Umræður og fyrirspurnir 17.00 Móttaka í boði Fasteignamats ríkisins Málþingsstjórn: Kristín Edwald, hrl. hjá Lex lögmannsstofu. Málþingið er öllum opið en þátttaka tilkynnist í síma 568 0887 kl. 13-15 alla virka daga eða í tölvupósti á netfangið: logfr@logfr.is Síðasti skráningardagur er þriðjudagur 2. október. Þátttökugjald er 13.000 kr. en 9.500 kr. fyrir félaga í Lögfræðingafélagi Íslands maður lifandi Maður lifandi, Borgartúni 24, sími 58 58 700, www.madurlifandi.is Langar þig að breyta um lífsstíl? 11. október kl. 18–21 Matreiðslunámskeið hjá Maður lifandi í Borgartúni 24. Leiðbeint verður um grunn að góðu mataræði og heilsufæði. Lögð verður áhersla á að kenna fólki hvernig unnt er að matreiða hollan og góðan mat án mikillar fyrirhafnar. Allir sem sækja námskeiðið fá afslátt í verslunum Maður lifandi. Kynntu þér samspil heilsu og mataræðis. Meistarakokkar sjá um námskeiðið Helga Mogensen Patricia Brizuela Auður Konráðsdóttir Nánari upplýsingar og skráning helgamog@madurlifandi.is Verð 4.500 kr. Heilsukostur matreiðslunámskeið Maður lifandi 18. október kl. 18–21 Kökur og eftirréttir 25. október kl. 18–21 Matreiðslunámskeið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.