Morgunblaðið - 30.09.2007, Blaðsíða 60
60 SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
REYKÁS 49 ÍBÚÐ 0301
Vorum að fá í sölu glæsilega 132 fm
íbúð á tveimur hæðum (hæð og ris)
ásamt 24 fm bílskúr eða samtals 156
fm á góðum stað í Árbænum. Eldhús,
þvottahús, stofa, tvö herbergi og flísal.
baðherbergi á neðri hæð en í risi er
hjónaherbergi með baðherb. innaf
ásamt tveimur barnaherbergjum. Glæsi-
leg eign á góðum stað. Verð 35,9 millj.
Eignin verður til sýnis sunnudaginn 30. september frá kl. 14-16.
Traust þjónusta í 30 ár
NORÐURBRÚ 4 GARÐABÆ
FALLEG 4RA Í LYFTUHÚSI AUK BÍLSKÝLIS
Glæsileg 112 fm 4ra herb. íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi auk stæði í bílageymslu á
þessum eftirsótta stað í Sjálandinu í Garðabæ. 3 rúmgóð herbergi. Stór og björt
sofa með útg. á suðursvalir. Fallegar innréttingar og tæki. Parket og flísar á
gólfum. Falleg sameign. Lóð fullbúin. Verð 37,5 millj.
Eignin verður til sýnis í dag sunnudag frá kl. 14-15.
OPIN HÚS frá Gimli
Tjarnarbrekka 10 – Álftanesi
OPIÐ HÚS Í DAG
Sunnudag 30. september 2007 kl. 16.00-16.30
Verulega fallegt einbýlishús með frábæru útsýni.
Allar nánari upplýsingar
veitir Baldvin Ómar í síma 898-1177
Fífulind 7 – efsta hæð íb. 0402
Opið hús milli kl. 17 og 18 í dag
Glæsileg ca 140 fm íbúð á tveimur hæðum.
Í einkasölu mjög góð vel skipulögð íb. á
efstu hæð og í risi í mjög góðu fjölb. á fráb.
stað í Lindum. 3 svherb. 2 stofur, stórar
svalir, 2 baðherb. Glæsil. útsýni. V. 29,8 m.
Opið hús verður í dag sunnudag
frá kl. 17-18. Allir velkomnir.
Þórarinn M.Friðgeirsson
lögg.fasteignasali
Sími 899-1882
Sími 588 4477
Engjasel 13 - íb. 0302
Opið hús milli kl. 14 og 16 í dag
Um er að ræða góða 151,2 fm endaíbúð á
tveimur hæðum ásamt stæði í lokuðu
bílskýli. Íbúð er á 3. hæð til hægri. Fimm góð
svefnherbergi. Snyrting á báðum hæðum,
tvennar svalir, glæsilegt útsýni. Góð vel um
gengin íbúð. Snyrtileg sameign bæði úti og
inni. Gott verð 31,9 m.
Jóhannes og Lára taka á móti þér og
þínum í dag á milli kl. 14 og 16.
Mosarimi 15 – íb. 0101
Opið hús milli kl. 17 og 18 í dag
Í einkasölu falleg mjög vel skipulögð ca 85
fm íb. á jarðhæð í 2ja hæða húsi steinsnar
frá skóla og þjónustu. Útgengt úr stofu í
glæsilegan garð. Mjög góð staðsetning.
Góð eign. V. 22,5 m.
Dagný tekur á móti áhugasömum í dag,
sunnudag, frá kl. 17-18.
MÖRGUM hefur brugðið
ónotalega við nýjustu auglýsingu
Símans, þar sem heilög kvöld-
máltíð er notuð til að auglýsa
svok. þriðju kynslóð farsíma. Jes-
ús Kristur hringir í
Júdas Ískaríot úr
slíkum síma til að
vita hvar hann sé og
kemst þannig að
svikum hans.
Óhætt mun að
fullyrða, að annað
eins rugl og lágkúra
hefur ekki sést um
langa hríð í íslensk-
um fjölmiðlum, og
eru menn þó ýmsu
vanir á þeim vett-
vangi.
Nú skal vaðið inn á sjálfa
kvöldmáltíðina, helgasta dóm
kristinna manna, og hún hagnýtt
í þágu markaðsvæðingar og
græðgi.
Markaðsöflin eru sífellt að
færa sig upp á skaftið og þeim
virðist fátt heilagt.
Það er Jón nokkur Gnarr, sem
er sagður hugmyndasmiður aug-
lýsingarinnar, og sjálfur fer hann
með hlutverk Júdasar. Jóni
Gnarr hefur mjög
verið hampað í kirkj-
unni um skeið og
flest verið talið gott
og gilt, sem frá hon-
um kæmi. Ekki vil ég
gera því skóna, að
hann vilji með auglýs-
ingunni vísvitandi
særa trúartilfinningar
fólks, en eitthvað hef-
ur honum þarna
brugðist bogalistin.
E.t.v. flokkast þetta
undir taktleysi.
Athyglisverðastur er þó þáttur
Símans, sem er framleiðandi aug-
lýsingarinnar. Fram hefur komið,
að farið var alla leið til Portúgals
til að taka auglýsinguna upp, svo
mikið hefur verið lagt í að gera
hana sem veglegast úr garði.
Gaman væri, ef Síminn vildi
upplýsa, hvað auglýsingin hefur
kostað.
Vafalaust hefur Síminn góð
efni á slíku miðað við allan þann
hagnað, sem hann sýnir af við-
skiptum við landsmenn. Síminn,
sem til skamms tíma var fyr-
irtæki í eigu þjóðarinnar og hún
bar traust til, er nú eftir einka-
væðinguna kominn í hendur
gráðugra peningastráka, sem
maka krókinn og reyna með öll-
um ráðum að hámarka gróðann.
Forganga Símans í þessu máli er
honum lítt til sóma og kann að
draga dilk á eftir sér. Síminn og
Jón Gnarr ættu að biðja þjóðina
afsökunar á frumhlaupi sínu og
sjá til þess, að auglýsing þessi
verði tekin úr umferð.
En því miður er hér angi af
stærra vandamáli. Við erum að
horfa upp á minnkandi tilfinningu
fólks fyrir því sem heilagt er.
Þess gætir á ýmsum sviðum, m.a.
hvað snertir helgidaga þjóðkirkj-
unnar. Ekki er lengra síðan en á
föstudaginn langa á liðnum vetri,
að fram fóru í Reykjavík úrslit í
keppninni um „Fyndnasta mann
Íslands“, og þótti mörgum sá
dagur ekki smekklega valinn fyr-
ir það tilefni. En forstöðumaður
keppninnar lét hafa eftir sér í
fjölmiðlum, að hann sæi ekkert
óviðeigandi við, „að fyndnasti
maður Íslands sé krýndur á sama
degi og Kristur var krýndur sinni
kórónu“.
Hvað segir svona viðhorf okk-
ur? Helgidagafriður kirkjunnar
er stöðugt á undanhaldi fyrir
markaðsöflunum. Farið er að
auglýsa dansleiki að kvöldi sjálfs
föstudagsins langa, að vísu eftir
kl. 12, einnig aðfaranótt páska-
daga, nokkuð sem engum hefði
dottið í hug fyrir nokkrum ára-
tugum. Talað er um, að föstudag-
urinn langi sé orðinn einn vinsæl-
asti bíódagur ársins. Hvenær
varð hann það? Lengst af voru
öll bíóhús lokuð yfir bænadaga.
Breytingin talar sínu máli, en
kannski veitum við henni ekki at-
hygli. Gleymum ekki, að ef við
töpum lotningunni fyrir hinu
heilaga, þá er hætta á ferðum. Þá
verður fátt eða ekkert heilagt og
þá verður líka allt leyfilegt. Er
ekki farið að örla á þeirri þróun á
Íslandi?
Hvers megum við vænta, ef
auglýsing eins og sú, sem hér
hefur verið gerð að umræðuefni,
verður látin óátalin? Hvað verður
næst á vegi græðginnar? Hvað
verður eftir skilið heilagt? Velt-
um slíkum spurningum fyrir okk-
ur.
Kannski á þetta eftir allt sam-
an að vera bara sniðugt, eitthvað
til að brosa að í hversdagsleik-
anum. Jesús að tala í farsíma af
þriðju kynslóð, nota sér nýjustu
tækni. Vafalaust finnst ein-
hverjum hugmyndin góð og aug-
lýsingin flott og ekki ástæða til
að gera veður út af slíku.
En er eitthvað flott við písl-
arsögu Krists og að nota hana
sem gamansögu með þessum
hætti í þágu gráðugra peninga-
manna? Að mínum dómi er það
smekkleysa og skömm. Og best
gæti ég trúað, að meirihluti þjóð-
arinnar sé í hjarta sínu sammála.
Smekkleysa og skömm
Ólafur Þ. Hallgrímsson skrifar
um sjónvarpsauglýsingu Sím-
ans um þriðju kynslóð farsíma
Ólafur Þ. Hallgrímsson
Höfundur er sóknarprestur
á Mælifelli.
» Síminn og Jón Gnarrættu að biðja þjóð-
ina afsökunar á frum-
hlaupi sínu og sjá til
þess, að auglýsing þessi
verði tekin úr umferð.
SANDUR MÖL
FYLLINGAREFNI
WWW.BJORGUN.IS
Sævarhöfða 33,
112 Reykjavík,
sími 563 5600
Fréttir í tölvupósti