Morgunblaðið - 30.09.2007, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 30.09.2007, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2007 43 veitingu húsnæðislána í Bandaríkjunum geti haft áhrif um allan heim en það er hins vegar orðinn veruleiki. Fjármálafyrirtæki út um allt hafa keypt þessa pappíra, þar á meðal íslenzk fjármálafyr- irtæki eins og fram hefur komið, og þar með er fjandinn laus. Vandamál brezka bankans Northern Rock eru athyglisverð í þessu sambandi. Bankinn hafði áður byggt útlán sín til húsnæðiskaupa á innlánum en með nýjum stjórnendum lagði hann út á þá braut að fjármagna lánveitingar sínar með skammtíma- lántökum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Þeg- ar húsnæðislánavandinn kom upp í Bandaríkjun- um þornuðu peningalindirnar upp, eigendur peninganna fóru með þá í skjól bandarískra rík- isskuldabréfa og álíka pappíra og bankinn gat ekki endurfjármagnað sig eða þá að endurfjármögnun- in reyndist of dýr. Þess vegna leituðu forráðamenn hans á náðir Englandsbanka kvöldstund eina fyrir nokkrum vikum. Englandsbanki gjörbreytti um stefnu frá fyrri ákvörðunum og bjargaði bankanum en meiri spurning er hvort bankastjóri Englandsbanka lifir þá kúvendingu af. Þessu tímabili óróleika á alþjóðlegum fjármála- mörkuðum er ekki lokið. Raunar lýsti fjármálaráð- herra Bandaríkjanna þeirri skoðun fyrir skömmu, að hann mundi standa alla vega í næstu tvö ár. Sér- fræðinga greinir hins vegar á um hvort hann leiðir til stöðnunar í efnahagsmálum í Bandaríkjunum og þar með í nálægum löndum eða jafnvel sam- dráttar. Sumir spyrja, hvort Kína geti hugsanlega tekið við sem drifkraftur fjármálakerfisins í heim- inum, ef Bandaríkjunum skriki fótur. Þegar við lítum í kringum okkur hér í okkar um- hverfi eru engin merki um samdrátt. Atvinna er svo mikil, að við þurfum enn á fólki að halda frá út- löndum til að manna störf. Það á bæði við um störf í byggingariðnaði og eins um margvísleg þjónustu- og umönnunarstörf. Eftir stendur hins vegar sú spurning hvað muni gerast ef alvarleg vandamál koma upp á hinum al- þjóðlegu fjármálamörkuðum. Hvaða áhrif hefur það á íslenzk fyrirtæki, sem eru í vaxandi umsvif- um í öðrum löndum, ef hlutabréf á Vesturlöndum lækka verulega í verði frá því, sem nú er? Hvaða áhrif hefur það á þessi sömu íslenzku fyrirtæki ef aðgengi að fjármagni takmarkast mjög eða pen- ingarnir verða langtum dýrari en þeir hafa verið? Hvaða áhrif hefur það hér heima fyrir ef fasteigna- verð lækkar verulega, en um það eru vísbendingar í öðrum löndum? Bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum er um það rætt að hækkandi fasteignaverð hafi staðið undir mikilli einkaneyzlu og ef það lækki umtalsvert verði stórfelldur samdráttur í einkaneyzlu á skömmum tíma. Stóra spurningin, sem við stöndum frammi fyr- ir, er sú, hvernig okkur tekst að standa af okkur hugsanleg áföll á þessum vettvangi. Það er engin spurning um að efnahagur okkar er margfalt sterkari en hann var en hvað þolir hann mikil áföll? Talsmenn ríkisstjórnarinnar hafa lítið talað um þessi mál á undanförnum vikum. Þó hefur fátt ver- ið meira rætt í nágrannaríkjum okkar beggja vegna Atlantshafsins. Við verðum að ætla að eftir sem áður sé vel fylgzt með þróun þessara mála í viðkomandi ráðuneytum og stofnunum. Pening- arnir, sem koma inn vegna útgáfu hinna svonefndu jöklabréfa, eiga drjúgan þátt í að fjármagna við- skiptahalla okkar. Þeir peningar hverfa á þeirri stundu, sem vaxtamunurinn verður ekki jafnhag- stæður og hann er nú fyrir kaupendur þessara bréfa. En væntanlega eru bæði ríkisstjórn og Seðlabanki vel undir það búin ef eitthvað slíkt á eftir að gerast. Stjórnarandstaðan á fjöllum? Þ ótt lítil tilþrif hafi verið hjá nýrri rík- isstjórn á fyrstu mánuðum valda- tíma hennar verður ekki sagt að stjórnarandstaðan hafi látið meira að sér kveða. Steingrímur J. Sigfús- son er að vísu að styrkja stöðu sína á nýjan leik innan Vinstri grænna og ekki jafn há- værar kröfur og fyrst eftir kosningar um for- mannsskipti en hvorki Vinstri grænir né fram- sóknarmenn hafa markað nokkra trúverðuga stjórnarandstöðupólitík. Framsóknarmenn eru augljóslega í lausu lofti og vita ekkert hvað þeir eiga af sér að gera. Senni- lega eru hreyfingar um breytingar á flokksforystu á ferðinni í undirdjúpum flokksins. Sá kjörni fulltrúi Framsóknarflokksins, sem mest er í sviðs- ljósinu, er augljóslega Björn Ingi Hrafnsson, borg- arfulltrúi flokksins í Reykjavík. Það er áreiðanlega engin tilviljun að svo er. Guðni Ágústsson sýndi hins vegar fyrir rúmu ári að hann á sterkt bakland í flokknum, svo að það væri mikill misskilningur að gera lítið úr styrkleika hans. Stærsti vandi framsóknarmanna er hins vegar sá, að þeir sýnast ekki geta fótað sig á pólitískum málefnum í stjórnarandstöðu. Blaðamannafundur þeirra í gær, föstudag, breytti engu um það. Vinstri grænir munu vafalaust ganga hart að umhverfisráðherranum á þingi. Þeir sjá þess áreiðanlega engin merki frekar en aðrir, að Sam- fylkingin hafi tekið umhverfismálin öðrum tökum í ríkisstjórn heldur en gert var í fyrri ríkisstjórn. Þetta getur orðið erfitt fyrir Samfylkinguna vegna þess, að töluvert kjósendafylgi er á ferð á milli Samfylkingar og Vinstri grænna vegna umhverf- ismála. Vinstri grænir eiga líka eftir að herja á Samfylk- inguna vegna utanríkismála. Þeir eiga eftir að spyrja um afstöðu utanríkisráðherrans til aðildar Atlantshafsbandalagsins að stríðsátökum í Afgan- istan. Og þeir eiga eftir að spyrja hvers vegna ut- anríkisráðherrann hafi meiri áhuga á því að taka þátt í sýndarmennskunni í kringum Mið-Austur- lönd og í kringum framboð Íslands til Öryggisráðs- ins heldur en að nota þá fjármuni, sem við getum án verið, til þess að hjálpa fátæku fólki í þróun- arlöndunum. En sennilega hafa stjórnmálamenn nútímans engan áhuga á að hjálpa fátæku fólki í þróunar- löndunum. Það er líklega eftirsóknarverðara að standa á sviðinu með Condi Rice en að opna vatns- leiðslu í fátæku þorpi inni í miðri Afríku. Mál af þessu tagi sýnast hins vegar hafa farið fram hjá stjórnarandstöðunni til þessa. Framsókn- armenn hafa meiri áhuga á að ráðast á utanrík- isráðherrann fyrir þá réttu ákvörðun sem hún tók að kalla íslenzka stúlku heim frá Bagdað en að ræða við hana um eitthvað það sem máli skiptir og við Íslendingar getum haft raunveruleg áhrif á. Og skýringin á því að ekkert heyrist í Vinstri grænum er væntanlega sú, að þeir hafa verið á fjöllum, en þangað er vissulega endurnæringu að sækja fyrir hina pólitísku baráttu vetrarins. »Einhverjar uppákomur á þeim vettvangi gætu haft áhrif ástjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Liðs- menn þessara tveggja flokka hafa sjaldnast verið á sama máli í forsetakosningum. Það kann þó að vera að breytast. Núverandi forseti hefur lagt sig fram um að efla tengsl sín við forystumenn viðskiptalífsins, sem getur hins vegar komið niður á þeim stuðn- ingi, sem hann áður naut á vinstri kanti stjórnmálanna. rbréf Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.