Morgunblaðið - 30.09.2007, Síða 23
Síðumúli 8 – Sími 568 8410Hafnarstræti 5 - Sími 551 6760 Krókháls 5 – Sími 517 8050
Veidimadurinn.is - Sportbudin.is - Veidihornid.is
Munið vinsælu
gjafabréfin okkar
Öll kasthjól – 40% afsláttur
Kaststangir 20-50% afsláttur
Fluguhjól 15-50% afsláttur
Flugustangir 15-50% afsláttur
Öndunarvöðlur frá 9.995
Veiðivesti frá 1.995
10 stk. spúnar aðeins 1.990
Lítið notaðar leiguvöðlur aðeins 5.000
Sjókayakar 15-30% afsláttur
Þurrbúningar og vesti 15-50% afsláttur
Valdar haglabyssur 20-30% afsláttur
Felufatnaður 15-50% afsláttur
Útsalan hefst í dag og lýkur 7. október
Vinsælustu vörurnar seljast alltaf upp fyrst
Sjókayakar, fatnaður og búnaður aðeins í Sportbúðinni Krókhálsi 5. Skotvopn og felugallar aðeins í
Veiðihorninu Síðumúla 8 og Sportbúðinni Krókhálsi 5. Leiguvöðlur aðeins í Veiðihorninu Síðumúla)
ÚTSALAN ER BYRJUÐ
BARA Í FÁEINA DAGA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2007 23
» Þetta er brýnasta úrlausn-arefni samtímans.
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverf-
isráðherra um loftslagsbreytingar sem
ræddar voru á fjölmennri ráðstefnu í höf-
uðstöðvum Sameinu þjóðanna í New York.
» Í rauninni er ástæða til aðhafa miklar áhyggjur af þró-
un blaðamennskunnar. Það er
sótt að faginu úr öllum áttum,
þar á meðal annars hlut að máli
markaðsvæðingin og arðsem-
iskrafan frá eigendum og hrað-
inn.
Arna Schram , formaður Blaðamanna-
félags Íslands.
Þetta ofbýður minni siðferð-
iskennd, að þjóð sem með þræl-
skipulögðum hætti útrýmir
menningu heillar þjóðar og lífi
fólks og hefur gert það í 30 ár,
skuli voga sér að veifa svona
framan í mann í mínum
heimabæ.
Dagmar Hjörleifsdóttir , íbúi í Kópavogi,
sem mótmælt hefur menningarhátíð á veg-
um Kópavogsbæjar, kínverskra stjórn-
valda og Kínversk-íslenska menningar-
félagsins. Dagmar vísar m.a. til
framgöngu Kínverja gagnvart Tíbet-búum
og telur kynningarbækling hátíðarinnar
geyma hæpnar staðhæfingar.
»Herra forseti, þú sýnir öllmerki lítilmótlegs og grimms
einræðisherra.
Lee Bollinger , rektor Columbia-háskóla í
New York, er hann ávarpaði Mahmoud Ah-
madinejad, forseta Írans, sem flutti þar
ræðu á mánudag.
» Það er ekkert samkynhneigtfólk í Íran eins og í landi
ykkar.
Mahmoud Ahmadinejad í ræðu sinni.
»Mig langar til að biðja fólkafsökunar á að hafa valdið
því ama. Ég harma það að ég
skuli ekki hafa staðið undir
væntingum almennings.
Shinzo Abe er hann lét formlega af emb-
ætti forsætisráðherra Japans.
» Þetta er auðvitað stórtvandamál og á þessu er aug-
ljóslega engin töfralausn.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir , formaður
leikskólaráðs, um manneklu í leikskólum
höfuðborgarinnar.
Ummæli vikunnar
Reuters
Heimsókn Íransforseti vakti litla
hrifningu í Bandaríkjunum.
bóklestur. Á kápusíðu er vitnað til
Groucho Marx; Fyrir utan hundinn
er bókin bezti vinur mannsins. Inni
í hundinum er ekki lesbjart. Á
kápuinnslagi segir að þessi bók eigi
erindi til þeirra sem þefi af bók áð-
ur en þeir lesi hana, sem á við í
mínu tilviki, sem rjúki til og raði
upp á nýtt í bókahillum vina sinna,
sem ég geri reyndar ekki, þótt ég
hafi ósvikna ánægju af að skanna
bókahillur annarra og loks eru þeir
nefndir sem vita ekki bóka sinna
tal. Það á ekki við um mig. Ein-
hvers staðar las ég um mann, sem
hafði skrifað samvizkusamlega nið-
ur bækur sem hann las með stuttri
umsögn um það, hvernig honum féll
hver bók. Það væri hygg ég gaman
að hafa slíka bók við hendina og
geta stiklað á henni gegnum þá
bókaveröld sem er manns eigin.
Í Gullakistu bókaormsins segja
menn kost og löst á sannri bókaást,
efnið er yndislegur óður til þess að
umgangast bækur.
Rugg og Murphy hafa leitað víða
fanga og er nafnalistinn yfir þá sem
eiga ummæli í bókinni langur.
Margt af því sem er í Gullakistu
bókaormsins er eins og talað út úr
mínu hjarta. Þarna er fjallað um
eftirvæntinguna, þegar bók rekur á
fjörur manns, sæluna sem fylgir því
að horfa á bókina og vita að hana
má opna að vild og að þá athöfn má
treina svo lengi sem maðurinn þol-
ir. Svo þessi unaður sem lesturinn
gefur og sársaukinn, þegar dregur
að lokum, sem sameinast í blend-
ingi bókarlokanna.
Bókin skiptist í fimmtán meg-
inkafla; um ævintýri lestursins, um
gæði bókanna, um þá athöfn að búa
sig til lestrar, að raða bókum, bók-
hneigð, gírugir lesendur, að kaupa
bækur, fá bækur lánaðar, lána og
deila, hvað skal lesa og hvernig,
umsagnir, bókafjendur, bóklestir,
hvernig fara skal með bækur, vönt-
un og bókalandslag. Þetta eru auð-
vitað bara einföld stikkorð til þess
að gefa einhverja mynd af marg-
brotnu innihaldi bókarinnar.
„Hvílíkt yndi! Að skera bókina
upp og anda að sér pappírsilminum,
virða fyrir sér letrið og gefa sig á
vald nýjum hugsunum og atburðum
og kynnast fólki sem á enga sína
líka – þetta eru gæði sem miklu er
fórnandi fyrir; kvöldverði sem kyrr-
látum morgni.( William Hazlitt, On
reading new books)“
Já, Anna mín, maður sem talar sjö
tungumál fer létt með svona hátíð.
Að þessu mæltu skálaði hann við
glaðhlakkalega náunga sem sátu yfir
drykkju á sama borði og kynntu sig
sem meðlimi á sænska þinginu.
Kímin kvaðst Anna muna vel eftir
þeim Agli Helgasyni og Illuga Jök-
ulssyni þegar þeir voru pattar sem
grúskuðu í bókum í bókabúð Máls og
menningar. Henni hefði alltaf þótt
vænt um að sjá þá, enda sýndu þeir
áhuga á sérkennilegum bókum mið-
að við aldur. Egill hefði sennilega
verið ellefu eða tólf ára þegar hann
keypti kommúnistaávarpið.
Hvað segirðu? Þórarinn datt
næstum því úr sætinu og í fangið á
sænskum stjórnmálamanni. Keypti
Egill Helgason kommúnistaávarpið í
bókabúð um 1970? Er til mynd af
þessu?
Anna hló en Auður minnti á að
bóksalar kæmust að ýmsu um fólk.
Bóksalar – og blaðamenn, botnaði
Þórarinn. Nú státar ritstjórn elpais-
.com af símaupptöku, síðan mánuði
fyrir innrásina í Írak, þar sem heyra
má George Bush og Jose Maria Azn-
ar, þáverandi forsætisráðherra
Spánar, ræða um að Saddam Huss-
ein hafi beðið um að fá að yfirgefa
landið fyrir árásina gegn hæfilegri
greiðslu. En það haggaði ekki Bush
og innrásaráformum hans. Einnig er
fjallað um þetta í dailymail.co.uk
Stríðsfréttirnar fengu Auði og
Önnu til að geispa svo þau létu gott
heita. Á leiðinni í herbergið sitt
mættu hjónin nýbökuðum verð-
launahafa: Kristínu Steinsdóttur
sem hafði fyrr um daginn verið
heiðruð af sænsku Ibby-samtök-
unum með Silfurstjörnunni. Í tilefni
þess skáluðu þau á barnum þar sem
grátgjarn píanóleikarinn misþyrmdi
höfundaverkum Bítlanna.
Höfundar eru heimavinnandi
hjón í Barcelona