Morgunblaðið - 30.09.2007, Síða 35

Morgunblaðið - 30.09.2007, Síða 35
París er fallegust á haustin – og enn fallegri með þaulreyndum íslenskum fararstjóra WWW.UU.IS ÚRVAL-ÚTSÝN ~ LÁGMÚLA 4 ~ 108 REYKJAVÍK ~ SÍMI 585 4000 ~ FAX 585 4065 ~ INFO@UU.IS INTERCONTINENTAL PARIS LE GRAND Lúxushótel í konunglegum stíl frá tímum Napóleons. Parísaróperan, helstu vöruhús og merkjavöruverslanir Parísar eru innan seilingar. Herbergin eru í Hausmann stíl með vönduðum húsgögnum og öllum helstu þægindum. Verð frá: 59.920,- á mann í 3 nætur 2. og 30.nóv. Verð frá: 79.918,- á mann í 3 nætur 2., 16., 23. og 30.nóv Fallegt og nútímalegt hótel í hjarta Parísar skammt frá Signubökkum og í göngufæri frá listasöfnunum Louvre og Pompidou. Herbergin eru björt og öll aðstaða er aðlaðandi, nútímaleg og afar hlýleg. NOVOTEL LES HALLES Ferðaskrifstofa Leyfishafi Ferðamálastofu Innifalið: Flug, flugvallarskattar, íslensk fararstjórn og gisting með morgunverði. Verð miðast við að bókað sé á netinu. Ef bókað er á skrifstofu eða símleiðis er bókunargjald 2.500 kr. fyrir hvern farþega. Í París fæðast straumar og stefnur í tísku jafnt sem matargerð sem breiðast út um allan heim. Kennileiti borgarinnar eru fyrir löngu orðin goðsagnakennd. Eiffel turninn, Champs Elysées og latínuhverfið er nokkuð sem erfitt er að lýsa með orðum. Ferðir okkar til Parísar eru undir- búnar í samstarfi við Icelandair og því er hægt að nýta sér frábæra þjónustu flugfélagsins. Fararstjóri okkar í París tekur á móti hópnum og aðstoðar þá sem það vilja. Kíktu til Parísar í haust og upplifðu eina fallegustu borg Evrópu með topp þjónustu. „Við förum í gönguferð um gömlu listamannahæðina Montmartre. Stóra hvíta kirkjan, listamannatorgið Place de Tertres og litlu þröngu göturnar eru staðir sem margir kannast við úr kvikmyndum. Woody Allen hefur kvikmyndað í þessu hverfi og franska myndin Amelie gerist öll á Montmartre.“ - Kristín Jónsdóttir, fararstjóri Úrvals - Útsýnar í París mjög þakklát. En svo tíu árum seinna, eða árið 2005, fór ég í myndatöku hjá Leitarstöðinni og þá hafði þetta gerst aftur, þ.e. það fannst æxli, en að þessu sinni í hinu brjóstinu. Það var svo sannarlega annað áfall en ég var svo heppin að nýja æxlið greindist einnig á byrjunar- stigi og það dugði að taka fleyg- skurð. Nú voru ekki teknir allir eitl- arnir eins og áður þar sem önnur aðferð er komin til skjalanna en hún byggir á því að tekinn er einhver höfuðeitill og rannsakaður. Það var spurning hvort meinið væri líka komið í eitlana. En svo var ekki, sem var góðs viti. Ég fékk annars sömu meðferð og í fyrra sinnið sem var geislameðferð og ég slapp sem betur fer aftur við lyfjameðferðina. Báðar aðgerðirnar voru framkvæmdar á Landspít- alanum og þar var ég umkringd frá- bæru starfsfólki. Ég get ekki sagt annað en að heilbrigðiskerfið okkar sé dásamlagt og ég hef bara allt já- kvætt um það að segja.“ Margir þurfa félagslegan stuðning – Sóttist þú eftir stuðningi hjá sjúklingasamtökum? ,,Nei, það er boðið upp á ýmiss konar félagsskap og stuðning hjá Krabbameinsfélaginu en ég hef kos- ið að halda áfram mínu lífi. Ég hef orðið heilbrigð og frísk eftir að með- ferð lýkur og vil ekkert vera að velta mér meira upp úr þessu. Að sjálfsögðu eru þó margir sem þurfa óneitanlega á slíkum félagslegum stuðningi að halda og það er ekkert nema gott um það að segja. Það finnur hver hvað honum hentar.“ – Áttu ráð til handa konum sem eru e.t.v. að greinast í fyrsta skipti? ,,Já, það má helst horfa til þess að sífellt fleiri konur læknast af þess- um sjúkdómi sem gefur mikið tilefni til bjartsýni. Talið er að tíunda hver kona að meðaltali fái þennan sjúk- dóm einhvern tíma um ævina. Ég hvet konur eindregið til þess að mæta í brjóstaskoðun og fylgjast vel með. Það er ekki nóg að fara einu sinni í skoðun – konur ættu að leggja höfuðáherslu á að fara reglu- lega. Það er nauðsynlegt að kon- urnar séu jákvæðar gagnvart því að þeim muni batna. Að hafa jákvætt hugarfar er gífurlega mikilvægt og mun árangursríkara en að leggjast í þunglyndi og hugsa að nú sé maður að deyja. Þetta er bara tímabil sem þarf að yfirstíga eins og svo margt annað í lífinu. Að sjálfsögðu verða konur hrædd- ar og áhyggjufullar en það eru ósköp eðlileg viðbrögð. Það fer eng- inn í gegnum þessa reynslu án þess að finna fyrir því. Að greina krabbamein á frumstigi er mjög mikilvægt því þá eru mögu- leikar á lækningu svo miklu meiri en ef lengra er komið í ferlinu og þess vegna verður sú þjónusta sem Leitarstöðin býður upp á seint of- metin.“ Lífsreynsla sem breytir hugsunarhættinum – Hvernig tók fjölskyldan þessu? ,,Auðvitað er þetta áfall fyrir alla. En ég fékk mjög góðan stuðning hjá fjölskyldunni minni, sem er yndis- legt. Auk þess fékk ég líka góðan stuðning á vinnustaðnum sem var ómetanlegt. Ég vorkenni aumingja konunum sem eiga ekki fjölskyldu eða góða að til styðja við sig, því maður þarf virkilega á stuðningi og umhyggju að halda í þessari raun. Svona lífsreynsla breytir dálítið hugsunargangi manns. Eftir fyrri meðferðina fór ég að hugsa öðruvísi en áður sem kom meðal annars fram í því að ég vildi gefa meira af mér. Ég tók að mér barn í SOS barnaþorpi, fannst ég skulda lífinu eitthvað. Mér hefur gengið ótrúlega vel og ég er mjög heppin. Ég er í eft- irfylgni hjá krabbameinslækni og fer árlega í rannsókn. Það fer ekki hjá því að maður verði svolítið sjálfhverfur undir þessum kringumstæðum og upptek- inn af sjúkdómnum meðan á veik- indunum stendur. Það er að öllum líkindum bara eðlilegt og gott að hafa áhuga á sínum sjúkdómi og bata. Eins og áður sagði fór ég ekki í nein sjúklingasamtök. Ég var orðin frísk, hafði endurheimt heilsuna og þessu var lokið. Heitasta óskin var að halda áfram að lifa mínu lífi eins og áður. Ég er ekki í nokkrum vafa um það að Leitarstöð Krabbameins- félagsins gerði mér það kleift – hún bjargað lífi mínu tvisvar.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg »Ég hvet konur ein- dregið til þess að mæta í brjóstaskoðun og fylgjast vel með. Það er ekki nóg að fara einu sinni í skoðun – konur ættu að leggja höf- uðáherslu á að fara reglulega.“ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2007 35
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.