Morgunblaðið - 30.09.2007, Side 38
list
38 SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Í
stuttri heimsókn til einnar af uppá-
haldsborgum mínum, borgarinnar ei-
lífu, heimsótti ég fyrir tilstilli Guðna
Bragasonar sendifulltrúa Sendiráðs
Íslands í Róm, Norræna lista-
mannasetrið í borginni. Á undanförnum árum
hef ég leitað uppi þá staði sem íslenskir lista-
menn höfðu dvalið á í Flórens og víðar á Ítalíu
og hafði ég meðal annars sem heimildir bréf
danska listmálarans Elof Risebye til afasystur
minnar, Júlíönu Sveinsdóttur listmálara. Oft-
ast dvaldi Risebye á gistiheimilinu Pensione
Norden í Via del Corso 184, sem dönsk kona
rak í Róm.
Trastevere er eitt af mínum uppáhalds-
hverfum í Róm en þar er Norræna lista-
mannasetrið til húsa. Það er alltaf sérstök upp-
lifun fyrir mig að ganga upp stiga í þessum
margra alda byggingum, sjá skjaldarmerki
Chigi-fjölskyldunnar, en önnur höll sem var í
eigu þessarar aðalsmannafjölskyldu, sem var
ættuð frá Siena og stofnaði fyrsta bankann á
Ítalíu, Monte dei Paschi di Siena-bankann, á
15. öld, er Palazzo Chigi sem er aðsetur rík-
isstjórnar Ítalíu.
Við Mette Perregaard, listrænn stjórnandi
Norræna listamannasetursins, áttum ánægju-
legt samtal og sýndi hún mér listamannasetrið.
Mikið er af ljósmyndum og málverkum sem
eru heimildir um lífið í Norræna lista-
mannasetrinu. Á einni hópmynd frá árinu 1861
er Ólafur Waage, dansk-íslenskur prestur.
Frábært útsýni er af þaksvölunum. Yfir 7.000
bækur eru í bókasafninu.
Saga Norræna listamannasetursins
Norræna listamannasetrið í Róm (Circolo
Scandinavo/Skandinavisk Forenings
Kunstnerhus ) var stofnað árið 1860 og var það
fyrsta norræna stofnunin á Ítalíu og líka fyrsta
félagsheimili sem þar var stofnað.
Á 17. og 18. öld var Róm eftirsóknarverður
áfangastaður fyrir norræna listamenn. Þeir
fóru þangað til að sjá með eigin augum
minnisvarða og listaverk sem þeir höfðu
einungis lesið um og heyrt talað um í
heimalandi sínu. Árið 1820 komu margir
listmálarar og myndhöggvarar saman hjá
Bertel Thorvaldsen.
Danir stofnuðu árið 1833 „Danska bókasafn
Rómaborgar“ og var Hans Christian Andersen
einn af stofnendum þess. Árið 1840 afhenti
myndhöggvarinn Fogelberg Danska
bókasafninu lítið safn af sænskum bókum. Árið
1854 komu á kostnað Óslóarháskóla norskar
bækur sem nokkrir bóksalar í Ósló gáfu og var
það grunnurinn að norska bókasafninu. Þessi
þrjú bókasöfn voru sameinuð í húsnæði sem
ræðismaður Dana, Bravo, útvegaði þeim og
var því gefið nafnið Norræna bókasafnið í
Róm.
Smám saman jókst löngun norrænu
listamannanna til að eiga samastað líkt og
listamenn frá Þýskalandi, Frakklandi og
Englandi. Árið 1856 sneri sænsk-norski
sendiherrann á Ítalíu sér til sænsku og norsku
konungsríkjanna til að biðja þau um að
fjármagna stofnun framtíðaraðseturs fyrir
listasafn og bókasöfnin. Kröfur listamannanna
voru ekki miklar. Þeir reiknuðu út að tvö
herbergi væru nægjanleg: Eitt fyrir
bókasafnið og annað fyrir listamann sem
myndi vakta bókasafnið fyrir þjófnaði en
öryggi Rómaborgar var af skornum skammti.
Í ævisögu Einars Jónssonar myndhöggvara
„Minningar og skoðanir“ er sagt frá því að
Einar hafi vaktað bókasafnið 2 stundir á dag í
Palazzo Cenci sumarið 1902 en Einar fékk
styrk frá Alþingi til námsdvalar í Róm frá 1902
til 1903.
Árið 1860 fékkst fjárframlag frá
konungsríkjunum þremur til að stofna
Norræna listamannasetrið. Listamannasetrið
flutti í fyrsta aðsetur sitt í Palazzo Correa, við
hliðina á Mausoleo di Augusto.
Rússar réðust inn í Finnland og hernámu
það árið 1809. Rússar skuldbundu sig til að
tryggja öryggi Finnlands, og Finnar fengu að
halda eigin löggjöf gegn því að viðurkenna
Alexander keisara sem þjóðhöfðingja.
Finnland tók því ekki þátt í kostnaði við
Norræna listamannasetrið eins og hin þrjú
Norðurlöndin, en árið 1863 fengu Finnar leyfi
til að verða félagar í listamannasetrinu og hafa
sömu réttindi og hinar norrænu
nágrannaþjóðirnar. Eftir að Ísland fékk
sjálfstæði árið 1944 urðu líka íslenskir
listamenn félagar í listamannasetrinu.
Langur listi er til yfir þá norrænu listamenn
sem voru félagar í listamannasetrinu þegar
þeir dvöldu í Róm, má þar meðal annars nefna
Norðmennina Björnsson, Ibsen og Grieg,
Danina Constantin Hansen og Lundbye,
Svíana Palm, Pauli og Strindberg og Finnana
Walter Runeberg og Tove Jansson. Ekki hefur
mér tekist að fá nöfn Íslendinga á þessum lista
en það getur verið vegna þess að þeir hafi verið
undir dönsku þjóðerni þar til Ísland fékk
sjálfstæði.
Tækifæri fyrir norræna listamenn
Árið 1962 varð starfsemi
listamannasetursins umfangsmeiri þegar
byrjað var að bjóða norrænum listamönnum
upp á að búa þar í skemmri tíma. Norræna
listamannasetrið gengur núna í gegnum
tímabil mikilla breytinga á öllum sviðum. Í júlí
2006 flutti það í nýtt húsnæði fyrir framan
Accademia dei Lincei, við hliðina á Villa
Farnesina í Trastevere-hverfinu. Samtímis var
ráðinn nýr listrænn stjórnandi, Mette
Perregaard, og er hún ráðin til tveggja ára til
að sjá um faglega þróun listamannasetursins.
Eitt af verkefnum listræna stjórnandans er að
gefa norrænum listamönnum sem koma til
Rómar í atvinnuskyni tækifæri til að búa í
listamannasetrinu og mun það halda áfram í
samvinnu við Norræna listamannaráðið.
Norræna listamannasetrið gegnir mikilvægu
hlutverki við að koma á framfæri nútímalist í
alþjóðlegu umhverfi. Við opnunina kom Sjón
fram fyrir Íslands hönd.
Um þessar mundir dvelur íslensk-þýska
tónskáldið Steingrímur Rohloff í Norræna
listamannasetrinu og 20. september 2007
kynnti hann verk sín almenningi og flutt voru
gítarverk eftir hann. Þann 24. september 2007
las Valgerður Þórsdóttir leikritaskáld og
leikkona upp úr verkum sínum.
Nýir meðlimir og aukinn kraftur
Önnur mikilvæg nýjung er að núna geta
bæði einstaklingar og stofnanir gerst
meðlimir. Þannig geta þeir sem búa í Róm og á
Norðurlöndunum og hafa áhuga á menningu,
styrkt og tekið þátt í starfsemi
listamannasetursins. Það er markmið
listamannasetursins að í gegnum beina
þátttöku nýrra meðlima verði hægt að lífga
upp á samskipti norræns umhverfis í Róm og
vina listamannasetursins á Norðurlöndunum.
Listamannasetrið vill verða aftur sýnileg og
lifandi samtök í menningarheimi Rómar í
gegnum starfsemi sem er beint að þeim sem
eru utan hans.
Umsóknarfrestur um dvöl fyrir vor/sumar
2008 er til 15. október 2007.
Norræna listamannasetrið býður norrænum
listamönnum upp á að sækja um dvöl í
listamannasetrinu í tvo mánuði en einnig er
hægt að dvelja í styttri eða lengri tíma. Þarna
eru fimm stúdíóíbúðir með sameiginlegri
aðstöðu svo sem eldhúsi, borðstofu/stofu,
inngangi (sem hentar fyrir upplestra og fleira),
svölum, þvottavél, sjónvarpi (einungis ítalskar
stöðvar) og síma. Allar íbúðirnar hafa
nettengingu. Píanó er til afnota fyrir tónskáld.
Á meðan á dvöl listamannanna stendur er
áætlað að þeir komi list sinni á framfæri fyrir
almenning í Norræna listamannasetrinu.
Skrá yfir Íslendinga
Á heimasíðu Norræna listamannasetursins
www.skandinaviskforening.org er listi yfir þá
listamenn sem dvalið hafa frá árinu 2001.
Gaman væri ef að þeir sem dvöldu þarna
fyrir árið 2001 eða afkomendur þeirra hefðu
samband við mig og gæti ég síðan komið þeim
upplýsingum til Norræna listamannasetursins.
Róm Útsýnið úr einni íbúðinni í Norrænu listamannamiðstöðinni.
Upplestur Valgerður Þórsdóttir les upp í Norræna listamannasetrinu. Innblástur í Róm Steingrímur Rohloff í vistarverum sínum.
Norræna listamannasetrið í Róm
Í Róm hefur verið rekið nor-
rænt listamannasetur frá
1860 og hafa þar margir mæt-
ir menn haft viðkomu. Berg-
ljót Leifsdóttir Mensuali
fjallar um sögu Norræna
listamannasetursins og starf-
semi þess nú.
begga@inwind.it
Í HNOTSKURN
»Þeir sem geta sent inn umsókn eruatvinnulistamenn, það er
sjónlistarmenn, rithöfundar,
tónlistarmenn, handritahöfundar bæði
fyrir leikhús og kvikmyndir. Í
sérstökum tilfellum geta til dæmis
þýðendur, ljósmyndarar, dansarar,
skipuleggjendur, hljómlistarmenn og
leikarar sótt um.
»Það er ástæða til að hvetja alla þásem uppfylla skilyrðin og sjá sér
fært að dvelja í Róm að sækja um. Svör
við umsóknum verða send út í janúar
2008.
»Umsóknareyðublöð er að finna áheimasíðu Norræna
listamannasetursins
www.skandinaviskforening.org
Ljósmyndir/Bergljót Leifsdóttir Mensuali
Menningarauki Norræna listamannasetrið í Róm.