Morgunblaðið - 30.09.2007, Side 48
Blikastígur 19 - Álftanesi
Opið hús í dag sunnudag frá kl. 15-17
Nýtt, glæsilegt ca 310 fm einb. á fráb. sjávarlóð (ca 1.150 fm eignarlóð). Séríbúð með
sérinngangi á jarðh. og stórar 65 fm svalir, gert ráð f. heitum potti þar. Gott skipulag,
góðar stofur, 5 rúmgóð svefnherb., stór alveg fullbúinn bílskúr (50 fm) með jeppahurð og
fl. Til afhendingar strax, fullb. að utan og ríflega tilb. til innrétt. að innan. Lóðin tyrfð.
Hér hefur verið vandað vel til verks og allur frágangur til fyrirmyndar. Einstakur, rólegur
sælureitur á fallegum stað út við sjávarsíðuna. Verð 79 millj. Sjón er sögu ríkari.
Verið velkomin að Blikastíg 19 í dag milli kl. 15 og 17,
Einar sýnir eignina, s: 893-9169.
Heiðar Friðjónsson
lögg.fasteignasali
sími 693-3356
Sími 588 4477
48 SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF TIL BLAÐSINS
Glæsileiki – Fagmennska – Fyrir kröfuharða
Sjávarútsýni – Miðbær - Búum betur
Norðurbakki 1- 3, Hafnarfirði
F A S T E I G N A S A L A N
MIKLABORG
www.miklaborg.is
Fasteignasalan Miklaborg - Síðumúla 13 - Sími 569 7000
Óskar Rúnar Harðarson og Jason Guðmundsson, löggi l t i r fasteignasalar
Staðgreiðsla. Traustur kaupandi óskar eftir
virðulegu einbýlishúsi í nágrenni miðborgarin-
nar, t.d. í Þingholtunum. Rýming samkomulag.
Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir
Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
EINBÝLISHÚSI Í NÁGRENNI
MIÐBORGARINNAR ÓSKAST
T.D. Í ÞINGHOLTUNUM
Dr. Haidar Abdul-Shafi, skurðlæknir,
formaður Rauða hálfmánans á Gaza
og fyrrum formaður samninga-
nefndar Palestínumanna í Madrid-
friðarviðræðunum, er látinn.
Abdul-Shafi var sá forystumaður
sem naut hvað mestrar virðingar hjá
palestínsku þjóðinni og það var því
ekki nein tilviljun að Yassir Arafat
forseti Palestínu valdi hann til for-
mennsku í sendinefndinni til Madrid
árið 1991, enda þótt þeir væru ekki
flokksbræður. Dr.
Haidar stundaði
framhaldsnám í
Jerúsalem, Líb-
anon og í Banda-
ríkjunum en hann
lifði og starfaði
alla sína löngu ævi
á Gazaströndinni
þar sem hann
fæddist árið 1919.
Hann rak þar
stofu allt frá árinu 1945.
Abdul-Shafi var forseti löggjaf-
arþings á Gaza sem starfaði á ár-
unum 1962-65 undir verndarvæng
Egypta. Hann var einn af stofn-
félögum PLO 1964. Abdul-Shafi var
rekinn úr landi til Líbanons árið 1970
(af Ísraelsstjórn) fyrir störf sín í þágu
PLO. Hann var kominn aftur 1972 og
stofnaði þá Palestínska rauða hálf-
mánann á Gaza sem hann veitti for-
ystu fram á síðustu ár.
Dr. Haidar stofnaði PNI, palest-
ínska þjóðarfrumkvæðið með dr. Mu-
stafa Barghouthi og fleirum þann 17.
júní 2002.
Ég naut gestrisni hans og vináttu í
ferðum til Gaza og verð ævarandi
þakklátur fyrir að hafa notið þess
heiðurs að fá að kynnast honum og
heyra af hans vörum sögu Palestínu.
Minning Haidar Abdul Shafi mun
lifa meðan palestínsk þjóð dregur
andann.
SVEINN RÚNAR HAUKSSON
Frá Sveini Rúnari Haukssyni:
Haidar
Abdul-Shafi
Haidar Abdul-Shafi er látinn