Morgunblaðið - 30.09.2007, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 30.09.2007, Blaðsíða 64
64 SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Vönduð og persónuleg þjónusta Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Sími 551 7080 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. Ólafur Örn útfararstjóri, s. 896 6544 Inger Rós útfararþj., s. 691 0919                               ! "# $!% &   ' (!!%  ! $) (!!*% !! +! ( (!!*% , ( '$  (!!*% - $ .! $  (!!*% /  0  (!!*% 0  1 ! (!!*% ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, SVAVA INGIMUNDARDÓTTIR, áður Árskógum 6, andaðist á hjúkurunarheimilinu Skógarbæ sunnu- daginn 23. september. Jarðaförin fer fram frá Seljakirkju mánudaginn 1. október kl.15.00. Magnús Guðnason, Jón Steinar Snorrason og fjölskylda. ✝ Minningarathöfn um FINNBOGU ÖLDU KRISTJÁNSDÓTTUR, Engihjalla 1, Kópavogi, fer fram þriðjudaginn 2. október frá Fossvogskirkju kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Sigurður Ingvi Ólafsson og fjölskylda. ✝ Okkar ástkæri ÁRNI EYJÓLFSSON, Vaðlaseli 6, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 2. október kl. 13.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Björgunarsveitir Lands- bjargar. Þórunn Ólöf Sigurðardóttir, Sigríður Anna Árnadóttir, Gísli Sigurjón Brynjólfsson, Finnur Darri Gíslason, Eyjólfur Árnason, Arnhildur Eva Steinþórsdóttir, Kristófer Blær Jóhannsson, Birna Hrund Árnadóttir, Eyjólfur Árnason og systkini hins látna. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, HALLDÓRA KOLKA ÍSBERG, Huldulandi 1, Reykjavík, sem andaðist fimmtudaginn 20. september, verður jarðsungin frá Háteigskirkju mánudaginn 1. október kl. 13.00. Páll Kolka Ísberg, Ásta Bárðardóttir, Baldur Ingi Ísberg, Ósk Þorsteinsdóttir, Guðbrandur Árni Ísberg, Bjarni Viðar Sigurðsson og barnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, SIGRÚN INGÓLFSDÓTTIR, Kirkjuvegi 11, Keflavík, lést aðfaranótt mánudagsins 24. september á Dvalarheimilinu Hlévangi, Keflavík. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 2. október kl. 14.00. Magnús Haraldsson, Sigurbjörg Halldórsdóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir, Hinrik Sigurðsson, María S. Haraldsdóttir, Sigmundur Ó. Steinarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir og tengdamóðir, ANNA LILJA GESTSDÓTTIR flugfreyja, Heiðarbakka 1, Keflavík, verður jarðsungin í Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 4. október kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á minningarsjóð Ólafs Sólimanns Lárussonar og barna hans hjá Þroskahjálp á Suðurnesjum, sími 421 5331. Reynir Ólafsson, Gestur Páll Reynisson, Inga María Vilhjálmsdóttir, Kristín Guðrún Reynisdóttir, Bjarki Ómarsson. ✝ Hannes RagnarÞórarinsson fæddist 19. desem- ber 1916 í Reykja- vík. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 13. sept- ember síðastliðinn Foreldrar Hann- esar voru Ástríður Hannesdóttir Haf- stein, f. 30.8. 1893, d. 6. 12. 1985, og Þór- arinn Kristjánsson verkfræðingur og hafnarstjóri Reykja- vík, f. 27. 7. 1886, d. 19. 6. 1943. Systkini Hannesar voru: Anna, f. 23.7. 1918, d. 24.6. 2006, sjúkra- þjálfari í Reykjavík og Jón, f. 8.11. 1919, d. 16.9. 1975, lyfjafræðingur, lyfsali í Iðunnarapóteki í Reykja- vík. Hálfbróðir hans, samfeðra var Njáll, f. 10.8. 1908, d. 17.4. 2004, heildsali í Reykjavík. Hinn 17.12. 1949 kvæntist Hannes Bergþóru Jónsdóttur, í Reykjavík, f. 22.7. Sigurður Hannesson, f. 4.10. 1955, prentsmiður í Reykjavík. Dóttir hans er Svanhildur Kamilla. Hann- es varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1936. Hann lauk námi í læknisfræði við Há- skóla Íslands 1943. Hélt til Banda- ríkjanna til framhaldsnáms og lauk þar sérgrein í húð- og kyn- sjúkdómum á Mayo Clinic árið 1947. Starfaði um langt árabil á Húðdeild Heilsuverndarstöðv- arinnar og Landspítalans, var þar lengst af yfirlæknir. Samhliða því rak hann eigin læknastofu þar sem hann sinnti sérgreinum sínum en var á tímabili jafnframt heim- ilislæknir hóps Reykvíkinga. Sinnti einnig kennslu í húðsjúkdóma- fræðum í læknadeild HÍ og Hjúkr- unarskóla Íslands. Hann var trún- aðarlæknir sendiráðs Bandaríkjanna í Reykjavík 1950- 1982 og heilbrigðisþjónustu Sam- einuðu þjóðanna 1955-1982. Hann- es var í byggingaráði Domus Me- dica 1962-66 og í hússtjórn þess 1966-69. Var í stjórn Læknafélags- ins Eirar 1949-51 og í stjórn Læknafélags Reykjavíkur á ár- unum 1950-1962. Útförin hefur farið fram í kyrr- þey að ósk hins látna. 1927, d. 21.2. 1973. Foreldrar hennar voru Sigrún Jóns- dóttir, f. 5.6. 1891, d. 13.7. 1958 og Jón Hjartarson kaup- maður í Reykjavík, f. 15.8. 1888, d. 29.3. 1941. Börn Hannesar og Bergþóru eru: 1) Jón Gunnar Hann- esson, f. 23.4. 1950, læknir. Börn hans eru a) Hannes Pétur í sambúð með Önnu Lísu Pétursdóttur og b) Magnea Þóra. 2) Ástríður Hann- esdóttir, f. 30.11. 1951, hjúkr- unarfræðingur. Dætur hennar eru a) Fanney Þóra Vilhjálmsdóttir, gift Bjarka Einarssyni og b) Guð- laug Hanna Vilhjálmsdóttir. 3) Þórarinn Hannesson, f. 26.8. 1953, læknir, kvæntur Birnu Steingríms- dóttur, f. 31.7. 1954. Dætur þeirra eru a) Vala, sonur hennar er Andri Freyr Haraldsson og b) Heiða. 4) Í vernduðum heimi frumbernsku- áranna á Smáragötu héldum við að það væru bara til tveir læknar á Ís- landi. Hannes Þór og Stefán Ólafsson. Við höfðum ekki hugmynd um hvort það væri til eitthvað sem hét Slysa- varðstofa eða Bráðamóttaka því ef einhver okkar systranna veiktist var Hannes læknir mættur á mettíma. Hann var einhvern veginn alltaf til staðar þegar á þurfti að halda. Milli heimilanna voru aðeins nokkrar mín- útur og Hannes og Bergþóra kona hans góðir vinir foreldra okkar og mikill vinskapur milli allra barnanna. Bólusetningar fóru fram heima og ef það þurfti að fara í kirtlatöku eða slíkt, var bara farið á niður á Skólabrú eða inn á Landakotsspítala. Það skipti ekki máli hvers eðlis veikindin voru. Einni systranna datt til dæmis í hug að prófa að athuga hvort perlur úr perlufesti pössuðu inn í nefið á henni, önnur borðaði eitthvað sem olli útbrotum og sú þriðja rauk upp í hita. Hannes læknir var kominn. Svo fékk hann sér bara kaffi og okkur batnaði. Það fór aldrei mikið fyrir honum Hannesi. Hann var hógvær og hljóð- látur, hámenntaður læknir frá einni virstustu læknastofnun veraldar, Ma- yo Clinic í Rochester í Minnesota- fylki, þangað sem hann hélt með vini sínum, Stefáni Ólafssyni á stríðsárun- um. Minningar frá fimmtíu og fimm ára samveru eru margar og myndir af Hannesi óteljandi. Í hvíta læknis- sloppnum á stofunni, í setustofunni heima að spjalla við foreldra okkar, ömmu og afa, að ganga þung spor upp útitröppurnar til að færa okkur fregn- ir af því að afi hefði orðið bráðkvadd- ur. Hannes með stöng við bakka Straumfjarðarár og svo síðustu árin sem hinn þakkláti fullorðni maður sem hlífði sér hvergi þrátt fyrir veik- indi. Það er á engan hallað þó hér sé fullyrt að aldrei hef ég séð nokkra manneskju annast veikt foreldri sitt af annarri eins alúð,virðingu og um- burðarlyndi og Adda vinkona mín sýndi föður sínum síðustu árin hans. Barnabörnin Hannes Pétur, Fanney Þóra og Guðlaug Hanna voru honum einstaklega góð og mættu mörg ung- mennin taka þau sér til fyrirmyndar í framkomu við þá sem eldri eru. Kærum vinum, Sigga, Tóta (sem við kölluðum nú alltaf Bóa), Jónsa og traustu vinkonunni Öddu eru hér færðar innilegar samúðarkveðjur frá okkur systrunum, Ingunni, Elísabetu og mér og móðir okkar Elín Krist- jánsdóttir, þakkar Hannesi ævilanga samfylgd og vináttu. Langri og góðri lífsgöngu Hannesar Þórarinssonar er lokið. Um leið lýkur stórum kafla í lífi okkar allra sem ólumst upp í tilveru sem brátt heyrir sögunni til. Hvert bernskuheimilið á fætur öðru er kom- ið í annarra hendur. Aðeins Sóleyj- argata 27 stóð af sér breytingarnar en hún verður aldrei söm án Hannesar. Guð blessi minningu hins mæta manns, Hannesar Þórarinssonar og styrki ástvini hans. Anna Kristine Magnúsdóttir. Hinn 13. september andaðist á Landspítalanum við Hringbraut Hannes Þórarinsson læknir, frændi okkar og vinur. Hannes var sérstaklega hæfur sér- fræðingur og mjög góður læknir. Sinnti hann með miklum ágætum fjöl- mennu frændfólki sínu auk almenn- ings, sem til hans leitaði. Við, sem nutum þessa getum trútt um talað. Hannesi var umhugað um sjúklinga sína og hringdi utan hefðbundins vinnutíma í þá og vandamenn þeirra til að fylgjast náið með líðan og ár- angri. Hann hóf störf þegar húsvitj- anir lækna voru almennt stundaðar og hélt húsvitjunum lengi áfram. Þeir, sem hann stundaði, fundu jafnan til mikils eftirlits og góðrar umönnunar. Hannes var einn af drengjum séra Friðriks Friðrikssonar og hélt jafnan trú í göfugu ævistarfi. Hannes var einstaklega ljúfur mað- ur og fólki leið vel í návist hans. Við minnumst hans með hlýju. Með Hannesi Þórarinssyni er genginn drengur góður, sem okkur þótti vænt um og mátum mikils. Megi góður Guð blessa minningu Hannesar Þórarinssonar, svo og börn hans og fjölskyldur þeirra. Hilmar Foss og fjölskylda. Hannes Ragnar Þórarinsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.