Morgunblaðið - 30.09.2007, Qupperneq 81
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2007 81
WWW.SAMBIO.IS
/ KEFLAVÍK / SELFOSSI
CHUCK AND LARRY kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára
SHOOT'EM UP kl. 8 B.i. 16 ára
VACANCY kl. 10 B.i. 16 ára
BRATZ kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ
LICENSE TO WED kl. 6 LEYFÐ
HÁKARLABEITA m/ísl. tali kl. 2 - 4 LEYFÐ
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 1:30 LEYFÐ
/ AKUREYRI
NO RESERVATIONS kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ
3:10 TO YUMA kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
MR. BROOKS SÍÐUSTU SÝNINGAR kl. 6 B.i. 16 ára
BRATZ kl. 2 LEYFÐ
ASTRÓPÍA SÍÐUSTU SÝNINGAR kl. 4 LEYFÐ
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 2 - 4 LEYFÐ
DISTURBIA kl. 8 - 10:20 B.i. 14 ára
KNOCKED UP kl. 5:30 B.i. 14 ára
VEÐRAMÓT kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára
HÁKARLABEITA m/ísl. tali kl. 2 - 3:40 LEYFÐ
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 1:30 - 1:40 LEYFÐ
HVERSU LANGT MYNDIRU GANGA
FYRIR BESTA VIN ÞINN?
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
ALLIR EIGA SÍN LEYNDARMÁL
ÓVÆNTASTI SÁLFRÆÐITRYLLIR ÁRSINS
eeee
– KVIKMYNDIR.IS
eee
– L.I.B TOPP5.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
eeee
- JIS, FILM.IS
eeee
- A.S, MBL
eeee
- RÁS 2
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
YFIR 40.000
MANNS
eeee
JIS, FILM.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI SÝND Í KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK
SÝND Í KRINGLUNNI
eeee
- E.E., DV
eeee
- S.V., MBL
SÝND Á SELFOSSISÝND Á SELFOSSISÝND Í KEFLAVÍK
BÍÓUNUM ÁFABAKKA, KRINGLUNNU, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
um, og þótt The Ghost of Tom Joad
sé að upplagi „mótmælaskífa“ fær
maður á tilfinninguna við hlustun á
hana að hann sé frekar að leika reitt
söngvaskáld en að reiðin komi frá
hjartanu og þótt The Rising geymi
magnað lag um árásina á tvíturnana í
New York er annað á plötunni fremur
stirðbusalegt.
Sjálfsævisögulegar pælingar og
pólitískar bombur
Tvennt hefur svo orðið til þess að
blása lífi í Bruce Springsteen á síð-
ustu árum. Þar er fyrst að telja að
hann tók virkan þátt í kosningabar-
áttu Johns Kerrys er sá síðarnefndi
glímdi við George Bush 2004. Annað
sem hafði einnig mikil, og líklega
meiri áhrif var að hann tók til við að
syngja lög úr sarpi Petes Seegers, en
sá var annálað mótmælaskáld og
vinstrimaður þegar það var ljótasta
orð sem hægt var að velja manni
vestan hafs.
Á morgun kemur út ný plata með
Springsteen og E-Street-sveitinni,
fyrsta platan sem hann gerir með fé-
lögum sínum í fimm ár. Skemmst er
frá því að segja að á skífunni minnir
hann á gamla daga, á þann tíma þeg-
ar honum var svo lagið að hræra sam-
an sjálfsævisögulegum pælingum og
pólitískum bombum – sjá til að
mynda lagið „Last to Die“ þar sem
hann veltir upp spurningunni frá
John Kerry: Hver verður síðastur til
að deyja vegna misskilnings? og vísar
þá til þess hvernig Bandaríkjaforseti
kom þjóðinni út í stríðið í Írak.
LÍTILL moli úr Pulse Scheme sem
Film London og UK Film Council
komu á fót til að styrkja gerð staf-
rænna stuttmynda. Wright tekur
fyrir árekstra menningarheima í
daglegu lífi. Mörkin sem liggja allt
um kring og ekki má fara yfir. Rob
(Lee Turnbull) er
ungur Breti sem
hirðir garða fyrir
fólk. Dag einn er
hann sendur án
yfirmanns í verk-
efni og fær mjög
svo óvanan að-
stoðarmann, Pól-
verjann Feliks
(Ingvar E. Sig-
urðsson). Þeir fé-
lagar virðast eiga fátt sameiginlegt.
Tungumálið skapar örðugleika í
samskiptum og gremjan hleðst upp
á milli þeirra.
Wright notar vel hið knappa form
stuttmyndarinnar. Hann stillir and-
stæðunum upp, leyfir þeim síðan að
tala sjálfum, og heldur áfram. Tekst
þannig að segja meira á tíu mínútum
en margri þriggja tíma langlokunni.
Hann notar hlutina á einfaldan og
augljósan hátt, t.d. val á tökustöðum
– svo sem við lestarteinana. Á við, en
er líka margrætt. Takmarkið með
Pulse-verkefninu var að fá nýja kyn-
slóð kvikmyndagerðarmanna til að
nota stafræna tækni til að segja sög-
ur á nýjan hátt. Saga Wrights er
reyndar ósköp hefðbundin, og hann
segir hana á frekar klassískan hátt.
En hún er fagmannlega unnin og vel
úr garði gerð.
Border Work
Leikstjóri: Tom Wright. Aðalleikarar: Lee
Turnbull, Ingvar E. Sigurðsson. 10 mín.
Bretland. 2006.
Sýnd í Regnboganum 30. sept-
ember.
Anna Sveinbjarnardóttir
Ingvar E.
Sigurðsson.
EINSTAKLEGA falleg kvikmynd
um rótlausan ungan mann af sí-
gaunaættum. Hann er ungverskt
stofnanabarn sem fer að forvitnast
um uppruna sinn. Óvissan nagar
hann, og óþægileg endurminn-
ingabrot leita á hann. Hver er
hann? Hvers vegna missti hann
allt samband við foreldra og fjöl-
skyldu? Sagan er í sjálfu sér ekki
flókin eða ný, en framsetningin er
fumlaus á flestum sviðum. Kvik-
myndataka Gabors Szabos og
Marks Gyoris fangar borg-
arumhverfið sem ungi maðurinn
fer um eins og skuggavera sérlega
vel. Andstæður ljóss og skugga,
litaval, uppsetning leikmuna –
leikstjórinn Bogdan skapar um-
gjörð sem sýnir hve erfitt er að
fóta sig þegar sjálfsmyndin er
óljós eða sködduð. Einna helst að
hann slái feilnótu þegar eitt atriði
alveg undir lokin dettur allt í einu
inn í frekar nýlega japanska hryll-
ingsmynd. Tónlistin í myndinni er
einnig sérlega vel lukkuð og
spinnur réttu stemninguna fyrir
leit söguhetjunnar að lífsfyllingu
og heilsteyptri sjálfsmynd.
Gleðilegt nýtt líf –
Boldog új élet
Leikstjóri: Arpad Bogdan. Aðalleikarar:
Lajos Orsos, Istvan Szilvasi, Roland
Tzafetas. 81 mín. Ungverjaland. 2007.
Sýnd í Tjarnarbíói 30. september,
1. október og 4. október.
Anna Sveinbjarnardóttir
FRUMÖSKRIÐ er leyst úr læð-
ingi í rokkbúðum í Portland í
Bandaríkjunum. Þar fá stúlkur á
aldrinum 8 til 18 ára að fara í
gegnum skapandi tónlistarferli
með alvöru rokkpíum. Hið viku-
langa ferli felur jafnframt í sér
mikilvæga sjálfsstyrkingu. Þetta er
viðfangsefni heimildarmyndar Ar-
nes Johnsons og Shanes Kings,
Stelpur rokka.
Myndin fangar ótrúlega
skemmtilega orku og kraft stelpn-
anna. Hugmyndafræði búðanna er
að gefa stúlkunum mótvægi við
þeim staðalmyndum sem virðast
vera ráðandi í þjóðfélaginu. Kröfur
um útlit og hegðun eru ræddar og
hugleiddar. Í búðunum er allt í lagi
að mistakast og prófa sig áfram.
Þar er ekki alltaf allt fullkomið, og
það er allt í lagi að vera öðruvísi.
Uppbygging myndarinnar er
sterk. Tónlist er auðvitað mikill
áhrifavaldur og innskot eru í anda
tónlistarmyndbanda. Í þeim er
komið að tölfræði um ýmislegt sem
varðar hag ungra telpna í hinum
vestræna heimi í dag. Þessar upp-
lýsingar setja vinnuna í búðunum í
mikilvægt samhengi. Þær undir-
strika nauðsyn þess að stúlkurnar
læri að standa á sínu. Þetta eru
kvenskörungar framtíðarinnar.
Girls Rock – Stelpur rokka
Leikstjóri: Arne Johnson & Shane King.
86 mín. Bandaríkin. 2007.
Sýnd í Regnboganum 30. sept-
ember og 2. október.
Anna Sveinbjarnardóttir
Kvikmyndahátíð í Reykjavík