Morgunblaðið - 28.10.2007, Page 4
4 SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MÆLING HEIMSINS EFTIR DANIEL KEHLMANN
STÓRFENGLEGT
MEISTARAVERK
SKEMMTILESTUR
AF BESTU GERÐ
Mæling heimsins er sambland af vísinda-
sögu og lygasögu. Bókin er skrifuð af stór-
hug og er skemmtilestur af bestu gerð,
full af litlum athugunum sem kitla hug-
ann svo mann langar mest til að hrópa
af fögnuði. Mæling heimsins var næst
mest selda skáldsaga heims árið 2006.
1. SÆTI
Á METS
ÖLULIS
TA
EYMUN
DSSON
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
„ÉG ferðast um heiminn og breiði út
boðskapinn,“ segir Bartolome Celli,
lungnalæknir um starf sitt en hann
hefur í tæpa þrjá áratugi rannsakað
langvinna lungnateppu (LLT). Þótt
hann brosi er hann segir þetta verð-
ur hann fljótt alvarlegur, enda eng-
inn barnaleikur á ferð. Langvinn
lungnateppa dró á síðasta ári fleira
fólk til dauða í Bandaríkjunum en
lungna- og brjóstakrabbamein sam-
anlagt. Fleiri konur en karlar látast
úr þessum falda sjúkdómi sem er
mjög vangreindur á heimsvísu.
Celli hélt fyrirlestur á fundi um
langvinna lungnateppu í Þjóðminja-
safninu á fimmtudag. Hann segist
vilja vekja sem flesta til umhugsunar
um algengi sjúkdómsins, að hægt sé
að koma í veg fyrir hann og að hægt
sé að meðhöndla hann, sérstaklega ef
hann uppgötvast á fyrri stigum.
Hann hefur undanfarið unnið að
tímamóta rannsóknum sem munu
innan fárra ára vonandi verða til þess
að hægt verður að greina og meta
áhættu langvinnrar lungateppu hjá
fólki, áður en sjúkdómurinn lætur á
sér kræla. Yrði það gert með blóð-
rannsóknum. „Ákveðnir hópar eru í
meiri áhættu en aðrir að fá langvinna
lungnateppu,“ segir Celli. Helsti
áhættuþátturinn eru reykingar en
sumir reykingamenn eru líklegri en
aðrir til að þróa með sér sjúkdóminn.
Með slíkum rannsóknum væri hægt
að finna ákveðin merki um að við-
komandi væri í áhættuhópi. „Þannig
að í staðinn fyrir að bíða eftir að lík-
amlegra einkenna sjúkdómsins verði
vart, verður hægt að koma í veg fyrir
hann með þessum aðferðum,“ segir
Celli. Hann tekur sem dæmi að ef
nítján ára maður kæmi í slíka rann-
sókn, upp kæmist að hann væri lík-
legur til að fá LLT, væri hægt að
grípa inn í, hugsanlega með lyfjagjöf
og hjálpa honum að hætta að reykja.
Niðurstöður rannsóknarinnar lofa
þegar góðu, stærri rannsókn lyfja-
fyrirtækisins GlaxoSmithKline er
farin af stað en í henni taka þátt
3.000 manns. Segist Celli vongóður
um að hægt verði að beita aðferðinni
innan fárra ára.
Fáir þekkja sjúkdóminn
„Langvinn lungnateppa er gríð-
arlega vangreindur sjúkdómur,“ seg-
ir Celli. „Í öllum löndum þar sem
þetta hefur verið rannsakað, m.a. í
nýlegri rannsókn sem Íslendingar
tóku þátt í, er staðreyndin sú að mun
færri eru greindir með sjúkdóminn
en þeir sem hafa hann. Þetta er eins
og ísjaki, við rétt sjáum í toppinn á
honum. Þetta er ógnvekjandi, því
dauðsföllum af völdum langvinnrar
lungnateppu fer hratt fjölgandi,
hraðar en vegna allra annarra sjúk-
dóma í heiminum.“ Nefnir hann sem
dæmi að lengi vel var haldið að Jap-
anar væru í minni hættu á að fá sjúk-
dóminn en aðrir, að aðeins um 1%
sjúklinga hefði LLT. „En nýleg
rannsókn sýnir að hlutfallið er 16%,“
segir Celli. Það sama hefði gerst í
Kóreu.
Fleiri konur en karlar deyja vegna
LLT í heiminum í dag. Þá hefur þró-
unin orðið sú að fleiri táningsstúlkur
en drengir reykja, t.d. í Bandaríkj-
unum. „Þetta bil milli karla og
kvenna sem deyja vegna LLT mun
því halda áfram að aukast á komandi
árum.“
Ástæður þess að sjúkdómurinn er
jafn vangreindur og vanmeðhöndl-
aður og raun ber vitni skýrist af
nokkrum þáttum að mati Celli.
Læknar koma ekki alltaf auga á ein-
kennin í tíma og skrifa þau á aðra
sjúkdóma, sjúklingar telja að ákveð-
in einkenni LLT, séu eðlilegir fylgi-
fiskar reykinga og gera sér ekki
grein fyrir hættunni í tíma og í þriðja
lagi skýrist þetta af skorti á stuðn-
ingi hins opinbera við rannsóknir.
Allir í heiminum þekkja sjúkdóma
á borð við alnæmi, en fáir gera sér
grein fyrir því að LLT er mun al-
gengari, 4 þúsund manns létust úr al-
næmi í Bandaríkjunum á síðasta ári
en margfalt fleiri, eða 130 þúsund
manns, úr LLT.
„Þetta er vissulega að batna, sífellt
fleiri eru sér meðvitandi um hættuna
á sjúkdómnum, bæði sjúklingar og
læknar,“ segir Celli.
Beint til læknis
„Allir sem hafa hósta og eru and-
stuttir eiga hiklaust að spyrja lækn-
inn sinn hvort mögulegt sé að þeir
séu með langvinna lungnateppu,“
segir Celli. „Það er sorglegt að flestir
greinast með LLT á aldursbilinu 55-
60 ára, rétt þegar þeir eru að hætta
að vinna. Þetta fólk, sem margt hvað
hefur unnið allt sitt líf, er tilbúið að
hætta að vinna, getur ekki notið lífs-
ins líkt og það ætlaði sér. LLT skerð-
ir verulega lífsgæði þeirra.“
Celli segir nauðsynlegt að til reiðu
sé ávallt hjálp fyrir þá sem vilja
hætta að reykja. „Auðvitað eigum við
að reyna með öllum ráðum að hindra
fólk í að byrja að reykja. En það er
staðreynd að börn í Bandaríkjunum
byrja ung að reykja, jafnvel 11 ára
gömul. Vissulega hefur dregið úr
reykingum undanfarna áratugi í
landinu og ég er bjartsýnn á að við
munum bera sigur úr býtum í barátt-
unni við tóbaksfyrirtækin sem beita
öllum hugsanlegum ráðum til að ná
til unga fólksins okkar.“
Aðeins toppurinn
á ísjakanum greindur
Fleiri konur deyja úr langvinnri lungnateppu en úr brjósta- og lungnakrabba-
meini samanlagt Sjúkdómurinn er talinn vera mjög vangreindur á heimsvísu
Morgunblaðið/Frikki
Sendiboði Lungnalæknirinn Bartolome Celli ferðast um heiminn og fræðir fólk um langvinna lungnateppu.
Í HNOTSKURN
»Bartolome Celli fæddist íVenesúela en hefur starf-
að í Bandaríkjunum und-
anfarna áratugi.
»Hann nam læknisfræði íBoston og vann við Bost-
onháskóla í tuttugu ár.
»Hann starfar nú hjá Car-itas Christi-stofnuninni
sem er hluti af Tufts-háskól-
anum. Hann á sæti í fjölmörg-
um félögum, samtökum,
nefndum og ráðum sem fjalla
um langvinna lungnateppu
enda einn helsti sérfræðingur
Bandaríkjanna í faginu.
GUÐLAUGUR
Þór Þórðarson
heilbrigðisráð-
herra hefur skip-
að fjórar nýjar
nefndir sem falið
hefur verið að
sinna stefnumót-
un og eftirliti með
heilbrigðisstofn-
unum og veita
ráðherra ráðgjöf
um málefni þeirra, auk þess sem ein
nefndin mun fjalla um nýbyggingar
og aðstöðu heilbrigðisstofnana. Sú
nefnd er undir formennsku Ingu
Jónu Þórðardóttur.
Formaður nýrrar ráðgjafarnefnd-
ar um Landspítala er Ingibjörg
Pálmadóttir, fyrrverandi heilbrigð-
isráðherra. Í nefndinni situr fólk frá
mörgum sviðum samfélagsins, sem
endurspeglar meðal annars sjónar-
mið neytenda, atvinnulífs og há-
skólasamfélags. Nefndinni er sam-
kvæmt lögunum ætlað að vera
forstjóra spítalans og framkvæmda-
stjórn hans til ráðgjafar og álits um
þjónustu, starfsemi og rekstur spít-
alans.
Formaður nefndar um málefni
Landspítala er Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins. Nefndinni er ætlað að
skilgreina hlutverk Landspítala og
gera tillögur um hvernig greina megi
að kjarnastarfsemi hans og önnur
verkefni, framkvæma athugun á
stjórnskipulagi Landspítala og gera
úttekt á rekstri hans.
Heilbrigðisráðherra hefur skipað
fimm manna nefnd er mun sinna
sambærilegu hlutverki um stefnu-
mótun, eftirlit og ráðgjöf til ráðherra
fyrir Sjúkrahúsið á Akureyri. For-
maður þeirrar nefndar er Andri
Teitsson verkfræðingur.
Skipaði
Ingibjörgu
formann
Skipar fjórar nefndir
um heilbrigðismál
Ingibjörg
Pálmadóttir
UMFERÐARÓHAPP var skömmu
eftir miðnættið á Reykjanesbraut-
inni í fyrrakvöld. Ökumaður missti
vald á bifreið sinni rétt austan við
Vogaveg eftir að hafa ekið á umferð-
armerki, sem gefur til kynna lækkun
á ökuhraða. Eftir að hafa ekið á um-
ferðarmerkið rann bifreiðin stjórn-
laust á ljósastaur við brautina, sem
brotnaði við áreksturinn. Mildi þykir
að engan skyldi saka við óhappið.
Bifreiðin var fjarlægð af vettvangi
með kranabifreið mikið skemmd.
Ók á um-
ferðarmerki
DREGIÐ hefur úr útblæstri gróður-
húsalofttegunda vegna framleiðslu
áls um 14% á árunum 2000 til 2005, ef
marka má nýlegar niðurstöður Al-
þjóðastofnunar áliðnaðarins og er það
þrátt fyrir að framleiðsla hafi aukist
um 20% á sama tíma.
Í frétt stofnunarinnar segir m.a. að
árangurinn megi helst þakka miklum
árangri við að hefta útblástur
perflúorkolefna (PFC) um 56%, en
einnig hafi annar útblástur minnkað
um tólf prósent.
„Þetta er mjög líklegt, því það sem
álfyrirtæki hafa verið að gera undan-
farin ár, er að jafna það sem kallað er
spennuris,“ segir Árni Finnsson, for-
maður Náttúruverndarsamtakanna,
og bendir á að það hafi fyrst verið
gert hjá ISAL hér á landi. „Með því
að jafna spennurisið þá minnka fyr-
irtækin verulega útblástur PFC, sem
aftur er mjög öflug gastegund og eitt
tonn af PFC er á við 6.500 tonn af
koltvísýringi.“ Hann bendir á að Al-
coa hafi dregið úr útblæstri sömu efna
um 25% frá 1990-2002.
Árni segir þessar tölur vissulega
vera góðar fréttir en betur má ef duga
skal. „Það sem álfyrirtækin hafa hins
vegar ekki gert, en þurfa að endingu
að gera, er að skipta út kolarafskaut-
um fyrir annars konar rafskaut –
stundum nefnd óvirk rafskaut – gerð
úr keramiki. Þá munu ekki verða
brennd kolefni við bræðsluna og því
engin losun á koltvísýringi, sem álver-
in losa mest af.“
Dregið úr útblæstri
þrátt fyrir fram-
leiðsluaukningu
♦♦♦
Sundagöng
mun dýrari
Kostnaður gæti verið
25-26 milljarðar kr.
KOSTNAÐUR við gerð jarðganga
undir Elliðaárvog gæti verið 10
milljörðum hærri en frumáætlanir
gerðu ráð fyrir. Þetta er niðurstaða
skýrslu sem Vegagerðin er að vinna
og verður send borgaryfirvöldum á
næstunni.
Kostnaður við gerð jarðganganna
hefur verið áætlaður um 16 milljarð-
ar króna miðað við svokallaða ytri
leið. Sérfræðingar Vegagerðarinnar
hafa verið að afla sér upplýsinga í
Svíþjóð og Noregi um kostnað við
jarðgöng miðað við nýjustu örygg-
isstaðla. Niðurstaða þeirra er að
kostnaðurinn gæti numið 25 til 26
milljörðum króna miðað við sænska
staðla. Málið hefur ekki verið kynnt
skipulagsnefnd Reykjavíkurborgar.