Morgunblaðið - 28.10.2007, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2007 19
Í næstu viku fylgjum við Lofti
og Ísafold á fund með hópn-
um þeirra í verkefninu Vist-
vernd í verki. Umræðuefnið
er samgöngumál. Og þá hitn-
ar heldur betur í kolunum.
Út í loftið | 4.grein
Skrifstofupappír Sendur til Svíþjóðar
til endurvinnslu þar sem hann verður
m.a. að eldhús- og klósettpappír.
Skór Sendir til Þýskalands þar sem
þeir eru flokkaðir og seldir eða gefnir
til líknarstarfs. Hagnaður af sölunni
rennur til Samtaka íslenskra kristni-
boðsfélaga.
Spilliefni Ýmiss konar hreinsiefni,
lím, málning, þynnir, leysiefni, raf-
hlöður, skordýraeitur, úðabrúsar o.fl.
er flokkað sem spilliefni sem Efna-
móttakan sér um að sé fargað á við-
eigandi hátt eða þau endurunnin.
Timbur Notað sem kolefnisgjafi í
framleiðslu járnblendis hjá Íslenska
járnblendifélaginu.
Ofangreindum sorpflokkum má flest-
um koma á endurvinnslustöðvar
Sorpu nema annað sé sérstaklega
tekið fram. Utan höfuðborgarsvæð-
isins geta söfnunarstöðvar sveitarfé-
laganna gefið upplýsingar um við
hvaða úrgangsflokkum er tekið til
endurvinnslu.
Nánari upplýsingar á www.sorpa.is
og í Góða hirðinum á meðan birgðir
endast. Sorpa hefur einnig verið með
sérstaka kassa undir rafhlöður sem
Efnamóttakan hf. hefur látið útbúa
og er hægt að fá þá gefins á endur-
vinnslustöðvum.“
Sorpa sér ekki um sorphirðu
„Hvers vegna er Sorpa ekki með
neinar tunnur?“ spyr Hreinn til að
fyrirbyggja að fólk haldi að hann sé
utangátta í umræðunni.
„Sorpa sér ekki um sorphirðu,
hvorki hjá almenningi né fyrir-
tækjum, sorphirðan er á vegum ann-
arra aðila, sem sjá um hana fyrir
sveitarfélögin. Sorpa er byggða-
samlag í eigu allra sveitarfélaganna á
höfuðborgarsvæðinu. Hlutverk
hennar er að annast meðhöndlun úr-
gangs fyrir öll sveitarfélögin svo sem
að starfrækja urðunarstað, móttöku-
stöð, endurvinnslustöðvar, þróa nýj-
ar aðferðir til þess að vinna verðmæti
úr úrgangsefnum, eyðingu hættu-
legra úrgangsefna og kynna gildi
umhverfissjónarmiða í meðhöndlun
sorps.“
Þar með hefur Ringó ausið úr
brunni sínum og fjölskyldan okkar
orðin ágætlega upplýst um sorpmál.
Umhverfisfræðingurinn bregður sér
enn og aftur í ófreskjulíki í anddyr-
inu á leiðinni út og nú tekur sig loks-
ins upp bros hjá Snæfríði Sól. Hann
er nú ekki svo ógnvekjandi eftir allt
þessi skrítni skeggjaði karl. Sú stutta
kveður hann meira að segja með
handabandi.
„Kærar þakkir, Ringó minn, og
farðu nú vel með þig,“ segir Ísafold í
kveðjuskyni og Loftur kallar á eftir
gestinum: „Lifi byltingin!“
Ringó horfir rannsakandi á hann.
„Græna byltingin,“ flýtir Loftur
sér að segja.
» Lífrænum úrgangi frá eldhúsi og garði er hægt að umbreyta í frjósama gróðurmold í ferlisem kallast jarðgerð eða moltugerð.
» Ef lífræni úrgangurinn er jarðgerður er komið í veg fyrir mengunarvandamálin. » Heimajarðgerð er þar að auki umhverfisvæn þar sem mengun samfara flutningi, brennslueða urðun sorpsins minnkar eða hverfur.
» Minna pláss fer undir urðun sorps og með jarðgerð er unnið gegn landeyðingu. » Með heimajarðgerð útvegarðu þér ókeypis gæðamold.» Minna sorp frá þér leiðir til lægra sorphirðugjalds í sumum sveitarfélögum (og brátt öllum!?). » Leiðbeiningar um heimajarðgerð er hægt að nálgast meðal annars hjá umhverfisráðuneytinu. Inni áheimasíðu Sorpu og hjá söluaðilum safnkassa / moltukassa.
Úr brunni Heimsálfsins