Morgunblaðið - 28.10.2007, Blaðsíða 60
60 SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
Í vikunni geisuðu miklir
skógar-eldar í sunnan-verðu
Kaliforníu-ríki, en eldarnir eru
nú að minnka.
Embættis-menn áætla að
eigna-tjónið af völdum
eldanna sé um einn
milljarður dollara, sem er um
60 milljarðar króna.
Um 1.700 hús hafa
brunnið í um 20 stórum
skógar-eldum. Alla vega hálf
milljón manna þurfti að flýja
heimili sín vegna eldanna og
er það mesti fjölda-flótti í
sögu ríkisins. Að-stoð við
fólkið var til fyrir-myndar, ólíkt
því þegar felli-bylurinn Katrín
fór yfir New Orleans.
George W. Bush
Bandaríkja-forseti lýsti því yfir
að stór-felldar ham-farir
hefðu orðið á svæðinu.
Vegna þess munu
alríkis-stofnanir veita
yfir-völdum og íbúum
svæðisins fjárhags-aðstoð.
8.900 slökkviliðs-menn og
90 flug-vélar tóku þátt í
slökkvi-starfinu.
Alla vega 12 manns létu
lífið í eldunum og um 60
manns slösuðust.
Miklir skógar-eldar í Kaliforníu
Reuters
Bandaríkja-forseti George W. Bush skoðar sig um í rústunum.
Þing-kosningar fóru fram í
Pól-landi fyrir viku. Pólski
stjórnar-flokkurinn Lög og
réttur (PiS) tapaði fyrir
Borgara-vettvangi (PO). Það
er frjáls-lyndur
flokkur sem
fékk 42%
at-kvæðanna.
Lög og réttur,
íhalds-flokkur
tví-buranna
Jaroslaws
Kaczynskis
forsætis-ráðherra og Lech
Kaczynskis for-seta, fékk
34% at-kvæðanna. Lög og
réttur hafa verið við völd í 2
ár. Þeir bræður hafa lent í
deilum við Þjóð-verja í
Evrópu-málum. Þeir eru til
dæmis á móti sátt-mála
ESB um grundvallar-réttindi,
sérstaklega um réttindi
samkyn-hneigðra. Tusk er
hins vegar mikill
Evrópu-sinni og hefur sagt
að ný ríkis-stjórn muni
styðja sátt-málann.
Nú hættir Jaroslaw
forsætis-ráðherra, en 3 ár
eru eftir af kjör-tímabili
for-setans Lechs. Hann þarf
nú að starfa með Tusk,
sem hann sigraði
naum-lega árið 2005 í
forseta-kosningum.
Íhaldið
tapar
í Pól-landi
Donald Tusk
Lati-bær
til-nefndur til
BAFTA
Þættirnir
um Lata-bæ
hafa verið
til-nefndir til
BAFTA
verð-launanna
í Bret-landi sem besta
alþjóð-lega barna-efnið í
sjón-varpi.
Lati-bær var til-nefndur til
sömu verð-launa í fyrra og
vann þau þá. Verð-launin
verða veitt í Lundúnum 25.
nóvember.
Til-nefningar til Eddunnar
Á miðviku-daginn voru
til-nefningarnar til ís-lensku
kvik-mynda- og
sjónvarps-verðlaunanna,
Eddunnar, kynntar.
Kvik-myndin Veðramót eftir
Guðnýju Halldórsdóttur hlaut
flestar til-nefningar, alls 11
talsins í 7 flokkum.
Vin-sælasta íslenska myndin
í ár, Astrópía, hlaut bara
til-nefningu fyrir bestu
leik-stjórn. Verð-launin verða
af-hent á Hótel Hilton Nordica
11. nóvember.
Listir
Magnús
Scheving
Mikil úrkomu-tíð byrjaði um
miðjan ágúst. Met féllu í
haust, úr-koman í Reykjavík
hefur ekki orðið meiri í
september síðan sam-felldar
mæl-ingar hófust árið 1920.
Þrátt fyrir þurrt og bjart veður
í upp-hafi sumars varð
sumar-úrkoman í heild er sú
mesta í Reykjavík síðan
1984.
Þá hefur úr-koma verið
óvenju-mikil það sem af er
október, að sögn Trausta
Jónssonar veður-fræðings á
Veður-stofunni. Ástæðan eru
ríkjandi sunnan- og
suð-vestan-áttir. Suður-land
er gegn-sósa eftir miklar
rigningar og rennsli í Hvítá er
tvö-falt. Vatns-magnið mun
enn hækka, líka í Ölfusá.
Mikil
úrkomu-tíð
Á fimmtu-daginn sam-þykkti kirkju-þing að breyta
lögum um stað-festa sam-vist þannig að trú-félög
fái heimildi til að stað-festa sam-vist. Kirkju-þingi
styður að prestum þjóð-kirkjunnar, sem eru
vígslu-menn með lögum, verði það heimilt.
„Ég gleðst yfir því að góð niður-staða hefur
náðst í erfiðu máli,“ sagði Karl Sigurbjörnsson,
biskup Íslands. Þjóð-kirkjan stendur enn við
hefð-bundinn skilning á hjóna-bandinu sem
sátt-mála karls og konu.
Sam-tökin ́78 fagna vilja-yfirlýsingu
Þjóð-kirkjunnar um að leyfa prestum hennar að
stað-festa sam-vist sam-kynhneigðra. Í
til-kynningu frá sam-tökunum segir einnig: „Það
er dapur-legt að um leið og kirkjan stígur skref í
átt til jafn-réttis þá skuli hún sjá sig knúna til
þess að beita orð-ræðu úti-lokunnar um
hjóna-bandið. Fimm ríki í ver-öldinni hafa nú
þegar stigið skrefið til fulls og tekið upp eina
hjúskapar-löggjöf sem gildir jafnt fyrir alla óháð
kyn-hneigð.“
Skref í átt
til jafn-réttis
Morgunblaðið/G.Rúnar
Frá kirkju-þingi.
Í vikunni gaf Edda út-gáfa út
bókina Negra-strákarnir eftir
Gunnar Egilson með myndum
eftir Mugg, sem kom fyrst út
árið 1922.
Í bókinni deyja
negra-strákarnir tíu hver af
öðrum vegna heimsku og eru
ekki sér-lega gáfu-legir á
myndunum.
Út-gáfan hefur vakið mikið
við-brögð hjá al-menningi, og
varð til þess að á fundi í
Alþjóða-húsinu var rætt um
hugtaka-notkun í mál-efnum
inn-flytjanda.
Ís-lensk móðir sem á
blandað barn hefur farið fram
á að bókin verði ekki lesin í
leik-skólum.
Negra-strákar vekja við-brögð
Knattspyrnu-fólk
ársins
Um síðustu
helgi var Helgi
Sigurðsson úr Val
kjörinn
knattspyrnu-maður
ársins og
Hólmfríður
Magnúsdóttir úr
KR
knattspyrnu-kona
ársins. Þetta var til-kynnt á loka-hófi knattspyrnu-fólks á
Broadway. Leik-mennirnir sjálfir greiða at-kvæði í kjörinu, og
vakti mikla furðu að marka-drottningin Margrét Lára
Viðarsdóttir úr Val hefði ekki verið valin knattspyrnu-kona
ársins, þrátt fyrir glæsi-lega fram-göngu á leik-tíðinni.
Räikkönen sigrar Formúlu 1
Finninn Kimi Räikkönen á Ferrari sigraði í síðasta
kapp-akstrinum á formúlu 1 ver-tíðinni sem fram fór í
Brasilíu. Leikar voru jafnir en Finninn fljúgandi endaði með
110 stig.
Íþrótta-molar
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Hólmfríður og Helgi.
Netfang: auefni@mbl.is