Morgunblaðið - 28.10.2007, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.10.2007, Blaðsíða 14
borg, ganga þrír af sorphirðubílunum tíu fyrir met- ani, og von er á sex slíkum til viðbótar til að leysa gömlu dísilbílana af hólmi. Sorpfjöllin í Álfsnesi Sá hluti sorpsins sem er endurunninn er að auki fluttur til útlanda þar sem við tekur orkufrekt endurvinnsluferli, með enn meiri koltvísýringi. „Allur pappírsúrgangur og flokkað plast fer til Sví- þjóðar til endurvinnslu,“ heldur Ragna áfram. „Í þeim flutningum nýtum við gámapláss sem ann- ars færi tómt utan, því útflutningur Íslendinga til Svíþjóðar er svo lítill.“ Nú gæti einhver hrist höfuðið og spurt hvaða vit sé í því að flokka og endurvinna ef það kostar svo orku bæði í flutningum og vinnslu? Helga J. Bjarnadóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs verk- fræðifyrirtækisins Línuhönnunar, feykir þó slík- um efasemdum út í veður og vind. „Við gerðum rannsókn út frá íslenskum aðstæðum á endur- vinnslu pappa og plastumbúða fyrir Úrvinnslu- sjóð og settum upp mismunandi dæmi miðað við mismunandi forsendur, s.s. hvar úrgangurinn er endurunninn o.s.frv. Við köllum þetta vistfer- ilsgreiningu og í henni er allt ferlið tekið með, allt frá flutningi úrgangsins að t.d. hráefninu eða ol- íunni sem sparast við að endurvinna plast í stað- inn fyrir að búa til nýtt. Meginniðurstaðan var að það er umhverfislega hagkvæmara að endur- vinna pappann og plastumbúðirnar en að urða þær,“ segir hún. Einn þeirra ellefu flokka umhverfisáhrifa sem sérstaklega voru til skoðunar voru gróðurhúsa- áhrif. „Í ljós kom að það eru um tvisvar sinnum meiri gróðurhúsaáhrif af því að urða og brenna plast og pappaumbúðir hér á landi en að flytja þær út og endurvinna. Okkur fannst ekki raun- hæft að gera ráð fyrir því að hægt væri að end- urvinna allt plast og pappa en ef það væri gert mætti búast við því að munurinn væri enn meiri.“ Fleira en gróðurhúsaáhrif sparast með endur- vinnslu því umtalsvert landsvæði fer undir sorpið sem við látum frá okkur. „Væri allur pappír sem er í umferð á höfuðborgarsvæðinu urðaður yrðum við ekki nema níu ár að sléttfylla eina urðunarrein sem er um 400 metrar á lengd, 40 metra breið og 26 metra há,“ segir Ragna en hver rein tekur um 256 þúsund rúmmetra af sorpi. Þegar er búið að fylla átta slíkar reinar í Álfsnesi og sú níunda er í notkun. Tvöföldun á tíu árum Sennilega veitir ekki af þessu landsvæði þegar litið er til þess magns af rusli sem kemur undan okkur Íslendingum. „Hver einstaklingur lætur frá sér rúm 400 kíló af sorpi árlega í tunnuna heima hjá sér og á endurvinnslustöðvar Sorpu,“ segir Ragna. „Sumir vilja hafa þessa tölu hærri, hátt í 1.000 kíló, en þá er einnig tekið tillit til raftækjaúr- gangs og fleira.“ Og þetta eru bara fjölskyldurnar. Tölurnar eru svimandi þegar fyrirtæki eru tekin með í reikning- inn. Árið 2006 fóru 220.767 tonn af úrgangi í gegn- um Sorpu sem er aukning um næstum því 25 þús- und tonn frá árinu áður. Og sú aukning eru engin nýmæli því sorpmagn hefur aukist stig af stigi und- anfarin ár. „Ég man eftir því að fyrir tíu árum var heildarmagnið á bilinu 85 –100 þúsund tonn ár- lega en í dag erum við komin vel yfir 200 þúsund tonnin,“ rifjar Ragna upp. Fyrir þá sem finnst þetta mikið er enn meira í píp- unum. „Sorpa tekur ekki á móti öllum úrgangi á höfuðborgarsvæðinu því þar starfa fleiri úrgangsfyr- irtæki, s.s. Gámaþjónustan, Íslenska gámafélagið, Hringrás og Fura og fleiri,“ bendir Björn á. „Senni- lega er Sorpa með um helming af því sem fellur til á höfuðborgarsvæðinu.“ Og þá er ótalinn sá úrgang- ur sem fellur til alls staðar annars staðar á landinu. Kannski kristallast loftslagsvandinn einmitt í sorpinu eftir allt saman. Það er svo sannarlega táknmynd fyrir allt það sem við teljum okkur þurfa en enduðum með að losa okkur við. Alla orkuna sem fór í að framleiða dót til þess eins að eyða orku í að farga því. Neyslu nútímamannsins í hnot- skurn.  Spegill… Við sendum daglega 300 – 450 tonn upp á hauga                                        !"       " #          $        !    "  #  %      $ %  & '( ) * + $    ,  -    "  # +  ./& 0( 1(  2 3   2      Flokkun Í nútímaeldhúsi er einfalt að koma fyrir nokkrum ílátum undir mismunandi teg- undir úrgangs, t.d. í skúffu undir vaskinum. K æru vinir, við erum þrælar neyslu- samfélagsins,“ pré- dikar Ragnar Ing- ólfur, aldrei kallaður annað en Ringó, hátt og snjallt, þar sem hann stendur yfir sorptunnu hjónanna Lofts Hreins- sonar og Ísafoldar Jökulsdóttur og barna þeirra í Grafarvoginum. Söfn- uður hans samsinnir því. „Halelúja,“ gellur í Hreini, 13 ára. „Hreinn þó,“ segir móðir hans hneyksluð. „Hvað, ég er bara að taka undir með manninum.“ Ringó er skemmt. „Ekkert jafnast á við áhugasama áheyrendur.“ Fjölskyldan hefur, eins og við þekkjum, ákveðið að snúa við blaðinu og taka upp vistvænt líf í þeirri við- leitni að sporna við loftslagsbreyt- ingum. Í síðustu viku fékk hún tíma- bæra leiðsögn í innkaupum og blöskraði allt ruslið sem lá í valnum eftir helgarinnkaupin, plast, pappi, málmar og matarleifar. Ísafold hafði fært þetta í tal við Ringó, þar sem hann lá óvígur á deildinni hjá henni á spítalanum að jafna sig eftir uppskurð. Hann er um- hverfisfræðingur og á daginn kom að hann hefur yfirgripsmikla þekkingu á sorpmálum. „Heyrðu, Ísý, ég lít bara við hjá ykkur þegar ég verð kominn á lappir og fer yfir þetta frá a til ö. Það má ekki minna vera. Umönnunin hér er á heimsmælikvarða. Florence Nightin- gale hefði ekki gert betur,“ sagði Ringó og blikkaði Ísafold. „Hvaða Lórenz? Ertu nokkuð að tala um Badda Lórenz? Hann er hel- vítis óféti. Ég vona að hann sé dauð- ur,“ gellur í Þórði, öldruðum manni í næsta rúmi. „Nei, nei, Þórður minn. Þetta er allt önnur manneskja. Farðu nú að kveikja á útvarpinu, fréttirnar eru að byrja,“ flýtir Ísafold sér að segja. „Ísý,“ hugsar hún svo með sér. Minnist þess ekki að hafa verið kölluð það áður. „Ætli hann haldi að ég sé eitthvað „easy“? Kannski „easy go- in’“?“ Jæja, það er sama. Ringó er fínn karl og aufúsugestur í Grafar- voginum. Stefnumótið er ákveðið. Hvað er mikilvægast þegar kemur að sorpmálum? Ringó kveðst vera eins og nýsleg- inn túskildingur þegar hann birtist fáeinum dögum síðar á tröppunum hjá Lofti og Ísafold. „Ég hefði ekki lifað deginum leng- ur á spítalanum. Helvítið hann Þórð- ur gamli var að gera mig vitlausan. Var af einhverjum ástæðum sann- færður um að ég væri Yasser Arafat og lét aurslett- urnar ganga yfir mig. Honum er ekki hlýtt til araba. Ég þorði aldrei að sofa nema með annað augað lokað,“ segir Ringó og dregur augað í pung. Loftur og Hreinn hlæja. Ísafold glottir út í annað en Snæfríður Sól, 7 ára, er hálfsmeyk við þennan skeggj- aða aðkomumann. „Vitið þið hvað er mikilvægast þeg- ar kemur að sorpmálum?“ spyr Ringó þegar hann er búinn að hafa trakteringar. Fjölskyldan hristir höfuðin í takt. „Það er að koma í veg fyrir að úr- gangur verði til.“ Það er nefnilega það. „Í neyslusamfélagi nútímans verð- ur fólk að gera sér grein fyrir því að allur úrgangur endar einhvers staðar – við erum ekki enn farin að skjóta sorpinu út í geim – og vandamálið er ekki úr sögunni þegar ruslapokinn er kominn í tunnuna. Íslendingar eru meðal þeirra 20% jarðarbúa sem nota 80% af auðlindum hennar. Það er slá- andi, ekki satt? Fyrir vikið er mik- ilvægt að hugleiða öðru hverju hvað er í raun nauðsyn og hvað óþarfi. Með þeim hætti getum við dregið verulega úr sorpi,“ segir Ringó. Sorpskrímslið og lykilorðin þrjú „Í þessu sambandi þurfið þið ávallt að hafa þrjú lykilorð í huga – minnka, endurnota og endurvinna. Með slíka heildarsýn að leiðarljósi er hægt að ná prýðilegum árangri.“ Auðlind á villigötum Út í loftið  14 SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.