Morgunblaðið - 28.10.2007, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 28.10.2007, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2007 39 Fiskurinn er bara ekki jafn sýnilegur og áður. Hann er fluttur í lokuðum körum og unninn í lok- uðum húsum. Hann er þarna þótt hann sjáist ekki með sama hætti og áður. Sjávarútvegurinn er enn ein meginundirstaðan undir afkomu þjóðarbúsins og verður um langa framtíð. En með sama hætti og það var mikilvægt fyrir Vestfirðinga að hætta að kvarta er þýðingarmikið fyrir talsmenn sjávarútvegsins að tala með öðrum hætti en þeir gera. Málflutningur þeirra þarf að breytast og þá breytist afstaða fólks til sjávarút- vegsins. Það mundi t.d. hafa mikil áhrif á afstöðu al- mennings til sjávarútvegsins, ef fyrirtækin í sjáv- arútvegi hæfu markvissan stuðning við menn- ingarstarfsemi, ekki sízt á landsbyggðinni. Forsvarsmenn sjávarútvegsins ættu að huga að því. Aukið jafnvægi Þ að má búast við því, að aukið jafn- vægi færist í umræður um hinar ýmsu atvinnugreinar á næstu árum. Á fyrstu árum þessarar aldar hefur í raun allt þjóðfélagið snúizt um fjármálastarfsemi og fjármálafyrir- tækin hafa haft bolmagn til að borga mun hærri laun en aðrar atvinnugreinar, sem setið hafa eftir með sárt ennið. Nú má búast við að breyting verði á og að umræðurnar verði raunsærri að því er all- ar atvinnugreinar varðar. Það er hollt fyrir samfélagið. Með sama hætti og það var ekki gott fyrir sam- félagið þegar allir þurftu að sitja og standa eins og sjávarútveginum þóknaðist, er heldur ekki gott fyrir samfélagið að hið sama eigi við um aðrar at- vinnugreinar, hvort sem um er að ræða fjármála- starfsemi eða áliðnað. Bezt er að þarna sé hæfilegt og viðunandi jafnvægi, sem allir geti búið við. Athyglisverð vegferð S amfélag okkar er á athyglisverðri vegferð. Margt bendir til að um sé að ræða einhvers konar afturhvarf til fyrri tíðar. Umræðurnar um um- hverfismál, sem nú standa yfir, gætu t.d. bent til þess að hina gamla at- vinnugrein okkar, landbúnaðurinn, muni ganga í endurnýjun lífdaga. Krafan um lífrænt ræktaðar matvörur er í raun krafa um afturhvarf til fyrri búskaparhátta en þó undir nýjum formerkjum. Nú er lagt í miklar fjárfestingar í nýjum fjósum, sem eru stórkostlegir vinnustaðir og sagt er að ný tegund fjárhúsa sé í sjónmáli. Lífsstíll sveitanna höfðar til sífellt fleiri. Þess vegna er ekki ólíklegt að við munum upp- lifa á fyrri hluta þessarar aldar upprisu sveitanna úr þeirri niðurlægingu, sem þær hafa að sumu leyti verið í. Það er ekki endilega víst, að Guðni Ágústsson sé að tala úr fortíðinni eins og sumir halda heldur úr framtíðinni. Þótt kaupmaðurinn á horninu sé horfinn nema í Melabúðinni er ekki óhugsandi að hann birtist aft- ur, bara með öðrum hætti en áður, þegar fólk verður sér meðvitað um, að langferðir í stórmark- aði spilla umhverfi okkar og að göngutúr í mela- búðir framtíðarinnar geti verið heilsusamlegur. Þótt Kína sé í uppáhaldi margra nú um stundir, m.a. hér á landi af því að þar er hægt að kaupa ódýrar vörur, sem m.a. eru framleiddar af börnum í þrælabúðum eða fólki, sem vinnur tólf klukku- stundir á dag sex daga vikunnar fyrir lítið sem ekki neitt, getur verið að botninn detti úr fram- leiðslunni í Kína, þegar fólk áttar sig á því hvað flutningurinn til og frá Kína kostar í umhverfis- áhrifum. Annars er það ótrúlegt hvað íslenzkir ráðamenn leyfa sér í umtali um Kína, þegar rýnt er undir yf- irborðið og fórnarkostnaðurinn skoðaður. Hafa æðstu forsvarsmenn þjóðarinnar ekkert íhugað það? Eða er þeim sama? Við höfum verið á mikilli hraðferð á undanförn- um árum eins og svo margir aðrir. Sennilega er að draga úr þeirri hröðu ferð og við munum engan skaða bera af því sem þjóð. » Afkomutölur Kaupþings banka nú og þær fréttir, sem ber-ast um afkomu banka í nálægum löndum, ættu hins vegar að vera okkur áminning um, að það geta líka orðið sveiflur í rekstri banka og annarra fjármálafyrirtækja, ekkert síður en í sjávarútvegi og áliðnaði. Og það getur vel komið sá dagur, jafn- vel fyrr en flesta grunar, að íslenzku bankarnir verði að draga saman seglin og fækka fólki, ekkert síður en bankar og fjár- málafyrirtæki í öðrum löndum. rbréf Morgunblaðið/Ómar Skógarþröstur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.