Morgunblaðið - 28.10.2007, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Atvinnuhúsnæði - Tjarnarvellir
Verslunar og
Skrifstofuhúsnæði.
Nýkomið glæsilegt
atvinnu- og skrifstofuhúsnæði.
• Jarðhæð 1350 fm. verslun / Lager
• 2. hæð, 800 fm. skrifstofur / þjónusta
• 3. hæð, 800 fm. skrifstofur / þjónusta
Frábær staðsetning og auglýsingagildi, tilbúið undir
tréverk að innan, góð lofthæð, innkeyrsludyr, malbik-
uð lóð. Leigusamningur getur fylgt að stórum hluta
hússins. Nánari upplýsingar gefur Helgi Jón, sölustjóri
s. 893-2233 eða á skrifstofu.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Glæsileg rúmgóð og björt 3-4ra herb.
117,6 fm. lúxusíbúð á annari hæð í
glæsilegu lyftuhúsi í miðbæ
Hafnarfjarðar. Eignin skiptist í forsto-
fu, hol, baðherbergi, 2 svefnherbergi,
eldhús, stofu/borðstofu og þvottaher-
bergi. Yfirbyggðar svalir. Snyrtileg
sameign. Frábær staðsetning og
útsýni. Öll þjónusta við hendina. Verðtilboð.
Glæsileg lúxusíbúð, 3-4 herb. 128 fm
á fjórðu hæð (næst efstu) í glæsilegu
lyftuhúsi í miðbæ Hafnarfjarðar.
Góður inngangur, forstofa,
stofa/borðstofa, 2 svefnherbergi, eld-
hús, baðherbergi, geymsla og þvotta-
herbergi. Yfirbyggðar svalir og
sameiginleg geymsla í kjallara. Á gól-
fum er ljóst parket. Íbúðin er björt,
rúmgóð og glæsileg. Frábær staðsetning í göngufæri við alla þjónustu.
Góð eign, Laus strax.
FJARÐARGATA – HF. LÚXUSÍBÚÐ
FJARÐARGATA – HF. LÚXUSÍBÚÐ
Melgerði 16
Glæsilegt einbýlishús
Opið hús í dag kl. 14-17
Glæsilegt 113 fm tvílyft einbýlishús með fallegum bakgarði auk 32 fm bíl-
skúrs. Marmaralögð stofa og borðstofa með útgangi í sólstofu, vandað eld-
hús, 4 herbergi og baðherbergi og gesta w.c., bæði flísalögð í gólf og veggi.
Vestursvalir út af efri hæð. Glæsilegur garður með mikilli hellulögn og skjól-
veggjum. Góð eign sem mikið er búið að endurnýja. Verð 57,0 millj.
Eignin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14 til 17.
Verið velkomin.
Flókagata 66
Mikið endurn. 4ra herb. útsýnisíbúð
Opið hús í dag kl. 14-16
Glæsileg og mikið endurnýjuð 4ra herb. útsýnisíbúð í risi með tvennum svöl-
um á þessum eftirsótta stað. Samliggjandi rúmgóðar stofur með útsýni að
Perlunni og til sjávar, opið alrými, uppgerðar hvítar innréttingar í eldhúsi, 2
herbergi og flísalagt baðherbergi. Þvottaherb. innan íbúðar. Suðursvalir út af
stofum og til vesturs út af eldhúsi. Geymsluris, manngengt að hluta yfir allri
íbúðinni. Verð 30,0 millj.
Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14 til 16.
Verið velkomin.
M
bl
.
92
80
12
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
ÁRIÐ 2001 samdi ríkið við
Landssímann um að öll lögbýli í
landinu skyldu hafa aðgang að
ISDN-sambandi. Það er mat und-
irritaðs að þeim fjármunum sem
var varið til þessa
verkefnis hafi verið
kastað á glæ. Á þess-
um tíma var ISDN-
tæknin orðin úrelt
(gagnaflutningur tak-
markaður við 128
Kbits/0,128 Mbps) og
því sérstakt að tekin
hafi verið ákvörðun
um að innleiða úrelta
tækni í dreifbýli á Ís-
landi. Nær hefði verið
að horfa til framtíðar
og einbeita sér að því
að byggja upp ljós-
leiðaranet sem næði til allra lög-
býla og dreifbýliskjarna á Íslandi.
Rétt er að benda á að skv. upplýs-
ingum sem fram koma með fjar-
skiptaáætlun 2005 til 2010 er há-
markshraði ljósleiðara 10.000
Mbits en ISDN 0,129 Mbits. Með
ljósleiðaratengingu væri m.a.
hægt að senda útvarp og sjónvarp
í fullkomnum gæðum en stað-
reyndin er sú að víða um land eru
gæði sjónvarpssendinga ófullnægj-
andi. Kostnaður við innleiðingu
ljósleiðara er mestur í lagningu
hans, þ.e.a.s. í jarðvegsvinnunni,
ásamt endabúnaði. Dæmi um verk
þar sem tækifærið var notað til
lagningar ljósleiðara er lagning 3
fasa rafmagnskapals í jörð í
Öræfasveit á sl. ári (RARIK) og
lagning hitaveitu frá Reykjum í
Fnjóskadal til Grenivíkur á þessu
ári (Norðurorka).
Vannýtt tækifæri til
lagningar ljósleiðara
Undanfarin ár hefur verið unnið
að því að setja í jörð rafmagns-
línur án þess að gætt hafi verið að
því að leggja ljósleiðara á sama
tíma. Þannig hafa farið forgörðum
dýrmæt tækifæri til lagningar
ljósleiðara í dreifbýlinu. Ég vil
hvetja til þess að þar sem lagt er í
framkvæmdir vegna hvers konar
nýlagna í jörð þá sé tækifærið
notað og lagður ljósleiðari með-
fram viðkomandi framkvæmd,
hvort sem um er að ræða fram-
kvæmdir á vegum RARIK, við-
komandi sveitarfélags (veitufyr-
irtæki), Landsvirkjunar (Fjarski)
eða fjarskiptafyrirtækja (t.d. Mílu,
Vodafone o.fl.).
Fjarskiptasjóður
Við sölu Landssímans ákvað þá-
verandi ríkisstjórn að 2,5 millj-
arðar af söluandvirði fyrirtækisins
skyldu lagðir í að bæta fjar-
skiptaþjónustu á landsbyggðinni.
Árið 2005 var stofn-
aður Fjarskiptasjóður
en tilgangur sjóðsins
er „að styðja við upp-
byggingu fjar-
skiptakerfa á svæðum
þar sem fjarskiptafyr-
irtæki hafa ekki
treyst sér í uppbygg-
ingu á markaðslegum
forsendum“. Til að fá
úthlutun úr sjóðnum
er ekki gerður grein-
armunur á þeirri
tækni sem notuð
verður. Þetta tel ég
vera mistök. Horfa á til framtíðar
og ljóst er að einungis ljósleið-
aratæknin kemur til greina þegar
kemur að lausn á fjarskiptaþörf
landsmanna. Önnur tækni er ein-
faldlega úrelt eða ekki samkeppn-
isfær í hraða eða uppitíma/
gagnaöryggi. Gerum ekki aftur
sömu mistök og gerð voru við inn-
leiðingu ISDN-tækninnar. Ég vil
beina því til stjórnar Fjar-
skiptasjóðs að þegar kemur að út-
hlutun úr sjóðnum vegna netteng-
inga í dreifbýli verði sett það
skilyrði að einungis verkefni sem
byggjast á ljósleiðartækni geti
vænst þess að fá styrk. Treysti
stjórn Fjarskiptasjóðs sér ekki til
að mæla einungis með ljósleið-
aratækni er það Alþingis að mæla
svo fyrir með breytingum á lög-
unum um Fjarskiptasjóð.
Framsýni Skagfirðinga
Í Skagafirði er unnið að því að
leggja ljósleiðaranet á Sauð-
árkróki á vegum Gagnaveitu
Skagafjarðar ásamt því að lagður
verður ljósleiðari í dreifbýli í
Skagafirði og er stefnt að því að
verkefninu verði lokið árið 2009.
Þetta verkefni sýnir dug og þor
hjá Skagfirðingum og fyrir vikið
verður búseta og rekstur fyr-
irtækja í Skagafirði til muna
áhugaverðari en áður var.
Sala grunnnets
Landssímans mistök!
Þegar Landssíminn var seldur
voru gerð þau mistök að grunn-
netið var selt með fyrirtækinu.
Þegar stjórnvöldum og einkavæð-
ingarnefnd var bent á að aðskilja
grunnnetið frá Landssímanum var
því svarað til að það væri ekki
hægt. Blekið var varla þornað á
samningnum um sölu Landssím-
ans þegar nýir eigendur fyrirtæk-
isins klufu dreifikerfið frá og
stofnað var fyrirtækið Míla en það
sér um rekstur grunnnetsins.
Þegar eignir Mannvirkjasjóðs
NATO gengu til íslenska ríkisins
þá eignaðist ríkið m.a. 3 ljósleið-
ara af 8 sem lagðir voru hringinn
í kringum landið árið 1985. Hinir
5 voru seldir með grunnneti
Landssímans. Ég vil hvetja til
þess að umræddir 3 ljósleiðarar
verði ekki seldir heldur verði
áfram í eigu ríkisins og fyr-
irtækjum veittur aðgangur að
þeim. Vegna öryggishagsmuna,
t.d. vegna Tetra-kerfis lögreglu
og viðbragðsaðila á landsvísu, þá
er óásættanlegt annað en ríkið
eigi og reki sjálft ákveðið grunn-
net fjarskipta og því ljóst að áð-
urgreindir 3 ljósleiðarar myndu
þjóna vel slíku grunnneti.
Byggðastefnan, styrking
byggðar og lagning ljósleið-
ara
Á tyllidögum verður ráðamönn-
um tíðrætt um byggðastefnu og
að styrkja þurfi hinar dreifðu
byggðir landsins. Ég vil benda á
að lagning ljósleiðara utan þétt-
býlissvæðisins á suðvesturhorninu
er ein öflugasta styrking við
byggðir landsins sem hugsast get-
ur. Ég fullyrði að samkeppn-
ishæfni landsins standi og falli
með því hversu hratt og vel staðið
verður að því að leggja ljósleiðara
í þéttbýli og dreifbýli landsins.
Til þess að svo megi verða
þurfa stjórnmálamenn og stjórn-
endur fjarskipta- og veitufyr-
irtækja að vera framsýnir og sýna
dug og þor.
Um ljósleiðara-
tengingar í dreifbýli
Ingólfur Bruun skrifar
um ljósleiðaratengingar »Ég vil benda á aðlagning ljósleiðara
utan þéttbýlissvæðisins
á suðvesturhorninu er
ein öflugasta styrking
við byggðir landsins
sem hugsast getur.
Ingólfur Bruun
Höfundur er rannsóknarlög-
reglumaður og áhugamaður um bætt
fjarskipti.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn