Morgunblaðið - 28.10.2007, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2007 55
Elsku Lilla systir,
guð hvað ég sakna
þín. Þú varst mér í
senn systir og góður
vinur. Ávallt svo góð og það var
alltaf svo gaman hjá okkur. Allar
yndislegu stundirnar á þínu fallega
og hlýlega heimili, þar sem mikið
var hlegið, skrafað og að sjálfsögðu
mikið borðað. Ekki mátti maður
fara frá þér nema vera búinn að
fylla magann.
Þú varst svo sterk og dugleg,
tókst veikindum þínum með jafn-
aðargeði og barðist allt til enda
með vonina að leiðarljósi.
„Ég elska þig“ voru alltaf loka-
orð okkar fyrir nóttina.
Ég elska þig elsku Lilla mín.
Sigrún systir.
Ástkær móðursystir mín er nú
gengin yfir móðuna miklu og á vit
æðri heima. Ég vil með fáum orð-
um minnast hennar.
Frænka mín var einstaklega
sterkur persónuleiki. Æðruleysi
hennar og viljastyrkur, dugur og
þor, einbeitni og kjarkur voru
óþrjótandi öfl í hennar fari. Hún
stóð alltaf keik. Alltaf. En að baki
þessum kröftum stóð stórt og gjaf-
milt hjarta sem öllum vildi vera
gott og dreifði ást sinni til allra
þeirra sem nálægðar hennar nutu.
Hvar sem var, hvenær sem var.
Það var átakanlegt þegar hún
veiktist. Ég man það eins og það
hefði gerst í gær. Af öllum mann-
eskjum að hún elsku Lilla skyldi
verða fyrir barðinu á þessum
skæða sjúkdómi sem svo alltof
marga tekur með sér yfir landa-
merki lífs og dauða. En svona
hugsar maður alltaf, sama hver á í
hlut. Manni þykir þetta alltaf jafn
ósanngjarnt. Sjálf tók Lilla þessu
með sínu kraftmikla fasi.
Aldrei man ég eftir að hafa
heyrt frá henni eitt orð um erf-
iðleikana sem fólust í baráttunni,
aldrei kvartaði hún, aldrei kveink-
aði hún sér. Hún stóð alltaf keik.
Það var sama hversu svartur veru-
leikinn var, alltaf stóð hún upp aft-
ur, alltaf jafn viljasterk. Hún gafst
aldrei upp.
En Lilla stóð aldrei ein í barátt-
unni. Við hlið hennar stóð maður
hennar, Friðrik Ottó, eins og klett-
ur, rétt eins og hann hafði gert alla
tíð. Hann studdi hana í hvívetna,
lagði sig í líma við að gera allt fyrir
hana sem hægt var að gera. Þau
stóðu saman í þessu stríði. Að eiga
slíkan eiginmann er guðsgjöf. Við,
ættingjar og vinir, kunningjar og
annað venslafólk, gátum og getum
ekki annað en dáðst að honum
Frissa. Hann var Lillu ómetanleg-
ur stuðningur. Og aldrei gaf hann
sig. Aldrei bognaði hann. Elsku
Friðrik, hún Lilla var svo sann-
Kristjana
Harðardóttir
✝ Kristjana Harð-ardóttir fæddist á
Akureyri 14. febrúar
1956. Hún andaðist á
líknardeild Landspít-
alans í Kópavogi
sunnudaginn 7. októ-
ber síðastliðinn og
var jarðsungin frá
Grafarvogskirkju 15.
október.
arlega heppin að fá
þig fyrir mann. Betri
mann er ekki hægt
að fá.
Og þá er ótalinn
stuðningur barna
hennar, sem nú hafa
misst ástsæla móður.
Við systkinabörn
ykkar sem á svipuð-
um aldrei erum dáð-
umst að þreki ykkar
og staðfestu, hvernig
þið stóðuð alltaf þétt
við bakið á móður
ykkar í baráttunni.
Þá voruð þið föður
ykkar, sem aldrei bognaði, ómet-
anlegur stuðningur. Þið voruð og
eruð okkur hinum mikil fyrirmynd.
Engin móðir getur verið stoltari af
börnum sínum en Lilla, sem ég
veit að mun verða ykkur vernd-
arengill í því lífi sem bíður ykkar.
Ég votta ykkur, fjölskyldunni
sem stóð á bak við Lillu frænku,
Friðriki Ottó eiginmanni hennar,
Birgi, Herði Ottó og Laufeyju,
börnunum hennar og barnabarni,
mína dýpstu samúð. Guð veri með
ykkur og styrki ykkur í þeirri
þraut sem nú er lögð á ykkur. En
þið megið vita það að Lilla er
ávallt nærri, og minningarnar sem
þið eigið um hana getur enginn
tekið frá ykkur og sá minninga-
sjóður mun ylja ykkur um hjarta-
rætur um alla tíð.
Hvíl í friði elsku Lilla, minningin
um þig mun lifa í huga allra sem
urðu þess heiðurs aðnjótandi að fá
að kynnast þér og njóta nærveru
þinnar. Minningin um einstaka
konu, sem öllum var hvatning,
stuðningur og uppörvun í lífsins
skúraskini.
Þetta skrifar þinn systursonur
sem aldrei mun gleyma þér.
Sigurður Helgi.
Meira: mbl.is/minningar
Elsku besta vinkona mín og góði
granni, þú varst ótrúleg persóna,
dugnaðurinn var svo mikill í þess-
ari löngu og ströngu veikindabar-
áttu að maður verður eiginlega
orðlaus þegar maður hugsar um
það. Það var svo gaman hjá okkur
þegar við fórum okkar vikulegu
leiðangra á miðvikudögum síðustu
vikur. Við höfðum oft talað um að
fara á kaffihús og sýningar en allt-
af einhvern veginn fannst ekki
tími, annaðhvort var eitthvað um
að vera hjá þér eða mér þangað til
við ákváðum að finna einhvern dag
þar sem við værum báðar lausar
og var það þá okkar dagur og dag-
inn áður hringdum við hvor í aðra
og sögðum á morgun er okkar dag-
ur og skipulögðum hvert við ætl-
uðum að fara og ég mætti til þín
um hádegi á miðvikudögum og
varst þú þá mætt flott og fín.
Þetta voru ómetanlegar stundir
fyrir okkur báðar. Þú fékkst til-
breytinguna og ég líka að því mað-
ur gefur sér allt of lítinn tíma við
það að gleyma sér bara og fara á
kaffihús fá sér kakó og köku,
skreppa á sýningu. kaupa föt og
fleira og gera bara það sem okkur
datt í hug og við sögðum þegar við
fórum af stað nú verður gaman og
það var það svo sannarlega.
Elsku hjartans Kristjana mín,
þú varst svo þakklát fyrir þessar
stuttu og yndislegu stundir, sem
við áttum á miðvikudögum og
kenndir mér svo mikið um lífið og
gafst mér það hvað þarf lítið til að
gleðja og gleðjast. Og ég fékk svo
sannarlega það sem verður alltaf
ómetanlegt fyrir mig hrósið og fal-
legu orðin þín sem þú sagðir svo
opinskátt m.a., ég veit ekki hvernig
ég færi að án þín, Olla. Þessar síð-
ustu vikur eiga eftir að vera
ógleymanleg minning fyrir mig og
ég vildi óska að við hefðum gert
þetta lengur en svona er lífið, mað-
ur veit aldrei hvenær kallið kemur.
Þess vegna á maður að njóta þess
meðan maður getur og það gerðir
þú svo sannarlega með þínum
mikla hetjuskap – þú varst einstök
og takk fyrir allt sem þú gafst
mér.
Við fjölskyldurnar höfum þekkst
síðan þið fluttuð í Þingásinn fyrir
um 16 árum og urðu strax mikil og
góð tengsl milli okkar, sérstaklega
í gegnum börnin okkar, hana Lauf-
eyju þína sem var næstum dag-
legur gestur hjá okkur í mörg ár
og drengina okkar sem voru bestu
vinir og æskufélagar þangað til
hann Óli minn kvaddi þennan heim
fyrir um 7 árum rétt áður en veik-
indin þín greindust – en núna ert
þú komin til hans og ég veit að þú
passar hann og hana Bryndísi hans
vel fyrir okkur, Kristjana mín.
Þín vinkona
Ólöf.
✝
Innilegar þakkir og kveðjur til allra sem hafa sýnt
okkur vináttu, stuðning og hlýhug vegna andláts
og útfarar okkar ástkæru
GUÐRÚNAR ÖNNU KRISTJÁNSDÓTTUR
(DÚNU),
Mýrarvegi 115,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Lyfjadeildar FSA og
heimahlynningar á Akureyri.
Sigmundur Magnússon,
Þórný Kristín Sigmundsdóttir,
Stefanía Gerður Sigmundsdóttir, Helgi Jóhannesson,
Sigrún Hulda Sigmundsdóttir, Finnbogi Rútur Jóhannesson,
Þórir Sigmundur Þórisson, Guðrún Erla Gísladóttir,
Björn Þór Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hugheilar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
KRISTÍNAR HALLDÓRSDÓTTUR
frá Bergstöðum,
Birkigrund 51,
Kópavogi.
Starfsfólki deildar 6A á Landspítalanum í
Fossvogi og starfsfólki Grundar færum við
bestu þakkir fyrir alúð og góða umönnun.
Gestur Pálsson,
Bergljót Sigvaldadóttir, Þorleifur Jónatan Hallgrímsson,
Guðrún Halldóra Gestsdóttir, Sveinn Kjartansson,
María Páley Gestsdóttir, Vignir Smári Maríasson,
Aðalgeir Bjarki Gestsson, Brynja Guðnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra fjölmörgu sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærrar móður minnar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR KARÍTASAR SÖLVADÓTTUR
frá Sléttu í Sléttuhreppi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks og vistfólks
Hrafnistu í Reykjavík.
Sigríður G. Sigurjónsdóttir, Gunnar Kristinsson,
Sigrún Gunnarsdóttir,
Sólveig K. Gunnarsdóttir,
Sigurður K. Gunnarsson,
og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
ÁSMUNDAR BJÖRNSSONAR,
Vallargötu 7,
Sandgerði,
er lést 10. október.
Guð blessi ykkur öll.
Ingibjörg Bjarnadóttir,
Jón Ásmundsson, Helga Karlsdóttir,
Kristín Ásmundsdóttir, Jón Árni Ólafsson,
Ragnheiður E. Ásmundsdóttir, Magnús Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hugheilar þakkir færum við öllum þeim sem
auðsýnt hafa hlýhug og vináttu við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu, móður og tengdamóður,
ÞÓRUNNAR ELÍASDÓTTUR,
Herjólfsgötu 36,
Hafnarfirði.
Yngvi Rafn Baldvinsson,
Friðrik E. Yngvason, Theodóra Gunnarsdóttir,
Björgvin Yngvason, Birna Hermannsdóttir,
Stefán Yngvason, Nína Leósdóttir,
Yngvi Rafn Yngvason, Alís Inga Freygarðsdóttir,
og fjölskyldur.
✝
Hjartanlegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og velvild við andlát og útför okkar ástkæra
GUÐMUNDAR INGÓLFSSONAR,
Laugarásvegi 58,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til Guðjóns Birgissonar læknis og
starfsfólks gjörgæsludeildar Landspítalans við
Hringbraut.
Sigríður Einarsdóttir,
Guðmundur Guðmundsson, Anna Margrét Jónsdóttir,
Rósa Guðmundsdóttir,
María Guðmundsdóttir,
Jón Einar og Margrét Rós Guðmundsbörn.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
KRISTJÁNS KRISTJÁNSSONAR,
Steinnýjarstöðum,
Skagabyggð.
Árný Margrét Hjaltadóttir,
Anna Kristjánsdóttir, Gunnar Már Ármannsson,
Kristján Steinar Kristjánsson, Linda Björk Ævarsdóttir,
Guðríður Ingunn Kristjánsdóttir, Sævar Freyr Þorvarðarson,
Hjalti Kristjánsson, Sveinbjörg Snekkja Jóhannesdóttir
og barnabörn.