Morgunblaðið - 28.10.2007, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2007 69
HÖFUNDAR íslensks afþreying-
arefnis fyrir sjónvarp hafa verið
hittnastir á markið í gerð skemmti-
efnis. Dæmalausar vinsældir ára-
mótaskaupsins hafa sjálfsagt orðið
til þess að þeim hefur hlaupið kapp í
kinn og hefur mestur hluti fram-
leiðslunnar verið á svipuðum nótum.
Uppákomugrín byggt á sketsum eða
stuttum ótengdum atriðum. Næt-
urvaktin er aftur á móti í afar
þröngum hópi þáttaraða þar sem
persónurnar eru að skýrast og
þróast og þar er ákveðin gam-
andramatísk framvinda. Ekki nóg
með það; nú þegar fyrri helmingi
raðarinnar er lokið eru teikn á lofti
um enn fyndnari og dramatískari
átök í síðari þáttunum sex, í því grí-
naktuga umhverfi sem bensínstöðin
er. Næturvaktin hefur sannað sig
sem ein fyndnasta grínþáttaröð síð-
ari ára og ef svo fer sem horfir getur
hún endað í hópi útvalinna, þar sem
Heilsubælið í Gervahverfi (1987)
kemur nánast ein upp í hugann.
Sem fyrr segir gerist Næt-
urvaktin á bensínstöð og fjallar
mestmegnis um tilveru og tilvist-
arkreppu vaktmannanna þriggja.
Ólafur Ragnar (Pétur Jóhann) er
borubrattur en illa upplýstur ungur
maður með stóra drauma um vel-
gengni í kvennamálum og umboðs-
mennsku en skortir bagalega sjálfs-
traustið. Hann lætur stjórnast, gegn
betri vitund, af vaktstjóranum
Georg (Jón Gnarr), óþolandi mann-
gerpi með fjölda prófskírteina upp á
vasann og ómælda sjálfumgleði, en
lífið hefur ekkert fært honum betra
en vesælt stjórnarstarf yfir stöðv-
arsvæðinu. Georg er lítill karl sem
reynir að gera sig breiðan á kostnað
annarra, þeir fá að súpa seyðið af
því, Ólafur Ragnar og Daníel (Jör-
undur Ragnarsson), nýliðinn sem er
að hefja störf í fyrsta þætti.
Þar er kominn þriðji póllinn í
hæðina, Daníel hefur hætt lækna-
námi og misst fyrir bragðið kær-
ustuna og stórskaddað böndin við
snobbaða fjölskyldu sína. Hann er
greinilega kúgaður frá blautu barns-
beini og er að reyna að finna sér
„speis“ á bensínstöðinni.
Það er fjölmargt í gangi þar fyrir
utan, ýmsir skrautlegir karakterar
koma inn í hvern þátt, sumir einu
sinni, aðrir eru fastagestir og lífga
allir upp á blúsinn við Suðurlands-
brautina.
Persónurnar eru kunnuglegar úr
hversdagslífinu, þær eru ýktar og
endurbættar og eru hver og ein vel
mótuð en í forvitnilegri þróun. Þær
koma jafnan á óvart, sem er lyk-
ilatriði við að halda áhuga áhorfand-
ans vakandi og stærsti kostur þátt-
anna fyrir utan leikinn. Til að byrja
með virtist besservisserinn Georg
ætla að drottna yfir vaktinni og
þessi afspyrnuleiðinlegi skratta-
kollur var við það að gera þættina
eintóna, en afburðaleikarinn Jón
Gnarr gerði hann alltaf forvitnilegri
og fyndnari en gjörsamlega óþol-
andi.
Á sama hátt virtist Ólafur Ragnar
ekki stefna í neitt annað en áfram-
haldandi niðurlægingu en „karlinn“
fór fljótlega að færast í aukana og
kemur notalega á óvart og atriði
honum tengd eru oftar en ekki þau
fyndnustu í Næturvaktinni. Með-
fæddir hæfileikar Péturs Jóhanns
hjálpa ekki lítið upp á sakirnar; líkt
og Jón Gnarr er hann gamanleikari
af guðs náð og hlýtur, ásamt þátta-
röðinni, að standa uppi með Edduna
í næsta mánuði.
Þá er ónefndur þriðji leikarinn,
Jörundur Ragnarsson. Hann hefur
verið fyrirferðarminnstur en skapar
ómissandi mótvægi við félaga sína
tvo. Óráðinn, til baka, illa farinn í
einkalífinu, læknadraumur í bens-
ínmistri. Það verður gaman að fylgj-
ast með uppsveiflu hans og Ólafs
Ragnars, maður bíður spenntur eft-
ir framgangi mála í viðskiptum
þeirra við vaktstjórann. Tekst lipr-
um pennum og flinkum leikurum og
stjórnanda að halda dampi í háðinu,
gríninu og ádeilunni og koma okkur
áfram á óvart meðfram því að kitla
hláturtaugarnar?
Bensínstöðvarblús
Á vakt „Persónurnar eru kunnuglegar úr hversdagslífinu, þær eru ýktar
og endurbættar og eru hver og ein vel mótuð en í forvitnilegri þróun.“
SJÓNVARP
Stöð 2
Leikstjórn: Ragnar Bragason. Handrit:
Jóhann Ævar Grímsson, Jón Gnarr, Jör-
undur Ragnarsson, Pétur Jóhann Sigfús-
son, Ragnar Bragason. Framleiðandi:
Harpa Elísa Þórisdóttir. Aðalleikendur:
Jörundur Ragnarsson, Jón Gnarr, Pétur
Jóhann Sigfússon. Sýningartími 6 x 30
mín. Saga film fyrir Stöð 2. 2007.
Næturvaktin Sæbjörn Valdimarsson
■ Fim. 1. nóvember kl. 19.30
Europa Musicale
Spennandi efnisskrá byggð á verkum sem hljómsveitin
mun spila á tónleikaferð sinni til Þýskalands í nóvember.
Verk eftir Ravel, Nielsen, Atla Heimi Sveinsson, Jón
Nordal og Jón Leifs. Hljómsveitarstjóri: Rumon Gamba
Einleikari: Bryndís Halla Gylfadóttir
■ Fös. 2. nóvember kl. 21
Heyrðu mig nú! Stuttir óhefðbundnir tónleikar fyrir alla
sem langar að kynna sér klassíska tónlist.
Vorblót Stravinskíjs kynnt og leikið – partý á eftir.
■ Fim. 15. nóvember kl. 19.30
Sígaunar og fögur fljóð. Píanókonsert eftir Haydn, fjórða
sinfónía Schumanns og nýtt verk eftir Tryggva M.
Baldvinsson.Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
LAUGADAGUR 27. OKTÓBER KL. 17
TÍBRÁ: PÍANÓTÓNLEIKAR
ALBERT MAMRIEV - KL. 16.15 flytur
Reynir Axelsson formálsorð.
Miðaverð 2.000/1.600 kr.
LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER KL. 17
TÍBRÁ:HEIMSÓKN TIL CLÖRU SCHUMANN
Leikverk í tali og tónum. Höfundurinn,
Stephanie Wendt, kemur fram í
hlutverki Clöru.
Miðaverð 2.000/1.600 kr.
ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER KL. 20
TÍBRÁ: SÖNGTÓNLEIKAR - DEBUT
BYLGJA DÍS GUNNARSDÓTTIR og
JULIA LYNCH
Miðaverð 2.000/1.600 kr.
Sýningar eru opnar virka daga kl. 11 - 17
og um helgar kl. 13 - 16 • sími 575 7700
GERÐUBERG
www.gerduberg.is
Handverkshefð í hönnun
Leiðsögn á hverjum sunnudegi
kl. 14 Boðið er upp á leiðsögn
fyrir hópa, s. 575 7700
Úr ríki náttúrunnar
Guðmunda S. Gunnarsdóttir
sýnir málverk og myndverk úr
rekaviði og steinum
Vissir þú af...
góðri aðstöðu fyrir veislur,
námskeið, fundi o.fl.
Nánar á www.gerduberg.is
STRÁKARNIR í Westlife hafa mikinn
áhuga á því að fá Robbie Williams til þess að
ganga til liðs við sveitina, en í staðinn vilja
þeir að Brian McFadden, fyrrum meðlimur
Westlife, gangi í Take That, hljómsveitina
sem Robbie var eitt sinn í. „Brian ætti að
fara í Take That og við ættum að fá Robbie,“
segir Nicky Byrne, forsprakki Westlife. „Ef
ég væri í Take That myndi ég ekki hafa
nokkurn áhuga á því að fá Robbie aftur í
sveitina vegna þess að Take That gengur vel
auk þess sem Robbie er að gera það mjög
gott einn síns liðs.“
Strákasveitirnar Take That og Westlife
eiga það báðar sameiginlegt að hafa eitt sinn
verið skipaðar fimm ungum mönnum, en
hafa svo fækkað niður í fjóra. Robbie hætti í
Take That árið 1995 og hefur slegið í gegn
síðan þá, en Brian hætti í Westlife árið 2004.
Vilja fá Robbie Williams í Westlife
Flottir? Strákasveitin Westlife í upprunalegri mynd.