Morgunblaðið - 02.11.2007, Qupperneq 25
mælt með…
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2007 25
Vetrardekkin undir bílinn
Frost og funi er nú aðeins farinn
að láta á sér kræla hér meðal frón-
búa og því er ekki seinna vænna að
undirbúa mannskapinn fyrir hinn
óumflýjanlega vetur konung, sem
bankar gjarnan reglulega upp á á
sama tíma að ári. Fyrsti vetrardagur
er nú liðinn og vetrardekkjatíð á
hjólabarðaverkstæðum hefur verið
með blómlegasta móti það sem af er
vikunni. Ekki er því vitlaust að
minna þá á sem enn eru á sumar-
dekkjunum að fara nú í geymsluna
og drífa dekkin undir bílinn áður en
næstu snjóskaflar ná að tefja för eða
hafa alvarlegri afleiðingar í för með
sér.
Skátar bjóða í afmæli
Íslenskir skátar ætla svo að fagna
100 ára afmæli skátastarfs í heim-
inum með afmælishátíð í Fífunni í
Kópavogi á morgun kl. 14.00. Gera
má ráð fyrir miklu fjöri að skátasið
með tilheyrandi veitingum og lýkur
svo hátíðinni með veglegri flugelda-
sýningu kl. 18.00.
Vökudagar á Akranesi
Það er svo óvitlaust að bregða
undir sig betri fætinum og upp á
Skaga þegar búið er að skipta um
dekk því Akurnesingar eru í miklum
menningarham þessa dagana.
Menningarhátíðin Vökudagar er nú
haldin þar í fimmta sinn 1.-10. nóv-
ember. Landsþekktir listamenn í
bland við hæfileikafólk úr heima-
byggð koma saman enda er stefnt að
því að gera öllum listgreinum skil
svo eitthvað verður á prjónunum
fyrir alla aldurshópa. Dagskrá hátíð-
arinnar má finna á www.akranes.is.
Fréttamyndirnar
í Kringlunni
Í lokin er vert að geta þess að í til-
efni af 110 ára afmæli Blaðamanna-
félags Íslands gefst gestum Kringl-
unnar kostur á að skoða ljósmynda-
sýningu, sem þar verður opnuð á
morgun og spannar fréttamyndir í
ríflega 110 ár.
Ganga um Þórkötlu-
staðanes
Í tilefni af nýju söguskilti og af-
mæli björgunarsveitarinnar Þor-
björns í Grindavík verður efnt til
menningar- og sögutengdrar göngu
um hluta af Þórkötlustaðanesinu á
morgun kl. 13.00.
Tíu fengu
Gyllta glasið
ÞÆR eru ansi margar keppnirnar
sem haldnar eru í heiminum þar
sem hópi sérfróðra einstaklinga er
smalað saman til að velja vín úr
hópi einhverra tuga eða jafn-
vel hundraða vína. Sumar
eru sérhæfðar og taka
bara til ástralskra vína,
suður-afrískra vína eða
vína frá einhverju til-
teknu svæði í Evrópu. Í
öðrum er allur heimurinn
undir og er sú þekktasta
þeirra líklega International
Wine Challenge.
Auðvitað verða smakkanir sem
þessar aldrei neinn stóridómur en
ef vel er að verki staðið geta þær
gefið ákveðna vísbendingu fyrir
neytendur um hvaða vín eru sér-
stakrar athygli verð.
Hér á landi hafa Vínþjónasamtök
Íslands staðið að keppninni Gyllta
glasið undanfarin þrjú ár þar sem
smökkuð eru vín sem í boði eru á ís-
lenska markaðnum. Fyrir íslenska
neytendur er því forvitnilegt að
kynna sér niðurstöður hennar þar
sem ekki er nóg með að einungis
séu smökkuð vín sem hér eru fáan-
leg heldur má einnig segja að „ís-
lenskur smekkur“ sé líklegri til að
skína þarna í gegn heldur en í er-
lendum keppnum. Því það er jú
einnig svo að vínsmekkur getur ver-
ið mismunandi á milli landa rétt
eins og matarsmekkur.
Gyllta glasið 2007 var haldið á
Hilton Nordica um þarsíðustu helgi.
45 vín fóru í keppnina að þessu sinni
og voru þau öll evrópsk á verðbilinu
1.490 til 2.490. Tíu vín, fimm hvít og
fimm rauð voru valin út af fimmtán
manna dómnefnd sem smakkaði öll
vínin blint (þ.e. er dómnefndarmenn
vissu ekki hvaða tiltekna vín þeir
voru að smakka í hvert skipti) og fá
viðurkenningu Gyllta glassins.
Þau hvítvín sem hlutskörpust
voru eru öll vel að viðurkenning-
unni komin. Þar ber fyrst
að nefna vín úr hinni
stórkostlegu austur-
rísku þrúgu Grüner
Veltliner frá framleið-
andanum Brundlmayer
en árgangurinn var árið
2006. Þá Pinot Gris
2005 frá Doppf & Irion í
Elsass, og þá þrjú Búrg-
úndarvín, Pouilly-Fuissé
2006 frá Joseph Drouhin, Pouilly-
Fuissé 2004 frá Lalande og Saint-
Romain 2004 frá Francois d’Allei-
nes.
Í flokki rauðvína voru spænsk vín
áberandi að þessu sinni og náðu tvö
vín frá vínhúsinu Baron de Ley í
Rioja í efstu sætin. Annars vegar
Baron de Ley Finca Monasterio
2004 og hins vegar Baron de Ley
Reserva 2001. Þá vakti vínið Cha-
teau Barbe Blanche mikla athygli en
það er Bordeaux-vín frá framleið-
andanum André Lurton og kemur af
svæðinu Lussac-St. Emilion. Þá
komu tvö ítölsk vín, annars vegar
Marquese Antinori Chianti Classico
2003 og hins vegar Tomassi Rip-
passo 2004 en þess má geta að þetta
er annað árið í röð sem Ripasso-
vínið frá Tomassi hlýtur Gyllta glas-
ið.
Hvatningarverðlaun Vínþjóna-
samtakanna voru einnig veitt við
sama tilefni og þau hlaut að þessu
sinni Fríhöfnin í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar. Í umsögn dómnefndar
sagði að Fríhöfnin hefði unnið sam-
kvæmt skýrri og markvissri stefnu
um að auka og bæta úrval góðra
vína.
Leiðin var Víkverja
kærkomin tilbreyting
frá Langadalnum, spar-
aði tíma og hún var fal-
legt fjallabragð í fyrstu
haustlitunum. Víkverji
mun þó vart kasta
Vatnsskarðinu fyrir
róða, því fallegt er að
horfa yfir Skagafjörð-
inn, þegar kemur norð-
ur af Vatnsskarðinu; ey-
vörð sveit og umvafin
hrikaleika Tröllaskag-
ans.
x x x
Seint hefði Víkverjitrúað því að útsvar
yrði honum til ánægju. Þótt menn
eigi auðvitað að gjalda keisaranum
það sem keisarans er með bros á vör
nennir Víkverji ekki að gera sér upp
einhver látalæti; útsvar er ill nauð-
syn. En nú vill svo til að Víkverji nýt-
ur Útsvars í botn og með bros á vör.
Þar á Víkverji náttúrlega við spurn-
ingaþáttinn, sem er á dagskrá rík-
issjónvarpsins á föstudagskvöldum.
Þátturinn er gizka fróðlegur en um-
fram allt léttur og skemmtilegur;
þátttakendur leggja sig fram um að
vera léttir á bárunni og stjórnendur
líka. Víkverja er skemmt og hann
borgar afnotagjaldið með glöðu geði.
Útsvar er bráð nauðsyn.
Víkverji hefur oftorðið foxillur þeg-
ar hann ekur skyndi-
lega fram á gatnafram-
kvæmdir, sem stöðva
ferð hans. Fram-
kvæmdaaðilum ætti að
vera í lófa lagið að setja
upp skilti sem vara öku-
menn við því í tæka tíð
að þeir komist ekki sína
daglegu leið, heldur
verði að fara aðra.
Reyndar ætti að skylda
verktakana til slíks og
gefa þeim engin grið,
fyrr en þeir hafa gengið
sómasamlega frá þess-
um hluta fram-
kvæmdanna. Víkverji minnist þess að
þegar hann dvaldi á erlendri grundu
voru gatnaframkvæmdir kynntar
með þeim hætti að vegfarendum var
gert eins auðvelt og mögulegt var að
finna sér nýjar akstursleiðir. Af
hverju er ekki hægt að koma slíku á
hér á landi?
x x x
Víkverji ók nýlega í fyrsta skiptileiðina milli Húnaflóa og Skaga-
fjarðar um Þverárfjall. Þar er kominn
malbikaður vegur alla leiðina og man
Víkverji ekki betur en hluti Símapen-
inganna hafi runnið til þess að reka
endahnútinn á þennan veg.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Hamskiptin
eftir Franz Kafka
Bráðskemmtileg sýning
Vesturports sem hefur
sannarlega slegið í gegn
Allra síðasta sýning 1. des.
Nærgöngult verk um ástina,
minnið og gleymskuna
Þjóðleikhúsið
Á öllum sviðum lífsins
Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00
mán. og þri. Aðra daga frá kl. 12.30–20.00.
Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga.
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
Hjónabands-
glæpir
eftir Eric-Emmanuel Schmitt
Söngleikur eftir Hugleik Dagsson og Flís
LEG
Trylltar viðtökur og
12 Grímutilnefningar.
Yfir 12.000 áhorfendur!
Allra síðustu sýningar
Skilaboða-
skjóðan
Ævintýrasöngleikur fyrir alla fjölskylduna
eftir Þorvald Þorsteinsson og Jóhann G.
Jóhannsson
Frumsýning 7. nóvember
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur