Morgunblaðið - 02.11.2007, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2007 33
SÍÐUSTU fimmtán ár hafa Ís-
lendingar mátt búa við eitt versta al-
mannatryggingakerfi á Norð-
urlöndum. Þetta er stór yfirlýsing en
hún er sönn. Öryrki, sem fékk dálít-
inn styrk til háskólanáms og var refs-
að fyrir það með endurreikningi frá
TR, kallaði það refsikerfi öryrkja í
dagblaðsviðtali á dögunum. Þetta
gerðist vegna þess að í byrjun tíunda
áratugar síðustu aldar ákváðu
stjórnvöld að tekjutengja allar tekjur
fólks í bótakerfinu þvers og kruss
þannig að það borgaði sig varla að
vinna eða sýna ráðdeild í fjármálum.
Skattleysismörk voru líka tekin úr
sambandi við vísitöluþróun þannig að
skattbyrði öryrkja óx jafnt og þétt.
Þessu til viðbótar varð kerfið með
margstagbættum og götóttum lögum
og reglum svo flókið að enginn skilur
það, ekki einu sinni starfsfólk Trygg-
ingastofnunar. Útkoman er síðan sú
að atvinnuþátttaka fatlaðra á Íslandi
er mun minni en annars staðar á
Norðurlöndunum þótt svo atvinnu-
leysi sé langminnst hér á landi og það
vanti starfsfólk í mörg störf.
Ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálf-
stæðisflokks hefur einsett sér að
breyta þessu og tekur ÖBÍ virkan
þátt í þeirri vinnu. Áherslan í nýju
kerfi verður nú á færni fólks og
hvernig efla megi hana fremur en að
horfa á vangetuna. Til þess að það
megi takast þarf að einfalda kerfið til
muna og hverfa frá óréttlátum tekju-
tengingum og skerðingum en einnig
að fjárfesta mun meira í endurhæf-
ingu og hafa aðilar vinnumarkaðar-
ins lýst sig reiðubúna til þess. Mik-
ilvægt er að stóraukið framboð
starfsendurhæfingar verði sam-
starfsverkefni stjórnvalda og aðila
vinnumarkaðarins en Íslendingar
eru eftirbátar hinna norrænu
ríkjanna í þessum efnum nú. Nær all-
ir hafa horfst í augu við þá staðreynd
að lengra verður ekki komist í núver-
andi kerfi. Það er úr sér gengið og
því verður að kasta eins og ónýtri
flík. Við þessar aðstæður umróts og
eftirvæntingar eftir breytingum
spretta upp alls kyns hugmyndir.
Sumar þeirra eru góðar en aðrar
ekki. Þannig kynntu forsvarsmenn
Alþýðusambandsins og Samtaka at-
vinnulífsins hinn 11. september sl.
sameiginlegar tillögur um stofnun
svonefnds Áfallatryggingasjóðs sem
taki yfir allar greiðslur
til félagsmanna sem
lenda í áföllum í allt að
fimm ár. Um leið hafi
þessir aðilar umsjón
með mati á réttindum
fólksins, skipi hverjum
og einum þjónustufull-
trúa sem annist mál
viðkomandi, haldi utan
um endurhæfingu og
atvinnuþátttöku og
safni upplýsingum um
öll mál sjóðfélaga í
sameiginlegt tölvu-
kerfi. ÖBÍ hefur eindregið mótmælt
þessum hugmyndum sem mundu
kollvarpa grunn-
hugmyndum hins nor-
ræna velferðarkerfis
um jafnan aðgang en
skapa þess í stað kerfi
aðgreiningar og mis-
mununar. Hugmynd-
irnar miða leynt og ljóst
að einkavæðingu á
grunnþáttum almanna-
tryggingakerfisins sem
mundi veikja til muna
réttarstöðu fólks. Hing-
að til hefur ríkt um það
samstaða á Norð-
urlöndum að fara ekki slíkar leiðir og
við verðum að treysta því að verka-
lýðshreyfingin á Íslandi standi vörð
um eitt almannatryggingakerfi fyrir
alla.
Það var að frumkvæði aðila vinnu-
markaðarins í kjarasamningum sum-
arið 2005 að sú vinna hófst sem nú er
í fullum gangi og það er sérstök
ástæða til þakka það góða framtak.
Nú er brýnt að við stillum saman
strengi og stýrum breytingarferlinu
aftur í þann jákvæða farveg sem ein-
kenndi starfið síðasta vetur og sem
birtist í samdóma nefndaráliti sem
unnið er að útfærslu á nú. Aðalatriðið
er að allir landsmenn, sama hvar þeir
búa, hvort sem þeir eru í verkalýðs-
félagi eða ekki, með meðfædda fötl-
un, sjúkdóm eða reynslu af áföllum,
hafi aðgang að einu góðu almanna-
tryggingakerfi sem styður þá til
þátttöku og sjálfstæðs lífs og veitir
öllum öryggi. Þetta er verkefnið.
Sögulegt tækifæri til breytinga
Sigursteinn Másson skrifar um
almannatryggingakerfið » Áherslan í nýju kerfiverður nú á færni
fólks og hvernig efla
megi hana fremur en að
horfa á vangetuna.
Sigursteinn Másson
Höfundur er formaður ÖBÍ.
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík
Fréttir
í tölvupósti