Morgunblaðið - 02.11.2007, Síða 38
38 FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ GuðmundurKristinn Er-
lendsson fæddist í
Hamrahól í Holtum
í Rang., 3. mars
1932. Hann lést á
Landspítalanum
við Hringbraut 24.
október síðastlið-
inn. Foreldrar hans
voru Erlendur Ív-
arsson, f. í Breiða-
bólsstaðasókn í
Rang., 10. okt.
1897, d. 2. feb.
1954 og Guðrún
Laufey Tómasdóttir, frá Hamra-
hól í Holtum í Rang, f. 14. janúar
1909, d. 12. janúar 1994. Systir
Guðmundar var Guðbjörg, f. 3.
júní 1933, d. 29. júní 1994.
Guðmundur hóf sambúð með
Álfheiði Kristínu Jónsdóttur, f.
2. ágúst 1929, d. 10. nóv. 1992.
Synir þeirra eru: 1) Jón Erlend-
ur, f. 21. janúar 1951, kvæntur
Hönnu Björnsdóttur, f. 9. ágúst
1953, börn þeirra eru Sóley, f.
1973, Jóhann Már, f. 1974,
Hreiðar, f. 1980 og Emil Örn, f.
1988. 2) Þórarinn Flosi, f. 7.
ágúst 1952, kvæntur Rannveigu
Björnsdóttur, f. 22. apríl 1955,
börn þeirra eru Birna Lára, f.
1977, Ingibjörg Kristín, f. 1982
og Valdimar Guðmundur, f.
1986. 3) Gunnar Smári, f. 4.
ágúst 1954, kvæntur Jónu Krist-
1963 og börn þeirra eru Astrid
Marie, f. 1990, Paul Verner, f.
1993 og Emil Ravn, f. 1997. 3)
Elín, f. 3. janúar 1959, gift Hirti
Árnasyni, f. 27. maí 1958, börn
þeirra eru Guðmundur Árni, f.
1981, Helen, f. 1985 og Birgir
Smári, f. 1990. 4) Jón, f. 12. jan.
1960, d. 31. jan. 1960. 5) Guð-
mundur Kristinn, f. 13. janúar
1961, kvæntur Unni Ólafsdóttur,
f. 28. des. 1960, börn þeirra eru
Viðar, f. 1982 og Guðmundur
Kristinn, f. 1986. 6) Þröstur, f.
23. janúar 1962, fyrri eiginkona
hans er Særún Reynisdóttir og
börn þeirra eru Myrra Rós, f.
1983, Guðbjörg Líf, f. 1985 og
Reynir Hólm, f. 1987. Þau skildu.
Eiginkona Þrastar er Helle Ro-
senlyst Guðmundsson, f. 8. jan-
úar 1971, sonur þeirra er Thor,
f. 1999. 7) Jórunn, f. 22. des.
1964, sambýlismaður Magnús
Þór Sveinsson, f. 4. apríl 1968. 8)
Bjarki, f. 21. feb. 1971, kvæntur
Dagmar Guðmundu, f. 16. okt.
1971, dóttir þeirra er Fanney
Aðalheiður, f. 1999.
Guðmundur var alla sína tíð
atvinnubílstjóri. M.a. hjá Jóni
Loftssyni, hjá SVR og leigubíl-
stjóri hjá Hreyfli, en lengst af
ráðherrabílstjóri.
Guðmundur verður jarðsung-
inn frá Dómkirkjunni í Reykja-
vík í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.
ínu Halldórsdóttur,
f. 1. ágúst 1955,
börn þeirra eru
Margrét Gunn-
hildur, f. 1977 og
Jóna Sigríður, f.
1980. Þau slitu sam-
vistum.
Eiginkona Guð-
mundar er Sig-
ursteina Margrét
Jónsdóttir, f. 5. maí
1936. Guðmundur
og Sigursteina
gengu í hjónaband
15. október 1955.
Foreldrar hennar voru Jón Guð-
mann Magnússon, f. í Ólafsvík á
Snæf., 15. mars 1907, d. 10. okt.
1942 og Jórunn Valdimarsdóttir,
f. í Stokkseyrarsókn í Árn., 14.
mars 1909, d. 3. nóv. 1995. Guð-
mundur og Sigursteina eign-
uðust átta börn, þau eru: 1) Sig-
ursteinn, f. 6. apríl 1956, fyrri
sambýliskona hans er Karlína
Friðbjörg Hólm. Dóttir þeirra er
Rakel Júlía, f. 1978. Þau slitu
samvistum. Núverandi sambýlis-
kona Sigursteins er Therese
Thögersen, f. 19. sept. 1962. 2)
Kári, f. 27. apríl 1957, fyrri eig-
inkona hans er Hrefna Kristian-
sen og börn þeirra eru Unnur
Lilja, f. 1979, Gunnar Smári, f.
1984 og Karl Björgúlfur, f. 1987.
Þau skildu. Eiginkona Kára er
Jytte Guðmundsson, f. 7. júlí
Kveðja frá eiginkonu,
Guð sá að þú varst þreyttur
og þrótt var ekki að fá,
því setti hann þig í faðm sér
og sagði: „Dvel mér hjá“.
Harmþrungin við horfðum
þig hverfa á annan stað,
hve heitt sem við þér unnum
ei hindrað gátum það.
Hjarta, úr gulli hannað,
hætt var nú að slá
og vinnulúnar hendur
verki horfnar frá.
Guð sundur hjörtu kremur
því sanna okkur vill hann
til sín hann aðeins nemur
sinn allra besta mann.
(Þýtt Á.Kr.Þ.)
Elsku Gummi minn, takk fyrir
yndislegu árin 52 sem við áttum
saman.
Þín elskandi eiginkona,
Sigursteina.
Elsku pabbi, þú ert horfinn frá
okkur. Það er erfitt að sleppa hend-
inni af þér en við vitum að þú ert
kominn á annan og betri stað og að
þér líður betur núna.
Við þökkum þér fyrir að hafa ver-
ið alltaf til staðar fyrir okkur í
gegnum ævina, sama hvað okkur
vantaði eða bjátaði á.
Við minnust með söknuði allra
ferðalaganna sem hvert og eitt okk-
ar hefur farið með þér og mömmu,
bæði innanlands og utan, bæði sem
börn og ekki síst fullorðin.
Þú varst alltaf hrókur alls fagn-
aðar hvert sem þú komst og þá
söngst þú gjarnan svo fallega þitt
uppáhald „Undir bláhimni“. Við
munum alltaf minnast þín með gleði
í hjarta þegar við heyrum það sung-
ið.
Það var alltaf mikið fjör á heim-
ilinu og mikið gátum við hlegið þeg-
ar þú varst að glíma við okkur
bræðurna.
Við systurnar nutum þess að
dansa við þig en við gátum aldrei
einhvernveginn dansað eins vel við
þig eins og mamma. Það var unun
að sjá hvað þið voruð samstillt í
dansinum.
Góðvild þín í garð þeirra sem
minna máttu sín var einstök.
Þegar við minnumst þín þá hugs-
um við um gleði, góðmennsku,
snyrtimennsku og virðuleika, því
það var þitt aðalsmerki.
Þú varst alltaf okkar stoð og
stytta og við þökkum fyrir að hafa
átt þig sem pabba.
Þín verður sárt saknað.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlauztu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn,
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
Fyrst sigur sá er fenginn,
fyrst sorgar þraut er gengin,
hvað getur grætt oss þá?
Oss þykir þungt að skilja,
en það er Guðs að vilja,
og gott er allt, sem Guði er frá.
Nú héðan lík skal hefja,
ei hér má lengur tefja
í dauðans dimmum val.
Úr inni harms og hryggða
til helgra ljóssins byggða
far vel í Guðs þíns gleðisal.
(Valdimar Briem.)
Þín elskandi börn,
Sigursteinn, Kári, Elín,
Guðmundur, Þröstur,
Jórunn og Bjarki
Guðmundur tengdafaðir minn var
umhyggjusamur heimilisfaðir og
ákaflega barngóður maður. Hann
var ljúfur í umgengni, tillitssamur
við allt og alla og mikið séntilmenni.
Minningarnar um minn kæra vin og
tengdaföður hafa flögrað mikið um í
huga mér síðustu daga. Ferðalögin
sem við fórum saman á húsbílunum
okkar og ferðalögin erlendis.
Við skemmtum okkur mikið sam-
an og ég á aðeins góðar minningar
um góðan dreng og ljúfar samveru-
stundir sem ég veit að verður mér
og henni Ellu minni styrkur í fram-
tíðinni hvenær sem við hugsum til
þeirra.
Þú varst ávallt trúr og traustur
þínum nánustu og ekki síður þeim
sem þú varst að vinna fyrir. Sýndir
öllum fullkomin trúnað, vandur að
virðingu þinni og vinur vina þinna.
Guðmundur var mikið snyrti-
menni, allt varð að vera í góðum
stíl, þ.e. bíllinn flottur, stífbónaður
og maðurinn flottur í stífpressaðri
skyrtunni, jakkafötum og burstuð-
um skóm. Þannig byrjaði vinnudag-
urinn. Ég frétti það einu sinni að
þegar hann í eitt skiptið þurfti að
sækja erlenda erindreka, fyrir ráðu-
neytið, sem voru að koma í heim-
sókn til landsins, þá töldu þeir að
þarna væri sjálfur ráðherrann kom-
inn og tóku Guðmund í misgripum
fyrir ráðherrann, þetta lýsir vel
þeim virðuleika sem geislaði af
þessum stóra og virðulega manni.
Ég hef alltaf litið mikið upp til
hans tengdaföður míns og borið
mikla virðingu fyrir honum, hann er
það nærri hjarta mínu að ég kallaði
hann oftast pabba, hann var vinur
minn og félagi og ég mun sakna
hans mjög mikið.
Eitt var það sem hafði mikil áhrif
á mig nú nýlega þegar þú sagðir við
mig, nývaknaður inni á gjörgæslu
og ég hélt í hönd þína, „það er gott
að halda í höndina þína“, þú sagðir
það svo innilega og tókst þéttar í
hönd mína og brostir til mín. Þú
reyndir ætíð að láta öðrum líða vel í
kringum þig hversu veikur sem þú í
raun varst og þurftir ekki að hafa
mörg orð um það því það kom svo
beint frá hjarta þínu.
Það er erfitt að kveðja þig, minn
kæri vinur, en minning um þig mun
lifa með mér um alla ævi og lofar
góðum endurfund.
Ég heyrði Jesú himneskt orð:
„Kom, hvíld ég veiti þér.
Þitt hjarta’ er mætt og höfuð þreytt,
því halla’ að brjósti mér“.
(Stefán Thorarensen.)
Þótt hverfi árin, líði líf,
við líkam skilji önd,
ég veit, að yfir dauðans djúp
mig Drottins leiðir hönd.
(Margrét Jónsdóttir)
Þinn tengdasonur,
Hjörtur Árnason.
Mig langar að kveðja hann Guð-
mund, tengdapabba minn, með
nokkrum orðum, reyndar var hann í
mínum augum meiri félagi og vinur,
en góður tengdapabbi var hann líka.
Örugglega sá besti sem hægt er að
hugsa sér. Ávallt reiðubúinn ef ég
þurfti að leita til hans með einhver
mál og ekki man ég eftir að hafa
séð hann í vondu skapi, ávallt hrók-
ur alls fagnaðar og léttur í lund.
Enda áttum við ófáar góðar stundir
saman, hvort sem það var í útlönd-
um, veiðiferðum eða bara við eld-
húsborðið inn á Neðstaleiti. Í utan-
landsferð sem ég fór í núna á
haustmánuðum bað hann mig að
skila kveðja til fólks sem hann hafði
kynnst á ferðalögum sínum á þess-
um slóðum. Og það er mér minn-
isstætt að allir sögðu það sama þeg-
ar þeir fengu kveðjuna, að
Guðmundur væri drengur góður og
það kom blik í augu fólks. Þessi
áhrif hafði hann á flesta við fyrstu
kynni.
En nú verða ferðalögin eða sam-
verustundirnar ekki fleiri, en það
verður gott að geta yljað sér við
minningarnar um allar þær góðu
stundir sem við áttum saman á und-
anförnum árum. Þín verður sárt
saknað. Ég votta Steinu, fjölskyld-
unni og ástvinum mínar dýpstu
samúðarkveðjur.
Magnús Þór.
Guðmundur Kr. Erlendsson vakti
athygli hvar sem hann fór. Höfð-
inglegt yfirbragðið leyndi sér ekki
þegar þessi mikli heiðursmaður var
á ferð. Hann vann starf sitt með al-
gjörlega óaðfinnanlegum hætti enda
var hann mikils metinn af öllum
þeim sem kynntust honum.
Þegar ég kom í sjávarútvegsráðu-
neytið að hausti árið 2005 var Guð-
mundur þar fyrir sem bílstjóri.
Hann var enginn nýgræðingur.
Hann hafði ekið forverum mínum,
þeim Árna M. Mathiesen og Þor-
steini Pálssyni. En ekki einasta
þeim. Í allt sýndist okkur að hann
hefði verið bílstjóri 7 ráðherra.
Starfsferill hans sem bílstjóra í
ráðuneytum spannaði áratugi.
Samband bílstjórans og ráð-
herrans er á margan hátt einstakt.
Oft eru þeir tveir einir á langferð-
um eða við margs konar aðstæður,
þar sem mikið stendur til, álag mik-
ið. Það var alltaf til góðs að hafa
Guðmund sér við hlið á slíkum ferð-
um. Hinn hæverski vinur minn las
umhverfi sitt, sletti sér aldrei fram í
neitt, en lagði bara gott til málanna.
Það var eins og hann skynjaði hve-
nær ég kaus að hafa næði og hve-
nær okkur var báðum orðið mál að
tala saman. Allt þetta var svo
áreynslulaust og óþvingað. Ég varð
var við að Guðmundur var einstak-
lega vel kynntur, þegar við hófum
samstarf okkar. Gilti það um alla þá
sem honum höfðu kynnst. Í kjör-
dæminu eignaðist hann fljótt góða
vini, varð alls staðar aufúsugestur.
Það kom sér líka vel að Guðmundur
var gríðarlega reyndur og fær bíl-
stjóri við aðstæður sem oft höfðu
verið verri en þó mátti kynnast við
vond skilyrði á vestfirskum fjall-
vegum, þegar veður gátu verið alla-
vega.
Ekki skemmdi það fyrir að báðir
höfðum við gaman af tónlist. Við
höfðum til að mynda báðir sungið í
karlakórum; þótt reynsla Guðmund-
ar væri langtum meiri. Það var ætl-
un Guðmundar að halda því áfram.
Ekki síst nú þegar hann hafði tekið
stefnu á að setjast í helgan stein og
njóta lífsins með Steinu sinni. Þá sá
hann líka fram á góðan tíma til að
ferðast um landið sitt og til útlanda,
sem hann hafði mikið yndi af. Lilli
klifurmús, litli húsbíllinn, var stíf-
bónaður á bílastæðinu og beið þess
að verða tekinn til kostanna úti á
þjóðvegunum. Í farteskinu yrði svo
örugglega veiðistöngin, gripur sem
Guðmundur hafði gaman að hand-
leika við góða silungs- eða þá lax-
veiðiá, eða við kyrrláta heiðartjörn.
Því miður entist Guðmundi ekki
lífið til þess að iðka þessi áhugamál
sín nú þegar um átti að hægjast að
loknum erilsömum og farsælum
starfsferli. Guðmundur veiktist nú í
kringum síðustu áramót og náði sér
aldrei almennilega eftir það.
Þegar maður á borð við Guðmund
Kr. Erlendsson kveður eftir farsælt
lífsstarf verða kaflaskil. Hann kunni
starf sitt upp á hár. Rækti það af
mikilli virðingu og kunnáttu. Fyrir
honum voru fjarlægir siðir og
ókunnuglegar reglur sem opin bók,
sem hann lét sig ekki muna um að
kynna fyrir fáfróðum nýgræðings-
ráðherranum. Trúnaður hans var
við þann sem hann vann fyrir og
hann kunni það sem forðum var
sagt, að það sem manni er trúað
fyrir, er manni trúað fyrir.
Í sjávarútvegsráðuneytinu sjáum
við nú á bak góðum vini og sam-
starfsmanni. Fjölskylda mín saknar
góðs vinar og félaga. Steinu og fjöl-
skyldunni allri sendum við innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Einar K. Guðfinnsson.
Við komum hér á kveðjustund
að kistu þinni, bróðir,
að hafa við þig hinzta fund
og horfa á gengnar slóðir.
Og ógn oss vekja örlög hörð,
er ennþá koma í hópinn skörð,
og barn sitt faðmi byrgir jörð,
vor bleika, trygga móðir.
En minning þín er mjúk og hlý
og mun oss standa nærri.
Með hverju vori hún vex á ný
og verður ávallt kærri.
Ef lífsins gáta á lausnir til,
þær ljóma bak við dauðans þil.
Og því er gröfin þeim í vil,
sem þráðu útsýn stærri.
(Magnús Ásgeirsson)
Með söknuði kveðjum við starfs-
félaga okkar í sjávarútvegsráðu-
neytinu, Guðmund Kristin Erlends-
son. Hann kom til starfa í
ráðuneytinu árið 1991, maður á
besta aldri, hávaxinn, spengilegur
og glæsilegur. Hann hafði áður
starfað í öðrum ráðuneytum sem
einkabílstjóri ráðherra. Þetta sumar
flutti hann sig um set þegar Þor-
steinn Pálsson þáverandi sjávarút-
vegsráðherra leitaði sérstaklega
eftir því að fá hann til starfa fyrir
sig. Það er óhætt að segja að þar
hafi sjávarútvegsráðherra dottið í
lukkupottinn því Guðmundur var
einstakur starfsmaður. Prúður,
ávallt glaður, þægilegur í um-
gengni, með afbrigðum stundvís,
samviskusamur og þagmælskur.
Snyrtimennsku hans var við brugð-
ið og hrukku eða blett var aldrei að
finna – hvorki á honum sjálfum né
ráðherrabílnum. Með nýjum ríkis-
stjórnum koma svo nýir ráðherrar.
Orðstír Guðmundar í starfi hefur
örugglega borist því ekki datt nýj-
um ráðherrum í hug að skipta um
bílstjóra eigandi kost á annarri eins
þjónustu og þeirri sem Guðmundur
veitti.
Í einkalífinu var Guðmundur far-
sæll. Samleið þeirra Steinu í gegn-
um lífið stóð í rúma hálfa öld og
saman eignuðust þau sjö börn en
Guðmundur Kristinn Erlendsson
✝
Elskuleg föðursystir mín og frænka okkar,
VIGDÍS JÓNSDÓTTIR
frá Stóru-Hildisey,
er látin.
Guðjón Axelsson
og aðstandendur.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR V. HALLSSON,
Lindargötu 57,
lést fimmtudaginn 18. október á líknardeild
Landspítalans, Landakoti. Útför hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Hrafnhilur Eyjólfsdóttir, Margrét Sigurðardóttir,
Friðjón Örn Friðjónsson, Anna Mariella Sigurðardóttir ,
Jakob Gunnarsson, Benedikt Sigurðsson,
Eyjólfur Rósmundsson, Hekla Gunnarsdóttir,
Elísabet Rósmundsdóttir, Páll Viðar Jensson,
Unnur Rósmundsdóttir og afabörn.