Morgunblaðið - 02.11.2007, Blaðsíða 48
Föstudaginn 2. nóvember kl. 20.00
Laugardaginn 10. nóvember kl. 20.00*
Föstudaginn 16. nóvember kl. 20.00
* Umræður eftir sýningu með Katrínu Jakobsdóttur
Ath.
Sýningin er ekki ætluð börnum yngri en 14 ára
Ekki er hleypt inn í sal eftir að sýningin hefst
www.midi.is/www.hhh.is
Miðasölusími: 555 2222
SÍÐ
US
TU
SÝ
NIN
GA
R!!
Þar sér maður oft
listamenn framtíðar-
innar verða til… 50
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„VIÐ erum búin að ráða menn í Kaupmannahöfn, New
York og London. Þeir eiga að vera það sem er kallað
„one man team“, þeir gera sem sagt allt sjálfir, taka við-
töl, eru með myndavélar og senda svo efnið heim,“ segir
Elín Hirst, fréttastjóri Sjónvarpsins, en frá og með ára-
mótum mun Ríkisútvarpið starfrækja starfsstöðvar í áð-
urnefndum borgum. Starfsmenn stöðvanna verða ólíkir
fréttariturum að því leyti að þeir verða í fullu starfi og
munu þeir skila efni á hverjum degi, bæði fyrir sjónvarp,
útvarp og net. Elín segir þetta því ekki ólíkt svæð-
isstöðvum Ríkisútvarpsins úti á landi.
Þeir sem hafa verið ráðnir í stöðurnar eru Sveinn Guð-
marsson í London, Héðinn Halldórsson í Kaupmanna-
höfn og Sveinn Helgason í New York, en sá síðastnefndi
byrjar ekki fyrr en næsta sumar og mun Ingólfur Bjarni
Sigfússon líklega gegna stöðunni fram að því.
Aðspurð segir Elín markmiðið að víkka fréttaöfl-
unarnet Ríkisútvarpsins út. „Við höfum kallað þetta
fréttaútrás RÚV,“ segir hún.
RÚV í útrás til Köben,
London og New York
Morgunblaðið/Ómar
Útrás Sveinn H. Guðmarsson verður starfsmaður
Ríkisútvarpsins í London frá og með áramótum.
Nú þegar jóla-
plötuflóðið er við
það að bresta á
fara venju sam-
kvæmt af stað um-
ræður um hver
muni lifa það af
sölulega og hverjir munu troðast
undir sem eru nú flestir. Er plöt-
unni manns stillt nægilega vel
fram? Er hún auglýst? Hvernig í
hel … á maður að koma henni út? Í
þessu tilliti er athyglisvert að líta til
sunnlensku kántrísveitarinnar
Klaufa en fyrsta breiðskífa hennar
er komin í gullsölu (5.000 eintök) en
hún fæst einungis í verslunum N1, á
völdum stöðum í heimabæ sveit-
arinnar, Selfossi og já … upp úr
vasa meðlima sjálfra. Það þarf
greinilega ekki plötubúðir lengur
til að selja plötur. Og svo er það líka
þessi spurning: Selja vel heppnaðar
plötur sig ekki alltaf sjálfar?
Hvernig komast á í gull
Tímaritið Time lagði á dögunum
10 spurningar fyrir hinn heims-
fræga kokk Anthony Bourdain í
tilefni af því að út er komin bók
byggð á ferðamatreiðsluþáttum
hans, No Reservation. Það væri svo
sem ekki í frásögur færandi nema
vegna þess að fyrsta spurningin
sem kokkurinn fékk var: Hvað er
það versta sem þú hefur smakkað?
Bouardain svarar: „Kæstur hákarl
sem ég fékk á Íslandi. Þar varð-
veita þeir víkingahefðina með því
að éta rotinn hákarl sem hefur ver-
ið látinn liggja í sýru í sex mánuði.
Svo var það vörtusvínsrass sem ég
át í Namibíu. Haldið ykkur frá hon-
um.“
Matvandur kokkur
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
LEIKFÉLAG Akureyrar frumsýnir í kvöld
bandarískt verðlaunaleikrit, Ökutíma. Verkið
fjallar um kynferðislega misnotkun en nálgun
höfundarins, Paulu Vogel, er óvænt. Vogel
fékk Pulitzer-verðlaunin eftir að verkið var
frumsýnt í Bandaríkjunum og það hefur víða
verið sett upp við góðar undirtektir.
Hér er sögð þroskasaga stúlku, sem fylgst er
með frá 11 ára aldri þar til hún verður 17 – en
hún segir söguna sjálf og er þá orðin 35 ára.
„Það er mjög spennandi að takast á við þetta
verkefni,“ segir Kristín Þóra Haraldsdóttir,
sem leikur umrædda stúlku, en hún útskrif-
aðist úr Listaháskólanum í vor og ræðst ekki á
garðinn þar sem hann er lægstur. „Nokkrar
leikkonur hafa tekið svo til orða við mig að sú
sem fái svona hlutverk einu sinni á ferlinum sé
heppin. Stína má því vera glöð yfir að byrja á
þessu,“ segir María Reyndal leikstjóri.
Hitt aðalhlutverkið leikur hinn reyndi Þröst-
ur Leó Gunnarsson og er hann ekki síður
spenntur fyrir verkefninu. „Þetta er skemmti-
legt en líka erfitt; bæði að leika í verkinu og
jafnvel að horfa á. Það eru miklar sveiflur í
þessu; fólk á stundum eftir að skellihlæja en
stundum jafnvel líða illa. Það er mjög erfitt að
horfast í augu við þá hluti sem hér er fjallað
um,“ segir Þröstur. Vert er að geta þess að
auglýst er að leikritið sé ekki við hæfi barna.
Höfundurinn hefur sjálfur sagt að verkið
fjalli um fyrirgefningu. Það er mikil vænt-
umþykja í verkinu, mikil ást en jafnframt svik.
„Stúlkan leiðir okkur vel inn í minningar sín-
ar; segir okkur söguna aftur á bak; af flóknu
sambandi hennar og frændans. Það óvenjulega
er að maður fer að kenna í brjósti um hann.“
Frændinn, sem er reyndar ekki frændi held-
ur kvæntur frænku stúlkunnar, er „vondi karl-
inn“ en líka sá sem mest allra styrkir hana,
hefur trú á henni, fræðir og er fyrirmynd – um
leið og hann fer yfir strikið á öðrum sviðum,
eins og María leikstjóri orðar það.
Þau eru sammála um að verkið sé þarft inn-
legg í umræðu um viðkvæmt málefni. Verkið
sé afar sannfærandi. „Það er svo vel skrifað að
eftir því sem lengra líður á það finnur maður
að ekkert sem höfundurinn skrifar er tilviljun,“
segir María.
Þröstur er á því að það verði mörgum hollt
að sjá leikritið: „Það minnir okkur öll á að
vera vel vakandi gagnvart því sem gerist í
kringum okkur og þeim sem við umgöngumst.
Svona nokkuð kemur fólki alltaf jafnmikið á
óvart. Ég held að við séum með sýningu sem er
rosalega sláandi en líka skemmtileg og fræð-
andi.“
Kristín Þóra segir vissulega hafa verið erfitt
á vissan hátt að búa sig undir hlutverkið. „En
ég er bæði með frábæran leikstjóra og mótleik-
ara og þetta gekk vel.“
Vert er að geta þess að tónlistarkonan Lay
Low, sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin
2006, semur tónlist við sýninguna og tekur þátt
í flutningi verksins. Hún er inni á sviðinu allan
tímann og flytur frumsamin lög fyrir sýning-
una á sviðinu en einnig hljóma lög sem Lay
Low hefur tekið upp með hljómsveit sinni og
eru úr smiðju kántrígyðjunnar Dolly Parton.
Sláandi en skemmtilegt
LA frumsýnir í kvöld bandaríska verðlaunaleikritið Ökutíma eftir Paulu Vogel
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Bara ökutími? Kristín Þóra Haraldsdóttir og Þröstur Leo Gunnarsson fara með aðalhlutverkin.
Höfundur: Paula Vogel. Leikstjóri: María Reyn-
dal. Leikarar: Þröstur Leó Gunnarsson, Kristín
Þóra Haraldsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Hall-
grímur Ólafsson og Þrúður Vilhjálmsdóttir. Þýð-
ing: Sigtryggur Magnason. Leikmynd og bún-
ingar: Filippía Elísdóttir. Tónlist: Lay Low.
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson.
Ökutímar