Morgunblaðið - 02.11.2007, Side 52
52 FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
WWW.SAMBIO.ISVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á SAMBÍÓIN - EINA
MICHAEL CLAYTON kl. 8 - 10:30 B.i. 7 ára
THE INVASION kl. 10:10D B.i. 16 ára DIGITAL
DARK IS RISING kl. 4 - 6 B.i. 7 ára
ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 4 - 6 LEYFÐ
IN THE LAND OF WOMEN kl. 5:50 - 8 LEYFÐ
THE KINGDOM kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
BRATZ kl. 3:40 LEYFÐ
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
HEARTBREAK KID kl. 5:30 - 8 B.i.12.ára
THE BRAVE ONE kl. 10:30 B.i.16.ára
STARDUST kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.10.ára
ASTRÓPÍA kl. 4 - 6 LEYFÐ
MICHAEL CLAYTON kl. 8 - 10:30 B.i.7.ára
MICHAEL CLAYTON kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS VIP
THE GOLDEN AGE kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12.ára
THE INVASION kl. 8 - 10:30 B.i.16.ára
ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 4 - 6 LEYFÐ
eee
A.S.
eeee
- V.J.V., TOPP5.IS
eeee
- S.F.S, FILM.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
SÝND Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG SÝND Á SELFOSSI SÝND Í KEFLAVÍK
eeeee
- LIB, TOPP5.IS
eeee
- S.V, MBL
SÝND Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA
GEORGE CLOONEY
LEIKUR LÖGFRÆÐING
Í EINUM AF BETRI
„ÞRILLERUM“ SEM SÉST
HAFA Á ÞESSU ÁRI.
ÓSKARSVERÐLAUNAHAFARNIR CATE BLANCHETT OG GEOFFREY RUSH
ÁSAMT CLIVE OWEN Í EPÍSKRI KVIKMYND BYGGÐRI Á ÁSTUM OG
ÖRLÖGUM ELÍSABETAR ENGLANDSDROTTNINGAR.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
HEYRÐU mig nú! er yfirskrift
nýrrar tónleikaraðar Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands sem hefst í kvöld, og
er sérstaklega hugsuð fyrir ungt
fólk og þá sem vilja kynna sér klass-
íska tónlist á nýstárlegan hátt.
Að sögn Árna Heimis Ingólfs-
sonar, tónlistarstjóra Sinfóníunnar,
verður margt gert til þess að höfða
til unga fólksins.
„Til dæmis að hafa þetta á bíótíma
um helgi því það hentar kannski
ekki alltaf ungu fólki sem er í skóla
að mæta á fimmtudagskvöldum,“
segir hann, en tónleikarnir í kvöld
hefjast kl. 21. Það er þó að sjálf-
sögðu verkefnavalið sem skiptir
mestu máli. „Hugmyndin er sú að í
þessari röð verði bara hress „dúnd-
ur“-músík,“ segir Árni, en Vorblót
Stravinskíjs verður flutt á tónleik-
unum í kvöld. „Þetta verk er nátt-
úrulega eitt það rosalegasta sem
hefur verið skrifað, og er frægt að
endemum. Það urðu mikil uppþot
þegar það var flutt og það fór allt í
slagsmál og vitleysu. Þetta er líka
skrifað fyrir mjög stóra hljómsveit
þannig að það er alltaf mjög eftir-
minnilegt að heyra það á tónleikum,
hljóðstyrkurinn og massinn er svo
mikill. Svo er þetta líka verk sem
hefur haft áhrif á mjög marga í
gegnum tíðina,“ segir Árni, og bætir
við að ýmislegt verði gert til að
brjóta tónleikana upp.
„Við spilum til dæmis ekki bara
verkið í gegn, heldur útskýrum það
svolítið fyrir fólki fyrst. Það er ekki
gert ráð fyrir að þú komir þarna inn
með einhverja þekkingu, þú þarft
ekkert að vita. Tónleikarnir byrja á
því að stjórnandinn kennir fólki
eiginlega að hlusta á verkið, og
hljómsveitin tekur tóndæmi héðan
og þaðan. Eftir svona hálftíma af því
er verkið svo spilað allt í gegn.“
Kostar bara 1.000 kall!
Að tónleikunum loknum verður
svo partí fyrir gesti í anddyri Há-
skólabíós. „Þangað mæta bæði
hljómsveitin og stjórnandinn og fólk
getur tekið þau tali og spurt þau um
allt sem þau vilja vita,“ segir Árni,
en DJ Þorbjörn mun sjá um að halda
fjörinu gangandi.
En er ungt fólk almennt ekki nógu
duglegt við að sækja sinfón-
íutónleika? „Það vantar í sjálfu sér
ungt fólk á klassíska tónleika út um
allan heim, það er ekkert sérvanda-
mál okkar. Ástæðurnar fyrir því eru
bæði margar og margbreytilegar.
Það er til dæmis skólakerfið sem
stendur sig ekki alltaf sem skyldi,
samanborið við að kenna fólki að
njóta bókmennta eða leikhúss. Svo
kostar það líka peninga að fara á
tónleika og fólk leyfir sér kannski
ekki þann lúxus fyrr en það er búið
að mennta sig og ala upp börnin. Við
erum líka að reyna að koma til móts
við unga fólkið með því að hafa miða-
verðið lágt, aðeins 1.000 krónur,
þannig að þetta er bara eins og fara í
bíó. Þannig að við vonum að við get-
um byrjað að breyta einhverju til
hins betra með þessum tónleikum.“
Heyrðu mig nú!
Sinfónían býður ungu fólki á „dúndrandi“ tónleika og í partí á eftir
Dúndur „Hugmyndin er að í þessari röð verði bara hress „dúndur“ músík.“
Tónleikarnir í Háskólabíói hefjast
kl. 21 og miðaverð er aðeins 1.000
krónur. Nánari upplýsingar á
www.sinfonia.is.
LINDA Stein, fyrrum umboðs-
maður pönkrokksveitarinnar
Ramones sem sneri sér síðar að
fasteignasölu, fannst myrt á heimili
sínu í New York á þriðjudaginn
var.
Stein var jafnan kölluð „fast-
eignasali stjarnanna“, og er þar átt
við hina ríku og frægu.
Stein var barin til dauða, að sögn
lögreglu. Meðal stjarna sem fast-
eignaviðskipti áttu við Stein eru
tónlistarmennirnir Madonna og
Sting og leikararnir Michael Dou-
glas og Angelina Jolie. Engin um-
merki voru um innbrot.
Stein var 62 ára. Hún var áður
gift forstjóra Sire plötuútgáfunnar,
sem gaf út fyrstu breiðskífur
Ramones.
Látin Dóttir Stein kom að móður
sinni liggjandi í blóði sínu.
Fasteignasali
stjarnanna
myrtur