Morgunblaðið - 02.11.2007, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ FRIDAY 2. NOVEMBER 2007 55
Lýstu eigin útliti.
Ég er meðalstór, í meðalskóstærð, í meðalfatastærð og
með frekar venjulegan hár- og augnlit. Ef við gefum
okkur að útlit sé normaldreift, þá er ég í miðjunni.
Hvaðan ertu?
Ég kem frá Egilsstöðum, er fædd þar og uppalin. Ég hef
búið í sama húsinu allt mitt líf, en reyndar skipt um her-
bergi nokkrum sinnum.
Finnst þér ekki æðislegt að vera til? (Spurt af síðasta
aðalsmanni, Rúnari Júlíussyni tónlistarmanni.)
Það er svo sannarlega alveg æðislegt að vera til! Eins og
vinkona mín segir alltaf; lífið er gott og Guð er góður!
Hvaða bók lastu síðast?
Síðasta bók sem ég las var Flugdrekahlauparinn, ég
gerði bókmenntaverkefni um hana fyrir skólann og fékk
yndislega tíu sem gladdi mig mikið og gerir enn. Frábær
bók.
Á hvaða plötu hlustar þú mest þessa dagana?
Fyrir utan nýju plötuna okkar í Bloodgroup þá held ég
að það sé Our Love To Admire með Interpol, svona und-
anfarna daga og vikur. Þegar kuldinn færist yfir byrja
ég líka að hlusta mikið á Leonard Cohen, Low og þvíum-
líkt til þess að hlýja sálinni.
Hvað uppgötvaðir þú síðast um sjálfa þig?
Þetta hljómar örugglega dálítið væmið, en ég fattaði síð-
ast að ég get gert hvað sem er ef ég bara nenni því.
Hefurðu þóst vera veik til að sleppa við vinnu eða
skóla?
Ég verð að viðurkenna að það
hefur komið fyrir einu sinni eða
tvisvar, eins mikið og ég
skammast mín fyrir það. Það
hefur þó alltaf verið af einhverri
annarri ástæðu sem ég vildi
ekki segja frá.
Er Urður í Gus gus fyrirmyndin?
Eins klikkað svöl og hún er, þá
vissi ég reyndar ekki hver hún
var fyrr en rétt áður en Forever
kom út, ég er svolítið mikið með
hugann úti á landsbyggðinni og
því ekki alveg í sambandi við
dægurmál samtímans. Ég get
því ekki beint svarað því ját-
andi.
Hvernig er að vera með bræðr-
um sínum í hljómsveit?
Það er yndislegt, hræðilegt, gef-
andi og erfitt.
Eru Færeyingar skemmtilegir?
Færeyingar eru alltaf til í öl og
skerpikjöt í góðum félagsskap.
Hressasta fólk í heimi!
Motion Boys eða FM Belfast?
Má ég ekki bara segja Motion
Boys OG FM Belfast? Eða
kannski bara Árni Plúseinn?
Ertu pólitísk?
Já, ég tel mig vera mjög pólitíska, og finnst að allir ættu
að vera það. Hvernig er hægt að vera sama um hvaða
ákvarðanir eru teknar um líf manns og allra annarra í
þjóðfélaginu?
Uppáhaldstónlistarmaður?
Ég held upp á marga tónlistarmenn af mismunandi
ástæðum, til dæmis David Bowie fyrir að hafa verið
svona svalur, Antony Hegarty fyrir að syngja svona fal-
lega, Björk fyrir frumleikann og svo framvegis. Ég held
samt að uppáhaldstónlistarmaðurinn minn sé maðurinn
minn!
Besta lag allra tíma?
Það sem kemst næst því í mínum huga er „God Only
Knows“ með Beach Boys.
Besta íslenska plata sem gerð hefur verið?
Ég ætla að leyfa mér að segja að það sé Ghost Of The
Bollocks To Come með Skátum. Hún er að minnsta kosti
besta íslenska plata sem ég hef heyrt.
Hvað hyggstu fyrir á komandi vetri?
Ég er að útskrifast úr Menntaskólanum á Egilsstöðum
um jólin, svo ég kem til með að læra frekar mikið í vetur.
Ég á mér líka háleita drauma um að taka hugsanlega
miðpróf á sellóið. Bloodgroup er svo á leiðinni til Bret-
lands í næsta mánuði og til Hollands í janúar. Eftir ára-
mót ætla ég svo að slíta barnskónum og flytja til Reykja-
víkur með elskunni minni. Þar áætla ég svo að lenda í
ævintýrum.
Helstu áhugamál?
Ætli þau séu ekki bara tón-
list, bókmenntir, góðir sjón-
varpsþættir og bíómyndir,
líkamsrækt, matur og elda-
mennska, fjölskyldan mín og
vinir. Já, svo finnst mér líka
gaman að syngja.
Hvaða kvikmynd eða sjón-
varpsefni hefur haft mest
áhrif á þig?
Ég er mikill unnandi nátt-
úrulífsmynda og heim-
ildamynda af ýmsu tagi, ann-
ars hef ég aldrei haft sérlega
vandaðan smekk á kvik-
myndum. Ég hef ekki enn
horft á kvikmynd sem hefur
breytt lífi mínu, fyrir utan
Lion King. Reyndar missti
ég trúna á kvikmyndagerð
þegar ég sá Marci X og 2001:
A Space Travesty. Það eru
ákveðin áhrif í sjálfu sér.
Hvers viltu spyrja næsta við-
mælanda?
Vilt þú að samkynhneigðir
öðlist sömu mannréttindi og
annað fólk og fái að gifta sig?
LILJA KRISTÍN JÓNSDÓTTIR
AÐALSKONA VIKUNNAR ER SÖNGKONA HLJÓMSVEITARINNAR
BLOODGROUP SEM SENDIR FRÁ SÉR SÍNA FYRSTU PLÖTU Í
NÆSTU VIKU. MEÐ HENNI Í HLJÓMSVEIT ERU BRÆÐUR
HENNAR TVEIR OG KÆRASTINN, FÆREYINGURINN JANUS
RASMUSSEN.
Í meðallagi Lilja segist vera í miðjunni hvað útlit
varðar og notar auk þess meðalstór föt og skó.
- kemur þér við
Samfylking vill Lands-
virkjunarformann burt
Íslendingar skora
mörk í London
Besta veiðisumarið
gert upp
Það besta í bænum
um helgina
Vertíð jólahlaðborðanna
framundan
Fjögurra milljóna
slysabætur hurfu
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
Heppnir tónleikagestir
vinna nýjan iPod nano
í boði FL Group
VORBLÓT /// EFTIR ÍGOR STRAVINSKÍJ
HÁSKÓLABÍÓ /// Í KVÖLD /// FÖSTUDAGSKVÖLD /// KL. 21
/// eftirpartí með hljómsveitarmeðlimum og dj þorbirni /// miðaverð 1.000 KR.
www.sinfonia.is /// midi.is
fl group er aðalstyrktaraðili
sinfóníuhljómsveitar íslands