Morgunblaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF   ./0 12134 5167 5168     421.3 .17 5167 516/     ! 142113 0291: 536: 5163   #$ % & 92493 82998 5161 5167   '( )* 82409 120:0 5167 5167          !"#$  %&'(')**+   ! " 13643 7:633 0:693 00617 076/7 4/687 0.607 :/4633 4:673 18617 96./ 131633 0674 960: 1/93633 9..633 1610 1::633 767. :9643 04603 10684 .8633 /673 4013633 11603 9673       !     !  " #"  !!  $!  "  %# " """ $  "# """ """ #" """ """  % """ """  !  + ,- !  $ ./+! 0 ,  ''(12)31()* 431'()1562 22616'31)24 ')51(('1)2) 5771'4(13(' 2)147314'( 4'12661(4* '13(6137'1'') ()(17''1674 )24125)15*2 '136615))1*'6 '71)'71*35 4471)2)175) 4127*1*** (715571346 ''1(241*36 ))51*** (12*612(6 (1()*1*** 21(4(1*)3 '7*1764 '*31'66123( '*415**1*** ('21'57 '*86* (78** 2784* 228'* 2(87* 6583( 2)8'( 7358** 678(* '38'( 48)5 '*'8** 28(2 4824 '5**8** 4)*8** '8'' '758** (8(* 7486* 2682* '283* 62*(8** '*86( (783* 2783* 2282( 2(87( 678** 2)86( 7568** 6784( '382* 48(4 '*28(* 28() 4866 '54*8** 4(*8** '8'2 2*68** (8(3 7382* 2683* '285' )38** 62)(8** ''8** 483( # !  + ,- 22 2* 64 2* 62 5 '6 5( )) )' '* ( 3 ' '23 ) 2 2 6 ' 2 25 '' 6  -   +1 '(1''12**3 '(1''12**3 '(1''12**3 '(1''12**3 '(1''12**3 '(1''12**3 '(1''12**3 '(1''12**3 '(1''12**3 '(1''12**3 '(1''12**3 '(1''12**3 '(1''12**3 '(1''12**3 '(1''12**3 '(1''12**3 '(1''12**3 '(1''12**3 '(1''12**3 '(1''12**3 '(1''12**3 '(1''12**3 241'*12**3 221512**3 '(1''12**3 '(1''12**3 21''12**3 #$% & % !% &-+9, 1 ++ 9, 1 %: - 1 #;9, 1 9 - .+  1 1% < + , => ! ?@! 9, 1 ,A .+  1 ;! .+ > !  1 -< B # B 1.1 1 $C<  1 D  1 ' $  (%%! 64( 1 &  @ 1 &-- @E-<EF# % ++ #9, 1 #GC+ ?@! @9, 1  1 H  1 EI $C <  -   1 J   -   1 #! !)  *%  K-C&<  <K1 9!  1 <,   1 Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is STJÓRN Skipta, sem m.a. á Símann, hefur farið þess á leit við íslenska rík- ið að skilyrði um skráningu félagsins í kauphöll OMX á Íslandi verði rýmkuð þannig að Skipti verði skráð á markað á fyrsta ársfjórðungi 2008 vegna þátt- töku Skipta í söluferli á hlut í slóv- enska símanum, Telekom Slovenije, þar sem ekki verði ljóst fyrr en í árs- lok hvort af kaupum Skipta á félaginu verður. Samkvæmt skilmálum kaupsamn- ings við íslenska ríkið frá 5. ágúst 2005 skal bjóða til sölu ekki minna en 30% af þeim hlut sem var andlag kaupsamningsins fyrir árslok 2007. Svar á allra næstu dögum Ekki náðist í fjármálaráðherra vegna málsins en það er nú komið til formlegrar skoðunar hjá ráðuneytinu og þess að vænta að það muni af- greiða erindi stjórnar Skipta nú á allra næstu dögum. „Það er ekkert slíkt í myndinni hjá okkur,“ segir Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta spurður hvort hluti ástæðu þess að Skipti fari fram á seinkun séu óhagstæð skilyrði á markaði sem stendur. „Við erum al- veg óbangnir við að fara á markaðinn og vorum búnir að ráðgera að fara inn á hann í haust. Við lögðum fram óskuldbindandi tilboð í slóvenska fé- lagið 15. október. Ef við hefðum ekki verið valin til þess að halda áfram hefðum við gengið frá skráningu Skipta fyrir áramótin og ef við náum ekki þessum samningum þá förum við strax í þetta á fyrsta ársfjórðungi.“ Þórður Friðjónsson, forstjóri OMX á Íslandi, segir að það hafi verið mat kauphallarinnar að það væri í þágu fjárfesta á markaði að skráningu yrði frestað um tvo til þrjá mánuði. „Það er upplýsingaskortur við þessar að- stæður, í fyrsta lagi vegna þess að ekki liggur fyrir hvort Skipti kaupi umrætt fyrirtæki en eins vegna þess að meðan verið er að vinna í þessu söluferli er hægt að gefa takmarkaðar upplýsingar um fyrirtækið. Þess vegna teljum við það vera betra fyrir markaðinn að hinkra aðeins. Við hefðum ráðlagt hið sama við sams konar aðstæður hjá öðrum fyrirtækj- um.“ Skipti vilja fá að seinka skráningu Morgunblaðið/Golli Ekki hræddir „Við erum ekkert hræddir við markaðinn. Hann gæti auðvit- að verið líflegri en okkur hefur gengið það vel að ég held að það verði næg eftirspurn eftir hlutum í félaginu,“ segir Brynjólfur Bjarnason. ● NORTHERN Travel Holding hefur keypt allt hlutafé í félaginu breska flugfélaginu Astraeus Limited en fyrir kaupin átti Northern Travel 51% af hlutafé félagins. Northern Travel Holding er í eigu Fons (44%), FL Gro- up (34%) og Sunds (22%). Áætluð velta Astraeus í ár er 88 milljónir punda eða um 10, 9 milljarðar ís- lenskra króna en Astraeus sinnir verkefnum í leiguflugi og áætl- anaflugi og gerir út starfsemi sína frá London Gatwick í Bretlandi. Félagið hefur starfað fimm ár og er með verk- efni um allan heim og þar á meðal á Íslandi en í flota þess eru fimm Bo- eing 757-200, tvær Boeing 737-700 og tvær Boeing 737-300. Í tilkynn- ingu kemur fram að kaupin séu hluti af stefnu Northern Travel Holding um að efla dótturfélög sín og styrkja stöðu þeirra. Northern Travel eign- ast Astraeus að fullu ÞETTA HELST ... ● ÚRVALSVÍSITALA OMX á Íslandi lækkaði um 1,5% í gær og stendur nú í tæpum 7.326 stigum en við- skipti með hlutabréf námu 6,9 millj- örðum króna. Mest lækkun varð á gengi bréfa Atlantic Petroleum og Føroya Banka eða 2,9% og bréfa Atorku eða um 2,7%. Gengi bréfa 365 hækkaði um 1,6% og bréfa Icelandair Group um 0,2%.. Krónan veiktist um um það bil 0,6% í gær. Evran kostar nú 88,4 krónur, pundið 123,7 og dalurinn 60,4 krónur. Lækkun og veiking LÆKKANIR urðu á öllum helstu hlutabréfavísitölum heimsins í gær, í Evrópu, Asíu og í Bandaríkjunum. Allar helstu hlutabréfavísitölur í Evr- ópu lækkuðu í gær og sömu sögu var að segja frá Bandaríkjunum en þar lækkaði Dow Jones-vísi- talan um 0,9%, Nasdaq um 1% og S & P 500 um 1,3% og ljóst að áhyggjur manna af kreppunni á lánsfjármörkuðum leikur þar stórt hlutverk. En lækk- unin er þó einnig rakin til áhyggna fjárfesta af því að einkaneysla fari minnkandi vestanhafs en vísitala neysluverðs hækkaði um 0,3% í októ- ber en hækkunin var þó algerlega í takt við spár greinenda og því eins og fjárfestar hafi vonast eftir merkjum um minnkandi verðbólguþrýsting en aukning verðbólgu dregur úr líkum á því að Seðlabanki Bandaríkjanna lækki stýrivexti enn frekar. Þá voru nýjar tölur um aukinn fjölda atvinnu- lausra vestra ekki til þess fallnar að auka mönnum bjartsýni. Markað- irnir niður enn eina ferðina ♦♦♦ EIGENDUR eignarhaldsfélagsins Runna ehf. hafa skipt með sér hlut sínum í Teymi í fimm eignarhalds- félög. Viðskiptin fóru fram á verðinu 6,62 á hlut en um var að ræða tæp- lega 256,8 milljónir hluta sem skiptu um hendur í gær. Markaðsvirði bréfanna sem voru flutt í önnur félög er því nærri 1,7 milljörðum króna. Runnar áttu fyrir viðskiptin um 9,6% hlut í Teymi, sem skipt var á Runna ehf. annars vegar og fjögur óstofnuð félög hins vegar. Fyrir skiptinguna var Runnur í eigu fimm félaga, MogS, Sólstafa ehf., Bygg In- vest, Primus og Saxhóls. Runnur er nú í eigu MogS ehf., sem aftur er í eigu Magnúsar Ár- mann, Þorsteins M. Jónssonar og Kevin G. Stanford. Runnur á eftir viðskiptin 2,4% hlut í Teymi. Eignarhaldsfélagið Runnur 2, sem er í eigu Sólstafa (Þorsteins M. Jóns- sonar) á nú 2,4% í Teymi. Eignar- haldsfélögin Runnur 3, Runnur 4 og Runnur 5 eiga nú hvert um sig 1,6% í Teymi. Eitt þeirra er í eigu Bygg In- vest (Byggingarfélags Gylfa og Gunnars), annað er í eigu Primus ehf. (Hannes Smárason) og það þriðja er í eigu Saxhóls (Nóatúns- fjölskyldan). Viðskipti þessu tengd áttu sér einnig stað með hlutabréf í 365 hf. Runnur ehf. seldi 7,8% eignarhlut í 365 hf. og á nú 2,6%. Viðskiptin fóru fram á genginu 2,49 og námu því röskum 664,5 milljónum króna. Runnur 2, keypti 2,6% af þeim hlut. Runnar fjölga sér JOHN Thain, for- stjóri NYSE Euronext, hefur verið ráðinn for- stjóri Merrill Lynch. Er hann fyrsti fortjórinn í 93 ára sögu fjár- festingabankans sem ekki er inn- anbúðarmaður og hefur ráðningin komið bandaríska markaðnum á óvart. Thain er vænt- anlega ætlað að bæta orðspor og ár- angur Merrill Lynch, sem varð illa úti í undirmálslánakreppunni í Bandaríkjunum, auk þess sem for- verinn missti traust stjórnar. Yfir Merrill Lynch John Thain ÚR VERINU Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is HAMRAFELL í Hafnarfirði keypti í vikunni rúm 19 tonn af steinbít á Fjöl- netinu. Þetta er fyrsta salan sem þar á sér stað, en Fjölnetið er vettvangur þar sem fiskkaupendum gefst kostur á að bjóða í fisk, sem annars á að flytja utan óunninn í gámum. Stein- bíturinn fór á 200 krónur kílóið og var fiskurinn af Gunnbirni ÍS. Þetta er svipað meðalverð og var á fiskmörk- uðum hér heima í byrjun vikunnar. Hamrafell hefur sérhæft sig í vinnslu á ferskum fiski, einkum stein- bít, til útflutnings með flugi. Fyrir- tækið kaupir fiskinn á innlendum mörkuðum. Bjarni Thorarensen Jónsson, framkvæmdastjóri Hamra- fells, segir að það hafi lengi verið bar- áttumál hjá fiskvinnslu án útgerðar að fá að bjóða í þann fisk sem flytja á óunninn úr landi. „Þetta er í fyrsta skipti sem viðskipti fara fram á þess- um vettvangi. Það var búið að reyna einu sinni áður. Þá var boðinn upp fiskur af Suðurey VE, en þá krafðist útgerðin þess að fá að lágmarki mun hærra verð fyrir steinbítinn en mark- aðsverðið hér heima var. Mig minnir að þeir hafi viljað fá 184 krónur fyrir kílóið að lágmarki en þá var verðið hérna heima um 150 krónur. Í vikunni á eftir var verið að selja steinbítinn á 184 til 190 krónur ytra en gera má ráð fyrir að kostnaður við útflutninginn nemi í kringum 40-50 krónum á kíló, þegar allt er talið,“ segir Bjarni. „Við munum halda áfram að bjóða í fisk á Fjölnetinu, standi hann til boða og kröfur um lágmarksverð eru í ein- hverju samræmi við það sem er að gerast í kringum okkur.“ Hann segir að þetta geti verið góð- ur kostur fyrir báða aðila, sérstak- lega í ljósi breyttra aðstæðna í sjávar- útveginum. Nú hafi kvótinn í þorski verið skertur verulega. Það þýði að menn leiti þá í auknum mæli í aðrar tegundir. Á sama tíma hafi 10% álag vegna gámaútflutnings verið afnum- ið, sem þýði að liðkað hafi verið fyrir útflutningi á óunnum fiski. Því sé það tvímælalaust frábær kostur fyrir þá sem standa í vinnslu innanlands að geta keypt fisk, sem annars færi óunninn utan. Hefði stjórnvöldum verið einhver alvara með að koma með raunhæfar mótvægisaðgerðir hefði það verið góður kostur að gera að skyldu að þessi fiskur færi á upp- boð innanlands eða á Fjölnetið. Út- lendingar geti boðið í þennan fisk líka og nú á skömmum tíma hafi 7 eða 9 nýir erlendir aðilar sótt um ábyrgðir á fiskmörkuðunum, sem sé skilyrði fyr- ir því að fá að bjóða í fisk þar. Með því hefði vafalítið mátt koma í veg fyrir hópuppsagnir á fólki, því stór hluti af fiskinum fari óunninn á erlenda markaði. „Bara meðan við erum að tala sam- an núna er búið að tilkynna um 65 tonn af þorski og 213 tonn af ýsu til útflutnings af óunnum fiski. Þær vinnslur, sem standa í þorsk- og ýsu- vinnslu hefðu haft möguleika á að bjóða í þennan afla hefði hann verið settur inn á Fjölnetið. Svo er annað sem hægt er að benda á en segja má að refsitollar séu á vinnslu á ferskum fiski hér á Íslandi. Tollar á fersk flök eru miklu hærri heldur en á óunnum heilum fiski. Það Fyrsta fisksal- an á Fjölnetinu Morgunblaðið/Ómar Fiskvinnsla Steinbíturinn flakaður hjá Hamrafelli. asfiski, -is H góður afli, mikill fiskur. Það er naumast asfiskið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.