Morgunblaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 24
|föstudagur|16. 11. 2007| mbl.is daglegtlíf Það mun kenna margra grasa á fyrsta uppboði Uppboðshússins Arnason & Andonov í Iðnó á sunnudag. » 26 daglegt Jeimmy Andrea Gutiérrez Vill- anueva hefur gaman af að bjóða „íslensku“ fjölskyldunni sinni upp á kólumbískan mat. » 26 matur Þeir Jean-Michel Cazes og André Lurton hafa sett svip sinn á Bordeaux um áratuga- skeið. » 27 vín Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Uppskrift að uppáhalds-helgi hjá mér er nátt-úrlega góð hvíldarhelgiþar sem innifalinn er góð- ur göngutúr og ein leitaræfing með hundinum auk þess sem spennandi uppákoma í menningarlífinu, til dæmis menningardagskrá eða skemmtilegir tónleikar, eitthvað sem tekur ekki alltof langan tíma, væri mjög ákjósanleg viðbót og andlegt helgarfóður fyrir mig,“ segir þjóð- fræðingurinn Ólína Þorvarðardóttir, einn af stofnendum og núverandi for- maður Vestfjarðaakademíunnar, sem ætlar í samstarfi við afmælisnefnd Guðmundar Inga Kristjánssonar að efna til skáldskaparþings undir yf- irskriftinni „Vestfirsku skáldin“ í Holti í Önundarfirði nk. sunnudag. Í minningu vestfirskra skálda Boðið verður upp á umfjöllun í tali og tónum um vestfirsk skáld frá ýms- um tímum. Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur flytur erindi um Guðmund Inga. Andrea Harð- ardóttir fjallar um Jón úr Vör og Jakobínu Sigurðardóttur. Fluttur verður fyrirlestur Jónu Símoníu Bjarnadóttur um Steingerði Guð- mundsdóttur, leikskáldið sem týndist í bókmenntasögunni. Bjargey Ingi- björg Gunnlaugsdóttir syngur lög af vestfirskum uppruna. Ólína kveður stemmur við vestfirskar vísur og þul- ur og fjallar um vestfirsku skáldin. Hrafnhildur Hafberg les upp úr verkum Guðmundar G. Hagalín og Viðar Konráðsson kemur fram í hlut- verki Grasa-Guddu úr leikritinu Skugga-Sveini. Dagskráin er helguð minningu skáldsins Guðmundar Inga Krist- jánssonar frá Kirkjubóli í Bjarnadal í Önundarfirði, sem hefði átt ald- arafmæli á þessu ári. Til sýnis og sölu verður afmælisdagabók með ljóðum skáldsins sem út er að koma, en bók- ina samdi Guðmundur Ingi á árunum 1927-32 og orti ljóð við hvern dag ársins. „Þau eru orðin æði mörg vest- firsku skáldin sem komið hafa við bókmenntasöguna frá upphafi enda er dagskránni m.a. ætlað að minna á þær gersemar sem við Vestfirðingar eigum í íslenskri bókmenntasögu,“ segir Ólína. Göfugur félagsskapur Vestfjarðaakademían var stofnuð fyrir tveimur árum í anda Reykja- víkurakademíunnar. Hún er, að sögn Ólínu, göfugur félagsskapur fólks sem fært er um að sinna rannsóknum og fræðastörfum og hefur metnað til eflingar háskóla- og þekkingarsam- félaginu á Vestfjörðum með því að standa fyrir fyrirlestrum og akadem- ísku starfi. Formaðurinn Ólína gerir sér vonir um að Vestfirðingar taki nú við sér og fjölmenni á menningarhátíðina í Holti. Dagskráin er opin öllum á meðan húsrúm leyfir og kaffiveit- ingar verða í boði. Ólína sagði skilið við borgarlífið ár- ið 2001 þegar hún fluttist vestur á Ísafjörð og segist nú svo gott sem hafa skotið þar rótum. „Ég vissi svo sem áður að hér væri gott að búa því ég bjó fyrir vestan sem unglingur og hér á ég allt mitt tengdafólk.“ Ólína starfar nú sem verkefna- stjóri hjá Stofnun fræðasetra Há- skóla Íslands þar sem hún sinnir stjórnsýsluverkefnum, kennslu og rannsóknum. „Allt annað sem ég tek mér fyrir hendur má segja að falli undir hattinn „áhugamál“ hjá mér. Ég ásamt öðrum áhugamönnum um framsækna frétta- og fjölmiðlun á Vestfjörðum stofnaði til dæmis ný- lega vefmiðilinn www.skutull.is til mótvægis við bæjarmálgagnið Bæj- arins bestu. Við nýja miðilinn vinna menn alfarið í sjálfboðavinnu. Svo er nóg að gera í þjálfun björg- unarhundsins Blíðu, sem ég fékk til mín sem hvolp fyrir rúmum tveimur árum. Blíða er atorkumikil tík af dal- matíukyni sem þarfnast töluverðrar vinnu. Hún þarf í sína daglegu göngutúra og björgunaræfingar fara svo fram tvisvar í viku auk þess sem við „mæðgurnar“ mætum í æfinga- búðir til Reykjavíkur mánaðarlega yfir vetrartímann ásamt öðrum björgunarhundum og eigendum þeirra,“ segir Ólína. En hvernig stóð á því að Ólína fór í hundana? „Ég átti hund í fjórtán ár hér á ár- um áður, en hef ekki staðið í mark- vissri hundaþjálfun fyrr en nú. Auk þess finnst mér meiri tilgangur í því að þjálfa upp hund til björgunar- starfa en til sýningastarfa því ég vil að hundurinn minn geti gert gagn. Ég gekk því í Björgunarfélag Ísa- fjarðar, sem er deild innan Lands- bjargar, þegar ég hóf hundaþjálf- unina. Ég hafði stundað hestamennsku í fjörutíu ár, en lét hrossin frá mér með miklum trega fyrir þremur árum þar sem mér fannst ég ekki hafa nógu góðan tíma til að sinna þeim. Ári síðar var ég komin í hundana.“ Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Ólína og Blíða „Mæðgurnar“ mæta tvisvar í viku á æfingu hjá Björgun- arfélagi Ísafjarðar og fara mánaðarlega í æfingabúðir til Reykjavíkur. „Hvíld, ganga og menning er mitt andlega helgarfóður“ Göngutúrinn: Það er náttúrlega göngutúr um friðland Hornstranda á fallegum júlídegi. Sundlaugin: Vesturbæjarlaugin í Reykjavík. Þangað fer ég alltaf þegar ég kem til Reykjavíkur. Besti tími dagsins: Milli klukkan tíu að kvöldi til tvö að nóttu á fallegu vorkvöldi. Þá langar mann að vaka og þá er maður fullur af orku. Best að borða: Íslenskt lambalæri à la mamma og amma. Uppáhaldsveitingastaður: Ég hef alltaf haldið tryggð við Hornið í Reykjavík. Það er bara kósí staður. Fallegasti staður á landinu: Það er án efa Hornvíkin og annar valkostur væri Álftafjarðarbotn á fallegum degi. Ólína mælir með … Róbótadans er vissulega hugtak sem finna má innan dansins, en öllu sjaldgæfara er að sjá róbóta dansa. Krakkarnir á þessari mynd virða þó hugfanginn fyrir sér hóp smágerðra róbóta stíga dans í Lianyungang, í austurhluta Kína. Róbótarnir, sem eru um 26 cm háir, eru verk starfshóps við Vísinda- og tækniháskóla Kína. Reuters Vélrænn taktur í danssporum Skáldskaparþingið „Vestfirsku skáldin“ hefst kl. 16.00 á sunnu- daginn í Holti í Önundarfirði. fjórelleftur L † 44 ára gamall Loks er ég orðinn fjórelleftur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.