Morgunblaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 44
44 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Kvenfélagið Heimaey heldur árlegan jólabasar sinn í Kringlunni Basarinn hefst kl. 10 og er aðeins þennan eina dag, laugardaginn 17. nóvember. Félagskonur muna að skila kökum fyrir hádegi Kalvin & Hobbes HVERT ERTU AÐ FARA? NIÐUR AÐ STÖÐUVATNINU HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA VIÐ FÖTUNA? TÆMA STÖÐUVATNIÐ Kalvin & Hobbes VEISTU HVAÐ MÉR FINNST BEST VIÐ SUMARDAGA... JAFNVEL EF SÚ ATHÖFN ER AÐGERÐARLEYSI ÉG ER ALVEG SAMMÁLA ÞÉR ... ÞEIR ERU SVO GÓÐIR TIL ATHAFNA! Kalvin & Hobbes ÞETTA ER GÓÐUR STAÐUR TIL AÐ VEIÐA RAUÐMAGA HVAÐ EIGUM VIÐ AÐ GERA EF VIÐ VEIÐUM EINN SLÍKAN? VIÐ ÞURFUM EKKI AÐ HAFA NEINAR ÁHYGGJUR AF ÞVÍ ÞANNIG AÐ ÞÚ VEIST EKKI HELDUR HVERNIG RAUÐMAGI LÍTUR ÚT Litli Svalur © DUPUIS KRAKKAR MÍNIR, ÞAÐ ER KOMINN NÝR NEMANDI Í BEKKINN. VERIÐ GÓÐ VIÐ HANN ÞAÐ VILL SVO HEPPI...Ó...ÓHEPPILEGA TIL AÐ AUMINGJA STRÁKURINN HEFUR ALDREI HITT FÖÐUR SINN, EN HAFIÐ ENGAR ÁHYGGJUR, HANN ER FYRIR- MYNDAR NEMANDI OG ÞIÐ MUNUÐ DÁST AÐ HONUM. SESTU ÞORLÁKUR HÆ, AUMINGJAR ÉG SKAL PASSA UPP Á HANN HANN ER UNDIR ÞÍNUM VERNDARVÆNG KALLI HEYRIÐ MIG NÚ! ENGAN KJAFTAGANG HÉR! EF ÉG FINN SÖKUDÓLGINN ÞÁ SKAL HANN... EKKI LEITA LENGRA HERRA! ÞAÐ VAR HANN OG HANN OG HANN OG HANN OG HANN OG HANN OG SÉRSTAK- LEGA HANN ÉG SKIL! STÆRÐFRÆÐIPRÓF STRAX! SKRIFIÐ NIÐUR SPURNINGARNAR! 6x7... 3x11... 8x9... 6x4... 9x3... VÁ HVAÐ ÞETTA ER LÉTT ÉG GENG UM OG SÆKI PRÓFIN EFTIR TVÆR MÍNÚTUR TVEIMUR MÍNÚTUM SÍÐAR... ÖLL SVÖRIN ERU EINS! EINHVERJIR HAFA SVINDLAÐ! HVERJIR VORU ÞAÐ? HANN HANN HANN HANN HANN KENNARI! HANN HANN HANN NÝKOMINN OG STRAX FARINN AÐ SVINDLA! ÞÚ SITUR EFTIR Í 4 TÍMA dagbók|velvakandi Um áfengissölu í matvöruverslunum ÉG ER svo undrandi og hneyksluð á heilbrigðisráðherra. Í gærkvöld var hann með fjölda ungmenna að styðja baráttu gegn vímuefnum, sem er gott og blessað. Á sama tíma er hann fylgjandi áfengissölu í matvöruversl- unum, sem við vitum öll að mun bara stuðla að aukinni drykkju ungmenn- anna. Hann hefði átt að hlusta á Ara Matthíasson á RÚV fyrir viku. Hann veit hvað hann er að segja og hefur kynnt sér þau vandamál sem skap- ast við sölu áfengis í matvöru- verslunum, og er greinilega annt um að vernda æskuna okkar sem er jú okkar hlutverk. Aðgengi að vímu hér er allt of gott að mínu mati. Það er þó ekki eingöngu unga fólkið sem á í vandræðum. Í mínum vinahópi, 55 ára og þar í kring, hafa sorglega margir þróað með sér áfengissýki síðustu árin. Sérstaklega eftir að bjórsalan var gefin frjáls. Það er svo auðvelt að opna bjórdósirnar og ískápurinn fullur af bjór, áður var bara blandað í glas þegar farið var á ball. En afleiðingarnar af þessu eru þær að barnabörnin hætta að koma í heimsókn til ömmu sinnar og afa, og foreldrar hætta að treysta þeim fyr- ir börnunum sínum. Þannig skapast erfiðleikar, leiðandi og ósamkomu- lag verður á milli foreldra og barna. Mörg slík dæmi eru í kringum mig. Að lokum skora ég á þingmenn að fella nýja frumvarpið um áfengisölu í matvöruverslunum. Það er ekkert smart við það að taka bjórkippu með kjötfarsinu á miðvikudögum. Ég skora á þá að samþykja þetta frum- varp ekki. Amma. Er nauðsynlegt að allir skólar byrji á sama tíma á morgnana? ALVEG furðulegt. Ég hef aldrei skilið það að verið er að vekja grunnskólakrakkana fyrir allar aldir á morgnana. Flestir skólar byrja nefnilega á sama tímapunkti og fæstar stofnanir og fyrirtæki opna á þeim tíma. Því hljóta foreldrar að vera heima. Því ekki að leyfa börn- unum að hvíla sig lengur á morgn- ana í skammdeginu? Dettur engum skólayfirvöldum í hug í allri þessari umræðu um umferðarþunga að skól- arnir ættu að byrja á mismunandi tíma? Ég veit um einn skóla sem hef- ur haft vit á því að byrja 8.30 í stað- inn fyrir 8.10. Ég veit það bara að ég þarf að halda fyrir nefið (vegna mengunar) ef ég fæ mér göngutúr á morgnana með barninu mínu og reyni að fara krókaleið til að verða fyrir minni mengun. Gott væri að heyra í fleirum í sambandi við þetta mál, t.d. borgayfirvöldum sem hafa umsjón með skólunum. Móðir. Mási er týndur HANN heitir Mási, er svartur norskur skógar- köttur, stór, 12 ára gamall. Vana- fastur. Hann fór út morguninn 13.11. kl. 7 frá heimili sínu í Æsuborgum 14. Mási skilaði sér ekki heim í þetta skiptið og ef ein- hver getur gefið minnstu upplýs- ingar um ferðir Mása er hann beðin að hringja í síma: 586-1047, 822-0283 eða 822-0284. Mási er með merkta hálsól og bjöllu. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is ÞESSI fallega mynd var tekin við Skothúsveg fyrir skömmu. Þar er margt að skoða og hægt að sjá margar af tignarlegustu byggingum Reykjavíkur- borgar, að ekki sé talað um Tjörnina sjálfa. Morgunblaðið/Kristinn Á göngu við Skothúsveg megund, -ar KV möguleiki Það er vissulega megund FRÉTTIR ALÞJÓÐANEFND Sambands ungra sjálfstæðismanna efnir til há- degisfundar um úrslit og áhrif dönsku kosninganna s.l. þriðjudag. Kosningarnar voru spennandi og úrslit réðust á lokasprettinum. Þeir Auðunn Arnórsson, blaðamaður á Fréttablaðinu og Kristján Jónsson, blaðamaður á erlendum fréttum á Morgunblaðinu, fara yfir úrslit kosn- inganna og greina helstu strauma og stefnur í dönskum stjórnmálum um þessar mundir. Fundurinn verður í dag, föstudag, og hefst klukkan 12.00 á efri hæðinni á Kaffi Sólon. Fundarstjóri verður Fanney Birna Jónsdóttir stjórnar- maður í Heimdalli. Rætt um dönsku kosningarnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.