Morgunblaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR spilkoma, u, -ur KV hankalaus bolli Réttu mér spilkomuna væni Aðalfundur Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar 2007 verður haldinn mánudaginn 26. nóvember í Stjörnuheimilinu við Ásgarð (fyrir aftan sundlaugina og íþróttahúsið) í Garðabæ og hefst stundvíslega kl. 20. Dagskrá aðalfundar samkvæmt lögum GKG: 1. Fundarstjóri og fundarritari kosnir. 2. Fundargerð síðasta aðalfundar lesin. 3. Skýrsla stjórnar um störf á liðnu starfsári. 4. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis. 5. Tillaga um árgjöld og afgreiðsla fjárhagsáætlunar næsta árs. 6. Lagabreytingar. 7. Kosning formanns, stjórnar og varamanna í stjórn. 8. Kosning tveggja endurskoðenda. 9. Önnur mál. Atkvæðisrétt hafa fullgildir félagar. Fullgildir félagar teljast skuldlausir félagar 18 ára og eldri. Félagsmenn GKG eru hvattir til að fjölmenna á fundinn. Stjórn GKG P IP A R • S ÍA Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á fimmtugs- aldri í 2½ árs fangelsi fyrir kynferð- isbrot gegn sex ungum stúlkum, sem voru á aldrinum 4-13 ára þegar brotin voru framin. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða öllum stúlkunum nema einni bætur, sam- tals 2,9 milljónir króna, auk 2,3 milljóna króna í málskostnað. Maðurinn var ákærður í júní í sumar fyrir kynferðisbrot gegn fjór- um stúlkum, sem allar eru fæddar árið 1992. Með bréfi 14. mars 2006 hafði Barnavernd Reykjavíkur farið þess á leit við lögreglu að fram færi lögreglurannsókn vegna gruns um að ein stúlkan hefði orðið fyrir kyn- ferðisbroti. Var vísað til þess að móðir stúlkunnar hefði komið til við- tals hjá Barnavernd Reykjavíkur 21. febrúar 2006 vegna dóttur sinn- ar og tilkynnt að stúlkan hefði ef til vill orðið fyrir ósæmilegu athæfi af hálfu manns sem væri frændi vin- konu hennar. Eftir ákæruna í júní var í sept- ember gefin út önnur ákæra þar sem manninum var gefið að sök að hafa á árunum 1988-1994 brotið margsinnis gegn stúlku sem fædd er 1984, og einnig annarri stúlku, sem fædd er 1987, árið 1993 eða 1994. Þessar stúlkur voru systkina- börn mannsins. Við rannsókn málsins var sími ákærða hleraður að fengnum dóms- úrskurði og kom þá í ljós að ákærði átti í símasamskiptum við fjórar stúlknanna. Maðurinn neitaði að mestu sök en dómurinn komst að þeirri niður- stöðu að brot hans væru alvarleg. Var hann sakfelldur fyrir misjafn- lega gróf kynferðisbrot gagnvart sex ungum stúlkum. Séu brotin trúnaðarbrot og beinist að stúlkum sem honum var beint og óbeint treyst fyrir. Þá hafi sumar stúlk- urnar verið á viðkvæmu þroska- skeiði er brotin áttu sér stað. Sé háttsemi ákærða sérlega ámælis- verð þar sem tvær stúlknanna voru einungis börn þegar atvikin áttu sér stað. Ákærði er fæddur í ágúst 1966 og hafði ekki áður sætt refsingu svo kunnugt væri. Dómurinn var fjölskipaður, hér- aðsdómurunum Símoni Sigvaldasyni dómsformanni, Sigrúnu Guðmunds- dóttur og Sigurði H. Stefánssyni. Verjandi ákærða var Guðrún Sesselja Arnardóttir hdl. og sækj- andi Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari hjá embætti ríkissak- sóknara. Dæmdur fyrir kynferð- isbrot gegn sex stúlkum Á FUNDI borgarráðs í gær óskaði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson eftir að tillaga um niðurstöðu í málefnum REI og GGE, sem lögð hefði verið fyrir stýrihóp um málefni Orkuveit- unnar, yrði lögð fram á aukafundi borgarráðs í dag. Vilhjálmur greindi frá því að Mar- grét Sverrisdóttir, forseti borgar- stjórnar, hefði skýrt frá „sáttatil- lögu“ í málinu á borgarráðsfundinum. Í framhaldi af því óskaði hann eftir því að umrædd tillaga, frá fulltrúum meirihlutans í stýrihópnum, yrði kynnt á aukafundi borgarráðs í dag, sem haldinn verð- ur klukkan 10. Ekki verður hinsveg- ar af því að tillagan verði lögð fram í dag. Svandís Svavarsdóttir, formaður stýrihópsins, segir aðspurð að gögn stýrihópsins séu „trúnaðargögn sem stýrihópur birtir ekki, enda varði þau oft viðkvæmar upplýsingar, per- sónur og athafnir þeirra“, og hún muni bóka það á aukafundinum í dag. Stýrihópurinn muni svo leggja fram skýrslu um „lærdóma málsins í lok mánaðarins“, en ekki hafi verið tekin afstaða til þess að hve miklu leyti trúnaðargögn verði birt. Spurð um „sáttatillöguna“ kann- aðist Svandís ekki við það orðalag. „Hún [Margrét] nefndi plagg en not- aði ekki þetta orð held ég. [Ég] var ekki á fundinum sjálf undir þessum lið.“ Aðspurð hvort „sáttatillaga“ fæl- ist í „plagginu“ sagðist Svandís ekki vilja kalla þetta sáttatillögu. „Þetta var plagg með punktum sem var lagt fram sem vinnuskjal inni á fundi. Það koma haugar af allskonar gögn- um fram á þessum fundum.“ Vilhjálmur staðfesti hinsvegar að hann hefði séð „sáttatillöguna“. En hann væri bundinn trúnaði og gæti þess vegna ekki skýrt frá henni. Hanna Birna Kristjánsdóttir stað- festir þau orð Margrétar að tillaga hafi verið lögð fram á fundi stýri- hóps, en óskað hafi verið eftir trún- aði um efni hennar og þess vegna vilji hún ekki tjá sig um málið. Gögn stýri- hóps ekki birt SVEITARSTJÓRN Flóahrepps samþykkti samhljóða á fundi sínum 14. nóvember að auglýsa tillögu að aðalskipulagi fyrrverandi Vill- ingaholtshrepps þar sem gert er ráð fyrir Urriðafossvirkjun. Sam- þykktin er byggð á þeim forsendum að staðaráhætta við Þjórsá vegna hugsanlegra flóða stenst viðmið sem gefin eru í reglugerð um hættumat vegna ofanflóða eins og tilskilið var í mati á umhverfisáhrif- um og úrskurði umhverfisráðherra vegna virkjananna og því að sam- komulag hefur náðst við Lands- virkjun um mótvægisaðgerðir. Einnig var samþykkt að setja þá skilmála að hönnun virkjunarinnar miðist við að yfirborð Heiðarlóns verði að hámarki 50 metrar yfir sjávarmáli eins og kynnt var í áhættumati, að lón verði einungis í árfarvegi og að farið verði að skil- yrðum umhverfisráðuneytisins vegna mats á virkjuninni. | 12 Flóahreppur fellst á virkjun GUNNAR I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, kynnti sértækar aðgerðir í starfsmannamálum í gær. Aðgerðun- um er ætlað að laða fólk að lausum störfum. Kostnaðurinn nemur 150 milljónum, sem bætast við þær 30 milljónir sem þegar hafa verið lagðar til leikskólamála í haust. Hækkun ein- greiðslna á mánuði um 6-16 þúsund krónur kemur til framkvæmda 1. des- ember og tekur til starfsfólks leik- og grunnskólanna. Innra starf leikskóla verður eflt með nýjum sjóðum, hliðstæðum þeim sem þegar eru til staðar í grunnskól- unum, en framlag til hvers skóla verð- ur allt að einni milljón, eftir stærð. Þá verður mati á starfsreynslu breytt, sérstök hlunnindi aukin og starfs- mönnum veittur forgangur fyrir börn sín inn á leikskólana. Með þessu verða lægstu laun hjá bænum um 152 þús- und krónur og hæstu laun ófaglærðs starfsfólks um 180 þúsund krónur. Laða fólk á leikskólana MARGIR af fremstu knöpum landsins munu sýna hesta sína í Vetrargarðinum í Smáralind í dag milli kl. 16 og 19. Tilefnið er útgáfa 30 ára afmælisrits Eiðfaxa. Meðal hestamanna sem fram koma á hátíðinni er Valdimar Bergstað, efnilegasti knapinn árið 2007. Jafnframt verður sýnikennsla í grunnatriðum reiðmennskunnar og keppni í hægtölti. Einnig munu félagasamtök hesta- manna kynna starfsemi sína. Morgunblaðið/Golli Hestar og menn leika listir í Smáralind Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is DANSKIR fjölmiðlar gera því skóna að FL Group kunni hugsanlega að selja liðlega fjórðungshlut sinn í Ro- yal Unibrew vegna þess að félagið hafi tapað gríðarlega miklu á skráð- um eignum sínum á undanförnum vikum; í frétt á viðskiptavef Berl- ingske Tidende er fullyrt að FL Gro- up hafi tapað meira en tveimur millj- örðum danskra króna eða á þriðja tug milljarða íslenskra króna eftir þriðja fjórðung, þ.e. eftir 1. október. Í frétt Berlingske Tidende segir að „fjár- festingasérfræðingur í stórum dönsk- um banka“ hafi reiknað út að FL Gro- up hafi tapað 25 milljörðum íslenskra króna á eignum sínum til viðbótar við þá liðlega 27 milljarða sem félagið tapaði á þriðja fjórðungi. Þannig hafi verðmæti eignarhluts FL Group í Glitni minnkað um 8% frá 1. október, verðmæti Commerzbank hafi minnk- að um 5% og Finnair um 8%: Auk þess hafi FL Group tapað um 15% á eign sinni í „íslensku tryggingafélagi“ frá 1. október en þar mun vafalaust vera átt við Tryggingamiðstöðina. Halldór Kristmannsson, fram- kvæmdastjóri samskiptasviðs FL Group, tekur fram að hann hafi ekki séð umrædda grein en segir ljóst að tölurnar sem þar séu nefndar séu ekki réttar. Hann segir það þó ekkert launungarmál að miklar lækkanir hafi almennt orðið á skráðum félögum og þá einnig hjá félögum sem FL Gro- up eigi í. Hann minnir á að yfir 90% af eignum FL Group séu í skráðum eignum, að TM meðtöldu, og því sé auðvelt fyrir markaðinn að fylgjast með breytingum á verðmæti eigna- safns FL Group. FL sagt hafa tapað á þriðja tug milljarða Morgunblaðið/Sverrir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.