Morgunblaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 35
Þegar þú svo kynntist honum Kobba þínum blómstraðirðu sko aldeilis og þú hafðir fundið hamingj- una og ástina í lífi þínu. Og þegar þið fluttuð út á Svalbarðseyri naustu þín í botn á þessum litla og notalega stað, kláraðir námið þitt og fórst að vinna á leikskólanum á Svalbarðseyri. Það var alltaf svo gott að vera í kringum þig, kátínan og hláturinn smitaði auðveldlega út frá sér, og hlýjuna frá þér og þitt fallega hjarta var alltaf gott að finna. Já það eru sko ótal minningar sem koma upp í hugann á þessum erfiðu dögum og það er gott að hugsa til þín og hversu yndisleg manneskja þú varst og ég sakna þín svo mikið og langar að geta talað við þig og hlegið með þér. Elsku Herdís mín, ég veit þér líð- ur vel núna og ég hugga mig við það og veit að þú verður alltaf með mér, hvíldu í friði dúllan mín. Elsku Kobbi, ég bið góðan guð að styrkja þig í þinni miklu sorg, þú hefur misst svo mikið. Elsku amma, afi og öll fjölskyldan, guð veri með okkur öllum. Þín frænka Harpa. Elsku Herdís mín. Ég trúi því varla að þú sért farin frá okkur. Ég á eftir að sakna þín svo mikið. Við áttum svo margar góðar stundir saman, eins og þegar við fórum, ég, þú og Kobbi, í survivor- leikinn á afmælisdaginn minn einu sinni. Þá fórum við á sjó og kveikt- um lítinn varðeld í fjörunni, það var alveg rosalega gaman. Það var alltaf gott að vera hjá þér og Kobba og það var oft mikið hlegið. Minningarnar um þig eru ógleym- anlegar og ég gæti haldið endalaust áfram. Ég veit þér líður vel núna hjá guði og englunum og þú verður allt- af í hjarta mínu. Þín litla frænka Freydís Ósk. Elsku Herdís. Við erum ekki enþá búnar að gera okkur grein fyrir því að þú sért ekki lengur hjá okkur. En lífið er óút- reiknanlegt og náði þarna að koma aftan að okkur með þeim hræðilegu fréttum sem við fengum morguninn eftir síðasta klúbbinn okkar. Þann klúbb og alla hina munum við varð- veita í minningum okkar ásamt öll- um þeim góðu stundum sem við átt- um saman. Þú varst yndisleg manneskja, með hjarta úr gulli og ofar öllu góður vinur. Í vinkvenn- ahópinn hefur myndast skarð sem aldrei verður fyllt. Kobbi er svo sannarlega heppinn að hafa fengið þig inn í líf sitt og saman voruð þið sem eitt. Þið voruð svo falleg saman og lýstuð upp allt sem í kringum ykkur var. Elsku Herdís, við erum ótrúlega þakklátar fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Hvíl í friði yndislegust. Það er mikið á þig lagt elsku Kobbi, þú veist að við erum til stað- ar fyrir þig eins og þú hefur svo oft verið fyrir okkur. Elsku Kobbi, foreldrar ykkar, systkin, frænkur, frændur, vinir, samstarfsfólk og börn á leikskólan- um Álfaborg, og allir hinir sem eiga um sárt að binda við sviplegt fráfall Herdísar, megi guð vera með ykkur og styrkja ykkur í þessari miklu sorg. AAE-klúbburinn (aðfluttar, að- þrengdar eiginkonur), Brynja, Guðrún, Svanbjört og Telma. Hún Herdís okkar er dáin. Það er ótrúlegt hvað lífið getur tekið mikl- um breytingum á svipstundu. Her- dís útskrifaðist sem leikskólakenn- ari 10. júní 2006 og þá um sumarið kom hún í vinnu til okkar hér í Álfa- borg. Herdís var góður starfsmaður og yndisleg kona. Það fór ekki mikið fyrir henni en hún vann sína vinnu vel og hljóðlega. Herdís sýndi börn- unum mikla hlýju og hafði þann eig- inleika að halda uppi aga og festu án fyrirhafnar. Það verður erfitt að fylla upp í skarðið sem nú hefur myndast í samheldinn starfsmanna- hóp. Starfsfólk og börn munu búa að því að hafa kynnst Herdísi, muna eftir skemmtilega hlátrinum, fallega ljósa hárinu og þeirri ró sem alltaf var í kringum hana. Það hefur sjálf- sagt ekki alltaf verið auðvelt fyrir hana, bæjarskvísuna eins og hún kallaði sig stundum, að koma inn í þann fasta kjarna sem fyrir var í Álfaborg. Henni tókst það vel og hún var orðin ein af okkur. Oftar og oftar sást til hennar ganga um í rauðum ullarsokkum við svarta pils- ið. Síðasta kvöldið okkar saman munum við allar geyma í huga okk- ar. Það var starfsmannafundur í leikskólanum og Herdís kom með súpu handa okkur. Við sátum við kertaljós, umvafðar teppum og spjölluðum um starfið framundan. Við upplifðum allar þessa stund sem sérstaka, fundum fyrir gleði, hlýju og þeirri miklu einlægni sem ríkir í starfsmannahópnum. Sérstaklega er okkur í huga hve Herdís var ánægð og lífsglöð þetta kvöld. Lífið heldur áfram og starfsemin í Álfaborg heldur áfram en án Her- dísar, hennar verður oft minnst og sárt saknað. Við biðjum góðan guð að styrkja Jakob, foreldra Herdísar og aðra aðstendendur hennar. Börn og starfsfólk leikskólanum Álfaborg. Herdís var neminn minn við leik- skólabraut Háskólans á Akureyri vorið 2006. Síðustu önnina fyrir brautskráningu kenndi ég tvö nám- skeið. Annað þeirra er vísinda- smiðja þar sem nemarnir vinna meira og minna saman að sjálfstæð- um verkum og ég fæ tíma til að ganga á milli og spjalla um verkin þeirra. Þar kynnist ég sennilega því fólki sem hefur valið sér þá leið í líf- inu að vinna með börnum, einna best. Þar kynntist ég Herdísi. Dag- inn fyrir brautskráningu hitti ég hana í Hafnarstræti, hún var á leið- inni að útbúa útskriftarveislu, veislu þar sem hún ætlaði minnst að smakka á kræsingunum, þær voru fyrir gestina. Hún geislaði af gleði og tilhlökkun. Þetta er líka ein fárra brautskráninga sem ég hef sjálf ver- ið viðstödd og leikskólakennara- hjartað mitt sló aukaslag af stolti þegar ég leit yfir hópinn. Síðustu önnina spyr ég nemana oft hvert þeir ætla sér eftir útskrift, Herdís ætlaði á Svalbarðseyri, í leikskólann Álfaborg. Af og til síðasta vetur rakst ég á hana á förnum vegi, spurði hvernig gengi. Í sumar fékk ég bréf frá leikskólanum hennar, þær ætluðu að taka á móti norræn- um gestum í tengslum við stóra ráð- stefnu á Akureyri. Spurðu hvort ég gæti ekki verið þeim innan handar. Mér var það sönn ánægja, sérstak- lega vegna þess að ég hafði aldrei komið í leikskólann en heilmikið heyrt um hann talað. Það var glaður hópur leikskólakennara og barna sem tók á móti okkur. Sýndi okkur leikskólann. Við Herdís ræddum m.a. um kubbana, hún vonaði að með nýrri staðsetningu nýttust þeir börnunum betur, við ræddum um starfið og starfsgleðina. Á eftir fylgdi stafsfólkið og börnin í Álfa- borg okkur upp í skóginn sinn, þar var okkur gefið kaffi, kleinur og flatkökur að íslenskum sveitasið. Við vorum beðin um að skilja mark okkar eftir í skóginum, skapa lista- verk í og úr náttúrunni, áður en við skoðuðum þau sem væru á Safna- safninu. Þetta var ógleymanlegur dagur, sem ég á í minningunni og í hvert sinn sem ég hugsa til hans mun ég hugsa til stolts leikskóla- kennara, hugsa til Herdísar. Þessi dagur mun vera hennar mark í minningu mína. Síðasta skiptið sem ég hitti Herdísi vorum við báðar á hraðferð í Bónus, skiptumst á kveðj- um. Ástvinum hennar votta ég mína dýpstu samúð, þeirra er mestur missir. Kristín Dýrfjörð. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 35 samt var velgengnin nánast handan við hornið. Á honum sannaðist að sitthvað er gæfa og gjörvileiki. Þótt vinum hans væri ljóst að há- timbruð bisnessáformin næðu ekki fram að ganga var eiginlega sér- kennilegt að enginn bankinn skyldi taka hann upp á arma sína. En bankamenn eru auðvitað ekki full- komnari en aðrir menn. Stundum hringdi hann í mig mjög upprifinn af góðum hugmyndum, sem líkleg- ar voru til fjárafla, og ég spurði, eins og jafnan við slíkar aðstæður: „Erum við á leiðinni í karabíska?“ Þeirri för er nú slegið á frest, ótímabundið. Oft undraðist ég elju- semina sem í honum bjó, þrátt fyr- ir alvarleg veikindi, sem sífellt gerðu honum lífið erfiðara eftir því sem á leið. Einhverjar skemmtilegustu stundir okkar Árna hin síðari ár voru er hann heimsótti okkur Bergþóru og við borðuðum saman lambahrygg eða -læri að sígildri ís- lenskri fyrirmynd og fengum okkur smávegis rauðvín með. Þá var hann í essinu sínu, glaður og ánægður og lagði iðulega heiminn að fótum sér, með glans. Margra slíkra stunda minnist ég nú að leiðarlokum og sakna þess að ekki verða þær fleiri í bili. Dætra hans, Lúcindu og Ey- rúnu, og sonar hans ungs, Eyþórs, bið ég góðan guð um að gæta. Gústaf Níelsson. Ég kveð þig kæri vinur og þakka þér samfylgdina. Við kynntumst sem ungir menn sem áttum þá hugsjón að berjast fyrir betra mannlífi og standa vörð um lýð- ræðið gegn þeirri böðulshönd sem þá ógnaði því. Við fylgdumst að í starfi fyrir unga sjálfstæðismenn í Heimdalli og Sambandi ungra sjálfstæðismanna. Árni Bergur var ákveðinn baráttumaður og fylginn sér. Hann taldi aldrei eftir sér að vinna það sem þurfti að vinna og lagði fram mikið sjálfboðaliðastarf í þágu hugsjónarinnar fyndist hon- um þess þörf. Árni Bergur kom víða við í starfi Sjálfstæðisflokksins og átti mikinn heiður á sínum tíma fyrir að byggja upp starf í hverf- afélagi sjálfstæðismanna í Voga- hverfi. Nokkru eftir að við Árni kynnt- umst varð honum tíðförult heim til mín og erindið var alltaf það sama. Hann krafðist þess að ég gæfi kost á mér í stjórn Neytendasamtak- anna. Honum varð ekki þokað og svo fór að hann gat talið mig á að gera það en það var ekki fyrr en hann hafði sýnt mér fram á það með starfi að málefnum neytenda hvað hér var um mikilvægt mál að ræða sem krefðist krafta þeirra sem í alvöru berjast fyrir frjálsri samkeppni og mannúðlegri mark- aðshyggju. Við fylgdumst einnig að nokkurt skeið innan Neytendasam- takanna og enn sem fyrr var Árni ódrepandi hugsjónamaður sem bar fram fjölmargar tillögur og var ráðagóður forustumaður Neyt- endasamtakanna. Það var gott að vinna með Árna. Hann var jafnan ráðagóður og heiðarlegur í félagsstarfi. Það leyndi sér ekki þegar honum mis- líkaði en hann hafði jafnan þann hátt á að lenti hann í andstöðu við þann sem var í forustu hverju sinni þá kom hann sjónarmiðum sínum á framfæri beint við forustumanninn en stóð að öðru leyti með honum jafnvel þótt hann væri ekki sáttur við þá ákvörðun sem tekin var. Á miðjum aldri í blóma lífsins hallaði undan fæti og þá reyndist Árni því miður sjálfum sér verstur. Alla tíð var hann ráðagóður og miðlaði öðrum ríkulega. Sjálfum sér vildi hann hins vegar ekki hjálpa eða þiggja ráð og aðstoð þeirra sem báru hag hans mest fyrir brjósti. Það var sorglegt að við vinir þínir sem gengum með þér þá vegferð sem ég þekki skyld- um ekki geta orðið þér að meira liði en raun varð og þú skyldir svo oft hafna ráðum okkar og góðum óskum. Ég kveð þig kæri vinur og þakka þér vegferðina. Megi góður Guð geyma þig. Jón Magnússon, alþingismaður. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓHANN EYMUNDSSON, Stigahlíð 36, andaðist mánudaginn 12. nóvember. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 20. nóvember kl. 13.00. Þórhalla Karlsdóttir Sigríður Austmann, Þórarinn Magnússon, Helga Austmann, Guðlaugur Heiðar Sigurgeirsson, Eymundur Austmann, Emilía Sveinbjörnsdóttir, Viðar Austmann, Elfa Dís Austmann, Páll Blöndal, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur sonur okkar, bróðir, frændi og mágur, GUÐJÓN STEFÁN EGILSSON, Hlíðargötu 16a, Neskaupstað, lést sunnudaginn 11. nóvember. Útför fer fram þriðjudaginn 20. nóvember frá Norðfjarðarkirkju kl. 14.00. Bænastund verður í Safnaðarheimili Hafnarfjarðar á þriðjudaginn kl. 20.30. Egill Birkir Stefánsson, Sveinbjörg Guðjónsdóttir, Sigurður Freyr Egilsson, Salvacion Suarez, Sævar Magnús Egilsson, Rósa Dóra Sigurðardóttir, Ævar Unnsteinn Egilsson, Hrafnhildur Kristbjörnsdóttir, Kristófer Snær Egilsson, Ari Fannar Egilsson. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHEIÐUR JENSÍNA BJARMAN, Naustahlein 26, Garðabæ, lést á St Jósefsspítala í Hafnarfirði mánudaginn 12. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Marteinn Friðriksson Sveinn Bjarman Marteinsson, Eva Bjarman, Friðrik Marteinsson, Ólöf Bragadóttir, Guðbjörg Marteinsdóttir, Helgi Baldursson, Sigurður Marteinsson, Guðrún Árnadóttir, Ragnar Marteinsson, Sigríður Anna Guðjónsdóttir, Sigríður Jóna Marteinsdóttir, Timo Kallio, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, bróðir okkar, frændi og góður vinur, GUÐMUNDUR AÐALSTEINN SVEINSSON, búsettur í Osló, Noregi, áður til heimilis í Þórufelli 16, Reykjavík, lést mánudaginn 12. nóvember á sjúkrahúsi í Osló. Hann verður jarðsunginn frá Voksenkirkju í Osló mánudaginn 19. nóvember kl. 13.00. Sidsel Viland, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Knut, Karl Bjarni Guðmundsson, Aðalheiður, Mathilde Grönli, Frits, Stian Grönli, Aileen, barnabörn og syskini. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR INGIBERGUR BERGSSON frá Þingeyri, Suðurhólum 35d, Reykjavík, lést á Landspítalanum Fossvogi miðvikudaginn 14. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Þorbjörg Ólafsdóttir, Bjarni G. Sigurðsson, Hulda Jensdóttir, Guðrún Ó. Sigurðardóttir, Halldór Karl Hermannsson, Magnfríður S. Sigurðardóttir, Ólafur Ólafsson, Guðni B. Sigurðsson, Sigurður Kr. Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.