Morgunblaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 23
AUSTURLAND
PÓSTSENDUM
www.islandia.is/~heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Maður Lifandi Hæðarsmára 6,
Lyfja, heilsuvörudeild, Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16 og Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Krónan Mosfellsbæ,
Nóatún Hafnarfirði
Avena Sativa
Fyrir góðan svefn
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
Egilsstaðir | Landslag til sölu eða
gefins er nafn nýopnaðrar sýningar
Írisar Lindar Sævarsdóttur í Slát-
urhúsinu á Egilsstöðum. Þar má
finna gríðarstórt málverk af lands-
lagi sem farið er undir Hálslón.
Verkið er sett saman úr 362 römm-
um og verður gefið börnum fæddum
á tímabilinu 28. september 2006 til
24. september 2007, eða á fyllingar-
tíma Hálslóns. Verkið tileinkar Íris
Lind Stefáni Jónssyni Stórval afa-
bróður sínum og segir að börn hafi
verið honum einstaklega kær. „Þessi
sýning var hluti af lokaverkefni mínu
við Winchester School of Art í Eng-
landi, sem ég lauk í september sl.
Daginn sem ég flaug út til náms var
byrjað að láta renna í Hálslón. Mig
langaði að gera verk handa þeim
börnum sem kæmu aldrei til með að
sjá þetta land sem fer undir vatn, né
hafa neitt um það að segja hvernig
því er ráðstafað,“ segir Íris Lind.
Talsvert af römmunum er þegar
pantað og segir hún fólk víða af land-
inu hafa sýnt áhuga.
Land og saga horfin
undir vatn
Hún hvetur áhugasama foreldra
og ættingja barna fæddra á þessum
tíma til að hafa samband í síma 898-
3143 eða með netpósti á irisl-
ind@gmail.com. Verkið verður af-
hent foreldrum eða umboðsaðilum á
lokadegi sýningarinnar 18. nóvem-
ber nk. Það mun einnig verða til sölu
fyrir þrjár milljónir króna og verður
ekki gefið ef af sölu verður.
Á myndinni, sem máluð er eftir
ljósmynd Skarphéðins G. Þórisson-
ar, má sjá Sauðafell uppi til hægri,
sjónarhornið er úr lágflugi rétt utan
við Sauðá. „Þetta er rétt utan við
Sauðá og horft inn á sethjalla sem
loka Hjalladal,“ segir Skarphéðinn.
„Svo sést í Tröllagilið, en þar stutt
frá var bergrisinn sem féll í ána. Á
bak við sethjallana er allstór hvilft,
við sjáum í gráan mel og þar fyrir
innan var rétt Aðalbólsmanna, þar
fóru þeir fyrri part sumars og ráku í
rétt og féð var rúið. Handan við á
hjallanum á bakvið er Lindin og þar
var Lindakofi. Þá er sléttan inn eftir
og sést inn á Brúarjökul og Kringils-
árrana. Sjónarhornið er nú ofan í
lóninu og u.þ.b. tvær efstu raðirnar í
myndinni sem standa upp úr.“
Vill gefa börnum lands-
lagið undir Hálslóni
Ljósmynd/ÍLS
Landslag Íris Lind Sævarsdóttir málaði landslag sem horfið er undir Háls-
lón. Hún hyggst gefa verkið börnum sem fædd eru á lónfyllingartímanum.
Í HNOTSKURN
»Íris Lind Sævarsdóttirsýnir í Sláturhúsinu á Eg-
ilsstöðum verkið Landslag til
sölu, málverk í 362 hlutum
sem sýnir landslag sem nú er á
botni Hálslóns Kára-
hnjúkavirkjunar.
»Listamaðurinn hyggstgefa börnum sem fædd eru
á lónfyllingartímanum sinn
hlutann hverju, þar sem þau
munu aldrei fá að sjá með eig-
in augum landslagið undir lón-
inu eða hafa nokkuð að segja
um ráðstöfun þess.
Neskaupstaður | Í vikunni var
haldið upp á tíu ára afmæli hár-
snyrtideildar Verkmenntaskóla
Austurlands. Af því tilefni var
formlega tekin í notkun ný og betri
kennsluaðstaða. Nemendur deild-
arinnar koma aðallega af Austur-
og Norðurlandi, enda hefur deildin
lengst af verið eina hársnyrtideild-
in á landsbyggðinni. Í vetur stunda
nemendur nám á 1. og 3. önn og eft-
ir áramót hefst kennsla á 4. önninni
í samstarfi við skóla á höfuborg-
arsvæðinu. Deildarstjóri hár-
snyrtideildar er Svanlaug Að-
alsteinsdóttir og aðrir kennarar
eru Rósa Dögg Þórsdóttir og Elsa
Reynisdóttir.
Ljósmynd/VA
Hársnyrtideildin tíu ára
Fljótsdalur | Gunnarsstofnun, í sam-
vinnu við Ferðafélög Fljótsdalshér-
aðs og Húsavíkur og Austurlands-
og Húsavíkurdeildir 4x4, stendur
fyrir ferð í fótspor Fjalla-Bensa á
sunnudag. Um 70 manns verða í
ferðinni og farið á 15-20 sérútbúnum
jeppum bæði frá Húsavík og Egils-
stöðum. Tilefni ferðarinnar er ný út-
gáfa á Aðventu hjá bókaforlaginu
Bjarti sem kom út í sumar.
Í ferðinni verður áð á sögustöðum
og mun Arngrímur Geirsson í Álfta-
gerði rifja upp svaðilfarir Fjalla-
Bensa og annarra eftirleitarmanna.
Með í för verður einnig Ingvar E.
Sigurðsson leikari sem mun lesa
valda kafla úr sögunni. Þá mun Skúli
Björn Gunnarsson hjá Gunnars-
stofnun fjalla um tildrög sögunnar
og útgáfu hennar. Uppselt er í ferð-
ina og komust færri að en vildu.
70 ferðalangar á slóðir
söguhetju Aðventu
Vogar | Fimmtán félagsmiðstöðvar
tóku lagið í undankeppni Samfés
söngkeppni, Suðurlands- og Suður-
nesjariðli, sem haldin var í Vogum.
Bólið í Mosfellssveit varð í fyrsta
sæti. Með þeim komust í aðalkeppn-
ina Féló í Vestmannaeyjum, Þrum-
an í Grindavík, Fjörheimar í
Reykjanesbæ og Zelsíuz á Selfossi.
Um 400 unglingar tóku þátt í
undankeppninni í Vogum um síð-
ustu helgi. Helgin gekk vel, sam-
kvæmt upplýsingum Tinnu Hall-
grímsdóttur, tómstundaráðgjafa hjá
Borunni í Vogum.
Unglingarnir gistu í grunnskól-
anum í Vogum. Á föstudagskvöldinu
var sundlaugarpartí ásamt því að fé-
lagsmiðstöðin var opin fyrir þau
sem vildu skella sér í billiard, Guit-
ar-hero o.fl. Á laugardeginum var
ýmis afþreying í boði fyrir ung-
lingana, t.d. listasmiðja, förðunar-
smiðja, pílusmiðja og margt fleira.
En á meðan flestir voru í smiðjum
voru keppendur kvöldsins í hljóð-
prufum fyrir kvöldið mikla. Eftir
keppnina var þrusuball með þeim
Dj Óla Geir og Andra Ramirez og
náðu þeir upp það góðri stemningu
að þakið ætlaði af húsinu á tímabili.
Unglingarnir voru til fyrirmyndar
alla helgina og skemmtu þau sér
konunglega, samkvæmt upplýsing-
um Tinnu.
Þær fimm félagsmiðstöðvar sem
komust áfram munu taka þátt í að-
alkeppni Samfés sem haldin verður
í mars á næsta ári.
Saman Um fjögur hundruð unglingar tóku þátt í undankeppni söngkeppni Samfés sem fram fór í Vogum.
Bólið sigraði í
undankeppni Samfés
Reykjanesbær | Keilir, miðstöð vís-
inda fræða og atvinnulífs, hefur
fengið allt að 150 íbúðir til úthlut-
unar fyrir námsmenn á háskóla-
svæðinu á Vallarheiði í Reykja-
nesbæ. Þessar íbúðir bætast við þær
350 sem þegar er búið í á svæðinu.
Áætlað er að taka íbúðirnar í notkun
í desember og janúar næstkomandi.
Íbúum á háskólasvæðinu mun þá
fjölga úr tæplega 800 í 1.100-1.200
manns í heild. Fjöldi iðnaðarmanna
vinnur nú á vegum ÍAV þjónustu við
endurbætur íbúðanna en jafnframt
er unnið að stækkun á leikskóla
Hjallastefnunnar þannig að hægt
verði að fjölga þar börnum um ára-
mót. Þegar stunda rúmlega 70 börn
nám í leikskólanum og tæplega 50 í
grunnskólanum.
Verslun og íþróttamiðstöð
Samkaup opnuðu nýlega verslun
og á næstunni mun fullkomin
íþróttamiðstöð taka til starfa en um
þá starfsemi hafa Keilir, Þróunar-
félag Keflavíkurflugvallar og
Reykjanesbær stofnað sérstakt
hlutafélag, Íþróttavelli ehf. Þá er
unnið að því að opna kaffi- og veit-
ingahús til að þjóna ört vaxandi sam-
félagi á Vallarheiði. Uppbygging
þess er samstarfsverkefni Keilis,
Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar,
Háskólavalla ehf. og Reykjanesbæj-
ar.
Íbúðirnar eru bæði einstaklings-
og fjölskylduíbúðir, 55-160 fermetr-
ar að stærð og vel búnar tækjum.
Þær eru ætlaðar nemum sem stunda
nám við háskóla á höfuðborgarsvæð-
inu eða annars staðar en innifalið í
leiguverði er rafmagn, hiti, net og
express strætó sem tengir Keilis-
svæðið við háskóla í Reykjavík. Upp-
lýsingar um leiguverð er að finna á
www.keilir.net. Samkvæmt fréttum
síðustu daga er mikil þensla á leigu-
markaði en um 1.100 manns bíða eft-
ir húsnæði á stúdentagörðum í
Reykjavík. Tæplega 100 manns eru
þegar á biðlista hjá Keili eftir hús-
næði.
150 nýjar íbúðir á
háskólasvæði Keilis
Íbúar á gamla varnarsvæðinu verða yfir
eitt þúsund með þessari fjölgun
SUÐURNES
oturheimur K haf.
Sigli ég um oturheim