Morgunblaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 26
matur
26 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Mér vegnar bara afskaplega vel á Ís-landi. Hér er gott að vera. Vet-urnir eru að vísu svolítið dimmirog kaldir, en sumrin eru ynd-
isleg,“ segir Jeimmy Andrea Gutiérrez Vill-
anueva, 24 ára kólumbísk stúlka sem kom til
Íslands sem flóttamaður fyrir tveimur árum.
Jeimmy hafði flúið til Ekvadors þar sem hún
hafði dvalið í tvö ár áður en sendinefnd frá
Rauða krossi Íslands ákvað að hún fengi hæli á
Íslandi ásamt 26 öðrum löndum sínum.
Jeimmy hóf íslenskunám hjá Mími þegar
hún var lent á Íslandi og svo hóf hún nám í Ár-
múlaskóla. Nú stundar hún íslenskunám í Há-
skóla Íslands og stefnir á BA-próf einhvern
tímann síðar og svo vinnur hún við símsvörun í
Alþjóðahúsinu með námi. Jeimmy býr ein en
hefur frá því hún kom notið aðstoðar stuðn-
ingsfjölskyldu sem hún hefur bundist „fjöl-
skylduböndum“. „Þetta eru mamma mín og
pabbi minn á Íslandi,“ segir Jeimmy brosandi
og bendir á hjónin Kolbrúnu Björnsdóttur og
Bjarna Jónsson, sem svöruðu auglýsingu
Rauða krossins þegar auglýst var eftir
stuðningsfjölskyldum fyrir kólumbíska flótta-
menn.
Jeimmy, sem er fædd og uppalin í höfuð-
borginni Bogota, segist hafa gaman af því að
bjóða íslensku fjölskyldunni sinni upp á kól-
umbískan mat endrum og sinnum enda þyki
henni gaman að stússast í eldhúsinu yfir pott-
um og pönnum. „Íbúar Kólumbíu borða mikið
af ávöxtum og grænmeti og afskaplega mikið
af nautakjöti.“
Þegar Jeimmy kom til Íslands talaði hún
bara spænsku sem stuðningsforeldrarnir ekki
skildu. Það var þó smábót í máli að heimasæt-
an Þóra Bjarnadóttir hafði verið skiptinemi í
Mexíkóborg og gat komið til bjargar þegar
tungumálaerfiðleikar létu á sér kræla. „Og svo
vorum við Jeimmy bara skammaðar fyrir að
tala spænsku saman af því að hún átti að læra
íslensku,“ segir Þóra og hlær.
Þegar Daglegt líf leit inn í eldhúsið hjá Kol-
brúnu og Bjarna stóð Jeimmy yfir pottunum.
Í Kólumbíu er allt
nýtt af nautinu
Morgunblaðið/Golli
Fjölskyldan Frá hægri, Jeimmy Andrea Gutiérrez Villanueva ásamt íslensku stuðningsfjölskyldunni sinni hjónunum Kolbrúnu Björnsdóttur og
Bjarna Jónssyni og dætrum þeirra þeim Þóru og Hörpu Hrund og svo dóttir Hörpu Freyju Rún.
Litadýrð Litríkt meðlæti gerir veisluborðið
óneitanlega hátíðlegt ásýndar.
Nautalifrarsteik Jeimmy segir íbúa Kólumb-
íu borða mikið af nautakjöti.
Jólabúðingur Sómir sér jafn vel á hátíð-
arborðinu á Íslandi sem í Kólumbíu.
Tvö ár eru síðan Jeimmy Andrea Gutiérrez Villanueva kom til
Íslands eftir að hafa flúið frá heimalandi sínu Kólumbíu til
Ekvadors. Hún vill lítið tala um fortíðina, en gott sé að vera á
Íslandi. Jóhanna Ingvarsdóttir smakkaði nautalifur og jóla-
búðing að hætti Kólumbíumanna.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Uppboðshúsið Arnason &Andonov ehf. verður meðfyrsta uppboð sitt í Iðnó á
sunnudag og kennir þar margra
grasa. Frímerki, mynt, seðlar, bæk-
ur, póstkort, málverk og ýmsir list-
munir verða boðin upp en alls eru
416 hlutir á uppboðinu.
Árni Þór Árnason, fyrrverandi
forstjóri Austurbakka, og Makedón-
íumaðurinn Saso Andonov, sem er
með meistarapróf í hagfræði frá Há-
skóla Íslands og íslenskur ríkisborg-
ari, standa að uppboðshúsinu, sem
er til húsa á Austurströnd 1 á Sel-
tjarnarnesi. Árni Þór segir að þeir
séu báðir frímerkjasafnarar og þeim
hafi fundist að hér vantaði uppboðs-
hús samkvæmt alþjóðlegum stöðl-
um, þar sem seljandi gangi út frá
ákveðnu grunnverði, því þannig sé
hagur hans tryggður. Auk þess hafi
fólk ekki haft almennileg tækifæri til
að selja hluti eins og frímerki, mynt,
seðla, ýmsa listmuni og fleira á upp-
boðum hérlendis og því hafi þeir
ákveðið að koma til móts við mark-
aðinn með því að opna svona upp-
boðshús.
Stór markaður
„Við erum að reyna að stækka ís-
lenska markaðinn með því að vera
líka á netinu,“ segir Árni Þór og vís-
ar til þess að uppboðsskráin vegna
fyrsta uppboðsins hafi ekki aðeins
verið send í um 400 eintökum út um
allan heim og meðal annars til mynt-
og frímerkjasafnara á Íslandi heldur
sé hún einnig aðgengileg á vef A&A
og þar sé hægt að vera með boð
(www.aa-auctions.is). Hann segir að
þeir líti einkum á Ísland, Norður-
löndin og Norður-Ameríku sem
markaðssvæði sitt og bendir á að ís-
lensk frímerkjasöfn frá því fyrir
1944 séu mjög vinsæl í Bandaríkj-
unum. Þá hafi ekki svo mikið af frí-
merkjum verið gefið út og auk þess
þyki þetta falleg frímerki. Hins veg-
ar sé sorglegt hvernig verið sé að
ganga af frímerkinu dauðu í nútím-
anum, en frímerkin frá því fyrir 1944
lifi góðu lífi og hækki jafnt og þétt
eins og góð hlutabréf.
Fram að uppboðinu eru hlutirnir
til sýnis hjá fyrirtækinu á Seltjarn-
arnesi daglega frá klukkan 13 til
16.30 eða eftir samkomulagi en upp-
boðið í Iðnó hefst síðan klukkan
10.30 á sunnudag með uppboði á frí-
merkjum. Klukkan 14 hefst uppboð
á kortum og byrjað verður að bjóða
upp listmuni klukkan 15.30.
Á uppboðinu verða meðal annars
bronsskjöldur af Jóni Sigurðssyni
forseta, bronsstytta af Adolf Hitler,
kanslara Þýskalands, strútsegg frá
Suður-Afríku og silfurborðbúnaður
frá 1949.
Boðið upp í evrum
Hæsta grunnverðið er 14.000 evr-
ur fyrir olíumálverk eftir Erró, en
grunnverð fyrir olíumálverk frá
1932 eftir Kjarval er 9.000 evrur.
Grunnverð fyrir styttu af sjómanni
með lúðu eftir Guðmund Einarsson
frá Miðdal er 1.200 evrur og algengt
verð fyrir frímerki er 10 evrur.
Árni Þór segir að verðið sé í evr-
um vegna þess að útlendingar eigi
erfitt með að breyta yfir í íslenskrar
krónur auk þess sem upphæðir í
krónum séu svo háar og háar upp-
hæðir fæli frá. Ennfremur bjóði flest
uppboðshús í til dæmis Svíþjóð og
Danmörku upp í evrum og ákveðið
hafi verið að fylgja þeim.
Nýtt uppboðshús
með nýjar áherslur
Morgunblaðið/Ómar
Upphoðshaldarar Þeim Árna Þór Árnasyni og Saso Andonov fannst vanta
hér á landi uppboðshús samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.
Arnason & Andonov ehf. verða með
416 hluti á fyrsta uppboði sínu í Iðnó
www.aa-auctions.is
daglegt líf