Morgunblaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 27
Á matseðlinum var nautalifur að kólumbískum hætti og gómsætur hátíðarbúðingur í eftirrétt. Nautalifrarsteik ½ kg nautalifur 1 stór laukur 1 tómatur 1 saxað hvítlauksrif salt og pipar eftir smekk ¼ bolli matarolía Himnur og húð hreinsaðar af lifrinni. Lifrin skorin niður í þunnar sneiðar, sem kryddaðar eru með salti og pipar. Lifrin er síðan steikt upp úr mjög heitri olíu svo hún harðni ekki. Lifrin tekin af pönnunni og lögð til hliðar. Því næst eru laukur og tómatar steiktir upp úr sömu olíu og því næst búin til sósa upp úr þessu. Þegar sósan er tilbúin er lifrinni bætt út í og látið krauma í smátíma. Lifrina má bera fram með hrísgrjónum, sal- ati, avókadó og steiktum plátano-banönum, sem m.a. fást í Hagkaupum og Sælkerabúð- inni. Bananarnir eru skornir í fimm cm bita og brúnaðir í vel heitri maísolíu. Bitarnir eru svo settir á bretti og pressaðir þar til þeir eru flat- ir. Þá er þeim brugðið á ný á pönnuna og full- steiktir. Jólabúðingur 1 lítri mjólk 4 eggjarauður 5 msk maizenamjöl börkur af einum limeávexti 1 kanilstöng kanilduft Hálft glas af mjólk, maizenamjölið og eggja- rauðurnar þeytt saman. Afgangurinn af mjólk- inni, lime-börkurinn, sykurinn og kanilstöngin sett í pott. Þegar suðan er komin upp er þeyttu blöndunni bætt út í. Suðan er látin koma upp á meðan hrært er í með trésleif. Þegar suðan er komin upp á ný er þetta tekið af hellunni og hellt í skálar. Gott er að strá kanildufti ofan á. Látið kólna í ísskáp. Gott er að gera þennan eftirrétt daginn áður en hann er borinn fram. join@mbl.is vín MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 27 Einar Falur Ingólfsson. Kjartan Þorbjörnsson. Í dag kemur út bókin Í fyrsta kasti eftir ljósmyndarana og stangveiðimennina Einar Fal Ingólfsson og Kjartan Þorbjörnsson. Frábært tilboð til áskrifenda Morgunblaðsins Jólagjöf stangveiðimannsins Í þessari glæsilegu bók er að finna fjölda skemmtilegra veiðisagna frá tugum viðmælenda þeirra félaga ásamt óviðjafnanlegum ljósmyndum frá mörgum helstu veiðisvæðunum hringinn í kringum Ísland. Nú býðst áskrifendum Morgunblaðsins að fá þessa stórglæsilegu bók á sérstöku verði með 25% afslætti. Fullt verð er 4.990 krónur en verð til áskrifenda er 3.750 krónur. Bókina geta áskrifendur fengið í afgreiðslu Morgunblaðsins að Hádegismóum 2, 110 Reykjavík eða pantað hana á mbl.is. M bl 9 35 98 9 Eftir Steingrím Sigurgeirsson sts@mbl.is Tveir miklir karakterar semhafa sett svip sinn á Bor-deaux um áratugaskeið eru þeir Jean-Michel Cazes og André Lurton. Cazes er eigandi hins fræga Chateau Lynch- Bages í Pauillac og byggði upp veldi AXA í Bordeaux og víðar sem inniheldur m.a. vínhúsin Pichon-Longueville, Pibran og Suduiraut ásamt t.d. Quinta de Noval í Porto. Það rak hann allt til ársins 2002 er hann lét af störfum og fór að einbeita sér al- farið að fjölskylduhúsunum Lynch-Bages og Ormes de Pez í samvinnu við soninn Jean- Charles og systurina Sylvie. Bjargvætturinn Lurton André Lurton hins vegar á ættir að rekja til ættaróðalsins Chateau Bonnet í Grezillac á Entre-Deux-Mers-svæðinu. Lur- ton, sem nú er á níræðisaldri, er þekktastur fyrir að hafa bjargað dýrmætasta svæði Graves frá því að hverfa af vínkortinu. Hann hóf að fjárfesta þar á sjö- unda áratugnum og keypti m.a. vínhúsin Rochemorin og Lou- viere í norðurhluta Graves. Vínrækt átti undir högg að sækja þar á þessum tíma, ekki síst vegna útþenslu Bordeaux- borgar, en svæðið er í syðri út- jaðri borgarinnar. Höfðu borg- aryfirvöld uppi áform um að reisa nýtt úthverfi á þessum slóðum. Lurton efndi til andófs gegn þessum áformum og vakti herferð hans það mikla athygli að ekki var einungis fallið frá áformunum heldur svæðið skil- greint sem sérstakt víngerð- arsvæði í franska „ap- pellation“- kerfinu undir nafninu Pessac- Léognan. Þar er að finna mörg af frægustu vínhúsum Bordeaux s.s. Haut-Brion, Smith- Haut-Lafitte, Haut- Bailly, Pape Clément og Domaine de Cheval- ier. En hví þessi inn- gangur? Jú þessir ágætu menn framleiða ekki einungis rándýr gæðavín fyrir fáa út- valda heldur einnig ódýr gæðavín fyrir fjöldann. Byrjum á André Lurton. Divinus de Chateau Bonnet 2006 er athygl- isvert vín úr Sauvignon Blanc-þrúgunni frá Bordeaux. Þótt Bonnet sé á svæði sem getur af sér „einföld“ vín miðað við risana eru vínin frá þessu húsi ávallt góð kaup. Í nefi skarpur og spennandi ávöxtur þroskaður en aðgengilegur ávöxtur. Eiginlega tilbúið nú þegar þótt vel megi geyma það í einhver ár. Ég held að það megi fullyrða að þetta séu bestu Bor- deaux-kaupin í ríkinu í dag. Mik- ið fyrir lítið. 1.790 krónur 90/ 100 Og þá eru það vínin frá Cazes og kannski ákveðin þversögn í ljósi inngangsins hér að framan að hvítvínið Michel Lynch Re- serve 2006 skuli vera frá Gra- ves-svæðinu. Það hefur einkenni mun dýrari vína og gæti alveg þóst vera vín frá Pessac- Leognan í blindsmakki. Hita- beltisávextir, sítrus, mangó og töluverð sæt eik. Sauvignon Blanc ríkjandi. Þykkt og ferskt í senn með góðri lengd. Frábær kaup. 1.490 krónur. 88/100 Rauðvínið Michel Lynch Re- serve 2005 er framleitt úr þrúg- um af Médoc-skaganum. Það hefur verulega dýpt fyrir verð með dökkum rauðum berjum, sólberjum og kirsuberjum, eik og ágætu tannísku biti. 1.490 krónur. 87/100 Þótt Reserve-vínin séu ekki dýr eru til enn ódýrari í línunni. Hið rauða Michel Lynch 2005 er vissulega einfaldara en engu að síður gott með sólberjum, grænni papriku og kryddi. 1.270 krónur. 85/100 Hvítvínið Michel Lynch 2006 er ferskt með grösugri límónu- angan. Greinilegur Sauvignon Blanc. Milliþyngd og -lengd. 1.270 krónur. 85/100 Michel Lynch-línan er afar þétt og kannski engin furða þeg- ar haft er í huga að víngerðar- teymið frá Chateau Lynch Ba- ges hefur yfirumsjón með henni undir vökulum augum Jean- Michels Cazes. með grænum og hvítum berjum, blómum, aspas og nýslegnu grasi. Ferskt og sýrumikið, ekki langt en gott eins langt og það nær. 1.550 krónur. 86/100 Chateau Bonnet Re- serve 2005 er kórrétt og aðgengilegt rauðvín. Sól- ber, rifsber, vottur af dökku kaffi og jafnvel súkkulaði. Milliþungt, góð uppbygging með þægileg- um tannínum. 1.390 krón- ur. 86/100 Chateau de Barbe Blanche 2005 er rauðvín frá héraðinu Lussac-St- Emilion í Bordeaux í Frakklandi og er húsið í eigu Lurtons. Vínið sló í gegn í íslensku smökk- uninni um Gyllta glasið um daginn og það kemur ekki á óvart þegar vínið er smakkað. Hér sést svo sann- arlega að 2005-árgangurinn í Bordeaux, sem hefur verið talinn besti árgangur síðustu áratuga, stendur undir nafni. Djúpur, Hagstæð kaup frá Cazes og Lurton
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.