Morgunblaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ ALÞINGI Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is „MENNINGARARFURINN er grundvöllur atvinnuuppbyggingar, byggðaþróunar og nýsköpunar. Með því að hlúa að honum löðum við að nýja íbúa og ferðamenn og sköpum nýjar hugmyndir,“ segir Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður. Í dag eru 100 ár liðin frá setningu fyrstu þjóðminjalaganna og því ágætt tilefni til að staldra við og meta stöðu þjóðminjavörslu á Ís- landi. Fornminjalög verða til Helsta ástæða lagasetningar um fornminjavernd var svokölluð ný- lendusýning í Kaupmannahöfn árið 1905, þar sem sýndir voru forngripir sem keyptir höfðu verið á Íslandi. Íslenskum stúdentum í Kaup- mannahöfn þótti þetta óhæfa og töldu gripina betur komna á Forn- gripasafninu í Reykjavík. Lögin sem sett voru 1907 giltu til 1969, en þau sneru fyrst og fremst að verndun, skráningu og friðlýs- ingu fornleifa og gripa. Árið 2001 voru Fornleifavernd ríkisins og Húsafriðunarnefnd ríkis- ins settar á laggirnar til að taka við stjórnsýsluhlutverkinu sem Þjóð- minjasafnið hafði áður sinnt. Menntamálaráðuneytið vinnur nú að endurskoðun laganna frá 2001. Margrét Hallgrímsdóttir þjóð- minjavörður, Nikulás Úlfar Másson, forstöðumaður Húsafriðunarnefnd- ar ríkisins og Kristín Huld Sigurð- ardóttir, forstöðumaður Fornleifa- verndar ríkisins, eru sammála um að taka þurfi meira tillit til fornminja þegar skilgreina skuli menningar- arfinn. „Því var lengi haldið fram að einu menningarverðmæti Íslendinga væru handritin og þetta var viðtekin hugsun fram yfir miðja síðustu öld,“ segir Nikulás Úlfar. Styrkja þarf grunninn Þau vilja gjarnan að meiri áhersla verði lögð á minjavernd og það sé of algengt í hraða nútímans að ekki gefist tími til að staldra við og meta hvað hafi gildi og sé sérstakt fyrir okkar menningararfleifð. „Ef eitthvað er sér-íslenskt í okk- ar menningu þá er það torfbærinn og hvernig hann var byggður. Jafn- vel þeir fáu torfbæir sem við höfum sameinast um að varðveita eru margir í mjög slæmu ástandi,“ segir Nikulás Úlfar og bendir á að enn séu margir torfbæir ekki enn komnir í þjóðminjavörslu og liggi því undir skemmdum. Þeim ber saman um að mikilvægt sé að huga að grunninum. Fjár- magni sé of oft varið til alls kyns sýninga og setra, en það sem raun- verulega vanti sé uppbygging vand- aðra safna og minjastaða um allt land. Slík uppbygging nýtist einnig sem grundvöllur fyrir ferðaþjónustu og atvinnusköpun úti á landsbyggð- inni. Þau telja nauðsynlegt að huga að geymsluaðstöðu og öðrum almenn- um öryggisatriðum fornminjavörslu. Það sem ekki er sýnilegt vilji lenda á hakanum og gæta verði betur að þessum ósýnilegu grunnatriðum. Sagan heldur áfram Varðandi fornleifavernd telur Kristín Huld, forstöðumaður Forn- leifaverndar ríkisins, forgangsatriði að hafin verði markviss fornleifa- skráning um allt land. Enn hafi að- eins tæp 25% fornminja verið skráð. Skráning og landfræðilegur gagna- grunnur yfir fornleifar séu for- sendur fyrir rannsóknum í framtíð- inni. Þau telja augljóst samhengi á milli þess að verja náttúru landsins og minjar þess. Gott dæmi um það séu húsasöfnin víða um land. Mikilvægt sé að varðveita samhengi minjanna og það sé líka það sem ferðamenn vilji sjá. Menningarlandslag og minj- ar séu þó ekki óbreytanleg stærð, því sagan haldi áfram og það verði minjavarslan að gera líka. „Það er mikilvægt að nálgast minjavörslu sem sóknarfæri. Þetta er saga okkar allra og það er mik- ilvægt að fanga samfélagið eins og það er, sögu og menningu allra sem búa hér,“ segir Margrét Hallgríms- dóttir að lokum. Minjavarsla býður upp á sóknarfæri Morgunblaðið/Ómar Minjaverðir Kristín Huld Sigurðardóttir, Nikulás Úlfar Másson og Margrét Hallgrímsdóttir sjá mörg tækifæri og krefjandi verkefni í minjavörslunni. Ljósmynd/Guðm.Lúter Burstarfell í Vopnafirði Byggingarlag íslenska torfbæjarins er einstakt og þeir teljast til minja á heimsmælikvarða sem ber að hlúa að. Í DAG verður haldið upp á 100 ára afmæli þjóðminjavörslunnar á Ís- landi og af því tilefni verður opið hús í Þjóðminjasafni Íslands. Afmælisár þjóðminjavörslunnar miðast við setningu laga um verndun fornminja árið 1907. Klukkan 12 flytur Guðmundur Ólafsson erindi um þjóðminja- vörslu í landinu. Eftir erindi Guð- mundar kemur Unnur Guðjóns- dóttir fram í faldbúningi, fer með ljóð eftir Jónas Hallgrímsson og minningaorð um hann, en í dag eru liðin 200 ár frá fæðingu skáldsins. Sérfræðingar verða á staðnum milli kl. 12 og 14 og munu fræða gesti um sýningar og safngripi. Þjóðminjasafn með opið hús meika, -aði S blanda, meykja, gera, smíða. Hún er að meika hús Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is FRÉTTIR af því að sveitarstjórn Flóahrepps hafi samþykkt að setja Urriðafossvirkjun á aðalskipulag eru nöturlegar og ríkisstjórnin öll ber ábyrgð á málinu. Þetta kom fram í máli Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur, þingmanns Vinstri grænna, á Al- þingi í gær. „Hreppsnefnd hafði áður hafnað virkjun en lætur nú undan linnulausum þrýstingi Landsvirkj- unar þannig að hinir lýðræðislega kjörnu fulltrúar hafa bakkað með sitt nei og sína sannfæringu, þau þora ekki annað undan ægivaldinu sem við blasir,“ sagði Guðfríður Lilja og vildi svör við hvað ríkisstjórnin hygðist fyrir og þá allra helst Sam- fylkingin sem áður hefði heitið því að frelsa sveitarfélögin undan ágangi orkufyrirtækjanna. Aðalspurningin í Reykjavík Helgi Hjörvar, formaður um- hverfisnefndar Alþingis, sagði margt jákvætt hafa gerst á síðustu mán- uðum varðandi virkjanir og stóriðju og tók m.a. sem dæmi nýlega ákvörðun Landsvirkjunar að selja ekki orku til álvera á Suð- og Vest- urlandi. „Sá mikli þrýstingur um stórfellda uppbyggingu álvera sem var fyrir ekki mjög löngu síðan hefur mjög minnkað og er full ástæða til að lýsa ánægju með það,“ sagði Helgi en bætti við að aðalspurningarnar í virkjana- og stóriðjumálum væru ekki í Flóanum heldur einmitt í Reykjavík. Bjarni Harðarson, þingmaður Framsóknarflokks, hnýtti líka í Samfylkinguna og sagði auðvelt að halda því fram í kosningabaráttu að stöðva ætti virkjanaáform í neðri- hluta Þjórsár tafarlaust. Fram- kvæmdin hefði hins vegar farið í gegnum umhverfismat athuga- semdalaust. „Það er mjög erfitt fyrir hreppsnefnd Flóahrepps að stöðva þetta mál á umhverfisverndarfor- sendum eingöngu,“ sagði Bjarni en mótmælti því jafnframt að sveitar- stjórnin hefði tekið þessa ákvörðun af annarlegum ástæðum. „Hér er enginn til andsvara fyrir þá góðu hreppsnefnd,“ sagði Bjarni og Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðis- flokks, sagði þetta vera nöturleg skilaboð sem kjörnum fulltrúum sveitarstjórnar eru send. „Að halda því fram að sveitarstjórnir hér um landið gefist upp fyrir fyrirtækjum, finnst mér ekki rétt,“ sagði Ólöf. Með byssuna í annarri Steingrímur J. Sigfússon, þing- maður Vinstri grænna, sagði hins vegar að það væri ekki verið að tala niður til sveitarstjórna með því að rekja staðreyndir í málinu. „Lands- virkjun mætti á staðinn degi eftir að sveitarstjórn hafnaði virkjunar- áformunum með seðlabúntið í ann- arri hendinni og byssuna í hinni,“ sagði Steingrímur og áréttaði að virkjanir með lónum væru ekki heimilar í Þjórsá. „Það er engin ástæða til að ráðast í þessar virkj- anir, það er engin þjóðhagsleg nauð- syn sem knýr á um það.“ Linnulaus þrýstingur Vill svör Guðfríður Lilja vildi svör frá ríkisstjórninni varðandi Þjórsá. Í HNOTSKURN » Sveitarstjórn Flóahreppshefur samþykkt að setja Urriðafossvirkjun á að- alskipulag. » Sveitarstjórnin hafði áðursamþykkt að gera ekki ráð fyrir Urriðafossvirkjun. Þingmenn bæði stjórnar og stjórnarandstöðu gagnrýndu Guðfríði Lilju fyrir að tala niður til sveitarstjórna Léleg lög Skýrsla umboðsmanns Alþingis var rædd á þingi í gær og nokkrir þing- menn höfðu áhyggjur af at- hugasemdum umboðsmanns þess efnis að hlutfall lélegra laga sé of hátt á Íslandi. „Það seg- ir okkur auðvitað bara að við þurf- um að vanda okk- ur miklu betur, við þurfum að hægja á lagasetning- unni,“ sagði Ágúst Ólafur Ágústs- son, Samfylkingu. Fleiri tóku í sama streng og sögðu oft of mikinn hraða vera á störfum þingsins. Öldrun er ekki sjúkdómur Heilbrigðisráðherra mælti fyrir frum- varpi á Alþingi í gær sem felur í sér tilfærslu á ýmsum málaflokkum frá heilbrigðisráðuneyti til félagsmála- ráðuneytis. „Öldrun er ekki sjúkdóm- ur,“ var meginstefið í umræðunum og enginn mótmælti þessum tilflutn- ingi. Vinstri græn voru þó ekki sátt við ákvæði í lögunum sem felur í sér að komið verði á fót stofnun sem annist kaup, greiðslur og samninga um heilbrigðisþjónustu og Stein- grímur J. Sigfússon kallaði laga- ákvæðið smyglgóss sem ætti að ryðja veginn fyrir frekari einkavæð- ingu. Guðlaugur Þór Þórðarson sagði þetta hins vegar ekki vera meira smygl en svo að kveðið væri á um það í stjórnarsáttmálanum. Ágúst Ólafur Ágústsson FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA hefur lagt fram frumvarp sem felur í sér breytingu á lögum um greiðslur til foreldra lang- veikra og alvar- lega fatlaðra barna en tilgang- urinn er að koma til móts við þær bráðaaðstæður sem geta komið upp hjá fjöl- skyldum við greiningu. Verði frum- varpið að lögum munu foreldrar sem eru á vinnumarkaði eiga rétt á tekjutengdum greiðslum í allt að sex mánuði ef börn þeirra greinast langveik eða alvarlega fötluð. Jafn- framt er gert ráð fyrir að for- eldrum verði tryggðar mán- aðarlegar grunngreiðslur þann tíma sem þeir eiga ekki afturkvæmt á vinnumarkað vegna umönnunar barna sinna. Greiðslur í sex mánuði Jóhanna Sigurðardóttir OPINBER mál munu heita sakamál ef viðamikið frumvarp dóms- málaráðherra verður að lögum en hann lagði það fram á Alþingi í gær. Frumvarpið felur m.a. í sér að ákæruvaldinu verður skipt í þrjú stjórnsýslustig með stofnun emb- ættis héraðssaksóknara. Ríkis- saksóknari verður eftir sem áður æðsti handhafi ákæruvaldsins. Þá er gert ráð fyrir að við máls- meðferð fyrir dómi geti ákærði skilað skriflegri greinargerð af sinni hálfu en markmiðið er m.a. að jafna aðstöðu aðila að sakamáli. Þrjú stig ákæruvalds 100 ár frá setningu fyrstu þjóðminja- laganna FRÉTTIR ÞETTA HELST ...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.