Morgunblaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 21
BEIN Jónasar Hallgrímssonar voru flutt til Íslands frá Assistents- kirkjugarðinum í Kaupmannahöfn árið 1946. Það var iðnjöfur úr Mos- fellssveit, Sigurjón Pétursson, for- stjóri Álafoss, sem stóð fyrir því að fá bein Jónasar flutt heim. Sigurjón var mikill áhugamaður um Jónas og vildi hann grafa Jónas norður í Öxnadal, þaðan sem Jónas er ætt- aður. Sigurjón borgaði heimflutninginn Var Sigurjón búinn að standa í miklum rökræðum við fyrirmenn í ríkisstjórn, m.a. Ólaf Thors, þáver- andi forsætisráðherra, og Jónas frá Hriflu, sem átti sæti í Þingvalla- nefnd. Ríkið taldi bein Jónasar vera þjóðareign og að bein hans skyldu grafin í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum, við hlið Einars Bene- diktssonar. En ríkið virtist ekki hafa peninga til að borga fyrir upp- gröft beina Jónasar og flutning þeirra heim. Sigurjón greiddi fyrir meirihlutann, m.a. greiddi hann undir þjóðminjavörð, Matthías Þórðarson, svo hann kæmist út og gæti byrjað uppgröftinn. Það tók dágóðan tíma því Matthías þurfti að grafa fyrst upp þá sem lágu of- an á Jónasi. Það voru hjón, sem voru jarðsett um aldamótin 1900 og feðgar jarðsettir 1875. En Jónas dó árið 1845, 26. maí í Kaupmanna- höfn. Loks þegar bein Jónasar komu með Brúarfossi til landsins í októ- ber 1946 voru alþingismenn, þ.m.t. þeir sem Sigurjón hafði staðið í deilum við, fastir inni á þingi að setja lög um Keflavíkurflugvöll. Flutti beinin norður Sigurjón nýtti sér tækifærið, fyrst enginn úr Þingvallanefnd eða frá ríkinu var til að taka á móti beinunum, og ók beint norður í land með líkamsleifarnar. Hann ætlaði sér að láta grafa Jónas fyrir norðan, en varð ekki að ósk sinni. Prestar fyrir norðan neituðu að jarðsyngja hann, skv. fyrirskip- unum að sunnan. Að endingu stóð kista Jónasar í kirkjunni að Bakka í um viku áður en henni var ekið suður og var svo loks grafin í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum hinn 16. nóvember 1946, en Jónas hafði fæðst 16. nóv- ember og er sá dagur nú dagur ís- lenskrar tungu. Ferðalok eftir Jón Karl Helga- son, en hann ritaði þessa skýrslu þegar bein Jónasar voru grafin upp aftur og send út til Danmerkur til DNA-greiningar. Efasemdir höfðu þá verið uppi um hvort beinin væru í raun Jónasar. Stytta af Jónasi eftir Einar Jóns- son var afhjúpuð 1907 í Hljóm- skálagarðinum. Athöfnin á Þingvöllum við jarð- setningu beina Jónasar fór þannig fram að fyrstir báru kistuna úr kirkju stjórnmálamenn með Ólaf Thors forsætisráðherra og Jónas Jónsson frá Hriflu fremsta en síðan tóku við rithöfundar og náttúruvís- indamenn sem báru hana upp að grafreitnum, þar sem Einar skáld Benediktsson lá fyrir. Að lokum er rétt að geta þess að Þór Guðjónsson,fyrrverandi veiði- málastjóri, var yngstur burð- armannana og er líklega sá eini sem enn er á lífi. Hann veitti Morg- unblaðinu ómetanlega aðstoð við að bera kennsl á menn á myndunum. Fyrirmenn við greftrun beina Jónasar Frá vinstri má þekkja m.a. Gizur Bergsteinsson (annan frá vinstri) hæstaréttardómara, Sigurð Hlíðar dýralækni og Ólaf Thors forsætisráðherra. Hempuklæddu mennirnir fyrir miðri mynd eru séra Bjarni Jónsson, Sigurgeir Sigurðsson biskup, og séra Hálfdan Helgason, sóknarprestur á Mosfelli. Milli séra Bjarna og Sigurgeirs biskups má greina Jónas Jónsson frá Hriflu. Frakkaklæddi maðurinn með hattinn í hendinni er Sigurður Pétursson gerlafræðingur. Þegar Jónas var grafinn á Þingvöllum Kista skáldsins komin í jörðina Maðurinn með hattinn, sem gengur upp að gröfinni, er Matthías Þórðarson þjóðminjavörður. Rithöfundar og náttúrufræðingar báru bein Jónasar Hjá standa Guðmundur G. Hagalín rithöfundur, aftan við kistuna stendur Sigurgeir biskup og að því er virðist Gísli Jónsson alþingismaður, sem kenndur var við Bíldudal, séra Hálfdan Helgason á Mosfelli og Guðmundur Daníelsson rithöfundur. Næst kistunni stendur Ingólfur Dav- íðsson grasafræðingur. Við húsgaflinn standa Agnar Kl. Jónsson ráðuneytisstjóri, Ólafur Thors forsætisráðherra og Barði Guðmundsson þjóðskjalavörður. Ljósmyndir/Vigfús Sigurgeirsson MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 21 MENNING Á MORGUN verða 200 ár liðin frá fæðingu Jónasar og því hafa hátíða- höldin á degi íslenskrar tungu yfir sér veglegri blæ en oft áður. Hér verða talin upp brot af þeim við- burðum sem í boði eru. Blysför í Hljómskálagarðinn  Gangan hefst stundvíslega kl. 18 og gengið verður frá aðalbygg- ingu Háskóla Íslands í Hljóm- skálagarðinn þar sem blysförinni lýkur við styttu Einars Jónssonar af þjóðskáldinu. Pétur Gunn- arsson, formaður Rithöfunda- sambandsins, flytur ávarp.  Um hádegisbil opnar forseti Ís- lands minningarstofu um Jónas að Hrauni í Öxnadal. Kristjana Arn- grímsdóttir og Kristján E. Hjart- arson flytja lög við ljóð Jónasar.  Unnur Guðjónsdóttir les upp ljóð Jónasar í Þjóðminjasafni Íslands kl. 12.  Borgarbókasafnið stendur fyrir bókmenntagöngu í miðbænum til- einkaðri Jónasi á morgun, laug- ardag. Lagt verður af stað frá Grófarsafni kl. 14.  Við Kennaraháskóla Íslands er boðið til hátíðarsamkomu í Hyln- um frá kl. 12.05 til 12.45. Stúd- entar flytja tónlist, Soffía Jak- obsdóttir leikkona flytur ljóð Jónasar og Ingunn Snædal ljóð- skáld les eigin ljóð. Einnig verður verðlaunaafhending í ljóða- samkeppninni Ljóð á tungu – ljóð um tungu.  Íslenskuskor Háskóla Íslands og Mímir standa fyrir hátíðardag- skrá. Meðal annars verður kynnt nýtt námskeið sem mun mennta íslenskunema í að kenna útlend- ingum íslensku. Dagskráin stend- ur frá kl. 16 til 18.30 í stofu 201 í Árnagarði.  Í Háskólanum á Akureyri flytur Finnur Friðriksson aðjunkt erind- ið: Íslenskt mál: Fljótum við sof- andi að feigðarósi? Í stofu K201 á Sólborg kl. 15.  Í Skálholti fer fram málþing um nýja Biblíuþýðingu er hefst kl. 18.  Ég bið að heilsa: Landið, skáld- skapurinn og konan í ljóðum Jón- asar Hallgrímssonar, er yfirskrift á fyrirlestri Helgu Kress í Ket- ilhúsinu á Akureyri kl. 17:15.  Stóra upplestrarkeppnin hefst formlega í grunnskólum landsins. Nemendur í 10. bekk Hvolsskóla á Hvolsvelli lesa Brennu-Njáls sögu í samstarfi við Sögusetrið á Hvols- velli. Lesturinn hefst kl. 7:30 og lesa nemendur úr sögunni til skiptis fram á kvöld.  Menntaráð Reykjavíkurborgar af- hendir í fyrsta sinn íslenskuverð- laun fyrir reykvísk skólabörn.  Ljóðabókin Í sumardal er komin út. Bókin er til komin vegna þess að nokkur skáld langaði til að heiðra minningu Jónasar á afmæl- isárinu. Skáldin eru: Aðalbjörg Jónsdóttir, Bergþóra Jónsdóttir, Heiður Gestsdóttir, Inga Guð- mundsdóttir, Ólöf Stefanía Eyj- ólfsdóttir, Ragna Guðvarð- ardóttir, Sigurbjörg Björgvinsdóttir og Sigurlaug Guð- mundsdóttir.  Á vegum menningarfélagsins Hrauns í Öxnadal kemur út ný ævisaga sem Böðvar Guðmunds- son rithöfundur hefur skrifað og nefnir Jónas Hallgrímsson: Ævi- mynd. Verður eintak af bókinni afhent öllum nemendum í tíunda bekk í grunnskóla að gjöf.  Tónleikarnir Jónas Hallgrímsson í 200 ár fara fram í Laugarborg í Eyjafirði í kvöld kl. 20.30. Flytjendur eru Fífilbrekkuhóp- urinn. Jónas erlendis  Í Jónshúsi í Kaupmannahöfn verð- ur Jónasarkvöld og flytur Böðvar Guðmundsson stutt erindi um skáldið. Kynnt verður bók með nýjum dönskum þýðingum Sørens Sørensens á ljóðum Jónasar.  Sendiráð Íslands í Moskvu stend- ur fyrir dagskrá í háskólanum í Moskvu sem er helguð degi ís- lenskrar tungu og lesið verður úr þýðingum á íslenskum bókum og íslensk tónlist leikin. Viðburðir í tilefni dagsins Útför Jónasar VEFVARP mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.