Morgunblaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 15 er ekki nóg með að gámaálagið sé fellt niður til að liðka fyrir útflutningi á óunnum fiski, heldur er okkur í raun refsað fyrir að vinna fiskinn hér heima. Sjávarútvegsráðherra sagði það reyndar á sínum tíma að yrði gámaálagið afnumið yrðu tollar á fersk flök lækkaðir. Það hefur ekki gengið eftir,“ segir Bjarni. Sala á fiski á Fjölnetinu gengur þannig fyrir sig að sá sem hyggst flytja út óunninn fisk í gámum, leggur inn tilkynningu til næsta fiskmarkað- ar um að til greina komi að selja fisk- inn innanlands. Uppboðið stendur yf- ir í skamman tíma, kannski 15 mínútur, og þá leggja kaupendur inn tilboð á vefnum. Ekki er skylda að fara þessa leið og geta útgerðarmenn flutt fisk sinn óunninn og óvigtaðan utan án þess að gefa innlendum kaup- endum kost á því að bjóða í hann. Gámaútflutningur hefur aukizt töluvert síðustu árin. Árið 2003 fóru samtals 27.832 tonn utan á þann hátt, 43.430 árið eftir og í fyrra var magnið komið í 48.082 tonn. Útflutningur á þorski með þessum hætti hefur farið úr 5.000 tonnum 2003 í 7.650 á ýsu úr 8.200 í 19.600 tonn. ERLENDAR skuldir heimila hafa aukist hraðar en ráðstöfunartekjur þeirra á undanförnum árum, þrátt fyrir mikinn vöxt ráðstöfunar- tekna, segir í vefriti fjármálaráðu- neytisins. Erlendar skuldir heimila námu 108 milljörðum í september 2007, sem er 93% aukning frá sama tíma á fyrra ári, en þá námu slík lán 56 milljörðum króna. Af þessum 108 milljörðum eru einungis um 25 milljarðar vegna húsnæðislána. Þrátt fyrir þessa þróun eru er- lend lán enn í minnihluta heild- arskulda heimila við lánakerfið, en styrking gengisins á þessu ári lækkar hlutfallið. Snörp lækkun á gengi krónunnar myndi koma illa við íslensk heimili, bæði vegna þess að afborganir af erlendum lánum í krónum hækka, en einnig vegna þess að gengislækkun er líkleg til að auka á verðbólgu, sem hækkar afborganir og höfuðstól verð- tryggðra lána. segir í vefritinu. Næmni heimilanna fyrir breyt- ingum á gengi krónunnar er sögð nokkur. Þó ekki það mikil að hún skapi vanda fyrir fjármálalegan stöðugleika í landinu þótt komi til umtalsverðrar gengislækkunar. Erlendar skuldir heimila aukast um 93% milli ára HALLUR Helgason og Kvik- myndafélag Íslands hafa stofnað hlutafélagið Atlantic Studios hf. um rekstur kvikmyndavers í gömlu varnarstöðinni á Miðnes- heiði. Félagið hefur gert samkomulag við Þróunarfélag Keflavíkurflug- vallar um kaup á 13 byggingum og nokkru landsvæði fyrir reksturinn. Þrjú upptökuver Í tilkynningu kemur fram að nú sé unnið að skipulagningu og hönnun svæðisins en gert sé ráð fyrir að þrjú 750-1.200 fermetra upptöku- ver verði tilbúin til notkunar í vor en auk þeirra sé gert ráð fyrir að- stöðu fyrir ýmsar stoðdeildir kvik- myndagerðarinnar svo sem skrif- stofur, smíðaverkstæði, búninga- geymslu, leikmunageymslu, klippi- aðstöðu o.s.frv. Þá er í bígerð smíði vatnstanks sem ætlaður er fyrir myndatökur í vatni, bæði undir yfirborði og á því. „Markmiðið er að þjóna jafnt innlendri sem erlendri kvikmynda- gerð. Rekstur versins verður hrein viðbót við þá þjónustu sem þegar er í boði á Íslandi en hingað til hafa fullbúin stúdíó af þessari stærðargráðu ekki staðið til boða,“ segir í tilkynningu. Stofna kvik- myndaver á Miðnesheiði hjúkólfur, -s, -ar K † samkvæmi, mannfagnaður. Er hjúkólfur um helgina? Foreldrar gætu keypt minni íbúðir, þá þyrftu þeir ekki að vinna eins mikið og allir gætu verið meira nálægt hver öðrum. Cubo er frábær jólagjöf! Cubo er flott útvarp og geislaspilari með tengi fyrir Mp3 spilara og Ipod. Cubo fæst í 10 litum og er góð gjöf handa börnunum, kærastanum, kærustunni, pabba og mömmu, afa og ömmu eða bara hvern sem er. Komdu og sjáðu Cubo! Fríhafnarverslun Ármúli 26
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.