Morgunblaðið - 16.11.2007, Blaðsíða 24
|föstudagur|16. 11. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Það mun kenna margra grasa á
fyrsta uppboði Uppboðshússins
Arnason & Andonov í Iðnó á
sunnudag. » 26
daglegt
Jeimmy Andrea Gutiérrez Vill-
anueva hefur gaman af að bjóða
„íslensku“ fjölskyldunni sinni
upp á kólumbískan mat. » 26
matur
Þeir Jean-Michel Cazes og
André Lurton hafa sett svip
sinn á Bordeaux um áratuga-
skeið. » 27
vín
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Uppskrift að uppáhalds-helgi hjá mér er nátt-úrlega góð hvíldarhelgiþar sem innifalinn er góð-
ur göngutúr og ein leitaræfing með
hundinum auk þess sem spennandi
uppákoma í menningarlífinu, til
dæmis menningardagskrá eða
skemmtilegir tónleikar, eitthvað sem
tekur ekki alltof langan tíma, væri
mjög ákjósanleg viðbót og andlegt
helgarfóður fyrir mig,“ segir þjóð-
fræðingurinn Ólína Þorvarðardóttir,
einn af stofnendum og núverandi for-
maður Vestfjarðaakademíunnar, sem
ætlar í samstarfi við afmælisnefnd
Guðmundar Inga Kristjánssonar að
efna til skáldskaparþings undir yf-
irskriftinni „Vestfirsku skáldin“ í
Holti í Önundarfirði nk. sunnudag.
Í minningu vestfirskra skálda
Boðið verður upp á umfjöllun í tali
og tónum um vestfirsk skáld frá ýms-
um tímum. Ólafur Þ. Harðarson
stjórnmálafræðingur flytur erindi
um Guðmund Inga. Andrea Harð-
ardóttir fjallar um Jón úr Vör og
Jakobínu Sigurðardóttur. Fluttur
verður fyrirlestur Jónu Símoníu
Bjarnadóttur um Steingerði Guð-
mundsdóttur, leikskáldið sem týndist
í bókmenntasögunni. Bjargey Ingi-
björg Gunnlaugsdóttir syngur lög af
vestfirskum uppruna. Ólína kveður
stemmur við vestfirskar vísur og þul-
ur og fjallar um vestfirsku skáldin.
Hrafnhildur Hafberg les upp úr
verkum Guðmundar G. Hagalín og
Viðar Konráðsson kemur fram í hlut-
verki Grasa-Guddu úr leikritinu
Skugga-Sveini.
Dagskráin er helguð minningu
skáldsins Guðmundar Inga Krist-
jánssonar frá Kirkjubóli í Bjarnadal í
Önundarfirði, sem hefði átt ald-
arafmæli á þessu ári. Til sýnis og sölu
verður afmælisdagabók með ljóðum
skáldsins sem út er að koma, en bók-
ina samdi Guðmundur Ingi á árunum
1927-32 og orti ljóð við hvern dag
ársins.
„Þau eru orðin æði mörg vest-
firsku skáldin sem komið hafa við
bókmenntasöguna frá upphafi enda
er dagskránni m.a. ætlað að minna á
þær gersemar sem við Vestfirðingar
eigum í íslenskri bókmenntasögu,“
segir Ólína.
Göfugur félagsskapur
Vestfjarðaakademían var stofnuð
fyrir tveimur árum í anda Reykja-
víkurakademíunnar. Hún er, að sögn
Ólínu, göfugur félagsskapur fólks
sem fært er um að sinna rannsóknum
og fræðastörfum og hefur metnað til
eflingar háskóla- og þekkingarsam-
félaginu á Vestfjörðum með því að
standa fyrir fyrirlestrum og akadem-
ísku starfi.
Formaðurinn Ólína gerir sér vonir
um að Vestfirðingar taki nú við sér
og fjölmenni á menningarhátíðina í
Holti. Dagskráin er opin öllum á
meðan húsrúm leyfir og kaffiveit-
ingar verða í boði.
Ólína sagði skilið við borgarlífið ár-
ið 2001 þegar hún fluttist vestur á
Ísafjörð og segist nú svo gott sem
hafa skotið þar rótum. „Ég vissi svo
sem áður að hér væri gott að búa því
ég bjó fyrir vestan sem unglingur og
hér á ég allt mitt tengdafólk.“
Ólína starfar nú sem verkefna-
stjóri hjá Stofnun fræðasetra Há-
skóla Íslands þar sem hún sinnir
stjórnsýsluverkefnum, kennslu og
rannsóknum. „Allt annað sem ég tek
mér fyrir hendur má segja að falli
undir hattinn „áhugamál“ hjá mér.
Ég ásamt öðrum áhugamönnum um
framsækna frétta- og fjölmiðlun á
Vestfjörðum stofnaði til dæmis ný-
lega vefmiðilinn www.skutull.is til
mótvægis við bæjarmálgagnið Bæj-
arins bestu. Við nýja miðilinn vinna
menn alfarið í sjálfboðavinnu.
Svo er nóg að gera í þjálfun björg-
unarhundsins Blíðu, sem ég fékk til
mín sem hvolp fyrir rúmum tveimur
árum. Blíða er atorkumikil tík af dal-
matíukyni sem þarfnast töluverðrar
vinnu. Hún þarf í sína daglegu
göngutúra og björgunaræfingar fara
svo fram tvisvar í viku auk þess sem
við „mæðgurnar“ mætum í æfinga-
búðir til Reykjavíkur mánaðarlega
yfir vetrartímann ásamt öðrum
björgunarhundum og eigendum
þeirra,“ segir Ólína.
En hvernig stóð á því að Ólína fór í
hundana?
„Ég átti hund í fjórtán ár hér á ár-
um áður, en hef ekki staðið í mark-
vissri hundaþjálfun fyrr en nú. Auk
þess finnst mér meiri tilgangur í því
að þjálfa upp hund til björgunar-
starfa en til sýningastarfa því ég vil
að hundurinn minn geti gert gagn.
Ég gekk því í Björgunarfélag Ísa-
fjarðar, sem er deild innan Lands-
bjargar, þegar ég hóf hundaþjálf-
unina. Ég hafði stundað
hestamennsku í fjörutíu ár, en lét
hrossin frá mér með miklum trega
fyrir þremur árum þar sem mér
fannst ég ekki hafa nógu góðan tíma
til að sinna þeim. Ári síðar var ég
komin í hundana.“
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Ólína og Blíða „Mæðgurnar“ mæta tvisvar í viku á æfingu hjá Björgun-
arfélagi Ísafjarðar og fara mánaðarlega í æfingabúðir til Reykjavíkur.
„Hvíld, ganga og
menning er mitt
andlega helgarfóður“
Göngutúrinn: Það er náttúrlega göngutúr um friðland Hornstranda á
fallegum júlídegi.
Sundlaugin: Vesturbæjarlaugin í Reykjavík. Þangað fer ég alltaf þegar
ég kem til Reykjavíkur.
Besti tími dagsins: Milli klukkan tíu að kvöldi til tvö að nóttu á fallegu
vorkvöldi. Þá langar mann að vaka og þá er maður fullur af orku.
Best að borða: Íslenskt lambalæri à la mamma og amma.
Uppáhaldsveitingastaður: Ég hef alltaf haldið tryggð við Hornið í
Reykjavík. Það er bara kósí staður.
Fallegasti staður á landinu: Það er án efa Hornvíkin og annar valkostur
væri Álftafjarðarbotn á fallegum degi.
Ólína mælir með …
Róbótadans er vissulega hugtak sem finna má innan
dansins, en öllu sjaldgæfara er að sjá róbóta dansa.
Krakkarnir á þessari mynd virða þó hugfanginn fyrir
sér hóp smágerðra róbóta stíga dans í Lianyungang, í
austurhluta Kína. Róbótarnir, sem eru um 26 cm háir,
eru verk starfshóps við Vísinda- og tækniháskóla Kína.
Reuters
Vélrænn taktur í danssporum
Skáldskaparþingið „Vestfirsku
skáldin“ hefst kl. 16.00 á sunnu-
daginn í Holti í Önundarfirði.
fjórelleftur L † 44 ára gamall
Loks er ég
orðinn fjórelleftur