Morgunblaðið - 22.12.2007, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 349. TBL. 95. ÁRG. SATURDAY 22. DECEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
Leikhúsin í landinu
Það er gaman
í leikhúsi >> 52
Fáðu heitustu íslensku og erlendu lögin
til eignar í Vodafone tónlistarsímann þinn
Gríptu augnablikið og lifðu núna
RIFJAR UPP JÓL
ELDRAUÐ SNJÓÞOTA VAR ÞAÐ FLOTTASTA
SEM TIL VAR Í VERÖLDINNI >> BÖRN
FRÉTTASKÝRING
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
MIKLAR breytingar hafa orðið á
eignarhaldi Eimskipafélagsins síðan
brot þau sem Samkeppniseftirlitið
hefur úrskurðað um áttu sér stað.
Mörgum er í fersku minni hrókering-
arnar frægu sem urðu í íslensku at-
hafnalífi haustið 2003 þegar Lands-
bankinn og tengdir aðilar náðu
völdum í félaginu. Fram til þess má
segja að óskabarn þjóðarinnar hafi
verið dýrmætasti steinninn í safni
Kolkrabbans svokallaða, sem hafði
töglin og hagldirnar í stjórn félagsins
um áratuga skeið. Eftir að hinir nýju
eigendur höfðu lagt í miklar breyt-
ingar á skipulagi félagsins var það
selt um mitt ár 2005 til Avion Group
þar sem Magnús Þorsteinsson var
helsti eigandi. Hann setti félagið síð-
an á markað í ársbyrjun 2006 en er
enn stærsti hluthafinn í því, ásamt
Björgólfi Guðmundssyni.
Félagið er því ekki lengur í hönd-
um sömu eigenda og þegar málsatvik
umrædds máls áttu sér stað og fari
svo að Eimskip þurfi að greiða sekt
og skaðabætur vegna brotanna er alls
ekki útilokað að núverandi eigendur
muni leita réttar síns gagnvart fyrri
eigendum.
Það er ef til vill til marks um kald-
hæðni örlaganna, að æðstu stjórn-
endur Eimskipa í dag; þeir Baldur
Guðnason, forstjóri félagsins, og Guð-
mundur P. Davíðsson, forstjóri Eim-
skips á Íslandi, voru báðir hátt settir
starfsmenn Samskipa á sínum tíma –
en þeir voru að vísu báðir hættir þeg-
ar brotin áttu sér stað. Þá var Ás-
björn Gíslason, forstjóri Samskipa,
áður starfsmaður Eimskips.
Óskabarn Mikið hefur breyst.
Eignarhald
Eimskips
breytt
Stjórnendur
hinum megin borðs
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
TEKJUR Reykjavíkurborgar, og þar með útgjöld
einstaklinga og fyrirtækja, vegna lóðaleigu af
íbúðar- og atvinnuhúsnæði og fasteignasköttum
koma til með að aukast um 1,2 milljarða á næsta
ári, með óbreyttum skatthlutföllum, að sögn Sig-
urðar Snævarr borgarhagfræðings.
Í gær birti yfirfasteignamatsnefnd ákvörðun
sína um breytingu á fasteignamati. Almenn hækk-
un á landsvísu er 12%, en fer eftir svæðum allt frá
6% upp í 20%. Fyrrnefndar tekjur borgarinnar
eru um 9,4 milljarðar á árinu 2007 að sögn Sig-
urðar og miðaði hann við 12% hækkun í Reykjavík.
Skattar lækka í Garðabæ, ekki í Reykjavík
Í samtali við Morgunblaðið sagði Dagur B. Egg-
ertsson borgarstjóri að hækkunin færi fram úr því
sem borgarstjórn hefði miðað við við gerð fjár-
hagsáætlunar, en almennar skattalækkanir væru
1,2 milljarða tekjuauka og 270 milljónum í sértæk-
ar aðgerðir væri þá í raun kominn inn í fjárhags-
áætlun borgarinnar fyrir næsta ár kvaðst Dagur
ekki hafa séð nákvæmar tölur um áhrif hækkunar-
innar á fjárhaginn en borgarstjórn myndi fara yfir
málið sem fyrst á nýju ári.
Að sögn Gunnars Einarssonar, bæjarstjóra í
Garðabæ, munu fasteignaskattar þar lækka á
næsta ári svo íbúar fái örlitla raunlækkun á sínum
greiðslum. Ekki fengust upplýsingar um tekju-
auka Kópavogs og Hafnarfjarðar vegna fasteigna-
matsins. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópa-
vogi, sagði sérstakar skattalækkanir ekki á
dagskrá vegna þessa, en sagði bæinn engu að síð-
ur hafa minnkað álögur að undanförnu. Lúðvík
Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, sagði hækk-
unina yfir forsendum fjárhagsáætlunar næsta árs.
Ákvörðun um hugsanlega lækkun gjalda sagði
hann tekna eftir áramót þegar bæjarstjórn og
bæjarráð taka aftur til starfa. „Það er alveg ljóst
að við þurfum að skoða þau mál,“ sagði hann. | 4
ekki á dagskrá. Frekar kæmi til greina að létta
álögum af einstökum hópum fólks. „Við vorum bú-
in að áætla hækkunina og búin að setja til hliðar
270 milljónir í sérstakar aðgerðir í húsnæðismál-
um. Við munum fara yfir hverjir standa höllum
fæti á húsnæðismarkaði og reyna að tryggja að
þeir fjármunir nýtist þeim best sem þurfa mest á
þeim að halda.“ Aðspurður hvort mismunurinn á
Tekjur Reykjavíkur
aukast um 1,2 milljarða
Gjöld og skattar fylgja 12% hækkun fasteignamats Skattalækkun ekki á dagskrá
Í HNOTSKURN
»Hjá Reykjavíkurborg er lóðaleiga 0,08% afbæði atvinnu- og íbúðarhúsnæði, en fast-
eignaskattar nema 0,225% af matsverði íbúð-
arhúsnæðis og 1,65% af atvinnuhúsnæði.
»Holræsagjald í Reykjavík er 0,105% afmatsverði húsnæðis og lóðar, en það renn-
ur ekki í borgarsjóð, heldur til OR. Vatnsgjald
miðast við fermetrafjölda húsnæðis og er því
óháð breyttu fasteignamati.
Í DAG er sólargangur stystur – á
vetrarsólstöðum – á morgun fer
daginn að lengja á ný. Samkvæmt
Almanaki Háskólans eru sólstöður,
eða sólhvörf, sú stund þegar sól
kemst lengst frá miðbaug himins til
norðurs eða suðurs. Sólstöður eru
tvisvar á ári, á tímabilinu 20.-22.
júní og 20.-23. desember. Breyti-
leiki dagsetninganna stafar fyrst
og fremst af hlaupársdögunum sem
skotið er inn vegna þess að alman-
aksárið er ekki jafnlangt árstíða-
árinu.
Í skammdeginu er hver sólar-
geisli mikils virði, eins og berlega
sást á Eskifirði í vikunni.
Á þessum stysta degi ársins gerir
veðurspá ráð fyrir suðvestanátt,
víða 8-13 m/s og éljum. Léttir til
austanlands síðdegis. Hiti verður
nálægt frostmarki.Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Dimmast
í dag en
svo birtir