Morgunblaðið - 22.12.2007, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 22.12.2007, Blaðsíða 29
borgarstöðvarnar frá því að Lífæðin fór í loftið.    Nú líður að lokum þessa árs sem hefur verið Bolvíkingum á margan hátt hagstætt. Hér um slóðir eru menn því ekkert á því að bogna við tímabundna erfiðleika í atvinnuþátt- um heldur nota niðursveifluna til að búa sig undir að takast á við nýja tíma og ný tækifæri. Bolvíkingar senda öllum lands- mönnum nær og fjær sínar bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á nýju ári með góðum þökkum fyrir árið sem senn kveður. Morgunblaðið/Baldur Smári Jólaskemmtan Jólasveinar í heim- sókn hjá bolvískum börnum. arborg varð síðan illa úti eftir árásir seinni heimsstyrjaldarinnar en end- urbygging gekk hratt og vel. Alls staðar þar sem nútímalegar bygg- ingar standa við hlið gamalla, virðu- legra bygginga má gera ráð fyrir að sprengja hafi fallið á sínum tíma. Alls staðar eru jólaljós og skreytingar, Vín er greinilega jólaborg. Í fyrsta hverfi er nóg af kaffi- húsum, sem eru aðalsmerki Vínar- borgar. Demel er fornfrægt bakarí og kaffihús og má kalla sig konunglegt og keisaralegt samkvæmt gömlum samningi. Þar er fullt út úr dyrum um miðjan desember þar sem heima- menn og ferðamenn finna skjól fyrir kulda og trekki. Lítil sérbökuð Sacherterta verður fyrir valinu og veldur ekki vonbrigðum. Mjög sæt að vísu, en sterkt og gott kaffið vegur upp á móti. Sumir segja að Sacher- terta Demels sé betri en hin upp- runalega frá Hótel Sacher, en það er erfitt að gera upp á milli. Staðirnir eru í göngufjarlægð hvor frá öðrum og auðvelt að gera samanburð. Vínarborg er staður fyrir sælkera, þ.e.a.s. þá sem eru mikið fyrir sæt- indi, súkkulaði og kökur. Patisserie eða bakarí eru víða í Vínarborg og úr- valið er erfitt fyrir sælkera; á að velja sér lítið sérbakað vínarbrauð, sacher- tertu, konfektmola, mozartkúlu eða makkarónuköku? Kaffihúsin bjóða upp á allar gerðir af kaffi, tei og kakói, sem ekki er óal- gengt að bragðbætt sé með líkjör. Þetta eru góðir staðir til að skoða mannlífið, ekki síst á sumrin þegar kaffihúsin breiða úr sér um stræti og torg. Dæmi um það er Kleines café, sem eins og nafnið bendir til er afar lítið. Stærðarmunurinn á vetri og sumri er margfaldur, því á sumrin hefur kaffihúsið nær allt Franzisk- anerplatz til umráða. Jóla- og matarmarkaðir Fyrir utan fyrsta hverfi eru það a.m.k. sjötta og sjöunda hverfi sem þarfnast skoðunar í stuttri heimsókn. Í sjöunda hverfi er Museums- Quartier, safnahverfið, þar sem ýmis söfn eru samankomin á litlu svæði. Þar er t.d. barnalistasafn og nútíma- listasafnið MUMOK. Þarna er gaman að ganga í gegn og í kring er mikið af kaffihúsum og litlum búðum. Í sjötta hverfi er Naschmarkt, skrautlegur matarmarkaður, þar sem margt er að sjá. Jólamarkaður er við Karlsplatz sem er sporvagnastöðin fyrir Naschmarkt. Þar er hægt að stoppa og fá sér glühwein, heitt, kryddað rauðvín, ekki ósvipað glögg, til að hita sig upp fyrir Naschmarkt. Þar ætti maður frekar að fá sér ostr- ur og kampavín eins og margir gæddu sér á þetta laugardagshádeg- ið. Á Naschmarkt eru bæði hefð- bundnar sælkeraverslanir og ávaxta- og grænmetissalar með varninginn undir skýlum. Sykraður appels- ínubörkur, þurrkað mangó eða jarð- arber, alls konar hnetur og konfekt og brauð og ostar af öllum gerðum blasa við og ilma ómótstæðilega. Og gerir að verkum að enginn fer svang- ur frá Naschmarkt. Hnossgæti Á Naschmarkt eru bæði hefðbundnar sælkeraverslanir og ávaxta- og grænmetissalar með varninginn undir skýlum. Ljósmynd/Steingerður Vetur Mælt er með að dúða sig vel fyrir Vínarheimsókn í desember. Skrautlegar Jólakúlur eru meðal varningsins á jólamörkuðunum. MORGUNBLAÐIÐ SATURDAY 22. DECEMBER 2007 29 MAK Stubenring 5 www.mak.at Stephansdom Stephansplatz Demel Kohlmarkt 14 www.demel.at Hótel Sacher Philharmonikerstraße 4 www.sacher.com MuseumsQuartier www.mqw.at Naschmarkt Á milli Linke Wienzeile og Rechte Wienzeile
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.