Morgunblaðið - 22.12.2007, Blaðsíða 2
2 SATURDAY 22. DECEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
FRÉTTASKÝRING
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
NÚGILDANDI ákvæði um nálgunarbann
eru gölluð, að mati saksóknara hjá ríkissak-
sóknara, sem telur kerfið allt of þungt í vöfum
og til þess fallið að letja brotaþola að fara fram
á nálgunarbann. Marga mánuði getur tekið að
fá úrskurð um nálgunarbann. Dómsmálaráð-
herra lagði í haust fram á Alþingi frumvarp til
laga um nálgunarbann, en á því eru litlar efnis-
legar breytingar. Ráðherra vildi ekki tjá sig
efnislega um löggjöfina þegar eftir því var leit-
að, sagði málið tekið fyrir á þingi og kjörið að
ræða það þar.
Á fimmtudag staðfesti Hæstiréttur úrskurð
Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að karl-
maður sætti nálgunarbanni í þrjá mánuði
gagnvart fyrrverandi eiginkonu sinni. Fallist
var á að rökstudd ástæða væri til að ætla að
aldrei síðar en innan tveggja vikna. Þrátt fyrir
breytingar þykir ekki nægilega langt gengið.
Ef litið er til Noregs er það ákærandi sem
tekur ákvörðun um nálgunarbann og skal
leggja ákvörðunina fyrir dóm í síðasta lagi
innan þriggja sólarhringa frá því hún var tek-
in.
Saksóknari hjá ríkissaksóknara telur slíkt
ákvæði vel eiga heima í íslenskum lögum og til
mikilla bóta fyrir brotaþola yrði ef lögregla og
ákæruvald fengi heimild til að taka ákvörðun
um nálgunarbann, a.m.k. til bráðabirgða.
Bendir hann á að lögregla hafi heimild til
handtöku án þess að dómsúrskurður liggi
fyrir, en í handtöku felst almennt mun meiri
skerðing á frelsi manns en í nálgunarbanni.
Ekki náðist að afla upplýsinga um beiðnir til
lögreglu um nálgunarbann á umliðnum árum
en árið 2005 var í Héraðsdómi Reykjavíkur
enginn úrskurður vegna nálgunarbanns og ár-
ið 2004 var einn úrskurður.
Dómsmálaráðherra lagði fram í haust tvö
frumvörp til laga, annars vegar um meðferð
sakamála og hins vegar um nálgunarbann.
Nokkrar breytingar eru gerðar á löggjöf um
nálgunarbann, t.a.m. skal lögregla taka af-
stöðu til beiðninnar svo fljótt sem auðið er –
viðkomandi mundi fremja afbrot eða raska á
annan hátt friði konunnar. Tíu tilkynningar
lágu fyrir hjá lögreglu vegna ófriðar af völdum
mannsins, þar á meðal voru tvær kærur vegna
líkamsárásar – annars vegar á konuna og hins
vegar dóttur beggja.
Lögregla eða ákæruvald fái heimild
Í núgildandi lögum er fjallað um nálgunar-
bann í lögum um meðferð opinberra mála.
Lögregla gerir kröfu um nálgunarbann en ekki
er gert ráð fyrir að slík krafa sé gerð nema að
beiðni þess sem sætt hefur ógn eða ónæði af
hendi annars manns. Telji lögregla ekki heim-
ild til að leggja fram kröfu getur viðkomandi
kært þá ákvörðun til dómsmálaráðuneytisins.
Eftir að dómara berst krafa um nálgunarbann
ákveður hann stað og stund þinghalds og gefur
út kvaðningu á hendur þeim sem krafan bein-
ist að. Afar langan tíma getur því tekið að
ákvarða hvort nálgunarbanni skuli beitt.
Fáir nýta sér úrræði um nálgunarbann
Í núgildandi lögum er fjallað um nálgunarbann í lögum um meðferð opinberra mála Kerfið
þungt í vöfum og mánuði getur tekið að fá úrskurð Lögregla fái heimild til að beita úrræðinu
Í HNOTSKURN
»Í 110. gr. laga um meðferð opinberramála er fjallað um nálgunarbann.
»Nái ný frumvörp fram að ganga verðurbreyting þar á.
»Með nýju lögunum verður lögreglumarkaður tími til að taka afstöðu til
beiðni um nálgunarbann.
»Saksóknari hjá ríkissaksóknara villganga lengra og veita lögreglu heimild
til að taka ákvörðun um nálgunarbann.
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
„VIÐ erum ekki við samn-
ingaborðið að velta fyrir
okkur einstaka liðum vísi-
tölu neysluverðs,“ segir
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Alþýðu-
sambands Íslands, spurður
hvort töluverðar matvæla-
hækkanir, sem fyrirséð er að
kunni að eiga sér stað á
næsta ári, verði skoðaðar
sérstaklega í komandi kjara-
samningum. „Við höfum bent á að mikil óvissa
sé framundan í efnahagsmálum almennt. Vextir
eru mjög háir, krónan er mjög sveiflukennd og
hefur veikst að undanförnu,“ segir hann. Við
bætast svo hækkanir á heimsmarkaðsverði, t.d.
á korni, og fasteignaverð er hátt. „Þetta þýðir
einfaldlega að á næsta ári verður mikil óvissa
um framvindu verðlags,“ segir Gylfi sem telur
þróunina áhyggjuefni. Hann segir að ASÍ leggi
til við stjórnvöld að næstu kjarasamningar
verði gerðir til tveggja ára. „Við teljum okkur
þurfa að hafa endurskoðunarákvæði eftir ár ef
allt fer á versta veg, ef fyrirtækin í landinu velta
þessu öllu [hækkunum] út í verðlagið og ekkert
kemur á móti til að slá á,“ segir Gylfi.
Atvinnulíf og stjórnvöld
hafa ýmsar leiðir
ASÍ telur reyndar ýmsar leiðir færar til að
bregðast við, bæði af hálfu atvinnulífs og stjórn-
valda. „Ef hægt verður að ná fram lækkun
vaxta mun álagið á húsnæðislið vísitölunnar
lækka,“ tekur Gylfi sem dæmi. Hann segir að
aðalatriðið sé í raun að stöðva þensluna í hag-
kerfinu, en hún ein og sér leiði til hækkana og
verðbólgu. „Ef hægt er að létta á þeim þrýstingi
verður auðveldara fyrir okkur að takast á við
áhrif af hækkandi afurðaverði erlendis frá.“
Óvissa um framvindu
verðlags á næsta ári
Í HNOTSKURN
»Samkvæmt vísitölu Matvæla- og land-búnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna
hefur matvælaverð hækkað að meðaltali
um 40% á árinu.
»Uppskerubrestur og ræktun lífrænseldsneytis hefur valdið því að minna
framboð er á korni til manneldis.
» Í Morgunblaðinu í gær kom fram aðmjólkurvörur hækka um áramót.
Verðið verður endurskoðað aftur í síðasta
lagi um mitt næsta ár. Líkur séu á frekari
hækkunum m.a. vegna hærra áburð-
arverðs.
Gylfi
Arnbjörnsson
ASÍ vill endurskoðun kjarasamninga eftir eitt ár vegna óvissunnar
SKAÐABÓTAKRAFA Alcan á Íslandi á
hendur stóru olíufélögunum þremur nem-
ur um 190 milljónum króna. Skaðabótamál
Alcans var tekið fyrir í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær, en fyrirtækið telur sig
hafa orðið fyrir tjóni vegna ólögmæts sam-
ráðs olíufélaganna. Forráðamenn Alcans
telja fyrirtækið hafa þurft að greiða elds-
neyti of dýru verði vegna kaupa til álvers-
ins í Straumsvík.
Alcan fer fram
á 190 milljónir
Morgunblaðið/Júlíus
ÓVENJU þung umferð var á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær. Sam-
kvæmt upplýsingum lögreglunnar var ástandið óvenju slæmt, því í
gær var þung umferð á öllum stóru umferðaræðunum. Jafnvel Sæ-
brautin, sem er alla jafna greiðfær, tepptist. Mikil umferð var einnig
við Smáralind. Margir bílstjóranna voru að sögn lögreglu fremur
óþreyjufullir. Ekki urðu þó fleiri óhöpp en vanalega á þessum tíma,
svo segja má að umferðin hafi gengið vel eftir atvikum. Lögreglan
býst við mikilli umferðarös fram að jólum.
Morgunblaðið/Eggert
Mikill umferðarþungi í höfuðborginni til jóla
HÆSTIRÉTTUR hefur úrskurðað tvo
karlmenn, litháíska ríkisborgara, í gæslu-
varðhald til 31. janúar nk. vegna gruns um
gróft kynferðisbrot í miðborg Reykjavíkur
í byrjun nóvember. Áður hafði Héraðs-
dómur Reykjavíkur úrskurðað mennina í
varðhald til 29. febrúar nk.
Samkvæmt rannsóknargögnum eru
mennirnir undir sterkum grun um að hafa
í sameiningu ráðist á konu í húsasundi í
miðborginni og nauðgað henni á hrotta-
fenginn hátt. Fram kemur í úrskurði hér-
aðsdóms að ríkissaksóknari hefur gefið út
ákæru á hendur mönnunum.
Ákærur gefnar
út vegna
nauðgunar
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest gæslu-
varðhaldsúrskurð yfir sextán ára síbrota-
manni. Hann sætir varðhaldi á meðan mál
hans eru til meðferðar fyrir Hæstarétti, en
ekki lengur en til 28. febrúar nk. Pilturinn
hefur setið í varðhaldi frá 27. apríl sl.
Í greinargerð ríkissaksóknara kemur
fram að pilturinn hafi verið dæmdur í júlí
sl. í 20 mánaða fangelsi fyrir fjölmörg
hegningarlagabrot, meðal annars rán.
Í ágúst sl. var hann þá dæmdur í tveggja
og hálfs árs fangelsi fyrir stórfellda lík-
amsárás. Báðum dómum hefur verið áfrýj-
að til Hæstaréttar.
Er talið að yfirgnæfandi líkur séu á því
að pilturinn muni halda áfram afbrotum
verði hann látinn laus.
Sextán ára piltur
áfram í gæslu