Morgunblaðið - 22.12.2007, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SATURDAY 22. DECEMBER 2007 51
GESTIR í spurningaleiknum Orð
skulu standa í dag eru Björn Karls-
son brunamálastjóri og Kári Kaaber
málfræðingur. Á milli þess sem þeir
velta fyrir sér m.a. „brunakvæði“ og
„dolfallinn“ botna þeir þennan
fyrripart:
Bráðum koma blessuð jólin,
birtir til og hiti vex.
Um nýliðna helgi var fyrripart-
urinn þessi:
Kertasníkir, Giljagaur,
Gáttaþefur, Stúfur.
Í þættinum botnaði Benedikt Erl-
ingsson:
Konu sína giljar gaur,
gáttir opnar stúfur.
Davíð Þór Jónsson:
Kaupa fyrir hvern sinn aur
kynhlutlausar húfur.
Ólöf Eldjárn bjó til jólasveinanöfn
á karlmenn sem standa henni næst:
Hallakíkir, Höfuðpaur,
Hrikalegur, Ljúfur.
Meðal hlustenda botnaði Auðunn
Bragi Sveinsson:
Sökkva nú í sand og aur,
með sínar rauðu húfur.
Magnús Halldórsson á Hvolsvelli:
Og heimilisins höfuðpaur,
hann er ekki ljúfur.
Halldór Halldórsson:
Einnig er þar Stekkjastaur,
stórvaxinn og ljúfur.
Hallberg Hallmundsson:
Fyrstur kom þó Stekkjastaur,
sem stalst í ánna júfur.
Vegna erfiðleika með tölvupósts-
kerfi RÚV eru þeir, sem sendu þætt-
inum tölvupóst í desember, beðnir
að senda hann aftur, sé þess nokkur
kostur.
Orð skulu standa
Bráðum koma blessuð jólin
Morgunblaðið/ÞÖK
Hátíð ljóss og friðar Nú fer spenningurinn víða að ná hámarki.
Hlustendur geta sent sína botna í
netfangið ord@ruv.is eða bréfleið-
is til Orð skulu standa, Ríkisút-
varpinu, Efstaleiti 1, 150 Reykja-
vík.
EINHVER athyglisverðasti tón-
listarmaður landsins er Benni
nokkur Hemm Hemm. Eftir tvær
ágætar breiðskífur sendir Benni
nú frá sér sjö laga stuttskífu, Ein
í leyni.
Tónlist Benna Hemm Hemm
telst óneitanlega til krúttkynslóð-
arpoppsins svokallaða, þar sem
notkun akústískra hljóðfæra er í
öndvegi og allt er dæmalaust af-
slappað. Blásturshljóðfæri eru
smekklega notuð og kunnuglegt
klukkuspil undirstrikar krútt-
stemninguna. Á stundum er raun-
ar eins og Benni Hemm Hemm,
Múm, Hjaltalín og fleiri krúttbönd
hafi gleymt sér við músíkfitl í ein-
hverri leikfangabúð, með klassísku
instrúmentin í farteskinu, eftir
annasaman dag í blásara- og
strengjadeildum einhvers tónlist-
arskólans.
Hið akústíska kæruleysispopp
krúttkynslóðarinnar er oftast nær
ósköp sætt og ber ekki að lasta,
þótt líftími þess sem móðins meg-
instraums sé orðinn ótrúlega lang-
ur. Ýmsa er farið að lengja eftir
nýjum nálgunum og telja tíma-
bært að lopahúfum verði nú lagt
og prímusum skipt út fyrir alvöru
eldavélar. En það er önnur saga.
Lögin á Ein í leyni renna ljúf-
lega í gegn en eru innbyrðis svo-
leiðis keimlík. Þau hreyfa lítið við
manni þótt haglega séu samin og
fallega flutt. „Friðþjófur og Ingi-
björg“ ber þó af öðrum og hlýtur
að teljast með betri lögum ársins.
Þar gengur allt upp í frábærri út-
setningu, fögrum texta og ynd-
islegri melódíu.
Benni Hemm Hemm er tví-
mælalaust til afreka fallinn og
stuttskífa þessi er því rétt eins og
sæmilegasti forréttur fyrir næsta
aðalrétt. Sá gæti allt eins orðið að
fimm stjörnu veislu.
Krútt
Orri Harðarson
TÓNLIST
Geisladiskar
Benni Hemm Hemm – Ein í leyni
Fréttir
í tölvupósti
á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri, Selfossi og
í Keflavík um jól og áramót 2007
* Skv. áfengislögum er óheimilt að hafa opið á sunnudögum.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
0
9
3
8
Afgreiðslutíma vínbúða um allt land má sjá á www.vinbud.is