Morgunblaðið - 22.12.2007, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SATURDAY 22. DECEMBER 2007 53
Eftir áramót hefst einn vin-sælasti spurningaþáttur ís-lensku þjóðarinnar, Gettu
betur, spurningakeppni framhalds-
skólanna. Hún var fyrst haldin árið
1986 og hefur skipað sinn sess hjá
landanum síðan, hvort sem hann er
á framhaldsskólaaldri eða ekki.
Dregið var í fyrstu umferð Gettu
betur 2008 á fimmtudaginn í beinni
útsendingu í Síðdegisútvarpi Rásar
2. Keppnin sjálf hefst svo í útvarp-
inu aðra vikuna í janúar og taka
þrjátíu framhaldsskólar þátt í
þetta skiptið.
Það er ýmislegt sem gerir Gettubetur að skemmtilegri keppni,
til dæmis metnaðurinn hjá unga
fólkinu og stemningin, spennandi
viðureignir jafningja og þegar
skólar sem ekki teljast sig-
urstranglegir komast langt og slá
jafnvel út skóla sem hafa verið rót-
grónir í efstu sætunum í mörg ár í
röð. Vissulega eru það sömu skól-
arnir sem mæta með hæfustu liðin
ár eftir ár, þeir skólar sem hafa
líklega mest fjármagn, tíma, nem-
endafjölda og metnað í keppnina,
en alltaf eru einhverjir sem koma á
óvart.
Í fyrra var fyrirkomulagi keppn-
innar breytt þannig að þeir átta
skólar sem komust lengst árið áður
fóru ekki í pottinn með hinum skól-
unum þegar dregið var í fyrstu
umferð heldur var dregið á móti
þeim, svo öruggt væri að þeir sem
teljast sterkastir lentu ekki á móti
hver öðrum strax.
Sama fyrirkomulag var haft á
úrdrættinum í ár. Sumum finnst
það ekki nógu skemmtilegt og
segja að þarna sé verið að tryggja
ákveðna skóla áfram. Að þetta
verði ekki alvörukeppni nema öll
liðin séu í sama potti og úrdrátt-
urinn geti farið hvernig sem er.
Það eigi ekki að gefa neinum betri
séns á að komast áfram.
Andrés Indriðason hefur séð um
Gettu betur fyrir hönd Rík-
isútvarpsins frá árinu 1991. Hann
segir hugmyndina að þessu fyr-
irkomulagi koma frá þeim nem-
endum sem sitja í stýrihóp Gettu
betur ásamt fulltrúum Ríkisút-
varpsins. Nú sitja þar nemendur úr
Menntaskólanum í Reykjavík,
Verslunarskóla Íslands, Mennta-
skólanum við Hamrahlíð og
Menntaskólanum í Kópavogi – fjór-
um skólum sem voru í undan-
úrslitum í Sjónvarpinu í fyrra.
Viktor Hrafn Hólmgeirsson siturí stýrihópnum og er nemandi í
Verslunarskóla Íslands. Hann segir
aðalhugsunina á bak við það að
átta bestu skólarnir frá árinu áður
dragist ekki á móti hver öðrum
vera þá að gera keppnina
skemmtilegri.
„Sem dæmi má nefna að fyrir
nokkrum árum sigraði Borg-
arholtsskóli Menntaskólann í
Reykjavík í fyrstu umferð í útvarp-
inu og það þótti miður þá að sú
keppni hefði ekki farið fram í sjón-
varpinu því þessi lið voru með
þeim bestu í keppninni og annað
þeirra datt strax út,“ segir Viktor
og bætir við: „Við erum í raun að
skapa betra sjónvarpsefni. Við er-
um að reyna að fá þær keppnir
sem eru mest spennandi í Sjón-
varpið í staðinn fyrir útvarpið.
Einn stærsti galli Gettu betur hef-
ur verið að keppnirnar eru ekki
nógu spennandi þegar í Sjónvarpið
er komið. En þar með er ekki sagt
að skólarnir sem voru meðal þeirra
átta bestu í fyrra verði góðir í ár.
Það getur alltaf komið fram nýtt,
sterkt lið og þá skiptir litlu máli á
móti hverjum það keppir, því það á
alltaf mjög góða möguleika á því
að komast langt.“
Viktor segir að þetta hafi mikiðverið rætt í stýrihópnum, sem
í sátu ásamt nemendunum Andrés
Indriðason, Þórhallur Gunnarsson
og Sigmar Guðmundsson. „Við vor-
um sammála um að þetta myndi
vonandi skapa skemmtilegra sjón-
varpsefni og að það yrði til hags-
bóta fyrir keppnina að sterkustu
liðin frá því í fyrra lentu ekki strax
á móti hvert öðru. Það ættu allir
að græða á því að bestu liðin mætt-
ust í Sjónvarpinu.“
Viktor tekur algjörlega fyrir það
að þetta sé ósanngjarnt gagnvart
öðrum liðum sem eigi þá kannski
minni möguleika á að lenda á móti
sínum jafningjum og komast eitt-
hvað áfram. Hann bendir á að það
séu aðeins átta skólar af 22 sem
eigi það á hættu að lenda á móti
þeim sem teljast sterkastir í það
skiptið.
Betra sjónvarpsefni
AF LISTUM
Ingveldur Geirsdóttir
» „En þar með er ekkisagt að skólarnir sem
voru meðal þeirra átta
bestu í fyrra verði góðir
í ár.“
Morgunblaðið/Eggert
Sigurvegarar Lið Menntaskólans á Akureyri sigraði Verslunarskólann í úrslitum Gettu betur árið 2006.
ingveldur@mbl.is
SANDUR MÖL
FYLLINGAREFNI
WWW.BJORGUN.IS
Sævarhöfða 33,
112 Reykjavík,
sími 563 5600
Það segir í einhverri auglýsingu að
Helga Möller sé rödd jólanna. Ég er
eiginlega sammála því – mér fyndist
jólin ekki vera eins ef ég heyrði ekki
aðeins í Þú og ég eða Helgu sjálfri
syngja jólalög. Á plötunni Hátíð-
arskap syngur hún bæði gamla slag-
ara úr eigin safni auk annarra
þekktra jólalaga.
Það sem einkennir plötuna er
kyrrð og ró.
Hér er ekki að
finna diskó-
fjörið frá í
gamla daga –
heldur rólegar
og yfirvegaðar
útsetningar
Magnúsar Kjartanssonar sem sóma
sér vel. Lagavalið á plötunni er
mjög gott auk þess sem Helga virð-
ist sjálf vera í stórgóðum gír og hafa
meiri unun af söngnum hér en oft
áður. Kannski kemur það ekki að
sök að hún hefur dregið sig út úr
popphasarnum því hér leyfir hún
sér að njóta sín á miklu ánægjulegri
vegu en ég hef áður kynnst. Ég get
ekki sleppt því að minnast á lagið
„Úti er alltof kalt“ en þar syngja
þau Helga og Magnús saman þýð-
ingu Kristjáns Hreinssonar á laginu
„Baby its Cold Outside“. Flutningur
þeirra ber vott um mikinn húmor.
Meiriháttar.
Hátíðarskap er skemmtileg jóla-
plata í safnið – hún er þó frekar fyr-
ir fullorðna en börn en það ætti ekki
að koma að sök.
Rödd jólanna?
TÓNLIST
Geisladiskur
Helga Möller – Hátíðarskapbbbmn
Helga Þórey Jónsdóttir
■ Vínartónleikar
Hinn árlegi og ómissandi gleðigjafi Sinfóníuhljómsveitarinnar í
ársbyrjun. Vinsælustu valsarnir, óperettuaríur, fjör og frábær
skemmtun.
Hljómsveitarstjóri: Ernst Kovacic.
Einsöngvari: Auður Gunnarsdóttir.
Fim. 3. janúar kl. 19.30 nokkur sæti laus,
fös. 4. janúar 19.30 örfá sæti laus og
lau. 5. janúar kl. 17 örfá sæti laus og kl. 21, laus sæti.
■ Fim. 10. janúar kl. 19.30
Ungir einleikarar
Sigurvegarar í einleikarakeppni Listaháskóla Íslands og
Sinfóníuhljómsveitarinnar þreyta frumraun sína með
hljómsveitinni.
Sinfóníuhljómsveit Íslands óskar tónlistarunnendum og
landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
Glæsilegur fatnaður í stærðum 38 til 60
Vertu þú sjálf - vertu bella donna
Opnunartímar til jóla: laugardag 11.00-20.00
þorláksmessa 12.00-20.00, aðfangadagur 10.00-12.00
www.belladonna.is
Skeifan 11d • 108 Reykjavík • 517 6460