Morgunblaðið - 22.12.2007, Blaðsíða 38
38 SATURDAY 22. DECEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Gíslína MargrétSörensen fædd-
ist í Vestmanna-
eyjum 15. febrúar
1917. Hún andaðist
á Hjúkrunarheim-
ilinu Eir í Reykja-
vík laugardaginn
15. desember síð-
astliðinn. For-
eldrar hennar voru
Jón Sören Sören-
sen, f. 24. sept-
ember 1891, og
Guðný Gísladóttir,
f. 8. febrúar 1895.
Hálfsystkini Gíslínu sammæðra
voru Sigríður, f. 15. september
1918, d. 14. febrúar 1999, Jón-
ína, f. 15 júní 1920, d. 25. sept-
ember 1992, Helgi, f. 5. febrúar
1923, d. 11. nóvember 1972,
Bjarnhéðinn f. 3. nóvember
1924, d. 26. febrúar 1969, Vig-
dís, f. 19. maí 1932, d. 24. des-
ember 1946, og Hreinn, f. 29.
júlí 1934. Hálfbræður Gíslínu
samfeðra voru Steingrímur, f.
20. september 1924, d. 9. febr-
úar 1946, og Sigurður, f. 9.
október 1927, d. 1. október
1942.
Eiginmaður Gíslínu var Ólaf-
ur Óskar Jónsson, bóndi og
mjólkurbifreiðarstjóri, f. í Sleif í
Vestur-Landeyjum 29. maí 1909,
d. í Reykjavík 15. ágúst 2003.
Foreldrar Ólafs voru hjónin Jón
Gíslason oddviti og
Þórunn Jónsdóttir
ljósmóðir, síðustu
ábúendur í Sleif.
Börn Gíslínu og
Ólafs eru: 1) Þór-
unn, hún á fimm
börn, 2) Ragna,
gift Einari Bene-
diktssyni, þau eiga
einn son, 3) Árni,
kvæntur Ester
Markúsdóttur, þau
eiga tvö börn, og 4)
Jón.
Gíslína og Ólafur
bjuggu á Eylandi í Vestur-
Landeyjahreppi frá 1938 til
1998. Þá fluttu þau til Reykja-
víkur og áttu heima hjá Jóni,
syni sínum. Fyrir tveimur árum
vistaðist Gíslína á Hjúkr-
unarheimilinu Eir. Unglingur
var Gíslína í ýmsum vistum, en á
sumrin heima hjá foreldrum sín-
um í Fróðholtshjáleigu, þeim
Guðnýju Gísladóttur og Árna
fósturföður sínum Helgasyni,
bónda þar. Á Eylandi bjó hún
manni sínum og fjölskyldu fag-
urt og hlýtt heimili og hlaut
enda viðurkenningu fyrir fal-
legan blómagarð, sem hún rækt-
aði af elju við heimili sitt.
Útför Gíslínu Margrétar fer
fram frá Akureyjarkirkju í
Vestur-Landeyjum í dag og
hefst athöfnin klukkan 11.
Í dag ertu, elsku amma mín,
lögð í þína hinstu hvílu en ég
kemst ekki til að kveðja þig. Ég
komst ekki heldur til að kveðja afa
og sennilega eru þetta örlögin að
sjá til þess að ég geri ykkur jafnt
undir höfði. Ég man að þið lögðuð
ykkur fram um að mismuna eng-
um og hvað þið voruð alltaf góð.
Ég verð að þakka foreldrum
mínum það tækifæri sem þau gáfu
okkur systkinunum að alast upp í
túnfætinum á Eylandi.
Þaðan á ég margar af mínum
bestu minningum frá uppvaxtarár-
unum. Í minningunni fórum við á
hverju kvöldi í kaffi til ömmu og
afa og oftar en ekki vorum við líka
þar um helgar. Stórum hluta af
sumrinu var varið í heyskap og
annað sem þurfti að sinna í sveit-
inni. Ekki má gleyma öllum þeim
stundum sem ég átti ein með
ömmu og afa í pössun í gamla
daga. Það var oft sem öll stór-
fjölskyldan var samankomin til að
þiggja allar þær góðu veitingar
sem amma bar fram á feiknahraða
og af einskærri snyrtimennsku. Þá
var nú ekki leiðinlegt að hlusta á
grínið í afa. Hann var einn mesti
háðfugl sem ég hef á ævinni hitt
og þú, amma, varst ein af mínum
bestu vinkonum. Það verður ekki
hjá því komist að minnast á mont-
ið sem því fylgdi að vera skyld
þessu sómafólki, sem átti þetta
fallega sveitabýli, með hvítmáluðu
steinunum sem skreyttu heimreið-
ina og blómstrandi garðinn um-
hverfis húsið. Útihúsin „hvíttuð“
reglulega og ef eitthvað þurfti að
laga var það gert strax. Það var
alls ekki óalgengt að koma að
henni ömmu með hamarinn
„Mjölni“ í hendi, þar sem hún tölti
um planið á leiðinni heim til að
hita kaffi. Hún var þá nýbúin í úti-
verkunum og lét ekki hjá líða að
reka nokkra nagla þar sem þurfti.
Þau amma og afi tóku alltaf á móti
okkur með hlýjum kossi og afi
klappaði mér og sagði: „Halló
frænka.“
Mig langar að þakka þér, elsku
amma mín, alla þá gleði, góðu
minningar og vináttu sem þú gafst
mér á lífsleiðinni. Ég læt ótalið
hér allt sem við brölluðum og
spjölluðum saman en geymi í
hjarta mínu minninguna um ókom-
in ár.
Berðu elsku Óla afa mínar bestu
kveðjur og þakkir fyrir allt. Vertu
sæl að sinni elsku amma mín.
Ég vil að lokum senda fjölskyld-
unni allri hjartkærar samúðar-
kveðjur.
Þín,
Hafdís Þóra,
með kveðju frá
Jim, Leytoni James og
Shelby Raven.
Það er gangur lífsins að eldri
hlekkjunum í ættarkeðjunum
fækkar en nýir bætast við og end-
urnýja og viðhalda keðjunni.
Gíslína Margrét Sörensen, sem
við kveðjum í dag, var kona Ólafs
Jónssonar frá Eylandi, sem lést
15. ágúst 2003. Ólafur var sonur
sæmdarhjónanna Þórunnar Jóns-
dóttur, sem var ljósmóðir í Vestur-
Landeyjahreppi í 56 ár og Jóns
Gíslasonar, sem var oddviti
hreppsins í yfir 40 ár. Ólafur var
einn af 12 börnum Þórunnar og
Jóns, en 10 komust til fullorðins-
ára. Systkinin eru nú öll dáin og er
Gíslína, sem við kveðjum í dag,
síðasti maki þessa systkinahóps.
Gíslína var glæsileg kona, alltaf
jafn vel til höfð, hvort heldur hún
var við heimilisstörfin eða upp á
búin. Heimili þeirra í Eylandi bar
smekkvísi og snyrtimennsku í allri
umgengni þeim hjónum góðan
vitnisburð. Öllu var vel við haldið
úti sem inni og vakti athygli allra
sem sóttu þau heim eða leið áttu
hjá.
Mér er minnisstætt frá því ég
var lítill drengur, að Ólafur, sem
var móðurbróðir minn, kom í
heimsókn að Uxahrygg, þar sem
foreldrar mínir bjuggu. Með hon-
um í för var Gíslína, þá unnusta
hans. Ólafur hafði gott tilefni til að
heilsa upp á systur sína og hennar
fólk og í leiðinni að sýna þeim hina
glæsilegu stúlku, sem hann hafði
trúlofast og valið sem lífsförunaut.
Mér er minnisstætt, þó ég væri
ekki nema sjö ára gamall, hversu
glæsilegt mér fannst þetta unga
par.
Um langt árabil stundaði Ólafur
akstur hjá Kaupfélagi Rangæinga
og flutti mjólk úr Landeyjum til
Selfoss. Það var oft langur og
strangur vinnudagur hjá Ólafi á
þessum tíma. Auk mjólkurflutn-
inga voru allar vörur, stórar og
smáar, fluttar frá kaupfélaginu út
um sveitirnar í hvernig veðrum
sem var. Þá voru ekki tæki til að
ryðja vegi í ófærð eins og nú er og
þá varð að ljúka dagsverkinu hvað
sem klukkunni leið.
Það gefur augaleið að við þessar
aðstæður reyndi oft mikið á hús-
móðurina, að sjá um heimilisstörf-
in, huga að búfénaði, annast börn-
in og hlúa að eiginmanni, þegar
hann kom heim oft eftir langan og
strangan vinnudag. Gíslína skilaði
þessu hlutverki af mikilli sam-
viskusemi, en ekki þarf að efast
um að þreyta hefur á stundum sótt
að henni. En það var ekki siður
fólks á þessum tíma, að kvarta
undan löngum eða ströngum
vinnudegi. Það leit ekki á það sem
böl, heldur sem sjálfsagða skyldu
að ljúka dagsverki hvers dags svo
að sómi væri að, áður en gengið
væri til hvílu, og þannig var Gísl-
ína. Hún lagði metnað sinn í að
gera heimilið að griðastað fyrir
fjölskylduna, þar sem hún nyti ör-
yggis og hlýju og börnin væru sem
best búin undir lífið, sem þeirra
biði. Með sanni má segja að það
hafi verið yfirskrift yfir lífi Gísl-
ínu.
Ég vil nú, þegar Gíslína kveður
þetta jarðríki, eftir rúmlega 90 ára
göngu, þakka henni og manni
hennar, Ólafi frænda mínum, fyrir
samfylgdina, vináttuna og tryggð-
ina sem ég og mitt fólk naut á lífs-
ferli þeirra.
Ég og kona mín sendum eftirlif-
andi börnum og fjölskyldum þeirra
dýpstu samúðarkveðju.
Magnús L. Sveinsson.
Gíslína Margrét
Sörensen
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐBJÖRG EINARS ÞÓRISDÓTTIR
(LILLÝ),
Kringlumýri 29,
Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn
28. desember kl. 13.30.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Sjúkrahúsið á Akureyri
og Heimahlynningu á Akureyri.
Tryggvi Gestsson,
Þórir Ólafur Tryggvason, Kristín Hallgrímsdóttir
Lára Hólmfríður Tryggvadóttir, Ómar Ólafsson,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ÁSLAUG JÓNSDÓTTIR,
Hrísalundi 4 c,
Akureyri,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 20. desember.
Björn J. Jónsson, Halldóra Steindórsdóttir,
Sævar Ingi Jónsson, Elín Gunnarsdóttir,
Ingibjörg Jónsdóttir,
Rósa Friðriksdóttir, Ólafur Halldórsson,
Atli Örn Jónsson, Arnfríður Eva Jónsdóttir,
Jón Már Jónsson, Unnur Elín Guðmundsdóttir,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐFINNA LÁRUSDÓTTIR,
Miðtúni 72,
Reykjavík,
lést laugardaginn 15. desember á Elliheimilinu
Grund.
Útför fer fram frá Laugarneskirkju fimmtudaginn
27. desember kl. 13.00.
Inga Gunnarsdóttir, Gylfi Gíslason,
Gunnar Gunnarsson, Gerður Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Eiginmaður minn og faðir okkar,
SIGÞÓR SIGURÐSSON,
Sólhlíð 19,
Vestmannaeyjum,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja
miðvikudaginn 19. desember.
Útförin auglýst síðar.
Valgerður K. Kristjánsdóttir,
Erla F. Sigþórsdóttir, Yngvi Geir Skarphéðinsson,
Anna K. Sigþórsdóttir, Einar Sigfússon,
Sigurbjörg Sigþórsdóttir,
S. Valþór Sigþórsson, Baldvina Sverrisdóttir,
Einar Sigþórsson,
Eyrún Ingibj. Sigþórsdóttir, Tryggvi Ársælsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær sonur minn, faðir okkar, afi og bróðir,
Árni Guðmundsson,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði
19. desember.
Útför hans fer fram frá Ísafjarðakirkju föstudaginn
28. desember kl.14.00.
Guðbjörg B. Árnadóttir,
Örvar Árdal Árnason,
Örn Árnason,
Aðalsteinn Örn Örvarsson,
Kjartan Veturliði Örvarsson,
Guðmundur Guðmundsson,
Pétur Guðmundsson,
Jónína Sesselja Guðmundsdóttir,
Ólafur Már Guðmundsson,
Einar Valur Guðmundsson og
Bergþóra Guðmundsdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður, bróðir, faðir, afi og langafi,
GEORG ÁMUNDASON,
andaðist á Háskólasjúkrahúsinu Fossvogi fimmtu-
daginn 20. desember.
Útför fer fram í Bústaðakirkju þann 4. janúar
kl. 13.00.
Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir,
Gréta María Ámundadóttir,
Vilhjálmur Georgsson, Ágústa Sigríður Jóhannesdóttir,
Kristján Georgsson, Guðrún Gunnarsdóttir,
Birgir Georgsson, María Hreinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
PETRÍNA SIGRÚN GEORGSDÓTTIR,
Hlíf 1,
Ísafirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsi Ísafjarðar fimmtudaginn
20. desember.
Salomon Sigurðsson og aðstandendur.