Morgunblaðið - 22.12.2007, Blaðsíða 27
gamalt og nýtt og mér þykir sérlega vænt um það sem
hefur tilfinningalegt gildi eins og gamalt jólaskraut sem
ég fékk frá tengdamömmu eftir að hún dó. Ef ég nefni að
ég ætli nú ekki að skreyta mikið fyrir einhver jólin þá
bregðast allir við með andköfum og taka það ekki í mál.
Vinkonum mínum finnst þetta vera eitt af því sem til-
heyrir jólunum. Mér finnst rómantíkin í kringum jólin al-
veg yndisleg með öllum sínum kertum og skreytingum.
Ég legg meira upp úr því að skreyta fallega heima hjá
mér heldur en einhverju öðru tilstandi. Ég stend til dæm-
is ekki í því að baka margar sortir af jólakökum en við
hjónin dundum okkur frekar við að búa til gott konfekt.“
Lokaflug með Arnarflugi
Ransý starfaði í átta ár hjá Árbæjarsafni og var í hópi
þeirra brautryðjenda sem fóru af stað með jólasýningar
safnsins þar sem gömlu jólin eru sett á svið. Hún er löngu
hætt að starfa sem flugfreyja enda var hún aðeins tvítug
þegar hún hóf störf í háloftunum. „Ég flaug í átta ár hjá
Loftleiðum en tók mér gott hlé þegar ég eignaðist börnin
mín. Þegar þau voru orðin stálpuð fór ég að fljúga hjá
Arnarflugi. Ég var líka eitt sumar í pílagrímaflugi og það
var heilmikið ævintýr. Maðurinn minn flutti á meðan með
börnin okkar út á land og tengdamamma hjálpaði honum.
En síðasta flug Arnarflugs var líka lokaflug mitt sem
flugfreyja.“
Englaskari Jólaenglana bjó Ransý til sjálf.
Sveinki Hann
er óneitanlega
góðlegur
ásýndar.
Jólabær Húsin koma frá dóttur Ransýar í Ameríku.
Jólaandinn Skrautið kemur úr ýmsum áttum og hefur tilfinningalegt gildi.
www.svolurnar.is
Á Skólvörðustíg 1 fást myndir eftir Ransý.
MORGUNBLAÐIÐ SATURDAY 22. DECEMBER 2007 27
Nú kemur að Gáttaþefi. Hann finnur lykt af jóla-bakstri úr mikilli fjarlægð. „Maður rennur bara
á lyktina,“ segir hann glaðlega þegar hann þrammar
af stað þann 22. desember. En hann gætir sín ekki á
leiðinni, þessi klaufi! Já, svona gerast óhöppin … Nú
jæja, við notum hann þá bara fyrir brú á heimleið-
inni. Ef hann skyldi þó komast alla leið heim til þín,
þá er best að allar dyr séu læstar. Annars er hætt við
að smákökurnar hverfi!
Kertasníkir leysir frá skjóðunni - Anja og Markus Kislich
Gáttaþefur – 22. desember
Einar Falur Ingólfsson. Kjartan Þorbjörnsson.
Komin er út bókin Í fyrsta kasti
eftir ljósmyndarana og stangveiðimennina
Einar Fal Ingólfsson og Kjartan Þorbjörnsson.
Jólagjöf stangveiðimannsins
Í þessari glæsilegu bók er að finna fjölda skemmti-
legra veiðisagna frá tugum viðmælenda þeirra félaga
ásamt óviðjafnanlegum ljósmyndum frá mörgum
helstu veiðisvæðunum hringinn í kringum Ísland.
Áskrifendum Morgunblaðsins býðst að fá þessa stórglæsilegu
bók á sérstöku verði með 25% afslætti. Fullt verð er 4.990
krónur en verð til áskrifenda er 3.750 krónur.
Bókina geta áskrifendur fengið í afgreiðslu Morgunblaðsins að
Hádegismóum 2, 110 Reykjavík eða pantað hana á mbl.is.
M
bl
94
06
02
„Feiknamerkileg bók, stútfull af spennandi
upplýsingum um veiðiár- og vötn.“
Bjarni Brynjólfsson, Veiðimaðurinn