Morgunblaðið - 22.12.2007, Síða 4
4 SATURDAY 22. DECEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
MATSVERÐ fasteigna, fasteigna-
mat, hækkar almennt um 12% frá
áramótum samkvæmt ákvörðun
yfirfasteignamatsnefndar, með
hliðsjón af breytingu verðlags fast-
eigna. „En svo eru ýmis frávik í
báðar áttir,“ segir Pétur Stefáns-
son, formaður nefndarinnar. Fast-
eignamat lækkar hins vegar hvergi
og hefur ekki gert sl. sex ár.
Hækkunin hefur m.a. áhrif á út-
svar en matið er lagt til grundvall-
ar við álagningu ýmissa opinberra
gjalda, s.s. fasteignaskatts, lóða-
leigu og holræsagjalds. Matið
hækkaði almennt um 10% í fyrra.
6-20% hækkun
Matsverð íbúðarhúsa og íbúðar-
lóða á Seltjarnarnesi, í Stykkis-
hólmi, á Blönduósi, Eyrarbakka,
Stokkseyri og í þéttbýli í Snæ-
fellsbæ hækkar um 16%. Á tveimur
stöðum hækkar matið um 20%, þ.e.
á Siglufirði og á Búðum í Fá-
skrúðsfirði. Spurður um skýringar
á því nefnir Pétur að hugsanlega
séu samgöngubætur á þessum
stöðum, fyrirhugaðar eða yfir-
staðnar, að hafa áhrif. Undir það
tekur bæjarstjóri Fjallabyggðar.
Minni hækkanir, eða um 6%, eru
á matsverði íbúðarhúsa á Akranesi
og á suðurfjörðum Vestfjarða m.a.
á Patreksfirði, Tálknafirði og
Bíldudal. Sömu sögu er að segja af
norðausturhorni landsins, á Kópa-
skeri, Raufarhöfn og Bakkafirði
sem og í Grímsey og Hornafirði.
Atvinnuhúsnæði hækkar
víða um 20%
Mest er hækkun á matsverði at-
vinnuhúsnæðis á höfuðborgar-
svæðinu, í Reykjanesbæ, Borgar-
nesi, Akranesi, Akureyri, Selfossi
og í Hveragerði eða 20%. Á nokkr-
um stöðum hækkar matið mun
minna eða um 6%, t.d. á Snæfells-
nesi, í Dalabyggð, á Þórshöfn, í
Vopnafjarðarhreppi og á ákveðnu
svæði á Suður- og Suðausturlandi.
Matsverð atvinnuhúsa og at-
vinnuhúsalóða verður óbreytt á
Vestfjörðum frá og með Reykhóla-
hreppi að og með Strandabyggð, í
Grímsey, Fjallabyggð, Norður-
þingi (að frátaldri Húsavík), Tjör-
neshreppi, Svalbarðshreppi,
Langanesbyggð (að frátaldri Þórs-
höfn) og í Vestmannaeyjum verður
óbreytt.
Matsverð sumarhúsa og sumar-
húsalóða hækkar um 20% á Suður-
og Suðvesturlandi svo og í Sval-
barðsstrandarhreppi, Fnjóskadal
og Aðaldælahreppi.
Fasteignaskattur lækkar
eða stendur í stað
Fasteignagjöld í Garðabæ munu
ekki hækka þrátt fyrir hækkanir á
fasteignamati. Þetta næst með því
að lækka fasteignaskatta á íbúða-
húsnæði úr 0,24% í 0,22% og sömu-
leiðis með lækkun vatnsskatts.
„Þetta gerir það að verkum að íbú-
ar í Garðabæ eru að borga um 5%
meira í fasteignagjöld en í fyrra,“
segir Gunnar Einarsson, bæjar-
stjóri. „Að jafnaði þýðir þetta ör-
litla raunlækkun.“
Hins vegar ákvað borgarstjórn
Reykjavíkur að halda hlutfalli fast-
eignaskatts óbreyttu milli ára sem
þýðir að fasteignagjöld borgarbúa
hækka í takt við hærra fasteigna-
mat. Á fundi borgarstjórnar lögðu
borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins fram tillögu um lækkun fast-
eignaskatta en sú tillaga var felld.
Sama staða er t.d. uppi í Hafnar-
firði.
Bjartsýni að aukast
„Þetta eru ánægjulegar fréttir,“
segir Þórir Kristinn Þórisson, bæj-
arstjóri Fjallabyggðar um 20%
hækkun fasteignamats á Siglufirði.
„Þetta segir okkur það að hjá okk-
ur er uppsveifla. Hér hefur fast-
eignaverð verið of lágt alltof lengi
og sú þróun er nú að breytast. Það
er meiri bjartsýni hér í fólki.“
Og ástæða bjartsýninnar eru
Héðinsfjarðargöng sem verða opn-
uð eftir tvö ár. „Þau munu breyta
gríðarlega miklu. Þetta sýnir okk-
ur að þróunin er þegar hafin.“
Í um áratug hefur það færst í
aukana að fólk kaupi íbúðarhús á
Siglufirði og búi þar hluta úr ári.
Eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði
hefur m.a. aukist af þeim sökum.
Lítið er enn um nýbyggingar. „En
við erum að stækka sjúkrahúsið og
leikskólann en íbúðarhús eru ekki í
byggingu hér að ráði,“ segir Þórir.
Hann segir ekki tilefni til að
lækka fasteignaskatta. Hlutfallið
verði það sama á næsta ári og í ár.
Hækkað fasteignamat á því eftir að
skila sér í auknum tekjum bæjar-
ins.
Fasteignamat mun
almennt hækka um 12%
Hækkanir á íbúðarhúsnæði mestar á Siglufirði og Fáskrúðsfirði
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Bjartsýni Fasteignamat íbúðarhúsnæðis á Siglufirði hækkar um 20% um áramótin. Það finnst bæjarstjór-
anum mikil gleðitíðindi og undirstrika þá bjartsýni sem ríki, m.a. vegna bættra samgangna.
Í HNOTSKURN
»Vísitala íbúðaverðs á höf-uðborgarsvæðinu var 351,9
stig í nóvember 2007 (janúar
1994=100) og lækkaði um 1,5%
frá fyrra mánuði.
»Síðastliðna 3 mánuði hækk-aði hún um 2,1%, síðast-
liðna 6 mánuði hefur hún
hækkað um 4,8%.
»Hækkun síðastliðna 12mánuði var 14,1%.
UMBOÐSMAÐUR Alþingis gerir at-
hugasemdir við þá túlkun dómsmálaráðu-
neytisins, að þóknanir, sem fangar fá fyrir
vinnu sína, séu ekki skattskyldar tekjur.
Tekur umboðsmaður undir þá afstöðu
fjármálaráðuneytisins, að orðalagið þókn-
un í lögum breyti engu um skattskyldu
þessara greiðslna.
Hefur umboðsmaður Alþingis beint
þeim tilmælum til dóms- og kirkju-
málaráðuneytisins að framkvæmd á
greiðslu þóknana til fanga fyrir vinnu eða
nám verði færð til þess horfs að hún sam-
rýmist ákvæðum gildandi skattalaga að
þessu leyti. Eigi að ná fram því markmiði,
að þóknanir fanga séu undanþegnar skatt-
skyldu, sé þörf á frekari lagabreytingum.
Telur tekjur fanga
skattskyldar
„ATHÖFNIN í dag staðfesti
með augljósum og skýrum hætti
fyrir mér, hve mikils virði er fyr-
ir Eistlendinga og aðrar þjóðir í
A-Evrópu að verða með þessum
hætti hluti af landamæralausri
álfunni,“ segir Björn Bjarnason,
dóms- og kirkjumálaráðherra,
sem var viðstaddur hátíðlega at-
höfn í Tallinn í Eistlandi, í gær, í
tilefni stækkunar Schengen-
svæðisins úr 15 ríkjum í alls 24.
„Þjóðirnar líta á þetta sem
lokaskrefið við að ljúka þeirri
einangrun, sem kommúnisminn
kallaði yfir þær. Auk þess stað-
festa þær enn betur samtöðu
sína með öðrum Evrópubúum.
Fagnaðarbylgjan var augljós í
Tallinn og endurspeglaðist í mik-
illi flugeldasýningunni yfir borg-
inni í lok hinnar formlegu athafn-
ar.“
Samanlagð-
ur íbúafjöldi í
ríkjunum 24
er um 400
milljónir
manna en nú
bættust Malta
og átta A-
Evrópuríki,
þ.á m. Tékk-
land, Ung-
verjaland, og
Eistland, í hópinn.
Björn sagði þetta ekki aðeins
skipta miklu fyrir þjóðirnar, sem
nú gerast aðilar að Schengen.
„Á milli Helsinki og Tallinn
sigla um fimm milljónir manna ár
hvert og Finnar eru þar í meiri-
hluta, þetta auðveldar þeim að
sjálfsögðu ferðina og á enn eftir
að auka tengslin milli þessara
tveggja þjóða sem hafið skilur.“
Schengen-ríki
fagna stækkun
Flugeldum skotið á loft í Tallinn
Björn
Bjarnason
Þú getur valið úr fjölbreyttu úrvali
ferða hjá þremur ferðaskrifstofum.
Allt í einu gjafabréfi.
Úrval-Útsýn: 585 4000
Sumarferðir: 514 1400
Plúsferðir: 535 2100
UMSÆKJENDURNIR þrír sem ekki fengu
stöðu héraðsdómara við Héraðsdóm Aust-
urlands þrátt fyrir að vera metnir hæf-
astir, munu allir óska eftir rökstuðningi
við ákvörðunina. Þetta kom fram í fréttum
Stöðvar 2 í gær.
Árni Mathiesen, settur dómsmálaráð-
herra, skipaði Þorstein Davíðsson aðstoð-
arsaksóknara og deildarstjóra hjá lög-
reglustjóraembætti höfuðborgarsvæðisins
í embættið. Nefndin sem fjallaði um hæfni
umsækjendanna komst að þeirri nið-
urstöðu að þrír þeirra væru mjög vel hæf-
ir, en tveir hæfir. Þorsteinn, sem áður
gegndi stöðu aðstoðarmanns dóms-
málaráðherra, var metinn hæfur. Þeir sem
sóttu um embættið voru, auk Þorsteins,
Guðmundur Kristjánsson hæstarétt-
arlögmaður, Halldór Björnsson aðstoð-
armaður hæstaréttardómara, Pétur Dam
Leifsson, lektor við lagadeildir Háskóla Ís-
lands og Háskólans á Akureyri, sem allir
voru metnir mjög vel hæfir og Ragnheiður
Jónsdóttir, löglærður fulltrúi sýslumanns-
ins á Húsavík, sem var metin hæf.
Óska eftir
rökstuðningi
RANNSÓKN lögreglu höfuðborgarsvæð-
isins á Fáskrúðsfjarðarmálinu svonefnda
er lokið og var málið sent embætti rík-
issaksóknara í gær. Lögregla leggur til að
sex verði ákærðir. Niðurstaða lögreglu-
embættisins er að rökstuddur grunur sé
um stórfelld brot á lögum um ávana- og
fíkniefni og almennum hegningarlögum.
Alls eru sex manns í haldi vegna máls-
ins. Varðhald yfir þremur þeirra var
framlengt til 29. janúar næstkomandi, en
einn er í varðhaldi til 10. janúar. Fimmti
maðurinn afplánar þegar fangelsisvist
vegna annarra mála, en sá sjötti er í haldi
lögreglunnar í Færeyjum.
Alls var lagt hald á um 40 kíló af fíkni-
efnum, þar af um 24 kíló af amfetamíni, 14
kíló af e-töfludufti og um 1.700 e-töflur.
Rannsókn fíkniefnadeildar lögregl-
unnar var umfangsmikil og teygði anga
sína víða. Segir lögreglan, að mánuðum
saman hafi staðið yfir rannsókn á hugs-
anlegum innflutningi á miklu magni af
fíkniefnum hingað til lands sem síðar
leiddi til handtöku þriggja manna í og við
skútu á Fáskrúðsfirði að morgni 20. sept-
ember sl. Í framhaldinu voru fleiri menn
handteknir og yfirheyrðir.
Rannsókn
lokið – sex
verði ákærðir