Morgunblaðið - 22.12.2007, Side 24
|Saturday|22. 12. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Bolvíkingar hafa nýtt aðvent-
una vel til að undirbúa komu
jólanna og er bærinn nú ljósum
prýddur. »28
bæjarlífið
Austurríska borgin Vín er sann-
kölluð jólaborg og þangað er
gaman fyrir gesti að koma á að-
ventunni. »28
ferðalög
Jólaskrautið hefur tilfinn-
ingalegt gildi fyrir Rannveigu
Ásbjarnardóttur sem skreytir
heimili sitt hátt og lágt. »26
innlit
barnaefni. Mikil útgáfa
er á barnaefni á disk-
um, ekki sízt á banda-
rísku efni. Sumt af því
er gott. Annað verra.
Það er mikið framboð
af erlendum sjónvarps-
stöðvum og þess jafnan
gætt að hafa einhverjar
barnarásir með í þeim
pökkum, sem fólki
bjóðast af erlendum
stöðvum.
Er hugsanlegt að
bókaútgefendur séu í
samkeppni við þetta
myndefni, miklu frekar
en leikföng? Víkverja
sýnist að svo sé og þarf
ekki annað en fylgjast með háttsemi
barna til þess að komast að þeirri
niðurstöðu. Hvað veldur því að tals-
maður bókaútgefenda nefnir þetta
myndefni ekki? Er ástæðan kannski
sú að einhverjir bókaútgefendur
standa að útgáfu á slíku myndefni?
Víkverji leyfir sér að fullyrða að
það er myndefnið sem dregur úr
lestri bóka hjá börnum og til þess að
sporna gegn þeirri þróun þarf að
grípa til sérstakra ráðstafana og það
á heimilum fólks en ekki utan þeirra.
Áhyggjur Kristjáns B. Jón-
assonar eru réttmætar. Það er al-
varleg þróun ef börn hætta að lesa
bækur en horfa í staðinn stöðugt á
útlent myndefni. Það er t.d. engin
spurning að máltilfinning þeirra
dofnar ef þau horfa of mikið á erlent
myndefni. Það er þó skömminni
skárra þegar það efni er talsett.
Hvað segir Kristján B. Jónasson
um þessa tilgátu Víkverja? Er hún
alveg út í hött?
Á baksíðu Morg-unblaðsins í gær,
föstudag, birtist frétt
þess efnis, að engin
barnabók hefði komizt
á lista yfir 10 mest
seldar bækur að þessu
sinni. Um þetta segir
Kristján B. Jónasson,
formaður Félags ís-
lenzkra bókaútgefenda
í samtali við Morg-
unblaðið:
„Bóksala almennt er
mjög góð. Í því ljósi
vekur það óneitanlega
sérstaka athygli að
engin barnabók skuli
rata inn á topp 10 met-
sölulistann fyrir þessi jól og er það
ákveðið áhyggjuefni því það gæti
þýtt að færri kaupi barnabækur í ár
en í fyrra.“
Síðan segir Kristján:
„Það hefur verið mikið áhyggju-
efni hjá mörgum bókaútgefendum
að verðstríð á leikfangamarkaði
mundi hafa neikvæð áhrif á barna-
bókasöluna og e.t.v. eiga þær
áhyggjur átt rétt á sér. Leikföng
hafa verið ódýr og auðvitað hlýtur að
vera tilhneiging, bæði út af því og
þeirri umfjöllun, sem verið hefur um
leikföng, að fólk kaupi frekar leik-
föng en bækur fyrir börnin.“
Það er auðvitað alvarlegt mál,
mjög alvarlegt, að börn lesa færri
bækur en áður. En er skýring Krist-
jáns rétt eða er ástæðan kannski
dýpri og þar með alvarlegri?
Það er augljóst að börn sækjast
mjög í það myndefni sem er á boð-
stólum úti um allt. Það er hægt að
leigja myndbönd og diska með
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Þ
að er einhver hrífandi
stemmning við það að
kaupa nokkrar jóla-
gjafir á síðustu stundu,
jafnvel á sjálfan Þorlák.
Í því felst einhver einkennileg jóla-
leg ánægja og spenna sem eykur á
gleðina. Það er líka sagt að
skemmtilegra sé að gefa en að
þiggja. Í tímaskortinum skemmti-
lega eru þó nokkrar reglur sem
ráðlegast er að fara eftir og sú
fyrsta er að kaupa jólagjöf handa
ástinni í lífi sínu og börnunum. Síð-
an má huga að foreldrunum og
tengdó blessuðum og svo systkinum
og vinum þegar á tímann fer að
líða. Þegar tíminn er af svo skorn-
um skammti má ekki eyða miklu af
honum í vangaveltur. Takið ör-
skotsstund í að greina persónuleika
jólagjafaþegans og áhugamál og
kaupið síðan það fyrsta sem þið
tengið við viðkomandi. Það er lík-
legast til að vera það rétta. Þegar
halla fer á Þorlák og allar gjafir
komnar í hús jafnast svo ekkert við
að fá sér súkkulaði með alvöru
rjóma. Það er líka sönn jólaánægja.
Jólaánægja á síðustu stundu
Jólatíminn Úr
eru sígild gjöf,
karlmannsúr
frá DKNY
13.500 kr.,
kvenmannsúr,
16.600 kr.
Meba.
Tignarlegt fyrir dívuna Veski, 4.900 kr.
leðurhanskar, 6.300 kr. Drangey.
Silfruð
Belti, 4.990
kr. leður-
hanskar,
5.990 kr.
Company.
Silkimjúkt dekur Krem, olía og fleira í gjafa-
pakka, 4.790 kr. Body Shop.
Vasi Hið ein-
falda er oft
sígildast,
1.140 kr.
Búsáhöld.
Herralegt Hátíðlegir tískulitir sem henta jól-
unum, 2.990 kr. hvert bindi, Dressmann.
Hagnýtt
Hanski,
1.450 kr.
og potta-
leppar,
750 kr.
stk. Duka.
Útivera Skíða-
húfa, 2.490 kr. og
gleraugu, 4.490
kr. Útilíf.
Sportlegt Trefill frá Puma, 2.490
kr. og hanskar, 2.490 kr. Útilíf.
Frjálslegt form
Skál frá Alessi.
8.500 kr. Casa.
Krúttlegt Jólasokk-
ar, 1.290 kr. Cobra.
uhj@mbl.is
Stjörnujól Kertastjakar fyrir ljósið í
lífi þínu. Parið 200 kr. Tiger.
Morgunblaðið/Kristinn