Morgunblaðið - 22.12.2007, Síða 35

Morgunblaðið - 22.12.2007, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ SATURDAY 22. DECEMBER 2007 35 GUÐRÍÐUR Arnardóttir, bæjarfulltrúi Samfylking- arinnar í Kópavogi, er enn við sama heygarðshornið í Morg- unblaðsgrein 20. desember þar sem hún fjallar um trún- aðargögn sem hún fékk aðgang að sem pólitískt kjörinn fulltrúi. Hendur mínar eru sem fyrr bundnar. Ég get ekki rætt við hana í blöðunum um starfs- lokasamninga sem eðli máls samkvæmt eiga að fara leynt, bara ítrekað að þeir eigi sér eðlilega skýringu. Það breytir engu þótt hún segi að lög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna komi ekki í veg fyrir það. Umferðarlögin koma heldur ekki í veg fyrir það. Um þessi málefni er fjallað í sveit- arstjórnarlögunum, eins og ég benti á í fyrri grein minni. Þar segir m.a.: „Sveitarstjórn- armenn skulu gæta þagn- arskyldu um það sem þeir verða áskynja í starfi sínu og leynt á að fara samkvæmt lög- um eða eðli máls. Þagn- arskyldan helst áfram eftir að sveitarstjórnarmaður lætur af þeim störfum.“ Gleðileg jól. Gunnar I. Birgisson Trúnaður virtur Höfundur er bæjarstjóri í Kópavogi. Í BANDARÍKJUNUM er hefð í meiðyrðamálum þannig að sönn- unarbyrðin er hjá þeim sem fer í mál. Þannig þurfa frægð- arpersónur að sanna að logið hafi verið upp á þær telji þær sig eiga eitthvað sökótt við fjölmiðla eða einstakling. Í Bretlandi er þessu öfugt farið. Sá sem farið er í meið- yrðamál við þarf að sanna að allt sé satt og rétt sem haldið var fram. Við á Íslandi fórum bresku leið- ina þar til fyrir nokkrum árum þegar íslenskir dómarar ákváðu að sönnunarbyrðin sjálf væri lítils virði. Í stað þess taka þeir fyrst og síðast tillit til persónuréttar. Ef einhver telur brotið á persónurétti sínum, ef honum sárna skrifin, ef hann móðgast, skipta staðreyndir og sannleikur litlu og viðkomandi eru dæmdar fébætur. Þannig var það í Héraðsdómi á dögunum. Tvenn ummæli í Fréttablaðinu voru þar dæmd dauð og ómerk. Meðal annars fyr- irsögn á einum af þessum fjöl- miðlapistlum sem blaðamenn skrifa og birtast á sömu síðu og sjónvarpsdagskráin. Þar mátti ekki nota myndlíkingu um dag- skrárstefnu Skjás eins og birta með mynd af andliti Skjás eins á þeim tíma, Magnúsi Ragnarssyni. Af því að það særði hann og móðg- aði og því koma til fébætur. Það mátti ekki heldur segja frá því í Fréttablaðinu að starfsfólk á markaðsdeild 365 væri að upp- nefna Magnús sín á milli og hafa eftir uppnefnið. Það særði hann og móðgaði og því koma til bætur. Þá mátti ekki koma með yfirlýs- ingar um einkalíf Magnúsar í DV, eftir að Séð og heyrt birti frétt um skilnað. Það særði þá sem áttu í hlut og peningar látnir bæta það. Í heildina voru Magnúsi Ragn- arssyni, leikara og fyrrverandi sjónvarpsstjóra Skjás eins, dæmd- ar 1,5 milljónir í bætur vegna meiðyrða. 365 á að auki að greiða 480 þúsund krónur til að standa straum af birtingu dómsins í dag- blöðum og 480 þúsund krónur í málskostnað. Við erum á hálum ís, svo ekki sé meira sagt, þegar við hverfum al- veg frá bresku leiðinni og búum til þá séríslensku með persónurétt að leiðarljósi. Við hljótum að gera þá kröfu að meiðyrðalöggjöfin sé byggð á sannleika en ekki hug- lægu mati á því hvort einhverjum líði illa eða móðgist. Hvað þá þegar tekið er inn í reikninginn að fórnarlamb hrotta- legrar hópnauðgunar getur ekki gert ráð fyrir nema broti af þeim bótum sem Magnús fær af því að hann móðgaðist út í Fréttablaðið, DV og 365. Mikael Torfason 365 dæmt fyrir meiðyrði Höfundur er rithöfundur og blaðamaður. Í NÝÚTKOMINNI Sögu, tímariti sögufélags, er grein eftir Guðna Th. Jóhannesson sagnfræðing um loft- varnir og almannavarnir á Íslandi 1951-1973. Greinin nefnist „Ef kjarnorkusprengja spryngi yfir Reykjavík dæju allir bæjarbúar.“ Á bls. 27 er sagt frá greinargerð sem unnin var fyrir íslensk stjórnvöld í kringum 1960. Þar er m.a. greint frá áætl- unum um brottflutning vegna hugsanlegrar kjarnorkuárásar. Fram kemur að flytja þyrfti alla frá Keflavík- urflugvelli nema þá sem sinntu lífsnauðsyn- legum störfum. Enn fremur er greint frá því að íbúar í Hvalfirði yrðu líklega að flýja þaðan og einnig stórir hópar úr höfuðborginni. Hvers vegna er minnst á þessa þrjá staði á Íslandi, Keflavíkurflugvöll, Reykjavík og Hvalfjörð? Reykjavík var talin í hættu vegna þess að hún var höf- uðborg og Keflavíkurflugvöllur var auðvitað talinn skotmark vegna þess að þar var herstöð. En ástæðan fyr- ir því að Hvalfjarðar var sérstaklega getið var sú að í Hvalfirði var að finna áratugum saman stærstu her- stöð og herbirgðastöð á Íslandi utan Keflavíkurflugvallar. Þar hafði jörð- in Miðsandur verið tekin eign- arnámi undir þessa herstöð og íbúar Hvalfjarðar urðu að sætta sig við návist hennar án þess að vera spurðir. Árið 2002 gáfu stjórnvöld út reglugerð um umferð og dvöl manna á varnarsvæðum. Þar var gert ráð fyrir að öll varnarsvæði á Íslandi yrðu sérstaklega auglýst sem slík, enda umferð Íslendinga verulega takmörkuð um þessi svæði. Þetta var vandlega gert með Keflavík- urflugvöll en stjórnvöld gleymdu varnarsvæðinu í Hvalfirði. Það var aldrei lýst varnarsvæði eins og stjórnvöldum bar að gera. Þegar ég vakti athygli utanrík- isráðuneytisins á þessu haustið 2006 tók það utanríkisráðuneytið átta mánuði að svara fyrirspurn minni og þurfti ítrekanir til. Ástæðan er nátt- úrlega þessi pínlega handvömm ráðuneytisins. Svarið kom loks í júní 2007. Bréf mitt (sent 17. október 2006) hafði hins vegar þau áhrif að utanríkisráðuneytið flýtti sér að gefa út auglýsingu þremur vikum eftir móttöku bréfs míns, þar sem tilkynnt var að „varn- arsvæðið“ í Hvalfirði skyldi tekið í borg- araleg not og fært undir forræði fjár- málaráðuneytisins. Ástæðan fyrir því að ég greini frá þessu er sú að árum saman var sveitarstjórn þá- verandi Hvalfjarð- arstrandarhrepps (nú Hvalfjarðarsveitar) talin trú um að þar sem NATO-stöðin í Hvalfirði væri „varn- arsvæði“ þyrfti alls ekki að láta meta umræddar eignir í fast- eignamati þrátt fyrir skýlaus laga- fyrirmæli þar um og þar af leiðandi fékk sveitarfélagið engar tekjur af fasteignagjöldum af öllum þessum eignum. Þar sem NATO-stöðin í Hvalfirði væri „varnarsvæði“ þyrfti ekki heldur að ákveða notkun þessa landsvæðis í aðalskipulagi þrátt fyr- ir skýlaus lagafyrirmæli þar um. Þegar fjármálaráðuneytið fékk yfirráð yfir NATO-stöðinni í nóv- ember 2006, var fljótlega tekin ákvörðun um að selja þetta „varn- arsvæði“ hæstbjóðanda. Meiri mannsbragur hefði nú verið á því að afhenda Hvalfjarðarsveit og íbúum hennar þennan skika með öllum mannvirkjum. NATO-stöðin stend- ur á einhverjum fallegasta stað á Ís- landi innarlega í Hvalfirði og mögu- leikarnir óþrjótandi í ferðamennsku og mörgu öðru svona alveg í grennd við höfuðborgarsvæðið. Það hefðu verið nokkrar bætur fyrir allan átroðninginn, kjarnorkuárásarhætt- una og fasteignagjaldatekjuleysið öll þessi ár. En úr því að fjármálaráðuneytið var staðráðið í að selja NATO- stöðina hæstbjóðanda hefði a.m.k. verið lágmark að ráðgast um stöðu mála við sveitarfélagið. Varla var hægt að auglýsa til sölu mannvirki sem hvergi voru til í fasteignamati? Varla var hægt að auglýsa til sölu mannvirki sem ekki voru til í að- alskipulagi, þannig að væntanlegur kaupandi hefði ekkert fast í hendi um hvaða landnotkun sveitarfélagið myndi leyfa þarna? Fjármálaráðuneytið hafði engar áhyggjur af þessu og lét Ríkiskaup auglýsa eftir hæstbjóðanda í þessar eignir. Sveitarstjórn frétti af þessu á skotspónum og tókst að fá fund með fulltrúum fjármálaráðuneyt- isins þremur dögum áður en eign- irnar voru auglýstar til sölu. Lítið var á þeim fundi að græða. Fram- haldið þekkja menn. Skeljungur bauð hæst í eignirnar eða 470 millj- ónir og auðvitað í trausti þess að sveitarfélagið myndi heimila olíu- birgðastöð á þessu svæði við gerð aðalskipulags. Fyrir hönd Hvalfjarðarsveitar er ég mjög ósáttur við þessi vinnu- brögð utanríkisráðuneytis og fjár- málaráðuneytis. Ég hef nú kvartað til umboðsmanns Alþingis yfir því að seldar skuli vera eignir sem hvergi eru til skráðar og það án nokkurs samráðs við sveitarfélagið. Að stjórnvöld skuli telja sveitarstjórn trú um að „varnarsvæði“ skuli und- anþegin skipulagslögum og lögum um skráningu og mat fasteigna. Við bætist svo þegar ráðuneyti dregur sveitarfélag í 8 mánuði á svari og setur reglugerðir sem skyldar ráðu- neytið sjálft til þess að lýsa ákveðið landsvæði varnarsvæði en gleymir svo að framfylgja eigin reglugerð. Þetta verður að teljast léleg stjórnsýsla og ámælisverð fram- koma gagnvart íbúum Hvalfjarð- arsveitar. Yfir henni er kvartað til umboðsmanns Alþingis. Varnarsvæði til sölu Einar Örn Thorlacius ræðir um sölu á fyrrverandi „varnarsvæði“ í Hvalfirði »Meiri mannsbragurhefði nú verið á því að afhenda Hvalfjarð- arsveit og íbúum hennar þennan skika með öllum mannvirkjum. Einar Örn Thorlacius Höfundur er sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar. Til sölu glæsileg tveggja herbergja kjallaraíbúð, Snorrabraut 36, frábær staðsetning v/miðbæinn, nýjar skolpleiðslur, nýjir ofnar, ný gólfefni, nýjar innréttingar, nýjar hurðir og fl. Íbúðin er ósamþykkt. Verð 18,9 millj. - veðbandalaus. Tek jafnvel V-8 jeppa eða pickup allt að 6 millj. sem innborgun. Jón Egilsson hdl., sími 568 3737/896 3677. Til sölu glæsileg 2ja herbergja kjallaraíbúð Afmælisþakkir Hjartans þakklæti sendi ég til allra vina og ættingja sem heiðruðu mig og glöddu á 80 ára afmæli mínu 30. september og gerðu daginn ógleymanlegan. Með ósk um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Guð veri með ykkur öllum. Lifið heil. Guðbjörg Lilja Guðmundsdóttir Kristján Páll Sigfússon Bjarna Benediktssonar-styrkir til lögfræði- og sagnfræðirannsókna Umsóknarfrestur er til 1. febrúar 2008 Rannís Rannsóknamiðstöð Íslands Laugavegi 13, 101 Reykjavík www.rannis.is Auglýst er eftir umsóknum um rannsóknarstyrki úr sjóði til minningar um Bjarna Benediktsson lagaprófessor og forsætis- ráðherra. Veittir verða sex styrkir árið 2008 til rannsókna á sviði stjórnsýslu- og stjórnskipunarréttar annars vegar og hag- og stjórnmálasögu 20. aldar hins vegar. Úthlutun miðast við faglegt mat á gæðum rannsóknarverkefnis, færni og reynslu umsækjanda til að stunda rannsóknir og aðstöðu hans til að sinna verkefninu. Sjóðurinn er í vörslu Rannsóknamiðstöðvar Íslands (Rannís). Reglur og umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu Rannís, www.rannis.is. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.