Morgunblaðið - 23.03.2008, Page 12
12 SUNNUDAGUR 23. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
F
ötin skapa manninn,
eins og allir vita, og
þannig er það líka í
EVE Online. Harpa
Einarsdóttir lærði fatahönnun
í Listaháskólanum og útskrif-
aðist árið 2005.
„Ég sótti bæði um í myndlist
og fatahönnun, þannig að
myndlistin hefur loðað við mig
og hér næ ég að sameina þetta
tvennt,“ segir hún. „Torfi [Frans Ólafsson]
þekkti til mín, hringdi í mig fyrir ári og spurði
hvort ég vildi ekki prófa. Hann vissi að ég hafði
fengist við að teikna. Ég gerði nokkrar prufu-
skissur fyrir þá og var eiginlega ráðin á staðn-
um.“
Harpa segist ekki aðeins fylgja hjartanu í
hönnun á búningum fyrir EVE Online. „Fjórir
þjóðflokkar ráða ríkjum, áherslurnar eru því
ólíkar og ég fylgi þeim. Ég byrjaði á her-
mannaþjóðflokknum Caldari og undirflokki
þeirra, Achura. Svo gerði ég búninga á konurnar
í Galente, einnig undirflokk þeirra, og nú vinn ég
að Sebiestor, sem er myrk og meira „goth“, ekki
þó mjög pönkuð heldur á fínni nótum, dálítið í
anda Marilyn Manson. Ég gerði mikla skissu-
vinnu fyrir alla ættbálkana en þetta er það sem
búið er að mála og senda til Kína í framleiðslu.
Þar er þessu breytt í þrívíddarforrit þannig að
hægt sé að nota það í leiknum.“
Stefnt er að því að framleiða föt sem byggð
eru á hönnuninni fyrir leikinn. Ráðinn hefur ver-
ið maður til að halda utan um þá vöruþróun,
finna framleiðendur og svo framvegis. Til skoð-
unar er að framleiða þau í Japan þar sem færir
fatahönnuðir kæmu að verkinu. „Það yrði gíf-
urlega spennandi af því að ég vissi ekki að þetta
færi það langt þegar ég byrjaði,“ segir Harpa.
„Það væri gaman að sjá þetta verða til í alvöru.
Þá yrði draumur að veruleika.“
Harpa segir að vel sé hugsað um starfsmenn
hjá CCP, þeir séu til dæmis að fara í árshátíð-
arferð til Marrakesh í Afríku. „En það er óneit-
anlega skrítið fyrir mig að starfa á vinnustað,
þar sem fólki þarf ekkert að hugsa um útgang-
inn á sér, eftir að hafa verið í umhverfi þar sem
skiptir öllu máli að vera vel klæddur og vita allt
um tískuna,“ segir hún og hlær. „En mér líður
voða vel þarna.“
ÆTTBÁLKAR
EIGNAST BÚNINGA
Harpa Einarsdóttir
TÖLVULEIKIR
ars er hætt við að óvinaherir spilli
verkinu. Í þessu tilfelli vissu innan
við tíu hvað stóð til, þó að hinir útveg-
uðu efni eða framleiddu hluti.
Lýðræði komið á fót
Þegar náð var tali af Eyjólfi síðast-
liðið þriðjudagskvöld, þá fylgdist
hann spenntur með nýja kosn-
ingakerfinu, sem hleypt var af stokk-
unum klukkan fjögur um daginn.
„Þetta var tilkynnt á „fanfesti“ í nóv-
ember, en frambjóðendum var gefinn
kostur á að bjóða sig fram í kvöld,
þannig að ferlið er hafið.“
Kosningin fer fram á umræðuvef
spilara, sem er fyrir utan leikinn, en
þar skiptast menn á skoðunum. Svo
virðist sem ekki verði hörgull á fram-
bjóðendum. „Þetta er nýtt af nálinni
og enginn veit hvernig svona lýðræð-
isferli virkar í þessu umhverfi. Það
hafa verið mynduð fulltrúaráð, þar
sem tilteknir spilarar hafi verið valdir
til þátttöku, en þetta er í fyrsta skipti
sem slíkt val fer fram í lýðræð-
islegum kosningum.“
Fulltrúaráð spilaranna kemur til
með að standa saman af níu fulltrú-
um spilaranna, sem koma til fundar
við CCP á Íslandi einu sinni á hverju
kjörtímabili, sem er sex mánuðir, og
ræða við þróunarteymið um mál sem
þeir telja mikilvægust á næstu miss-
erum eða í nánustu framtíð. „Það
verður farið yfir þær ábendingar og
við þurfum að rökstyðja vel hvers
vegna við teljum eitthvað mögulegt
og hvers vegna ekki,“ segir Eyjólfur.
Hann segir þetta nauðsynlegt, því
heimur EVE Online sé orðinn það
stór, telji 230 þúsund einstaklinga og
280 þúsund ef þeir eru taldir með
sem eru í prufuáskrift. „Þetta nálgast
því heildarfjölda íslensku þjóð-
arinnar. Þegar spilendahópurinn er
orðinn svona stór og býr í einum
heimi, þá verður samfélagið svo flók-
ið að það þarf að grípa til þessara
helstu stofnana, ef lýðræði er stofn-
un, sem við þekkjum úr veru-
leikanum. Þannig að þetta er sam-
félag í mótun.“
Lokað hagkerfi
Gjaldmiðillinn í EVE Online nefn-
ist „interstellar credits“. Og EVE er
rekinn sem lokaður heimur, þannig
að spilarar eiga ekki að geta skipt út
gjaldmiðlum úr þeim heimi, heldur
eingöngu sín á milli. Í sumum sam-
bærilegum leikjum er það leyft, en
ekki í EVE Online.
„Hins vegar eru spilararnir að
sjálfsögðu mjög klárir,“ segir Eyjólf-
ur. „Þetta er leikur fyrir fólk sem
hefur gaman af heilaleikfimi og það
hefur myndast á netinu svartur
markaður fyrir þennan gjaldmiðil. Ef
við komumst að slíku, þá tökum við
fyrir það eins og hverja aðra ólöglega
starfsemi.“
– Er brugðist hart við?
„Já, það hefur verið gripið til að-
gerða sem hafa haft áhrif á þennan
svarta markað.“
Einnig er fylgst með því að starfs-
menn misnoti ekki aðstöðu sína með
þátttöku í leiknum. Þeir sem koma að
þróun leiksins þurfa að taka þátt í
honum, en það gilda strangar reglur
um hegðun þeirra og þeir eru með
opinberar skrár. Nokkrir starfsmenn
hafa gaman af því að spila leikinn
þess utan, en þeir lúta eftirliti.“
Erfitt er að segja til um hversu
löngum tíma spilarar verja í leiknum.
„Þetta er svo fjölbreyttur leikur að
það gefur ranga mynd að horfa ein-
göngu á þær tölur,“ segir Eyjólfur.
„Þeir sem eru stjórnendur í stórum
fyrirtækjum í leiknum hafa sagt að
þeir eyði minnstum tíma í leiknum
sjálfum. Þeir verji mestum tíma fyrir
utan leikinn í að skipuleggja aðgerðir
sem gripið verður til í nánustu fram-
tíð. EVE er nefnilega leikur sem
byggist á strategískum aðferðum,
sem hugsaðar eru þrjá til tólf mánuði
fram í tímann.“
Hann segir dæmi um að þeir sem
taki þátt í þessum heimi hafi ákveðið
að koma sér í lykilstöður í óvinafyr-
irtæki. Þeir gerist njósnarar, skrái
sig inn í fyrirtæki, ávinni sér traust
og brjóti fyrirtækið innan frá. „Við
vitum um eitt dæmi, sem tók tólf
mánuði frá því aðgerðin hófst og þar
til markmiðinu var náð. Svo hafa aðr-
ir gaman af því að grípa í spilið, leysa
kannski eitt eða tvö verkefni. Enn
aðrir fylgjast með markaðnum,
kaupa hér og selja þar gegn hærra
verði. Fólk fer inn með eigin mark-
mið og á eigin forsendum. Það er erf-
itt að tala um meðaltalstíma í þeim
efnum.“
– Hvað verða fyrirtækin stór?
„Stærsta fyrirtækið er með um
2.500 til 3.000 meðlimi. Síðan bindast
þessi fyrirtæki samtökum og stærstu
samtökin eru með um fimm þúsund
meðlimi innan sinna vébanda.“
– Hefur Samkeppnisstofnun frétt
af því?
„Nei, og við myndum ekki hafa
áhyggjur af því innan þessa heims,
vegna þess að heimurinn er svo fjöl-
mennur að ein samtök hafa ekki
möguleika á að ráða stærstu mörk-
uðunum. Við vitum að það eru 66
staðbundnir markaðir í EVE, sem
tengjast þó allir þannig að vörur
flæða frjálst á milli. Einstaklingar
hafa reynt að króa af einstaka mark-
aði, en það hefur sjaldnast tekist til
lengdar.“
Strangar reglur í Kína
EVE Online er einnig haldið úti í
Kína, en þar er leikurinn á öðrum
netþjóni og á kínversku. „Það gilda
strangar reglur um fyrirtæki sem
starfa í Kína, leikjaþjónninn og rekst-
urinn verður til dæmis að vera þar,“
segir Halldór Fannar Guðjónsson.
„Þetta er vaxandi markaður og þar
erum við með þriðja leikjastúdíóið,
þannig að við erum einnig að fram-
leiða leik þar. En það er stutt komið,
uppbyggingarstarf enn í gangi og við
erum að tryggja okkur lykilmenn.
Við úthýsum líka ákveðinni vinnu
þar, t.d. sá 50 manna stúdíó í
Sjanghæ um að endursmíða öll geim-
skipin fyrir síðustu stóru uppfærslu á
EVE Online. Í því fólst gríðarleg
vinna, það fóru 100 mannár í það
verk, sem tók tvö ár í vinnslu. Við
hefðum ekki getað gert það á Íslandi,
því ekki er nógu mikið af fólki til með
þá sérþekkingu sem þarf.“
Hann segir að verkefni af þessu
tagi henti vel til úthýsingar. „Við
sjáum fyrir okkur að gera meira af
þessu í framtíðinni. Þegar ég vann
hjá Electronic Arts þá voru kannski
100 til 200 manns að vinna að einum
leik og það er erfitt skipulagslega,
Það tók 600
manns um all-
an heim sex
mánuði að
byggja fyrstu
geimstöðina
vorið 2006
A
lan Greenspan Eve Online er hag-
fræðingurinn Eyjólfur Guðmunds-
son, nema doktor Eyjó, eins og hann
er kallaður innan CCP, er valdameiri
ef eitthvað er. „Ég er með tvo hatta, er bæði
greinandinn sem greinir hagkerfið út frá
gögnum sem við höfum og eins sá sem veitir
ráðleggingar um hvert skuli halda. Síðustu
sex mánuði höfum við safnað sögulegum upp-
lýsingum um hagkerfið til að átta okkur á því
hvernig það virkar til lengri tíma litið.“
– Og hvernig virkar það?
„Einfaldasta svarið er að allar vísbend-
ingar benda til þess að þar gildi sömu lögmál
og í raunverulegum hagkerfum. Að sjálf-
sögðu er þetta ekki raunveruleiki heldur ann-
ar heimur en hann byggir á sömu forsendum
og hagkerfi raunheimsins þar sem verðvænt-
ingar eru ráðandi um verðlagningu á mörk-
uðum, þar sem eftirspurn ræðst af framboði
hverju sinni og þar sem hvati einstaklingsins
til að ná árangri er drifkrafturinn í kerfinu.“
– Er þetta draumaveröld hagfræðingsins?
„Engin spurning, vegna þess að maður hef-
ur tækifæri til að skoða hvernig einstaklingar
hegða sér, í fyrirfram ákveðnu umhverfi,
með tilteknum meginmarkmiðum til að kom-
ast af og reyna að ná betri árangri en næsti
spilari. Og það liggja fyrir gögn um allt sem
gert er, sem er oft það sem hagfræðinga
vantar til að þróa sínar kenningar.“
– Má draga lærdóm af því í raunheimum?
„Það verður örugglega þannig í framtíð-
inni að hægt verður að draga lærdóm af
hegðun fólks innan þessa kerfis. Við höfum
séð verðbólur á mörkuðum hjá okkur, líkt og
gerist í raunveruleikanum, en okkar heimur
er á hraðari skala, við sjáum bólurnar skýrar
og ástæður upphafs og hruns. Hjarðáhrif eru
nokkuð augljós innan þessa heims og ef sú
hegðun er yfirfærð á okkar veruleika, miðað
við núverandi ástand, yrði lærdómurinn sá að
halda sjó, halda ró sinni, fylgjast með mörk-
uðum en gera ekki endilega ráð fyrir að nú-
verandi ástand sé varanlegt – þetta gæti ver-
ið yfirskot.“
– Er verðbólga í EVE Online?
„Á síðasta ári jókst framboð á vörum vegna
tækniframfara og aukinnar framleiðslu og al-
mennt verðlag lækkaði. Veltan óx samt sem
áður, þannig að heimurinn stækkaði, en það
var verðhjöðnun á helstu mörkuðum. Undir
lok ársins snerist það við og það myndaðist
verðbólga á lágu stigi.“
– Hvaðan koma peningarnir?
„Peningarnir verða til þegar spilarar inna
af hendi ákveðna þjónustu fyrir umhverfið.
Þeir fá verkefni og ef þeir leysa þau fá þeir
reiðufé og ýmsa hluti sem þeir afla sér í leið-
inni. Þannig komast nýir peningar inn í kerf-
ið og svo velta þeir á milli eftir því sem menn
stunda viðskipti sín á milli. Það er eingöngu
greitt fyrir unna vinnu og ekkert fé verður til
nema þátttakendur leggi eitthvað af mörk-
um.“
– Er hagstjórnartækjum beitt?
„Almenn og opinber stefna þessa hagkerfis
er sú að láta kerfið ráða sér að mestu sjálft,
„fair approach“ ef við notum tækniorðin. Við
viljum ekki blanda okkur inn í hagstjórnina
sem slíka heldur leyfa kerfinu að jafna sig
sjálft ef um breytingar er að ræða. En við
fylgjumst náið með því sem gerist og ef við
teljum að eitthvað í hönnun leiksins hafi slæm
áhrif grípum við inn í.“
Lærdómur Eyjólfur Guðmundsson segir hag-
fræðinga geta lært ýmislegt af EVE Online.
Í DRAUMAVERÖLD
HAGFRÆÐINGSINS